Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Opið prófkjör Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Stef nir í hörkuátök
um þrjú efstu sætin
- nokkrir fulltrúar úr launþegahreyfmgunni ætla í slaginn
Alþýöubandalagiö í Reykjavík hef-
ur ákveðið aö viðhaft verði opið próf-
kjör við val á lista flokksins í kom-
andi alþingiskosningum. Próíkjörið
á að fara fram eigi síöar en 14. jan-
úar næstkomandi. Enda þótt stutt sé
síöan þetta var ákveðið er þegar
komin hreyfing á framboðsmálin.
Ljóst er aö hart verður barist um
þxjú efstu sætin en Alþýðubandalag-
ið stefnir að því að ná þriðja mannin-
um aftur inn í Reykjavík.
Svavar
Guðrún
Björn Grétar
Ögmundur
Sótt að þingmönnunum
Þingmenn Alþýðubandalagsins í
Reykjavík, þau Svavar Gestsson og
Quörún Helgadóttir, gefa bæði kost
á sér áfram í efstu sætin. Svo virðist
sem að þeim verði sótt og það nokkuð
fast. Þau geta þurft að hafa allmikiö
fyrir því að halda sætum sínum.
Einkum sýnist fast sótt að Guð-
rúnu. Tveir sterkir menn úr laun-
þegahreyfingunni virðast hklegir til
að gefa kost á sér í prófkjörið, þeir
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambandsins, og Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB.
Björn Grétar sagði í samtali við DV
að um það hefði verið rætt viö sig
að fara í prófkjörið. Hann hefði hins
vegar enga ákvörðun tekið. Málið
væri ekki útrætt að sinni hálfu.
Ögmundur Jónasson sagðist fyrst
og fremst vilja sjá drauminn um
samfylkingu félagshyggjuaflanna
rætast, þá væri hann tilbúinn til aö
gefa kost á sér. Aðspurður hvort
hann útilokaöi að gefa kost á sér ef
samfylkingin tækist ekki sagðist
hann ekki gera það, hann hefði í
sjálfu sér ekki sett nein skilyrði í
þessu máh.
Fleiri þungavigtarmenn
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iðnverkafólks, var í
Guðmundur Einar Karl Hildur
Bryndís
3. sæti á hsta Alþýðubandalagsins
við síðustu alþingiskosningar. Guö-
mundur er sterkur maður innan
verkalýðshreyfingarinnar og bland-
ar sér í toppbaráttuna gefi hann kost
á sér og ekki er annað vitað en að
svo verði.
Þá hefur DV heimildir fyrir því að
Einar Karl Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins,
æth í slaginn og muni gefa kost á sér
í eitt af efstu sætunum. Einar Karl
er að sjálfsögöu þungavigtarmaður í
flokknum og einn nánasti samstarfs-
maður formannsins, Ólafs Ragnar
Grímssonar.
Konur sækja að
efstu sætunum
Konur í Alþýðubandalaginu ætla
sér stóran hlut í prófkjörinu. Nokkur
Fréttaljós
nöfn hafa verið nefnd í því sam-
bandi. Þar er nafn Hildar Jónsdótt-
ur, ritstjóra Vikublaösins, ofarlega á
hsta, eins nafn Bryndísar Hlöðvers-
dóttur, lögfræöings Alþýðusam-
bands íslands. Hún hefur látið æ
meira að sér kveða innan flokksins
síðustu misserin. Þá hefur Svanhild-
ur Kaaber, fyrrverandi formaður
Kennarasambands íslands, veriö
nefnd sem framboðskandidat hjá Al-
þýðubandalaginu.
Armaátök
Enda þótt átökin innan Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík hafi nokk-
uð hjaðnaö að undanfomu er langt
frá því að armarnir tveir séu sestir
í helgan stein og hættir að takast á.
Nú má gera ráð fyrir að átökin milli
þeirra blossi upp af fullum krafti og
aö þeir berjist alveg fram að próf-
kjöri.
Hópurinn sem oftast er nefndur
„Flokkseigendafélagið“, og berst
hatramlega gegn Olafi Ragnari og
hans mönnum, er ákaflega vel skipu-
lagður hópur og vel smurð kosninga-
vél. Þetta fólk kann mjög vel til verka
í öllum innanflokksátökum. Þessi
hópur styður Svavar Gestsson en
ekki Guðrúnu Helgadóttur í próf-
kjörinu. Hópurinn mun einmg styðja
Guðmund Þ. Jónsson en trauðla Ög-
mund Jónasson og ahs ekki Björn
Grétar sem er náinn samstarfsmað-
ur Ólafs Ragnars Grímssonar.
10-11 verslanimar:
Þrír starfs-
menn reknir
fyrir þjófnað
- eigandikærirekki
Þremur starfsmönnum 10-11
versiananna hefur verið sagt upp
störfum vegna þjófnaöar úr
verslununum. Starfsfólkið hafði
ekki verið við störf lengi S versl-
ununum en áður en það kom
þangaö vann það hjá Bónusi. Þeir
hættu allir um svipaö leyti þar
fyrr á árinu.
Eiríkur Sigurösson hjá 10-11
vildi ekkert ræða máhð í samtali
viö DV. Hann vildi hvorki upp-
lýsa hversu mikið magn hefði
verið um að ræða né heldur hve
lengi fólkið kynm að hafa rýrt
vörulager fyrirtækisins. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins voru
starfsmennirnir ekki kærðir en
þeir voru því sem næst staðnir
að verki víð stuld, bæði á matvör-
um og öörum vörum í verslunun-
um.
Starfsmannastjóri hjá Bónusi
sagöi við DV að umræddu starfs-
fólki, sem nú hefur verið rekið frá
10-11, hefði ekki verið sagt upp á
sínum tíma - þaö hefði sjálft kos-
ið að hætta.
Eftir að þjófnaöurinn komst
upp kom til áhta að kæra starfs-
mennina. Eigendur tóku þá
ákvörðun að gera það ekki.
Á áttunda tug
skipa hótað
sviptingu
Sjávarútvegsráðuneytið sendi í
gær 74 útgerðum skeyti þar sem
þeim er tilkynnt ura yflrvofandi
veiðileyfissviptingu vegna van-
skila á kvótaskýrslum. Utgerðum
bátanna er gefinn frestur til mið-
nættis á sunnudag til að skila inn
skýrslunum til Fiskistofu, annars
fellur veiðileyfi þeirra niður.
„Þessar viðvaranir eru til-
koranar vegna kvótaskýrslna
sera menn eiga að druslast til að
gera. Þetta er bara trassaskap-
ur," segir Þórður Eyþórsson hjá
sjávarútvegsráöuneytinu.
I dag mælir Dagfari
Heilbrigðisráðuneytið er stærsta
og fjárfrekasta ráðuneytið. Þar
velta milljaröar og milljarðatugir í
gegn. Því fylgir mikil ábyrgö og
völd að stjóma þessu ráðuneyti og
engir nema fæmstu menn ráða við
það verkefni. Enda hafa þeir færa
menn 1 heilbrigðisráðuneytinu og
svo færa að þeir em kallaðir til
starfa í útlöndum og þeir era svo
færir aö ráðuneytið getur ekki án
þeirra verið þótt þeir starfi í út-
löndum. Þess vegna em helstu yfir-
menn heilbrigðisráðuneytisins í
tvöfóldum störfum, hérlendis og
erlendis, og em alls staðar ómiss-
andi.
Svo gerist þaö að fjölmiðlar fara
að abbast upp á þessa mikilvægu
menn sem sinna mikilvægum
störfum og Ríkisendurskoðun fer
að fetta fingur út í vinnubrögðin í
ráðuneytinu, rétt eins og Ríkisend-
urskoðun komi það eitthvað við!
Ríkisendurskoðandi segist meira
að segja hafa sjálfur komiö niður í
hiö virðulega heilbrigðisráðuneyti
tíl að hitta máttarstólpa ráðuneyt-
isins aö máli.
Þessa heimsókn kannast skrif-
stofustjóri ráðuneytisins ekki við.
Hann rekur ekki mixmi til að slíkur
fundur hafi átt sér stað. Nú er þaö
Alajör smámál
í sjálfu sér skiljanlegt, enda geta
mikilvægir menn, sem sinna mikil-
vægum störfum, ekki munað eftir
öllum þeim smáfiskum sem eiga
erindi við ráðuneytið og menn
leggja ekki á minnið emhverja skít-
lega og nauðaómerkilega fundi með
mönnum utan úr bæ.
Þess vegna segir skrifstofustjór-
inn að ríkisendurskoðandi hafi
aldrei komið til sín í ráðuneytiö og
er reyndar hissa á því að ríldsend-
urskoðandi sé að gera veður út af
„algjöm smámáli" eins og því
hvort hann hafi talað við ríkisend-
urskoðanda vegna álitsgerðar sem
ríkislögmaður á að hafa lagt fram
varðandi mál tryggingalækmsms,
sem varð til þess að heilbrigðisráð-
herrann Guðmundur Ámi Stefáns-
son varð aö segja af sér ráðherra-
dómi. Þetta er smámál í augum
skrifstofustjórans, enda má það
einu gilda hvort einn ráðherra
fjúki. Aðalatriðið er aö máttar-
stólpar ráðuneytísins haldi um
taumana og stjómi ráöuneytinu,
hvað sem öllum ráðherrum líður.
Ríkisendurskoðun leyfir sér enn
fremur aö gera athugasemdir viö
uppáskriftir reikninga, stimpil-
klukkur, ferðareikninga, bókhald,
auglýsingastyrki og mætingar
starfsmanna. Em engin takmörk
fyrir afskiptasemi óviðkomandi
aðila af því ríki þar sem mikilvæg-
ir ráðuneytisstjórar og skrifstofu-
stjórar ráða? Hvemig í ósköpunum
er hægt að ætlast til þess aö mikil-
vægir menn í heilbrigðisráðuneyt-
inu á borð við ráðuneytisstjóra og
skrifstofustjóra séu með nefið niöri
í svona „smámálum". Þeir hafa
öðrum hnöppum að hneppa og era
meöal annars aö sinna mikilvæg-
um störfum erlendis á sama tíma
sem þeir stjórna ráöuneytinu. Geta
menn búist við aö þeir séu að fylgj-
ast með smámálum í sjálfu ráðu-
neytinu á meöan?
Áuðvitaö kemur skrifstofustjór-
anum þetta við. Hann rekur jú
ráðuneytið og er þar aðalmaður-
inn. Hann firrir sig engri ábyrgð
og skorast ekki undan að svara
fyrir það sem gerist í ráðuneytinu
eða gerist þar ekki. Þaö er hans
mál og þess vegna er hann undr-
andi á því að aðrir séu að skipta
sér af því og blása upp það sem
ekkert er. Blása upp „algjör smá-
mál“.
Yfirmenn ráðuneytisins era í
fullu starfi sem yfirmenn og þeir
era líka í fullum störfum erlendis
og þeir era jafnvel að kenna í Há-
skólanum og þeir þiggja laun og
dagpeninga og námsleyfi fyrir þessi
annasömu störf og hvemig geta
þeir þá líka haft afskipti af málefn-
um ráðuneytisins þegar þeir eru í
störfum annars staðar á sama
tíma? Ríkisendurskoðun getur gert
athugasemdir hjá þeim sem hafa
nógan tíma og hafa ekki fengið ráð-
herraleyfi til aö stunda aðra vinnu.
En mikilvægir menn í ráðuneyt-
inu, sem þurfa að sinna ráðuneyt-
inu af því ráðherrar koma þar og
fara, þeir lýsa frati á fjölmiöla og
Ríkisendurskoöun og alla þá sem
era að kássast upp á annarra
manna jússur.
Þetta verður almenningur að
skilja. Honum kemur ekki viö hvað
gerist í ráðuneyti þar sem milljörð-
um er velt og smápeningar býtta
engu til eða frá.
Dagfari