Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1994, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
SERTB.B0D!
RÚMFATALA6ERSINS
90x200 cm - 21 .iði
120x200 cm - 20.100
140x200 cm -14.900
„BOX“ dýna
með fallegum krómgafli
Svefnbekkur
fyrir unglinga
70x190 með dýnu
og rúmfatageymslu
Svartur og hvítur
Áður 1490 kr
Nú
á tilboði:
®6®iSr
Fréttir
Sveitarfélög neydd til aö greiða í Atvinnuleysistryggingarsjóö?
Þá er undirskrift
ráðherra marklaus
- segir Sturla Böðvarsson alþingismaöur
„í mínum huga kemur ekki til
greina að ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, sem skrifar undir svona
yfirlýsingu, standi ekki viö hana. Ég
hef gert þingflokknum grein fyrir
minni afstöðu í þessu máli og mun
ekki standa að því að gera þetta með
þeim hætti sem gert er ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu. Félagsmálaráð-
herra hefur lýst yfir að hann æth að
hefja viðræður við sveitarfélögin
þannig að hann þarf að ljúka þessu
verki. Þetta er á hans sviði,“ segir
Sturla Böðvarsson, alþingismaður og
fyrrverandi bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi.
Eins og fram hefur komið í DV er
í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir
því að greiðslur sveitarfélaga í At-
vinnuleysistryggingasjóð haldi
áfram á næsta ári þannig að 600 millj-
ónir fari frá sveitarfélögunum í sjóð-
inn á sama hátt og síðustu tvö ár þó
að samningur ríkis og sveitarfélaga,
sem fjármálaráðherra undirritaði,
geri ráð fyrir að greiðslurnar hætti
um áramótin. Gríðarleg óánægja er
meðal sveitarstjórnarmanna með
þennan þátt frumvarpsins og hafa
viðræöur milh fulltrúa félagsmála-
ráðuneytisins, fjármálaráöuneytis-
ins og sveitarfélaganna átt sér stað.
„Ég þekki ótal dæmi þess að ríkis-
stjórnir hafi verið ágengar gagnvart
sveitarfélögunum og reynt að beita
valdi í skjóli aðstöðu. Aðalatriðið er
að stöðugleiki og traust sé ríkjandi í
samskiptum ríkis og sveitarfélaga.
Ef fjárlagafrumvarpið verður sam-
þykkt óbreytt grefur það undan
þessu trausti. Þá má segja að ekkert
sé að marka undirskriftir ráðherra,"
segir Sturla Böðvarsson.
„Mér finnst fráleitt að samningur-
inn skuU ekki standa. Það hefur allt-
of oft gerst í verkaskiptum ríkis og
sveitarfélaga að ríkið hefur ekki
staðið við sitt og greiðslur hafa ekki
komið á umsömdum tíma og sveitar-
stjórnarmenn eru orðnir langþreytt-
ir á því. Með verkefnatilfærslu milli
ríkis og sveitarfélaga hlýtur laga-
setning og eftirlit með framkvæmd
laga að vera áfram í höndum ráðu-
neyta en peningahliðin hjá sveitarfé-
lögum. Ef menn ætla að halda áfram
aö' koma alltaf aftan að sveitarfélög-
unum verður erfiðara að ná samn-
ingum í framtíðinni," segir Margrét
Frímannsdóttir, alþingismaður og
fyrrverandi sveitarstjóri á Stokks-
eyri.
BorgíGrímsnesi:
Skotiðá
„heiinfllis-
dývir&^
Skotið var á rjúpnahóp við Borg
i Grímsnesí um helgina og dráp-
ust tvær þeirra. Rjúpumar, átta
stykki, hafa dvaUð á Borg frá því
í vor og átt þar griðland en íbú-
arnir líta á þær sem hver önnur
heimilisdýr.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er vitað hveijir hleyptu af skot-
unum og veröa þeír látnir svara
til saka.
HöfníHornafírði:
Dyravörður
líkamsárás
Einn maður gisti fangageymsl-
ur lögreglunnar á Höfn i Horna-
firði aðfaranótt laugardagsins.
Maðurinn, sem er sjómaður og
er ekki frá Höfn, var að skemmta
sér fyrr um kvöldið í Sindrabæ
en dyravörðurinn þar hefur kært
hann fyrir líkamsárás.
Að sögn lögreglunnar var sjó-
maðurinn ofurölvi og „kolvit-
laus“ og reyndist ekki unnt að
yfírheyra hann fyrr en daginn
eftir.
Bflvelta og útafakstur
Bíll valt nyrst í Kerlingarskarði
laust eftir hádegið í gær. Nærstaddir
vegfarendur komu til hjálpar og
réttu bílinn við og gat ökumaður gat
haldið för sinni áfram. Þá fór bíll út
af veginum á milli Vegamóta og
Hjarðarfells en þar reyndist bifreiðin
einnig í lagi til að halda ferðinni
áfram.
Ekki er vitað um meiðsl á fólki í
þessum óhöppum en orsökin er rakin
til hálku.
Þrír týndust
um helgina
Þrír einstakhngar týndust um
helgina í lengri eða skemmri tíma
en allir komu þó fram síðar heihr á
húfi.
Á föstudagskvöldið týndist rjúpna-
veiðimaður við Skjaldbreiði en hann
kom í leitirnar á svokölluðum Línu-
vegi eftir nokkra klukktíma og var
þá ágætlega á sig kominn. Leit var
einnig gerð að ungum pilti sem hafði
verið að skemmta sér í Nesbúð. Hann
gekk að sumarbústað í Grafningi og
komst þar í hús. Hvorki pilturinn né
gestgjafar hans vissu að leit stæði
yfir en þeir létu vita af sér við kom-
una í bæinn. Þá týndist stúlka við
Úlfljótsvatn. Hún var þar í ratleik
og kom í leitirnar eftir klukkustund
eða svo.
Svangirþjófar:
Stálu gæsum og öndum
Tíu gæsum og tveimur öndum var aðfaranótt sunnudags en veiðimað-
stolið frá veiðimanni á Selfossi um urinn hafði hengt bráðina upp á
helgina. Þjófnaðurinn átti sér stað snúru í garðinum hjá sér.
Greiöslur Hafnaríj arðarbæj ar til listahátíöarinnar:
Heimild þurfti frá
réttbærum aðilum
- segir Guðmundur Arni Stefánsson
„Upphaflega hugmyndin var sú að
bærinn styrkti framkvæmdaaðilann
Listahátið hf. með tilteknum fjár-
framlögum sem voru merkt í fjár-
hagsáætlun. Framkvæmdastjórinn
átti að fá þennan styrk greiddan út
og sjá svo um greiðslumar sjálfur.
Það er ljóst að framkvæmd hátíðar-
innar þróaðist á annan veg og verka-
skiptingin var alls ekki jafn skýr og
upphaflega var lagt upp með. Ég get
hins vegar ekki kveðið upp úr um það
hvort einstakar greiðslur séu rétt-
mætar eða ekki,“ segir Guðmundur
Ámi Stefánsson, félagsmálaráðherra
og fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnar-
firði um endurskoðun á fjármálum
Listahátíðar í Hafnarfirði.
„Það er af og frá að fyrrverandi
framkvæmdastjóri hátíðarinnar og
nánast Pétur og Páll hafi getað geng-
iö í reikning bæjarsjóðs. Enginn fær
shka heimild og ég gaf Arnóri Benón-
ýssyni ekki slíka heimild. Sem bæj-
arstjóri skrifaði ég ekki undir neina
tékka þó að ég hafi formlega verið
einn af prókúmhöfum. Greiðslu-
beiðni frá bæjargjaldkera þurfti að
koma til til að menn gætu fengið
peninga af þessum reikningi. Ég gef
mér að heimild frá réttbærum aðil-
um hafi legið fyrir í hvert skipti,"
segir hann.