Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
5
»
»
»
»
I
I
I
I
I
I
I
I
I
dv Fréttir
Lestur unga fólksins á DV
— eitthvað lesið í vikunni —
DV
Ný 5 ölmiölakönnun:
Unga fólkið
lesDV
Ný könnun Félagsvísindastofnun-
ar sýnir að lestur DV og Morgun-
blaðsins hefur lítið sem ekkert breyst
frá síðustu könnun í mars á þessu
ári, miðað við meðallestur á eintak,
eins og fram kom í DV í gær. Lestur
DV minnkaöi úr 46% í mars í 45% í
október og Morgunblaðsins úr 58% í
mars í 57% í október. Þegar litið er
á lestur unga fólksins samkvæmt
könnuninni kemur hins vegar í ljós
að DV hefur aukið hlut sinn hjá 12-19
ára aldurshópnum úr 64% lestri í
mars í 72% í október. DV hélt sínum
hlut hjá 20-24 ára lesendum frá
marskönnuninni með 74% lestur.
Mistök urðu við gerð grafs sem
fylgdi frétt DV í gær. Rétt gröf birt-
ast hér á síðunni. Lesendur eru beðn-
ir velvirðingar á mistökunum.
Dagblaðalestur
— meðallestur á eintak —
60%
Mars '94 Okt. '94 Mars '94 Okt. '94
DV
Aukning rækjukvótans:
Leysir aðeins vand-
ann að litlum hluta
- segir fr amkvæmdas tj óri Þuríðar hf.
„Þessi aukning úthafsrækjukvót-
ans leysir ekki vandann nema að htl-
um hluta. Aukningin hefði þurft að
vera að minnsta kosti 20 til 25 þúsund
tonn,“ segir Sigurður Hafberg, fram-
kvæmdastjóri Þuríðar hf., vegna
aukningar úthafsrækjukvótans um
13 þúsund tonn. Þuríður rekur
rækjuvinnslu og frystihús í Bolung-
arvík.
„Þetta leiðir að vísu til þess að það
slaknar örlítið á mestu spennunni á
kvótamarkaðnum. Ég er og hef verið
á þeirri skoðun að þessi viðbót hefði
átt að renna til Þróunarsjóðs sem
síðan hefði selt hann rækjuverk-
smiðjunum og öðrum. Það hefði ver-
ið eina sanngirnin því 80 prósent af
kvótanum eru í eigu annarra en
þeirra sem veiða hann,“ segir Sigurð-
ur.
Nú er leyft að veiða alls 63 þúsund
tonn af úthafsrækju á móti 45 þúsund
tonnum í fyrra.
Kvennalistinn á Norðurlandi eystra:
Málmf ríður í framboð?
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Ég gef engar yfirlýsingar um það
fyrir fram hvort ég verð í framboði
fyrir Kvennalistann," segir Málm-
fríður Sigurðardóttir, fyrrum þing-
kona Kvennalistans á Norðurlandi
eystra.
Málmfríður segir að kvennahsta-
framboð á Norðurlandi eystra hafi
htið verið rætt þar til um helgina að
landsfundur hstans ákvað að boðið
skyldi fram í öhum kjördæmum
landsins. „Við höfum haft þann hátt-
inn á þegar boðið hefur verið fram
að óskað hefur verið eftir tilnefning-
um á hstann. Síðan hefur hópur
kvenna tekið að sér að ræða við þær
sem tílnefndar hafa verið og Ustinn
hefur síðan veriö settur saman. Ég
reikna með að þessi aðferð verði
einnig viðhöfð núna,“ segir Málm-
fríður en hún var þingkona fyrir
Kvennahstann á árunum 1987-1991.
fyrsti vinningur á laugardag!
fe
L