Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Síða 18
26
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
Iþróttir unglinga
Fjölliðamót 10. flokks karla í körfuknattleik á Akureyri:
KR-ingar höfðu betur
- eftir tvísýnt einvígi gegn Þórsurum frá Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sex bestu lið landsins, sem skipa
a-hóp 10. flokks karla í körfuknatt-
leik, áttust við í 2. hluta íslandsmóts-
ins á Akureyri um helgina. KR-ingar
urðu sigurvegarar eins og í 1. mótinu
í haust en nú eftir hörkukeppni við
heimamenn úr Þór. Keppnisfyrir-
komulagið í 10. flokki er þannig að
liðunum er skipt í a-, h- og c-flokka
Umsjón
Halldór Halldórsson
eftir styrkleika og eru leikin fjögur
íjölliðamót áður en til úrslitakeppn-
innar kemur í vor. Fjögur efstu liðin
í a-flokki leika þá um íslandsmeist-
aratitilinn, lið nr. 1 við lið nr. 4, lið
2 og 3 innbyrðis og sigurvegaramir
úr þessum leikjum leika úrslitaleiki
um titilinn.
í keppni a-liðanna á Akureyri voru
liö KR og Þórs í nokkram sérflokki.
Bæði liðin töpuðu einni viðureign,
Þórsarar í innbyrðisleiknum viö KR
en KR-ingarnir töpuðu fyrir ÍBK. KR
sigraði hins vegar í mótinu vegna
innbyrðisúrslita gegn Þór. Það kom
hins vegar nokkuð á óvart að Vals-
menn, sem eru íslandsmeistarar í
þessum aldursflokki, töpuðu öllum
leikjum sínum nú.
Strákarnir í þessum liðum eru í 10.
bekk grunnskóla og því 15 ára gaml-
ir. Það er þó ljóst að margir þeirra
eru búnir að ná góðum tökum á
grundvallaratriðum körfuboltans og
þá er það ekki síður ánægjulegt að í
liðunum er talsvert um hávaxna
leikmenn en það lofar góðu um fram-
tíðina. Annars voru það bakverðir
liðanna sem oft voru bestu leikmenn
þeirra og hafa margir þeirra náð góö-
um tökum á því sem þeir eiga að eera. En lítum bá á úrslit leikianna:
KR-ÍBK ‘. .' 40-45
KR-Þór .. ..44-39
KR-Valur 56-32
KR-UMFG 46-45
KR-Haukar 45-42
Þór-UMFG 69-54
Þór-ÍBK 62-33
Þór-Valur 53-50
UMFG-Haukar 53-56
UMFG-ÍBK 50-34
UMFG-Valur ... 54-43
ÍBK-Valur . 52-47
ÍBK-Háukar 47-26
Haukar-Valur 50-34
Lokastaðan:
KR...............5 4 1 232-203 8
Þór..............5 4 1 284-217 8
ÍBK..............5 3 2 211-225 6
Haukar...........5 2 3 210-240 4
UMFG.............5 2 3 256-249 4
Valur............5 0 5 206-265 0
Sigurlið KR. Aftari röð f.v.: Ásberg Jónsson, Agnar Möller, Davíð Unnsteinsson, Baldur Ólafsson, Steinar Kaldal,
Jóhann Eiríksson, Kristinn Vilbergsson þjálfari. Fremri röð f.v.: Eyþór Eyþórsson, Sævar Sveinsson, Sveinn Sche-
ving, Snorri Jónsson, Dagur Bjarnason, Ari Vilbergsson og Finnur Vilhjálmsson. DV-mynd gk
- sögðu Þórsaramir Elvar og Sigurður
Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyií:
„Viö getum verið ánægðir meö
2. sætið. Við töpuöum bara fyrir
KR en sá leikur var jafn. Við vorum
yfir framan af en það kom okkur
e.Lv. á óvart hvað við stóðum í
þeim-envið vorum ekki undir það
búnir að klára dæmið,“ sögðu Þórs-
ararnir Elvar K. Valsson og Sígurð-
ur G. Sigurðsson sem voru bestu
menn Þórs í mótinu.
„Við eigum að hafa góöa mögu-
leika á að standa okkur vel í vor
þegar úrslitakeppnin verður og
verðum vonandi í baráttunni,
sennilega ásamt KR og Keflavík. í
fyrra vorum við í 3.-4. sæti í 9.
flokki óg komumst í undanúrslit í
bikarkeppninni. Annars höfum við
lengst af veriö í b-flokki eða alveg
þángað til í fyrra. Nú erum við í
liðinu farair að þekkja hver annan
betur og við ætlum að standa okkur
vel í vetur og vor,“ sögöu þeii* félag-
arnir. '
Þórsararnir Eivar og Sigurður.
DV-mynd gk
Gunnar Stefánsson, fyrirliði ÍBK.
DV-mynd gk
Gunnar Stefánsson, ÍBK:
Þokkalega
ánægður
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er þokkalega
ánægður með árangur
okkar í mótinu,“ sagði
Gunnar Stefánsson, fyr-
irliði ÍBK, eftir leiki liðs-
ins á Akureyri.
„Nú tókst okkur t.d. að vinna
bæði KR og Hauka sem við töpuð-
um fyrir í fyrsta mótinu en við
töpuðum hins vegar fyrir Þór sem
við unnum þá. Mér finnst að við
eigum alla möguleika á að bæta
við okkur og veröa ofarlega í vor
þegar úrshtin verða. Þá skiptir
það okkur miklu máli að fá eitt
mótið á okkar heimavöll. Við vit-
um ekki hvort það verður en við
höfum ekki fengið heimaleiki í
tvö ár,“ sagði Gunnar.
Gylfi Kristjánssctn, DV, Akuxeyri:
„Við erum vanir að vera í efstu
sætunum og vonandi verðum við
það áfram," sögöu KR-ingarnir
Finnur Vilhjálmsson og Snorri
Jónsson eftir sigurinn í mótinu á
Akureyri um helgina.
Finnur og Snorrri eru búnir að
iðka körfuboltann i nokkur ár og
þeir eru ánægðir með fyrirkomulag
mótsins, „Við höldum að þetta sé
besta fyrirkomulagið og við fáum
marga leiki yfir veturinn. Við urð-
um Islandsmeistarar í 8. flokki og
í vor þegar úrslitakeppnin hefst
veröum við vonandi bestir. Annars
veröur úrslitakeppnin örugglega
spennandi og Haukar og Grindavík
verða án efa sterk þar. Við erum
inns vegar hissa á að Valur skyldi
tapa Öilum leikjunum hér á Akur-
eyri en liðið var meistarar í fyrra,"
sögðu Finnur og Snorri að lokum.