Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Qupperneq 7
MAXWELL HOUSE
...engu ööru líkt!
Þeir sem pekkja goit kaffi, vita
hvað til parf. Úrvals Old Java
kaffibaunir, þurrkun og
brennsla við kjörskilyrði.
Þannig er Maxuiell House kaffi.
Maxwell House drekka peir sem'
pekkja kaffi.
„ÞETTA ER
SEM
ERA BORÐ FYRIR
MIG OG MÍNAGESTI"
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Flóttamanna-
vandamálið á borði
ríkisstjórnarinnar
- lagttilaðíslandtakivlrkariþátt
Á fundi ríkisstjómarinnar í síö-
ustu viku voru kynntar tillögur til
úrbóta í málefnum flóttamanna. Aö
ósk Guðmundar Árna Stefánssonar
félagsmálaráðherra var afgreiðslu
málsins frestað. Tillögurnar voru
unnar af fulltrúum dómsmálaráðu-
neytis og utanríkisráðuneytis en
vérði þær samþykktar mun fram-
kvæmdin einkum hvíla á félagsmála-
ráðherra.
Tillögumar em þríþættar. Lagt er
til að stjómvöld komi á heildarstefnu
og skipulagi á málefnum er varða
flóttamenn. í því sambandi veröi
meðal amiars komið á fót flótta-
mannaráöi í samvinnu ráðuneyta er
hafi samstarf við Rauða kross ís-
lands. Þá er lagt til að ísland taki
virkari þátt í mótttöku flóttamanna
en verið hefur, meðal annars með
því að fylgjast náið með þróun mála
á alþjóðavettvangi. Loks er lagt til
gildandi lög um eftirht með útlend-
ingum verði tekin til endurskoðunar.
Landsvirkjun hressir upp á útlitiö:
Kerf i til að mæla
og meta öryggi
Landsvirkjun hefur tekið upp al-
þjóðlegt kerfi til að mæla og meta
öryggi í starfsemi fyrirtækisins. Á
grundvelli þess er verið að taka upp
nýja stjórnarhætti í öryggis-, heilsu-
og umhverfismálum Landsvirkjun-
ar. Kerfið nefnist International Sa-
fety Rating System, eða ISRS, og var
undirritaður samningur sl. þriðju-
dag um leyfi til að nota kerfið.
Landsvirkjun er fyrsta íslenska
fyrirtækið sem fær slíkt leyfi en
mörg af stærstu iðnfyrirtækjum
heims hafa ISRS-leyfi.
í tengslum við leyfisveitinguna
kynnti Landsvirkjun fyrir starfs-
mönnum stefnu fyrirtækisins í ör-
yggis-, heilsu- og umhverfismálum.
Stefnan er að hindra að óhöpp og
slys eigi sér stað, hafa tiltækar áætl-
anir um viðbrögð gegn vá, tryggja
að starfsfólk sé vel menntað og þjálf-
aö til að annast öryggis-, heilsu- og
umhverfismál, stuðla að góðri heilsu
starfsmanna, ánægjulegu starfsum-
hverfi og góöum starfsskilyrðum og
tryggja aö Landsvirkjun starfi í sátt
við umhverfi sitt og sé þekkt að góðri
umgengni við það.
Húsavik:
Loksins f ullbúin f lugbraut
Húsvíkingar sjá nú fram á bjartari
tíma í flugbrautarmálum sínum en
þar hefur á undanfórnum árum oft
ríkt ófremdarástand vegna ástands
flugbrautarinnar. Borið var leir-
kennt efni í brautina sem hefur þýtt
að í leysingum hefur hún oft orðið
ófær og þá orðið að fella niður allt
flug.
Þetta er nú úr sögunni, því um-
fangsmiklum framkvæmdum við
flugbrautina á Húsavíkurflugvelli
lýkur strax í byrjun næsta mánaðar.
Um er að ræða lengingu brautarinn-
ar um 100 metra þannig að hún verð-
ur 1600 metra löng og brautin öll
veröur klædd bundnu slitlagi. Þegar
þessum framkvæmdum lýkur á eftir
að færa til tæki og ljós og síðan að
ganga frá fullkomnum öryggissvæð-
um og lýkur þeim framkvæmdum í
haust.
Kostnaðaráætlun við þetta verk
nam um 70 milljónum króna, en
vegna hagstæðra tilboða í verkið er
talið að heildarkostnaður verði a bil-
inu 55-60 milljónir króna, að sögn
Jóhanns H. Jónssonar, fulltrúa hjá
flugmálastjóra.
Sams konar framkvæmdir voru
unnar á Siglufirði fyrr í sumar og
þar er nú komin 1100 metra löng
braut með bundnu slitlagi. Þriðja
framkvæmdin á Norðurlandi í sum-
ar er við nýja flugbraut á Þórshöfn,
þar er um að ræða lagningu 1200
metra langrar brautar sem lögð verð-
ur bundnu slitlagi og á þeirri fram-
kvæmd að ljúka i haust.
Vestfjarðanef ndin á yfirreið
„Við verðum með næsta fund á
ísafirði í lok mánaðarins og í fram-
haldi af honum verður farið í yfir-
reið um Vestfirði," segir Eyjólfur
Sveinsson, formaður Vestfjarða-
nefndarinnar.
Eyjólfur segir að borist hafi alls 17
umsóknir um aðstoð frá 25 fyrirtækj-
um. Hann segir að á yfirreiðinni
muni nefndin hitta umsækjendur og
fara yfir mál þeirra.
UIMOOIEHLO ARMAIMMI
Sundskóli
Innritun stendur yfir í vetrarstarf sundskólans
Boðið verður upp á:
• Ungbarnasund
• Sundnámskeið fyrir 1-6 ára
• Sundnámskeið fyrir vatnshrædda
• Sundnámskeið fyrir fullorðna o.fl.
Innritun og upplýsingar gefa
Stella, s. 76618, og Hafþór, s. 656454.
HVÍTA HÚSIO / SÍA