Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Fréttir____________________________________ Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjómarinnar: Sumaruppsveiflan hef ur fjarað út - einungis 38,2 prósent kjósenda styðja ríkisstjómina Suðningur kjósenda við ríkisstjórn Davíðs Oddssonar heldur áfram að minnka eftir uppsveiflu í sumar, samkvæmt skoðanakönnun sem DV framkvæmdi um helgina. Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni nýtur ríkisstjómin nú stuönings 38,2 pró- senta kjósenda meðan 61,8 prósent eru andvíg henni. Niðurstöður könnunarinnar urðu annars á þann veg að 33,0 prósent sögðustfylgjandi ríkisstjórninni, 53,5 prósent sögðust andvíg, 11,3 prósent sögöust óákveðin og 2,2 prósent neit- uðu að gefa upp afstöðu sína. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var: „Ertu fylgjandi eða andvígur ríkis- stjóminni?" Skekkjumörk í könnun sem þessari em 3 til 4 prósentustig. • Minna en í síðustu könnunum Miöað við skoðanakönnun DV í október hefur fylgi ríkisstjórnarinn- ar minnkað um 0,9 prósentustig. Miðaö við könnun DV í ágúst síðast- liðnum hefur fylgið hins vegar minnkað um 6,2 prósentustig. Þá var ríkisstjómin í uppsveiflu samkvæmt fyrri könnunum DV á kjörtímabilinu og með svipað fylgi og á fyrsta starfs- ári sínu 1991. Minnst mældist fylgi ríkisstjómar- innar í janúar 1993, eða 26,2 prósent. Miðað við sama tíma í fyrra hefur fylgi ríkisstjórnarinnar aukist um 4 prósentustig. Sé miðað við nóvember 1992 hefur fylgið aukist um 2,6 pró- sentustig en miðað við fylgið í des- ember 1991 hefur fylgið minnkaö um 6,4 prósentustig. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar (í %): sept. des. febr. apr. júni sept. nóv. jan. mars júní sept. des. mars júní ág- okt. nú Fylgjandi 33,8 38,2 30,5 34,7 34,7 35,3 30,8 22,3 28,7 29,5 25,5 29,7 30,8 36,8 36,8 34 33 Andvígir 47,0 44,6 55,7 53,8 50,3 53,2 55,7 63,0 57,2 56,5 60,2 57,0 54,7 49,5 46,2 53,0 53,5 Óákveðnir -17,0 12,7 11,1 10,2 12,7 11,2 11,2 12,7 12,2 10,5 12,2 10,3 12,7 11,7 14,7 11,0 11,3 Svara ekki 2,2 1,8 2,7 1,3 2,3 0,3 2,3 2,0 2,0 3,5 2,2 3,0 1,8 2,0 2,3 2,0 2,2 Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar (í %): sept. des. febr. apr. júní sept. nóv. jan. mars júni sept. des. mars júní ág. okt. nú Fylgjandi 41,9 44,6 35,4 39,2 40,8 39,9 35,6 26,2 33,4 34,3 29,8 34,2 36,1 42,7 44,4 39,1 38,2 Andvígir 58,1 55,4 64,6 60,8 59,2 60,1 64,4 73,8 66,6 65,7 70,2 65,8 63,9 57,3 55,6 60,9 61,8 Fylgi ríkisstjórnarinnar Niðurstöður skoðanakönn- unarinnar urðu þessar: Oákveðnir 2,2% Svara ekki Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar: Fylgjandi andi Andvígir Andvígir Skoðanakonmin DV Ummæli fólks íkönnuninni „Engin ríkisstjórn er fullkomin. Stjómin hans Davíðs hefur verið að takast á við erfiða hluti á heið- arlegan hátt,“ sagöi eldri kona í Reykjavik. „Spillingin innan stjórnarinnar mun gera hana ódauðlega í hugum fólks,“ sagði ungur maður á höfuöborgar- svæðinu. „Sú rikisstjóm sem neitar að taka á ESB-málinu er ekki einungis vond heldur hættu- !eg þjóðinni," sagði karl á Reykja- nesi. „Ég fæ ekki séð að þessi rík- isstjórn standi fyrir eitt né neitt,“ sagði kona á Norðurlandi. „Davíð ætti að vera búinn að sparka krötum út úr stjórninni fyrir löngu,“ sagði karl á Suðurlandi. „Helmingur stjórnarinnar er góður enda sannir sjálfstæðis- menn,“ sagöi kona á höfuðborg- arsvæðinu. „Stjórnir koma og fara en Kiörin batna ekkert,“ sagði karl á Vesturlandi. „Þessar- ar rikisstjómar verður minnst fyrir það að hún einangraði land- ið,“ sagði karl í Reykjavik. „Ég var andvíg stjóminni en mér fmnst Davið hafa staöiö sig vel í umræðunni um Evrópusam- bandiö," sagði kona á Vestfjörð- um. „Þessi ríkisstjóm hefur unn- ið þrekvirki í efnahagsmálum á erfiðum tímum,“ sagði karl á höf- uðborgarsvæðinu. „Sú stjóm er best sem stjómar minnst. Þessi er afleit,“ sagði ungur maður á Noröurlandi. Fylgi ríkisstjórnarinnar — frá maí '91 til nóv. '94 — 80 Andvíglr Fylgjandi Maí '91 Nóv, '94 Skoðanakönnun DV I dag mælir Dagfari_________________ Um hvað skal semja? Stundum vorkennir maður fólkinu í Karphúsinu. Maður vorkennir samningamönnum sem sitja langa samningafundi og eiga erflðar vökunætur og fóma heilu sólar- hringunum í þágu umbjóðenda sinna. Þetta er slítandi starf og van- þakklátt og það ér stundum ekki sjón að sjá veslings samningafólkiö á sjónvarpsskjánum. Þreytan og erfiðiö blasir við í hveijum andlits- drætti. Fólkið hreyfir sig hægt og með erfiðismunum. Öll heimsins ábyrgð og skylda hvílir á herðum þessa dáindisfólks. Og ekki er hlutskipti sáttasemj- ara betra. Gengur á milli nefndar- manna, ber skilaboð á milli, þrauk- ar og þreyir góu og endalausar samningalotur af þrautseigju og þolinmæði. Sáttasemjari er ekki öfundsverður. Þannig hefur ástandið veriö í deilu ríkisvaldsins og sjúkraliö- anna undanfamar tvær vikur. Menn hafa setið niðri í Karphúsi og einblínt á pappírana og haldið fundi til að ræða ágreiningsefni og sáttasemjari hefur varpað öndinni og andvarpaö þess á milli til aö koma samningum af stað. Þjóðin hefur fylgst meö þessari atburðarás og haft samúð með verkfallsfólki og haft samúð með samningamönnum ríkisins sem ekki hafa fengið umboö til að segja neitt á þessum sanningafundum og menn hafa velt upp ýmsum mögu- leikum en allt sem sagt er situr við það sama. Þetta er erfiö deila og ekki bætir það úr skák að nú hafa þeir upp- götvað niðri í Karphúsi eftir tveggja vikna verkfall aö enginn veit hvað hinn er að tala um. Samn- inganefnd ríkisins segir að kröfur sjúkraliöa hafi aldrei legið ljósar fyrir. Sjúkraliðar segja að kröfurn- ar liggi fyrir. Samninganefnd ríkis- ins segist ekki kannast við hvað það sé sem sjúkraliöar vilja. Sjúkr- ahöar segja að samninganefnd rík- isins sé með vitlaus plögg í höndun- um. Er nema eðlilegt að erfitt sé að seipja ef samningsaðilar vita ekki hvað viðmælendur þeirra eru að tala um, ef samninganefndimar hafa haft sitt plaggið hvor fyrir framan sig! Er nema von að blessað fólkið sé þreytt og slitið þegar tvær vikur hafa farið í að tala út og suð- ur og hvorugur hefur skilið hinn? Dagfari sér ekki betur en samn- inganefndimar verði strax að setj- ast niður og semja um það hvað eigi að semja um. Á að semja um upphaflegu kröfumar eða seinni tíma kröfur? Á samninganefnd rík- isins að komast upp með það að segja við sjúkraliða að kröfur þeirra Uggi ekki ljósar fyrir þegar þær liggja ljósar fyrir? Á samn- inganefnd ríkisins að taka mark á fyrsta plaggi eða öðm plaggi? Em kröfurnar upp á 6% eða 40%? Verð- ur veslings fólkið ekki að semja um hvað semja ber um áður en gengið er til samninga? Það hlýtur að hafa verið erfitt hjá sáttasemjara að láta hópana ná saman þegar þeir hafa hvor sín plöggin fyrir framan sig og hafa aldrei talað sama mál. Það er í rauninni sönnun á snilld og hæfni sáttasemjara að geta haldið samn- ingafólki uppi á snakki í hálfan mánuð án þess að láta annan hóp- inn vita hvað hinn er að tala um. Það þarf aldeilis klára menn í slík störf. Meö því að halda þvi leyndu fyrir einum hvað annar er að tala um má halda samningaviðræðum í gangi um nokkurn tíma, en það er afrek eitt og sér að teygja samn- ingaviðræður í hálfan mánuð. Það þarf lagni til þess. Það gefur augaleið að verkfall er óhjákvæmilegt þegar stéttarfélag setur fram þannig kröfur að við- semjendur hafa ekki hugmynd um í hverju kröfurnar eru fólgnar. Það þarf verkfall til að koma viðsemj- endunum í skilning um hveijar kröfumar eru. Ef menn skilja ekki kröfur sem eru settar fram, þá skal farið umsvifalaust í verkfall til aö knýja fram skilning á kröfunum. Þegar sá skilningur liggur loks fyrir skal farið í annað verkfall eða halda verkfallinu áfram til að knýja á um viðurkenningu á kröf- unum sem menn hafa loks skilið eftir langt verkfall. Þetta eru augljós mannréttindi og samninganefnd ríkisins verður að sætta sig við að samninganefnd sjúkraliða er sá aðili sem setur kröfumar og hefur verkfallsréttinn og sá réttur er ekki af þeim tekin þótt samningamenn ríkisins þykist ekki skilja kröfumar. Það er þeirra vandamál. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.