Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Page 6
6
■ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Fjöldi manns mætti til stofnfundar Þjóðvaka:
Nú er bara að standa sig
- segir Jóhanna Sigurðardóttir sem kvaðst feikilega ánægð með stemninguna
„Ég er feikilega ánægö með þennan
fund. Þetta er mæting sem fór fram
úr öllum vonum og það eru sterkir
straumar og góð stemning. Maður
fann aö hugurinn hjá fólkinu er hjá
þessari hreyfingu. Nú er bara aö
standa sig,“ sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir eftir stofnfund stjómmála-
ISLENSKU
ALMANÖKIN '95
Vandaðar gjafir til
allra er unna Islandi.
hreyfingarinnar Þjóðvaka, hreyfing-
ar fólksins sem haldinn var á Hótel
íslandi í gær.
Fjöldi fólk kom til stofnfundarins,
líklega um 800 manns. Fundurinn
byijaði með ræðu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Jóhanna kynnti stefnu sam-
takanna þar sem hún boöaði meðal
annars hóflegt veiðileyfagjald sem
tæki miö af afkomu útgerðarinnar.
Þá segir hún samtökin munu standa
vörð um hagsmuni smábátaeigenda.
Hún segir að samtökin muni beita
sér fyrir jöfnuði atkvæðisréttar með
því aö gera landiö að einu kjördæmi.
Samhliða þessari breytingu verði
stefnt að því að fækka þingmönnum
í 50 og tekið verði upp persónukjör.
Jóhanna gagnrýndi harkalega að
Alþingi skuli enn ekki hafa afgreitt
þær stjómarskrárbreytingar sem
þarf til að jafna atkvæðisrétt lands-
manna.
Stjórnlagaþing þar sem þjóðkjörnir
fulltrúar úr öllum kjördæmum ættu
sæti sagöi hún að ætti að taka á þess-
um málum og gera tillögur um
stjórnarskrárbreytingar varðandi
mannréttindaákvæði og kosninga-
reglur. Þá ætti stjórnlagaþing að
sefia skýrar reglur um löggjafar- og
framkvæmdavald svo sem að setja
reglur um það að ráðherra afsali sér
þingmennsku og um meðferð auka-
fjárveitinga. Þá verði vald fólks auk-
iö með auknum rétti til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Tillögur stjómlaga-
þings verði síðan lagðar undir bind-
andi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Jóhanna sagði í ræðu sinni að efla
yrði siðbót í stjórnmálum með því
að setja stjómmálamönnum siða-
reglur og að þeir yrðu látnir sæta
ábyrgð. Þá verði stefnt að því að gera
bókhald stjómmálaflokkanna opin-
bert og lögfest yrði að styrktarfjár-
hæðir til flokkanna yfir ákveðnu
marki yrðu gerðar opinberar til að
forðast óeölileg hagsmunatengsl.
Jóhanna sagði að stefna samtak-
anna væri að halda opnum þeim
möguleika að ísland gerðist aðili að
ESB. Slíkt kæmi þó ekki til greina
nema því aðeins að íslendingar héldu
fullu og óskoraðu valdi yfir auðhnd-
um sínum. Hún endaði ræðu sína á
því að lýsa því að krafa samtakanna
væri sú aö gefið yrði upp á nýtt í
þjóðfélaginu og þjóðarkökunni skipt
á nýjan leik. Þá sagði hún kröfu Þjóð-
vaka vera að tekin yrði upp ábyrgð,
trúverðugleiki og heiðarleiki í stjóm-
málum.
Auk Jóhönnu tóku til máls Þor-
steinn Hjartarson, skólastjóri af Suð-
urlandi, Ásta B. Þorsteinsdóttir,
formaður Þroskahjálpar, Guðrún
Árnadóttir, fyrrverandi formaður
Meinatæknafélags íslands, Sigurhn
Sveinbjarnardóttir framkvæmda-
stjóri, Runólfur Ágústsson, lektor viö
Samvinnuháskólann, og Sigurður
Pétursson sagnfræðingur. Þeir sem
kynntu á fundinum vora Hrannar
B. Arnarsson og Steinunn Ólafsdótt-
ir.
Eldur kom upp í mannlausum sumarbústað á svokölluðum Vatnsendabletti skammt frá Rauðavatni á laugardags-
kvöldið. Þegar slökkviliðið i Reykjavik kom á vettvang var bústaðurinn alelda og fékk það litið við ráðið. Hvas-
sviðri gerði slökkviliðsmönnum erfitt fyrir og er bústaðurinn gjörónýtur eftir eldinn. Eldsupptök eru ókunn en málið
er í rannsókn hjá RLR. DV-mynd Sveinn
Bjami Guðnason:
Þarfaðhrista upp
í lognmollunni
„Það veitir ekki af því að hrista upp
í lognmollu íslenskra stjórnmála. Ég
er búinn aö gefast upp á Alþýðu-
flokknum," segir Bjarni Guðnason,
prófessor og fyrrverandi alþingis-
maöur Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, spm sat stofnfund
Þjóðvaka.
„Nú eru aðrir tímar en þetta eru
svipaðar áherslur og það er betri
jarðvegur en þegar Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna voru við
lýði,“ segir Bjami.
Páll Halldórsson:
Úrsagnarbréfið
áleiðinni
„Ég held að gömlu flokkarnir hafi
lokið sínu hlutverki og það sé full
þörf fyrir nýja hreyfingu," segir Páll
Hahdórsson, formaður BHMR, á
stofnfundi Þjóðvaka.
Páll er flokksbundinn alþýðu-
bandalagsmaður og ætlar hann að
segja sig úr þeim flokki: „Úrsagnar-
bréfið er á leiöinni," segir Páll.
Alþýðubandalagsfólk og
framsóknarmenn áberandi
„Þarna var fólk úr öllum kimum
íslensks þjóðfélags og úr öllum stétt-
um. Áberandi var fólk sem aðhyllist
sameiningu á vinstri vængnum, svo
sem margir þeirra sem stóðu að Nýj-
um vettvangi og síðar að R-hstanum
í Reykjavík. Það kom mér ekki á
óvart að sjá þarna fólk úr Birtingu
sem er fijálslyndari armur Alþýðu-
bandalagsins. Þá kom það mér held-
ur ekki á óvart að sjá framsóknar-
menn og gamla félaga úr Alþýðu-
flokknum," segir Ólína Þorvarðar-
dóttir sem starfað hefur með Jó-
hönnu að undirbúningi framboðsins.
Beöið hafði veriö með nokkurri eft-
irvætingu eftir því að í ljós kæmi
hveijir stæðu að nýrri hreyfingu um
Jóhönnu Sigurðardóttur sem nú
mæhst með fylgi íjórðungs ahra at-
kvæðisbærra Islendinga. Það má
segja að eftir stofnfund Þjóðvaka
hafi fáir í forystusveitinni komið á
óvart. Aftur á móti var hið mikla íjöl-
menni sem var á fundinum nokkuð
óvænt. Áberandi var þar hve margir
sem framarlega hafa verið í Alþýðu-
bandalaginu komu. Þetta á sérstak-
lega við félaga í Birtingu. Þama vora
Páll Halldórsson formaður BHMR,
Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi og áður krati, undirritar stuðningsyfirlýs-
ingu við Þjóðvaka. Helgi Pétursson úr Rió, sem gekk nýlega úr Framsókn,
fylgist brosleitur með. Hann gekk sjálfur til liðs við Jóhönnu á fundinum.
DV-mynd GVA
Mörður Árnason, Kristín Ólafsdóttir
og Hrannar B. Arnarsson.
Þá voru framsóknarmenn nokkuð
áberandi, bæði núverandi og fyrr-
verandi. Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, sem hafnaði í þriðja sæti í
prófkjöri Framsóknar í Reykjavík og
neitaði aö taka það sæti, var á fund-
inum ásamt Gerði Steínþórsdóttur,
fyrrum borgarfulltrúa, og sömuleiöis
Helgi Pétursson, fyrrum framsókn-
armaður óg varaborgarfulltrúi R-
listans.
Talsverða athygli vakti að meðal
þeirra krata sem komu voru Pétur
Sigurðsson, varaþingmaður á Vest-
fjörðum, og Gunnar Eyjólfsson,
skátahöfðingi og leikari. Þá komu og
Vilhelm Ingimundarson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Alþýöuflokksins,
og Grétar Guðmundsson, stjórnar-
maður í Alþýðuflokksfélagi Reykja-
víkur.
Fulltrúar þeirra framboöa sem áð-
ur hafa verið sett til höfuðs gömlu
flokkunum áttu fulltrúa. Þarna voru
Ásgeir Hannes Eiríksson og Hall-
grímur Sveinsson sem tengdust
Borgaraflokknum. Þá var Bjarni
Guðnason prófessor, fyrrum þing-
maður Frjálslyndra og vinstri
manna, mættur.
Af öðrum þekktum einstaklingum
sem sátu fundinn má nefna Birgi Sig-
urðsson rithöfund, Jónatan Þór-
mundsson prófessor, Sigurjón Valdi-
marsson ritstjóra, Jörund Guð-
mundsson skemmtikraft og sirkus-
stjóra, Gunnar Þórðarson hljómhst-
armann og Hannes Jónsson, fyrrum
sendiherra.
ISL. ALMANAKIÐ
stærð; 27,5 x 35 sm.
ÍSLANÐ
ICE14ND
- \ í l. í ;l
ISL. NATTURUALMANAKIÐ
stærö; 22 x 26 sm.
.vMWmiAjp
*4fiaum.xAiiu
*M,95
STORA NATTURUALMANAKIÐ
stærð; 35 x 42,5 sm.
ISL. HESTAALMANAKIÐ
stærð, 22,5 x 25 sm
Útsölustaðir um land allt.
Sf
Álmanaksútgáfa &
náttúruljósmyndun
Sími: Ó73350 - Fax: Ó76671.