Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Síða 5
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
5
Fréttir
Skattrannsóknarstjóri um bamaskattinn:
Engar undanþágur í lögum
- loforð flármálaráðherra um að hlifa sölubömum liknarfélaga stenst ekki lög
„I lögunum eru engar undanþágur
aö þessu leyti. Samkvæmt strangasta
skilningi laganna er ekki hægt að
undanþiggja ákveöinn hóp sölu-
barna undan staðgreiðsluskatti,"
segir Skúh Eggert Þórðarson, skatt-
rannsóknarstjóri ríkisins.
Friðrik Sophusson íjármálaráö-
herra sagði í sjónvarpsumræðum á
þriðjudagskvöldið að ekki stæði til
að innheimta staðgreiðsluskatt af
börnum sem selja happdrættismiða
fyrir líknarfélög, til dæmis Blindra-
félagið. Á hinn bóginn stendur til að
innheimta staðgreiðsluskatt af börn-
um sem selja dagblöð frá og með ára-
mótum. Samkvæmt skattalögum er
hins vegar enga slíka heimild til mis-
mununar að finna.
„Menn verða hins vegar að velta
fyrir sér hvort það eigi ekki að setja
sér einhver skynsamleg mörk þarna.
Ráðherra getur breytt reglugerð um
undanþágu frá staðgreiðslu. Það hef-
ur ekki verið gert og ég er ekki viss
um að það mundi leysa vandamálið.
Þegar aldrei er gert neitt þá eru eng-
in vandamál. Ef menn fara að gera
eitthvað kemur upp fullt af vanda-
málum og þau eru til að leysa,“ segir
Skúli Eggert.
Skúli segist ekki kannast við að
Ólafur Ragnar Grímsson hafi staðið
gegn innheimtu staðgreiðsluskatts
af sölubörnum í tíð hans sem fjár-
málaráðherra. Á þeim tíma var Skúli
Eggert vararíkisskattstjóri.
„Á þeim tíma voru menn önnum
kafnir við að bylta skattkerfinu, fyrst
með upptöku staðgreiðslu og síðan
virðisaukaskatti. Eg geri hreinlega
ráð fyrir því að þetta hafi ekki verið
eitt af þeim forgangsmálum sem
menn höfðu sérstakan áhuga á.“
Helgar-
tilboð
Gildir frá
fimmtud. tillaugard.
Vi lamba-
frampartar
500 ml
Super
uppþvottalögur
,29
500 g
BKÍ lúxuskaffi
,285
2 kg
Minel
þvottaefni
,259
21
Frissi fríski
til
kl. 23.30
Brekkuval
Hjallabrekku 2
Kópavogi
HYunoni
Aðeins fyrir þá
yvn h/-y.
*r?
%
Frábærir aksturseiginleikar
Elantra hafa komið mönnum á
óvart í reynsluakstri. Líttu við,
taktu einn hring í rólegheitum
og felldu þinn eigin dóm.
126 hestöfl
• Vökva- og veltistýri
• Rafdrifnar rúður
og speglar
O Samlæsing
• Tölvustýrt útvarp,
segulband
• 4 hátalarar
sem kjósa fallegan, kraftmikinn
og rúmgóðan bíl með frábæra
aksturseiginleika og á góðu verði
Verð frá
1.379.000,-
kr. á götunal
■ H •
11»
HYUnoni
...til framtídar
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Hafið samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt