Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994
3
Fréttir
Atviimuleysi minnst á Vestflörðum:
Islendingar f ást ekki í f iskvinnu
vantar fólk, segir framkvæmdastjóri Kambs á Flateyri
„Við eru búnir að auglýsa eftir fólki
í allt sumar en fáum sáralítil við-
brögð, þess vegna höfum við farið út
í það að ráða útlendinga í vinnu. Við
sjáum fyrir okkur gott atvinnu-
ástand í vetur, það hefur ekki fallið
úr dagur hjá okkur síðan í janúar,“
segir Hinrik Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Kambs hf. á Flateyri.
Það hefur vakið athygli að atvinnu-
ástand á Vestfjörðum er mjög gott
samkvæmt opinberum tölum. Með-
alatvinnuleysi á Vestfjörðum er síö-
ustu 12 mánuði lægst á landinu, eða
2,3 prósent á móti 6,6 prósentum á
Norðurlandi eystra. Hinrik segir að
almennt sé gott atvinnuástand um
alla Vestfirði, vandamáhð sé hins
vegar það að fólk virðist ekki vilja
starfa við fiskvinnslu.
„Það er erfitt að reka svona fyrir-
tæki þegar fólk er sífellt að koma og
fara. íslendingar haldast illa í fisk-
vinnslunni. Okkur skortir sérhæft
fiskvinnslufólk. Hér er til staðar hús-
næði fyrir það fólk sem vildi koma,
Skipstjórinn á Stefni ÍS:
en allt kemur fyrir ekki. Við horfum
til þess að með bættum samgöngum
og aukinni sameiningu og samruna
muni opnast möguleikar á meiri
stöðugleika. Fólk muni þá í auknum
mæli sækja vinnu hér á milli staða,“
segir Hinrik.
Vestfjarðamiðin frið-
uð fyrir þorskveiðum
- engin skip við þorskveiðar
„Það má segja að Vestfjarðamiðin
séu friðuð fyrir þorskveiðum. Við
erum alltaf að leita að öðrum tegund-
um en þorski, enda kvótinn rýr,“
segir Sveinn Pétursson, skipstjóri á
togaranum Stefni frá ísafirði.
Sveinn segir að þeir hafi aðeins
komið við í þorskinum og fengið allt
að 20 tonnum í hali.
„Við höfum komið við á Halanum
og þar í kring. Það virðist vera næg-
ur þorskur en enginn til að veiða
hann. Það virðast allir vera með það
lítinn þorskkvóta að enginn hefur
ráð á að veiða þorsk í neinu magni,"
segir Sveinn og bendir á að ef þeir á
Stefni veiði sinn kvóta og kvóta
Framness, sem er hjá sömu útgerð,
þá séu það 50 tonn af þorski á mán-
uði.
Starfsmenn Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga báru eld að ysta húsi Búða-
hrepps, Strönd, fyrir skömmu en húsið þurfti að víkja fyrir væntanlegri loðnu-
verksmiðju. Húsið, sem staðið hefur autt um árabil, hýsti eitt sinn skrifstof-
ur kaupfélagsins auk þess að vera ibúð kaupfélagsstjóra í mörg ár. Húsið
var reist á árunum 1926-30 af norskum manni, One Stangeland, sem bjó
í húsinu i nokkur ár, en hann flutti siðan aftur til Noregs fyrir 1940.
DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði
Fyrrum bóndi úr Rangárvallasýslu:
Varð var við sauðaþjóf nað
„Allan tímann sem ég bjó að Leiru-
bakka hurfu hjá mér lömb á haustin.
Ég reyndi eitt sinn að kæra og færði
þetta í tal við sýslumann en hann
hristi bara hausinn," segir Bjarni
Valdimarsson, fyrrum bóndi að
Leirubakka í Landsveit í Rangár-
vallasýslu.
Bjarni bjó þar á árunum frá 1970
til 1980. Hann segir að það hafi ekk-
ert farið á milh mála að sauðaþjófar
hafi verið á ferð þama.
„Hundarnir mínir fundu í nokkr-
um tilvikum grafin innyfli úr lömb-
um. Þá fundu þeir staði þar sem
greinilega var blóð eftir að skepnu
var látið blæða. Ég náði aldrei að
góma neina fyrir þetta en það fór
ekkert á milU mála að sauðaþjófnað-
ur átti sér stað þarna. Síðasta dæmið
sem ég varð var við var í kringum
1980,“ segir Bjarni.
Eins og DV hefur skýrt frá hafa
komið upp grunsemdir í Siglufirði
um að sauðaþjófnaður hafi átt sér
stað á þeim slóðum. Eru þau mál tfi
rannsóknar. Frásögn Bjarna styður
grunsemdir um að Fjalla-Eyvindur
eigi sér merkisbera í nútímanum.
Fiskiöjan Freyja á Suöureyri:
Tapaði 44,7 milljón-
um á síðasta ári
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, tsafirði:_
Fiskiðjan Freyja hf. á Suðureyri
tapaði 44,7 miUjónum króna á síðasta
starfsári. Þetta kom fram á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn var í síð-
ustu viku, þar sem rekstarafkoma
fyrirtækisins á síðasta ári var m.a.
kynnt. Ástæða þessa mikla taps er
aukinn íjármagnskostnaður, að sögn
Óðins Gestssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar fyr-
irtækisins, sem haldinn var strax
eftir aðalfundinn, var kynnt rekstr-
aruppgjör fyrstu sex mánaða þessa
árs og sýndi það mun betri afkomu
en árið á undan að sögn Óðins en
hann var ófús að gefa upp neinar
tölur í því sambandi.
með
/ einni vinsælustu danshljómsveit í heimi,
í Kaplakrika 24. september.
kynnir
Mýr geisladiskur
Stórtónleikar með Prodigy í Kaplakrika
laugardaginn 24. sept. frá kl. 20.00
ásamt Bubbleflies, Scope + Svala, Keith Dyce o.fl.
Forsafa aðgöngumiða er hafin
Brautarholti og Kringlunni S. 625200