Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Side 21
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 33 Fréttir Þeir lentu í feiknaveiöi þeir Jóhannes Guðmundsson og Svanur Jónatans sem hér er við veiðina úr Fjótaá í Fljótum fyrir fáum dögum, 212 bleikjur og þrjá laxa. Yfir 6000 bleikjur eru komnar á land úr ánni núna. DV-mynd JSS Mok bleikjuveiði 1 Fljótaá í Fljótum: Yf ir sex þúsund komnar á land - en aðeins hafa veiðst 60 laxar Ekkert lát virðist ætla aö verða á góðri bleikjuveiði víða um landið þetta árið enda hafa veiðimenn sjald- an séð eins mikið af þeim og margar þeirra stórar í veiðiánum núna. Sums staðar eru veiðiárnar svartar af vænum og fallegum bleikjum. Þetta viröist vera um allt landið hvað varðar sjóbleikjuna og veiði í mörg- um vötnum er líka góð núna, bæði í bleikjunni og urriðanum. „Þetta var ævintýri þarna í Fjóta- ánni en ég og veiðifélagi minn, Svan- ur Jónatansson, vorum við veiðar í tvo daga. Við fengum þrjá laxa og 212 bleikjur," sagði Jóhannes Guð- mundsson sem var að koma úr Fjóta- ánni fyrir fáum dögum. „Við fengum 13, 6 og 5 punda laxa og 212 bleikjur frá 1 til 2,5 pund. Mestan hluta af þessum afla veiddum við á flugur og litla spinnera. Veiði- menn sem komu á eftir okkur veiddu 430 bleikjur á tveimur dögum. Fljótaá er feiknalega falleg og magn af bleikju í ánni er með eindæmum mikið. Áin er svört af bleikju víða, það er því ljóst að erfltt mun reynast fyrir veiðimenn að koma fisklausir úr henni,“ sagði Jóhannes enn frem- ur. „Það hafa veiðst 66 laxar og yfir 6000 bleikjur, bleikjuveiðin hefur gef- ið vel en laxveiðin er minni en efni stóðu til,“ sagði Trausti Bjarnason, bóndi á Bjarnargili í Fljótum, í gær- kveldi, er viö spurðum frétta af þess- ari feiknalegu bleikjuveiði í ánni. „Stærsti laxinn í sumar er 22 pund, en þegar laxveiðin er góð dettur bleikjan niður og svo öfugt. Sviss- lendingar voru hérna um daginn og veiddu á eina stöng 100 bleikjur. Flestar eru bleikjurnar eitt og tvö pund en þær fyrstu sem veiddust snemma sumars voru flmm pund þær stærstu. Veiðimenn fengu 74 bleikjur snemma í sumar og 20 af þeim voru kringum 5 pund. Við veið- um til 20. september og það er nóg af fiski í ánni ennþá,“ sagði Trausti í lokin. Flugvél kyrrsett á Akureyri: Grunur um fíkniefnasmygl Lítil einkaflugvél var kyrrsett á Þjóðverji. Véhn var umsvifalaust Akureyrarflugvelli í gærkvöld innsigluð og lögregluvörður settur vegna gruns um að fíkniefhi kynnu um hana. Mennirnir voru settir í að vera um borð. varðhald. Von var á hasshundi frá Vélin var að koma ífá Noregi og Reykjavík í hádeginu í dag og átti í henni voru Bandaríkjamaöur og þá að leita í vélinni. íslenskt f yrirtæki í rannsókn vegna sykurviðskipta Tafir á ESB-skýrslu HÍ: Meiri vinna , en talið var Úttekt Háskólans á kostum og göll- um aðildar að Evrópusambandinu er ekki enn tilbúin en hennar hefur verið beðið í allnokkurn tíma. Ríkisstjórnin ákvað í byrjun mars á þessu ári að láta Háskólann gera athugun á kostum og göllum og var gert ráð fyrir að niðurstöður myndu hggja fyrir um mitt árið. Sá tíma- rammi stóðst hins vegar ekki. Þegar umræður um aðild að ESB stóðu sem hæst í sumar var gert ráð fyrir að úttektin yrði tilbúin í fyrstu vikunni í ágúst. í utanríkisráðuneytinu er nú hins vegar ekki búist við að niður- stöður berist ráðuneytinu fyrr en í næstu viku. Fimm stofnanir HÍ vinna að af- mörkuðum málaflokkum og skilar hver sinni skýrslu. Þessar stofnanir eru hagfræðistofnun, félagsvísinda- stofnun, sjávarútvegsstofnun, al- I þjóðamálastofnun og lagastofnun. Að sögn Kristins Árnasonar hjá við- skiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins er vinnunni að mestu lokið og búist er við fjórum skýrslum í næstu viku og þeirri síðustu um miðjan september. Kristinn segir að meiri vinna hafi verið við úttektina en menn gerðu ráö fyrir í upphafí og einnig hafi sumarfrí tafið fyrir. Utanríkisráð- herra mun fá skýrslurnar í hendum- ar en Kristinn segir ekkert hafa ver- ið rætt um hvaö við þær verði gert. „Alþjóða verslunarráöið var beðið um að rannsaka sykurviðskipti fyr- irtækis sem skráð er hér á landi en að undanförnu hafa komið upp atvik hingað og þangað um heiminn þar sem sykurfarmar hafa verið boðnir til sölu með bankatryggingu. í ein- hverjum slíkum tilfellum hefur syk- urfarmurinn aldrei verið til,“ segir Baldvin Bjöm Haraldsson, fram- kvæmdastjóri landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins hér á landi. í byrjun vikunnar barst viðvörun til landsnefndar Alþjóða verslunar- ráðsins vegna sykurviðskipta í heim- inum og yfirlýsing um að verið væri að skoða viðskipti íslenska fyrirtæk- isins. Upplýsingar um rannsóknina em af skornum skammti og neitar Baldvin Björn að gefa upplýsingar um hvaða fyrirtæki um er að ræða. Ekki er ljóst hvenær niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR SALA AÐGANGSKORTA ER HAFIN. SEX SÝNINGAR AÐEINS KR. 6.400. Kortagestir siðasta leikárs hafa forkaupsrétt til 1. september. OPIÐ HÚS verður laugardaginn 3. september kl. 14-17. Miðasala hefst á Óskina/Galdra Loft á laugardag. Miðasala er opin alla daga frá kl. 13.00-20.00 á meðan kortasalan stendur yfir. Pantanir i sima 680680 alla virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 11200 Endurnýjun áskriftarkorta stendur yflr til 1. september. Sala áskriftarkorta til nýrra korthafa hefst 2. september. Með áskriftarkorti má tryggja sæti að óperunni Vald örlaganna. Miðasala á óperuna hefst 9. september. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur. Tekið á móti símapöntunum alla virka daga frá kl. 10. Græna línan 99 61 60. Bréfsími 6112 00. Simi 112 00 - Greiðslukortaþjónusta. TiXkynningar Vörn gegn vímu Nú er að fara af stað sérstakt átak undir slagorðinu Látum ekki í minni pokann fyrir vímuefnum. Ætlunin er aö selja plastpoka sem plastverksmiðjan Plastos hefur gefið. Um er að ræða fjölnota plast- poka sem verða seldir á 250 kr. stk. Hljóðmynd í dag kl. 17 verður frunúlutt í A sal Regn- bogans hljóðmynd eftir Þorstein Joð sem ber nafnið Guð er góður. Tilefnið er stofn- un Hljóðmyndaverkstæðis rásar 2. Félag eldri borgara Bridgekeppni, tvímenningur í Risinu kl. 13 í dag. Fyrirhuguö er sigling um Sund- in með Leifl Eiríkssyni fóstudaginn 2. september kl. 19. Kaffiveitingar og dans. Fararstjóri Pétm- H. Ólafsson. Skrásetn- ing í s. 28812. Félag eldri borgara í Kópavogi Á morgun kl. 13.15 heflum við spila- mennsku á ný að Fannborg 8. Málverkauppoð í kvöld kl. 20.30 stendur Gallerí Borg í samvinnu við Listmunauppoð Sigurðar Benediktsonar fyrir málverkauppoði á Hótel Sögu. Boöin verða upp 90 verk eftir þekkta myndlistarmenn. Uppoösverkin eru sýnd í Gallerí Borg við Austurvöll alla daga fram að uppboði. Tombóla Björgvin, Birgir, Pétur, Kristján, Svavar og Lady héldu tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Þeir félagarnir söfnuðu alls 623 kr. Drengjakór Laugarneskirkju Vetrarstarf Drengjakórs Laugames- kirkju hefst hinn 1. september nk. Á næstu vikum verður auglýst eftir nýjum drengjum í kórinn og mun raddprófun fara fram fljótlega eftir þaö. Stjómandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson. Nr.111 9-700kr- Stærö: L63-D40-H60 Litur: Svart M h>ic 9.800 kr. Nr. 146 Stærö:L82-D40-H105 Litur:Svart .. ... 5.900 kr. Nr. 114 Stærö:L83-D40-H45 Litur: Svart Nr.143 12-500kr Stærð: L82-D40-H60 Litir: Svart, hvítt, beiki og mahóní Mr.,45 13'500kr- SiærO: L82-D40-H105 Litur: Svart SÍDUMÚU 30 >síml 686822 OpW mánud.-föstud. 8-18 lauflard.10-17-sunnud.14-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.