Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 9 Stuttarfréttir Utlönd Baristaf hörku Aöþrengdar sveitir Bosníuhers eiga undir högg aö sækja í bar- dögum víð Serba og uppreisnar- menn i Bihac. Dómur í máli Hágangsmanna: Anton fékk einn mánuð - aðgerðir strandgæslunnar ólögmætar Warren Christopher, utanrikisráð- herra Banda- ríkjanna, sem nú er á Taí- landi, sagöi aö herstjórnin í Búrma mundi einangrast enn frekar nema geröar yrðu lýðræð- isumbætur. Vopnahféið brotið Stjórnvöld og skæruliöar í Ang- óla hafa uppi gagnkvæmar ásak- anir um vopnahlésbrot. Kommarísókh Kommúnistar sópuöu til sín at- kvæðum í kosningum í Nepal. Flugvéiarrekttar Grískar herflugvélar ráku tyrk- neskar þotur úr lofthelgi Grikk- lands í gær. Teknir á Austur>Tímor Indónesískar öryggissveitir hafa handtekið tugi manna á Austur-Tímor síðustu daga. Bandaríkjamenn eru tíl í að þjálfa áfram taílenska hermenn þar sem stjórnvöld ætla ekki að styðja Rauöu kmerana meir. Lækkandi vetrð á físki Búist er viö aö lágmarksverð á fiski veröi lækkað í ríkjum ESB eftir áramótin. „Stýrimaðurinn skaut föstu skoti en ekki tfl að hitta,“ er niðurstaða héraðsdóms í Tromsö í málinu gegn Antoni Ingvasyni, stýrimanni á Há- gangi II. Anton var í réttinum í gær dæmdur í 30 daga varðhald vegna skotmálsins. Að öðru leyti fór málið allt út um þúfur hjá ákæruvaldinu í Tromsfylki og komst dómari m.a. að þeirri nið- urstöðu að norska strandgæslan hefði ekki haft rétt til að skera á tog- víra togara sem í sumar voru að veið- um á vemdarsvæðinu við Svalbarða. Þá voru skipstjóri og útgerð Hágangs sýknuð af ákæru um að hindra strandgæslumenn við eftirlitsstörf á svæðinu. Skotmálið var rannsakað mjög ít- arlega og varð niðurstaðan sú að höglin úr byssu Antons hefðu lent í sjónum um tvo metra frá gúmmíbát strandgæslunnar þegar reynt var að skera á togvíra Hágangs þann 5. ág- úst í sumar. Niðurstaðan varð sú að það beföi verið óhapp að skotið kom svo nærri. Þvi væri Anton ekki sekur um aö hafa ætlað að skjóta á menn- ina. Dómurinn í Hágangsmálinu hefur vakið furðu í Noregi. Niðurstaðan er að aðgerðir strandgæslunnar á Sval- barðasvæðinu hafi verið ólöglegar, í það minnsta fram tfl þess að ný Anton Ingvason var dæmdur i 30 daga fangelsi. reglugerð var sett um fiskvemd þar eftir Hágangsmálið í ágúst. Því mega yfirvöld í Noregi búast viö skaða- bótamálum vegna togvíraklippinga þar í sumar. Þá er enn óútkljáð mál hvort nýja reglugerðin frá í sumar hefur nokkuð lagagfldi. Búist er við að ákveðið verði um helgina hvort Hágangsmálinu verð- ur áfrýjað tfl hæstaréttar. NTB Stjómarslitstórslys Silvio Ber- lusconi, forsæt- isráðherra ítal- íu, sagði að það heföi í fór með sérstórslysfyr- ir landið ef stjóm hans félfl en hún á i vök að verjast vegna fjárlagafrum- varps næsta árs. Borga skaðabætur Tveir fyrrurn herforingjar í Argentínu verða að greiða skaöa- bætur fytír fjölskyldu sem hvarf á herstjórnartímanum. Francisco Duran lýsti sig sak- lausan af ákæm um að hafa ætlaö aö myrða Clinton forseta í skot- hríö á Hvita húsiö. Sýknudómur yfir skipstjóra og útgerð Hágangs: Ákæran byggð á rangri lagagrein Héraðsdómurinn í Tromsö komst að þeirri niöurstööu í gær aö ekki væri hægt aö dæma Eiríki Sigurðs- son og útgerð Hágangs II vegna þess að ákæran væri hyggö á rangri laga- grein. Ákæran var byggð á því aö skip- stjórinn heföi meinað mönnum strandgæslunnar aö koma um boð til að kanna afla og veiðarfæri. Hins vegar var mögulegt aö ákæra skip- stjóra og útgerö fyrir aö hlýða ekki fyrirmælum strandgæslunnar eftir aö Anton Ingvason haföi skotið úr haglabyssu sinni. Þá heföi málið gegn útgerðinni snúist um ofbeldi gegn opinberam starfsmönnum. Þessi mistök ákæruvaldins í Tromsö gera þaö aö verkum að hægt er að taka málið upp aö nýju í héraði og ákæra nú á grundvelli réttu laga- greinarinnar. Þá kann svo að fara að útgerðin veröi aö greiða sektir því menn strandgæslunnar fengu ekki að fara um borð í Hágang fyrr en eftir að búiö var aö skjóta á togarann. NTB SnidgangalKEA Samtök gyðinga í Bandaríkjun- um hóta að sniðganga verslanir og vaming IKEA vegna gruns um nasisma forstjórans. Bændurhræddr Samtök norskra bænda segja aö ríkisstjómin ætli aö slá annan hvem hónda af meö aðfld aðESB. Stórfundur á morgun Norskir ESB-andstæöingar ætla að halda mflrinn baráttu- fund í Ósló á morgun. Írska stjómin féll Albert Reyn- olds, forsætis- ráöherra ír- lands, sagöi af sér í gær eftir að slitnaði upp úr samstarfi flokks hans og jafnaðar- manna. Stjómin féll vegna deilna um skipun hæstaréttardómara. Keuter, TT og NTB NoregurogESB: Ungafólkiðá mótiaðild Yfirgnæfandi meirihluti fram- haldsskólanema í Noregi er á móti aöild aö Evrópusambandinu, ESB. Þetta kom skýrt fram í skoðanakönn- un sem birt var í gær. Spurningin var lögö fyrir 136 þúsund nemendur í 450 skólum og sögðu ríflega 60% þeirra nei. Andstæðingar aöfldar hafa kæst mjög viö þessa niðurstöðu. Fylgjend- ur aöildar hafa einnig getað túlkaö skoöanakönnunina sér í hag og segja að í Svíþjóð hafi skólafólk veriö enn harðara í andstööu sinni viö ESB. Samt hafi aöfld verið samþykkt með 52,2% atkvæða. Því megi búast við enn stærri sigri já-manna í Noregi í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 28. nóvember. Almennar skoðanakann- anir í Noregi sýna að drjúgur meiri- hluti er á móti aðild. í Svíþjóð hafa kosningasérfræðing- ar fundið út að meðal já-maöurinn er miöaldra karl en meðal nei- maðurinn img kona. Alullarhúfur í miklu úrvali 5% staðgreiðsluafsláttur, | einnig af póstkröfum * greiddum innan 7 daga. mmúTiLíFmm GLÆSIBÆ • SÍMI812922 Kvöldverðartilboð 18/11-24/11 "k Sjófangspaté á íssalati með spergli og limesósu k Lambavöðvi „Dijon“ með gljáðum kjörsveppum og rjómapiparsósu k Þriggja laga ístríó með jarðarberjaívafi Kr. 1.950 Opið í hádeginu mánud.-föstud. Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud. Nýr spennandi a la carte matseðill Borðapantanir í síma 88 99 67 Jólavörurnar streyma inn og ALDREI BETRA VERÐ!!! Húfur, hattar, grifflur, belti, víðar buxur, blússur, peysur o.fl. o.fl. Verðdæmi: Cha Cha stutt pils kr. 2.790,- Velour leggings kr. 1.590,- Mona blússur frá kr. 2.690,- Samfellur frá kr. 1.390,- Repeat gallabuxur frá kr. 2.990,- Bolir, Banana explosion kr. 1.390,- NYTT!!! Meiri háttar undlrföt frá Cha*Cha. NECESSITY Borgarkringlunni NTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.