Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Bamaskatturinn ræddur utan dagskrár á Alþingi að ósk flármálaráðherra:
Ólaf ur Ragnar Grímsson
stöðvaði skattheimtuna
- með munnlegum fyrirmælum í ráðherratíð sinni - flármálaráðherra og forseti Alþingis gagnrýnd
Sá fáheyrði, en ekki einstæði at-
burður, gerðist á Aiþingi í gær að
ráðherra bað um utandagskrárum-
ræðu. Það var Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra sem vildi ræða
barnaskattinn til þess að bera fram
fyrirspum til óbreytts þingmanns.
Samkvæmt þingsköpum er gert ráö
fyrir að biðji ráðherra um utandag-
skrárumræðu sé hann með skýrslu
sem hann þurfi að gera þinginu grein
fyrir. Svo var ekki í gær.
Margir tóku til máls um barna-
skattinn. Allir voru honum andvígir
nema Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra. Hann var algerlega einn á
báti.
Hvað gerði Ólafur Ragnar?
„Ástæðan fyrir því að ég bið um
þessa utandagskrárumræðu og nota
þetta form er sú að ég hef í fréttatil-
kynningu vikið að meintum embætt-
isverkum fyrirrennara míns, þáver-
andi íjármálaráðherra, Ólafs Ragnar
Grímssonar. í fréttum blaða og sjón-
varps í gær og í dag hefur verið gefið
sterklega í skyn að fyrrverandi fjár-
málaráðherra hafi beitt sér gegn
skattlagningu blaðburðarbarna og
tekið ákvörðun um að láta hjá líða
að skatturinn sé tekinn með stað-
greiðslu. í tilefni af þessu hef ég látiö
athuga gaumgæfilega í ráðuneytinu
og embætti skattkerfisins hvort fyrr-
verandi íjármálaráðherra hafi með
beinum eða óbeinum hætti, formleg-
um eða óformlegum, beitt sér í þessu
máli. Enginn embættismannanna
kannast við að svo hafi veriö gert.
Þvert á móti hafa starfsmenn í skatt-
kerfinu áfram unnið að þessum mál-
um á grundvelli bréfa sem send voru
frá ríkisskattstjóra á þeim tíma þegar
Ólafur Ragnar var fjármálaráð-
herra,“ sagði Friðrik Sophusson fjár-
Friðrik Sophusson stóð einn í um-
ræðunni um barnaskattinn á Alþingi
í gær. DV-myndir BG
málaráðherra meðal annars í ræðu
sinni utan dagskrár í gær.
Hann sagði að ástæða þess að mál-
ið var tekið upp af skattyfirvöldum
í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars
hafi verið sú að kæra hafi borist frá
einum blaðaútgefenda og umboðs-
maöur Alþingis skrifaði skattayfir-
völdum í því tilefni. Síðan sagði Frið-
rik að sér þætti eðlilegt að Ólafi
Ragnari gæfist kostur á hinu háa
Alþingi að gera grein fyrir því hvort
hann hefði beitt sér í þessu máli og
í hvaða formi það var gert. Til hverra
fyrirmælin beindust og á hvaða laga-
grunni það var gert. Hann sagði
nauðsynlegt að ræða þetta.
„Vegna þess að því er haldið fram
að pólitísk ákvörðun Ólafs Ragnars
hafi ráðið því að dagblaðafyrirtæki
héldu ekki eftir lögboðnum sköttum
starfsmanna sinna,“ sagði Friðrik
Olafur Ragnar sagóist hafa tekið
ákvörðunina um að skattleggja ekki
tekjur blaðasölu- og merkjasölu-
barna.
Sophusson.
Hann sagði að það væri alfarið
ákvörðun skattayfirvalda en ekki sín
aö nú ætti að taka upp skatt á blað-
sölubörn og í fullu samráði við blaða-
útgefendur.
Góðmennska við Ólaf Ragnar
„Fjármálaráðherra óskar eftir því
að fá aö tala hér utan dagskrár til
þess aö ég fái tækifæri til að fjalla
um eitthvað sem ég á hugsanlega að
hafa gert eða ekki gert og bera fram
fyrirspurnir til þingmanns," sagði
Olafur Ragnar í upphafi ræðu sinn-
ar. Hann sagði þetta fáheyrt. Hann
sagði að forseti hefði átt að.tilkynna
það þegar tilkynnt var um þessa ut-
andagskrárumræðu að hún væri til-
komin af góðmennsku við sig en ekki
til þess að ráðherra gæti gefið þing-
inu skýrslu.
Ólafur sagði málið einfalt. Þegar
hann varð fiármálráðherra í sept-
emberlok árið 1988 hefði verið í gangi
vinna sem Jón Baldvin hafði stýrt
um upptöku staðgreiðslukerfis
skatta. í desember það ár hefði verið
skrifað bréf þar sem tilkynnt var að
nú ætti að fara að taka upp stað-
greiðslu skatta af blaða- og merkja-
sölubörnuym. Þeir aðilar sem málið
snerti hefðu rætt málið við sig sem
fiármálaráðherra þegar þeir fengu
bréfin.
Ákvað að hætta við skattinn
„Ég tók þá ákvörðun að þetta ætti
ekki að gerast og sagði starfsmönn-
um ráðuneytisins og öðrum þeim
sem máhö snerti frá þessari ákvörð-
un minni í samtölum mínum við
þessa aðila. Enda tala verkin sínu
máh. Skattkerfið gerði ekkert í mál-
inu 1989, ekkert 1990, ekkert 1991,
ekkert 1992, ekkert 1993 og gerir ekk-
ert í málinu 1994. En nú hefur því
tekist að fá fiármálaráðherra til að
breyta um afstöðu. Gamla máltækið
„verkin tala“ á hér við. Verkin eru
þau, eins og ég hef hér skriflega stað-
fest frá yfirmanni hjá DV, að í ráð-
herratíð Ólafs Ragnars var þetta ekki
framkvæmt. Við vitum að hér tíðkast
tekjuöflun barna með því að bera út
blöð og selja merki. Það er ekki
venjuleg atvinnustarfsemi. Oft er
þetta tekjuauki hjá fátækari heimil-
um í landinu. Ég skora á fiármálráð-
herra að framfylgja áfram sömu
framkvæmd í þessu máli og var gert
ahan tímann sem ég var fiármálaráð-
herra og er búið að gera fyrstu þrjú
árin sem Friðrik Sophusson hefur
verið í embætti," sagði Ólafur Ragn-
ar.
Hann lagði mikla áherslu á að þetta
hefði verið óbreytt í 6 ár, þrjú hjá sér
og þrjú hjá Friöriki Sophussyni.
Hvers vegna þá að ætla að breyta
þessu nú, spurði Ólafur Ragnar.
„Ekki að eltast við
blessuð börnin“
Jóhannes Geir sagði meðal annars
að rétt væri að breyta lögunum um
skattlagningu tekna barna og ungl-
inga. Lögum samkvæmt bæri að taka
af þeim skatt. Hann sagði það al-
menna venju að börn og unglingar
vinni sér inn einhveijar tekjur. Hann
taldi það hafa mikið uppeldislegt
gildi.
Kristin Ástgeirsdóttir sagði að
skattsvikin í landinu væru 11 mhlj-
arðar, það væri verið að fella niður
hátekjuskatt. Það mætti ekki nefna
fiármagnstekjuskatt en þá væri allt
í einu farið að eltast við blaðburðar-
böm.
Finnur Ingólfsson sagði skatta-
stefnu þessarar ríkisstjórnar skýra:
„Nú á að hækka barnaskattana th
viðbótar við sjúklingaskattana og til
viðbótar við lyfiaskattana, sem lagðir
hafa verið á sjúkhnga og þá sem
minnst mega sín í samfélaginu. Er
ekki nóg komið, hæstvirtur fiármála-
ráðherra, við að elta uppi í þjóðfélag-
inu einstakhnga sem verst eru stadd-
ir og skattleggja þá alveg sérstaklega.
„Verið ekki að eltast við blessuö
börnin," sagði Finnur Ingólfsson.
Friðrik Sophusson svaraði síðan
ræðumönnum en fleiri tóku ekki til
máls í þessari umræöu þar eð tíminn
var út runnin. Aftur á móti fóru
margir upp undir hðnum sfióm
þingsins og þar var karpað um fund-
arsfióm og margt fleira. Vegna þess
hve fáir komust að í umræðunum
boðaði Ingi Björn Albertsson aðra
umræð utan dagskrá um barnaskatt-
inn.
I dagmælir Dagfari
Börnin skattlögð
Það er sagt að íslendingar svíki
fimmtán mihjarða króna undan
skatti. Þetta er engin smáupphæö
og ekki nema von að skattayfirvöld
hafi nóg að gera og skattrannsókn-
arsfióri segist hafa mörg mál á
borðinu hjá sér. Fjármálaráðherra
er áreiöanlega sömu skoðunar um
að skattsvik þurfi að uppræta, enda
veitir ekki af peningunum í ríkis-
sjóð og ástæðulaust að láta svikara
komast upp með undanbrögð.
Skattsvik eins hækka skattana hjá
öðmm og hvers á heiðarlegt fólk
að gjalda, ef yfirvöld láta hjá hða
að fletta ofan af skattsvikum og
láta skattsvikara lifa í vehysting-
um praktuglega, meðan annað og
skhvíst fólk borgar sína skatta og
gott betur.
Það em þess vegna gleðitíöindi
þegar DV segir frá því í fyrradag
að skattayfiröld séu að taka þessi
svikamál fostum tökum. Skatt-
sfiórar og skattrannsóknarsfióri
hafa einbeitt sér að stærsta verk-
efninu. Þeir hafa lagt th atlögu við
blaðsölubömin, þúsundir bama og
unglinga sem hafa svikið söluþókn-
anir sínar undan skatti af ótrúlegri
ósvífni.
Hér er ráðist á garðinn þar sem
hann er hæstur og þar sem fiöldinn
er mestur. Hér er ráðist að rótum
vandans því það sem ungur nemur
gamall temur.
Fjármálaráðherra má vera stolt-
ur af þessu framtaki skattayfir-
valda enda segir hann í DV aö það
sé mikið sanngimismál að skatta
sölubörn. Og ráðherrann bendir á
að þetta sé ekki á sínu valdi heldur
er skattheimtan á söluþóknun
barnanna samkvæmt lögum. Lög
gera ráð fyrir að ahir borgi skatta
af tekjum sínum og böm verða að
læra að borga skatt og þau eigi
ekki að komast upp með það að fá
tekjur án þess að skatturinn fái sitt.
Skattayfirvöld hafa legið yfir
þessu vandámáh lengi. Þau hafa
skrifað mörg bréf og gert árangurs-
lausar thraunir til að fá börnin th
aö borga. Nú mun kné fylgja kviði
og enginn griður gefinn. Hvert eitt
bam á að greiða 6% í skatt. Barn
sem til dæmis selur fimm dagblöð
og fær þóknun upp á 132 krónur
þarf að greiða tæplega átta krónur
í skatt. Þessum skatti hefur ekki
verið skhað og sú sphhng gengur
ekki. Allt réttlæti og öh sanngimi
mæhr með þri að bamið borgi átta
krónumar, enda segja lögin að
þessar átta krónur eigi að greiða
ef börnin vhja vera heiðarleg gagn-
vart lögum og skattayfirvöldum.
Fjármálaráðherra ber að lofa og
prísa fyrir þetta mikla og djarfa
átak. Það þarf kjark og stefnufestu
th að leggja til atlögu við þann hóp
í þjóðfélaginu sem helst og mest
hefur sniðgengið skattheimtuna.
Það eru rosalegir tekjumöguleikar
fyrir ríkissjóð ef það póhtíska hug-
sjónamál nær fram að ganga að
bamaskatturinn innheimtist. Það
má jafnvel búast við straumhvörf-
um á hag ríkissjóðs og siðvæðingu
meðal yngri kynslóðarinnar. Enda
hggur ljóst fyrir að þar er siðleysið
í hámarki og alþingismenn og ráð-
herrar em fuhtrúar siögæðisins og
mennirnir með hreina skjöldinn og
geta auðvitað ekki horft upp á það
þegjandi að bömin og unghngarnir
komist upp með það sem yfirstétt-
inni í landinu hðst aldrei.
Átta krónur hjá einu blaðsölu-
barni kann svosem ekki að sýnast
há upphæð. En skattsvikin meðal
barnanna sem bera út blöð og selja
happdrættismiða fyrir líknarfélög-
in eru svo grasserandi að þegar
allar þessar átta krónur safnast
saman og skha sér í ríkissjóö eru
skattayfirvöld komin langleiðina
með að ná í þá fimmtán mihjarða
sem nú er skotið undan skatti.
Önnur skattsvik geta beðið á
meðan. Þetta mál með börnin hlýt-
ur aö hafa forgang. Það er auk þess
sanngimismál að mati fiármála-
ráðherra því það er ekki hægt að
eltast viö aðra meinta skattsvikara
meðan bömin eru látin óáreitt.
Skattrannsóknir og skattheimta
veröur aö hafa forgangsröð og lögin
segja að börnunum beri að borga
skatt og þá verður að framfylgja
lögunum.
Fjármálaráðherra getur ekki að
því gert þótt lögin segi að börnin
eigi að borga skatt. Hann ber ekki
ábyrgð á lögunum. Hann getur að-
eins séö um framkvæmd þeirra og
hvatt skattayfirvöld th að fram-
fylgja þeim.
Fjármálaráðherra hefur fundið
hina einu og sönnu sökudólga.
Dagfari