Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1994, Page 32
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 63 27 00
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
KL. &8 LAUGARDAGS- 0G MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst,óhaö dagblaÖ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994.
Miðhúsasilfiirsjóðurmn:
Danirætlaað
skoða silfrið
Danska þjóðminjasafnið hefur tek-
ið jákvætt í málaíeitan þjóðminjar-
áðs um að danska þjóðminjasafnið
verði fengið til að rannsaka silfur-
sjóðinn frá Miðhúsum.
Efasemdir vöknuðu um aldur
nokkurra muna í silfursjóðnum í
kjölfar skýrslu dr. James Graham-
Campells, sem rannsakaði sjóðinn.
Að sögn Lilju Ámadóttur, safn-
stjóra Þjóðminjasafnsins, hefur enn
ekki verið ákveðið hvenær silfrið
fari utan þar sem óráðiö er hvemig
verkið verði unnið.
Rúmenarnir á
gistiheimili
Rúmenska parið sem kom til lands-
ins sem laumufarþegar í Bakkafossi
á þriðjudag er enn á landinu. Bakka-
foss fór utan í gærkvöld en talið var
líklegt að Rúmenamir færu með
skipinu. Það var hins vegar vilji Eim-
skipa að parið færi með flugi og því
vai- ákveðið aö það færi frá borði.
Þau halda nú til á gistiheimili á
kostnað skipafélagsins á meðan út-
lendingaeftirlitið fullafgreiðir mál
þeirra. Beðið er þess að svör berist
erlendis frá og verða þau send utan
hið fyrsta, einnig á kostnað skipafé-
lagsins.
Eldur í upptökusal:
Hlupumtilogrif-
umsegliðniður
- segir Helgi Bjömsson
„Eitt augnablik hefði getað farið
illa. Fyrst sáu menn einhvern smáeld
í einu horni tjaidsins og trommarinn
okkar kallaði og sagði að það væri
kviknað í. Menn biðu bara rólegir
og héldu að sviðsmenn ætluðu að
grípa inn í enn ekkert gerðist. Síðan
hljóp einhver til þegar eldurinn
magnaðist. Þá fyrst, þegar eldurinn
teygði sig upp í loftið, áttuðu menn
sig á því hvað þetta var alvarlegt.
Ég og KK, sem var með okkur þama,
hlupum og rifum niður seghð ásamt
einhverjum sviðsmanni Sjónvarps-
ins og stöppuðum á því og slökktum
hann,“ segir Helgi Bjömsson, söngv-
ari í hljómsveitinni SSSól.
Við stórslysi lá í gærdag í sjón-
varpssal þegar eldur kom upp í dúk
í sviðsmynd á tónleikum hljómsveit-
arinnar. Upptökur stóðu yfir þegar
ljóskastarar sem lágu við dúkinn
sem var nokkuð stór og úr þunnu
máluðu efni, kveiktu í honum. Helgi
segir eldinn hafa verið nokkuð mik-
. inn eitt augnablik og þá hefði Uka,
skapast hætta en greiðlega hefði;
gengið að slökkva hann.
LOKI
Þetta hafa verið brennheitir
tónleikarhjá Helga!
800keyptu fyr
ir 201 milljón
A nlunda hundrað aðilar, mest
einstaklingar, keyptu hlutabréf að
andvirðí 201 milljón króna af Lyfja-
versiun ríkisins sem ríkissjóður
bauð til sölu í gær. Hlutur hvers
var aö meðaltah 240-250 þúsund
krónur. Flestir fengu 4/5 hluta
kaupverðsins lánaða fyrir kaupun-
um, samkvæmt upplýsingum
Bjama Ármannssonar, forstöðu-
manns fjárvörslu og markaðssviös
Kaupþings, í morgun.
Kaupin eru einstök í sinni röð
fyrir þær sakir að kaupendur
greiddu margir aðeins 1/5 hiuta
kaupverðsins út en njóta engu að
síður skattafsláttar að fuiiu þegar
talið verður fram i janúar. Þannig
greiddi sá sem keypti 200 þúsund
króna hlutabréf 40 þúsund krónur
í gær en fær síðan 160 þúsund krón-
ur lánaðar vaxtaiaust og óverð-
tryggt til tveggja ára. „Þetta er ein
af fáum leiðum einstakUnga til að
lækka sína skatta. Viö áUtum að
bréfin séu öil seld og erum að fá
tölur inn,“ sagði Bjami. Ríkissjóö-
ur afhendir ekki bréfm fyrr en þau
eru greidd að fuilu en skattafrá-
drátturinn nýtist engu að síður að
fullu allan greiðslutímann, að sögn
Bjarna.
Til að fa sem flesta kaupendur
var ákveðiö að selja hvetjum aðila
hiutabréf að hámarki 500 þúsund.
Þaö nýttu fæstir sér því flestir
nýttu sér lánsréttinn og héldu sig
við 200 þúsund króna lánshámark-
iö og greiddu 1/5 hlutann. Bréfin
vom á 150 miUjónir króna að nafn-
virðí en vora seld á genginu 1,4.
Aðspurður um skattafyrirkomu-
lagið með hliðsjón af lánsréttinum
sagði Bjarni: „Eg vona að fólk hafi
verið að kaupa bréfm með arð-
semissjónarmiö í huga. Almennt
tíökast þetta ekki á verðbréfamark-
aðinum en ríkissjóður lánaði þó
kaupendum vegna sölu á hiuta-
bréfum í SR mjöli. Ég þekki þó
nokkur dæmi um ián þar sem stór-
ar sölur fara fram en ekki svona
beint tíi almennings," sagði Bjarni.
„Þessi viðbrögð komu okkur á
óvart. Aðsóknin var meiri en
reiknað var með. Álag á starfsfólk
var mikið í gær, bæði í Kaupþingi
og á öðrum sölustöðum,“ sagði
Bjami.
Það fá væntanlega margir vatn í munninn og fara að hlakka til Þorláksmessunnar þegar þeir sjá þessa mynd
sem tekin var í gær af skötu sem er verkuð með vestfirskum aðferöum. Lyktin af skötunni þótti lofa góöu en
Helgi Helgason saup hreinlega hveljur þegar Július Baldvin Helgason rétti honum skötuna til að lykta af. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Hiti 0-5 stig
Um morguninn verður allhvöss
suðaustanátt norðaustanlands og
þegar kemur fram á daginn verð-
ur suðvestan stinningskaldi suð-
austan til. Annars verður breyti-
leg átt, gola eða kaldi. Norðaust-
anlands verður slydda en skúrir
eða slydduél annars staðar. Hiti
verður á bilinu 0-5 stig, hlýjast
suðaustanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Seltzer fer
til Wales
Breskir eigendur Seltzer-verk-1
smiðjunnar á íslandi hafa ákveðið*
að flytja verksmiðjuna úr Þverholt-
inu í Reykjavík til Wales í byrjunl
næsta árs. Þar með hefur þrotlaus I
vinna ýmissa íslenskra aðila aðv
halda verksmiðjunni á íslandi runn-
ið út í sandinn.
Þrír af starfsmönnum verksmiðj-1
unnar flytjast til Wales, þar á meðal
Hörður Baldvinsson framkvæmda-
stjóri sem verður verksmiðjustjóri I
ytra. Búist er við að hátt á annan tug I
starfsmanna verksmiðjunnar missi
vinnuna en einhverjir gera sér vonir |
um að fá vinnu viö átöppunarverk-
smiðju Ferskvatns hf.
Samkvæmt heimildum DV hefur
komið í ljós að bresku eigendurnir
hafi allan tímann verið staðráðnir í
að flytja framleiðsluna úr landi. Þeir
hafi haft fría leigu á gömlu Sólar-
verksmiðjunni frá því í sumar á
meðan þeir voru að undirbúa flutn-
inginn til Wales.
Færeyjasvindlið:
Ekki
rannsakað
á íslandi
Magnús Möller, aðstoðarlögreglu-
stjóri í Þórshöfn í Færeyjum, segir
að húsleit hafi ekki verið gerð á ís-
landi í tengslum við fjársvikamáliö
mikla sem nú er rannsakað í Færeyj-
um.
„Þetta snýst bara um Færeyjar,
Danmörku og Grænland. Við höfum
engar áætlanir uppi um að rannsaka
málið á íslandi," sagði Möller í sam-
tali við DV i morgun.
Danska fréttastofan Ritzau sagði í
fréttaskeyti í morgun að rannsókn
svindlmálsins teygði anga sína alla
leið til íslands.
Borgarstjóri:
Ríkið hef ur
frumkvæðið
„Ríkið greiðir rekstrarkostnað
Borgarspítala. Ef við semjum við
sjúkraliða um kjör sem ríkið sættir
sig ekki við verðum við að senda
reikninginn þangað þannig að við
höfum htið svo á að ríkið verði að
hafa frumkvæði og forystu í þessum
málum," segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri um ályktun
sjúkraliða en þeir samþykktu í gær
aö skora á borgarstjórn að sýna
frumkvæði og taka upp beinar við-
ræður um nýjan kjarasamning.
/ Merkivélar
/ Tölvuvogir
/ Pallvogir
/ Pökkunarvélar
RÖKRAS HF.
Bíldshöfða 18 “S 671020
-L