Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
Útlönd
FlokkurHelmuts
Kohlsræðir
kvennakvóta
Búist er við
heiturn urnræð-
um um kvenna-
kvóta hjá
kristilegum;
jaí'naðarmönn-
um, flokki
Helmuts Kohls
Þýskalands-
kanslara, en j>eir halda flokks-
þing sitt í dag. Tillögur eru um
að konur fái þriöjung allra starfa
á vegum flokksins.
Flokksformaðurinn Peter
Hintze, sem er helsti baráttumað-
ur kvótakerfisms, sagði í gær að
hann væri nokkuð viss um að til-
laga hans yrði samþykkt.
Dollar í hættu
vegnapeninga-
falsara
Mikil gósentíð er nú hjá glæpa-
mönnum sem nota nýjustu tækni
til að falsa peningaseðla. Dollar-
inn er í mestri hættu þar sem
hann er helsta myntin í heims-
viðskiptum.
Þetta kemur fram í grein í
bandaríska tímaritinu US News
and World Report. Þar segir að
allt að tíu milljaröar dollara í fóls-
uðum seðlum séu í umferð utan
Bandaríkjanna.
ReynirMónakó-
fursti á batavegi
eftiraðgerð
Reynir Món-
akófurstí er á
góðum batavegi
eftir að hann
gekkst undir
hjartaaðgerð
fyrir helgi. Aö
sögn starfs-
manna í fursta-
höllinni gat þjóöhötðinginn tekið
á móti fiölskyldu sinni, snætt og
lesið dagblöð strax á laugardag.
Reuter
Hlúum að
börnum heims
-framtíðin
er þeirra
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI
DV
Þrír menn í haldi á Norður-írlandi fyrir kynferðisofbeldi:
Meira en 100
börn misnotuð
Þrír menn eru nú í haldi á Norður-
írlandi vegna kynferðislegrar mis-
notkunar á rúmlega eitt hundrað
börnum, aðallega drengjum á aldrin-
um átta til tólf ára. Á annan tug
manna til viðbótar hafa veriö yfir-
heyrðir vegna þessa en sleppt. Þetta
er stærsta mál sinnar tegundar sem
komið hefur upp á Bretlandi, að því
er breska blaðið Observer sagði í
forsíðufrétt í gær.
Lögreglan á Norður-írlandi sagði í
gær að saksóknari væri nú að rann-
saka málskjölin.
Observer sagði að rannsókn lög-
reglunnar beindist að bæjarblokka-
hverfi í Londonderry, norðvestur af
Belfast. Meðal þess sem barnaníð-
ingahringurinn hefur gert eru
nauðganir og stóðlífi. Þá hefur einnig
verið staðhæft að börnin hafi verið
beitt ofbeldi og þeim hafi verið hótað
brottnámi. Mennirnir eru sagðir
hafa stundað iðju sína í mörg ár.
Lögreglan staðfesti að hún hefði
rannsakað misnotkun barna í Lon-
donderry en vildi ekkert tjá sig um
málið. Heimildir herma að fleiri en
mennirnir þrír sem nú eru í haldi
verði ákærðir.
Observer sagði einnig frá óskyldu
máli í Londonderry þar sem fjöl-
skylda segir að kirkjan hafi verndað
prest, sem réðst á dóttur þeirra með
kynferðislegu ofbeldi, í þrjú ár.
Reuter
Tekur Lahnstein
viðafGro?
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Andstæðingarnir taka ekki á sig
ábyrgðina eftir kosningarnar," hefur
Gro Harlem Brundtland þráfaldlega
sagt nú í kosningabaráttunni. Svo
gæti þó farið að hún hefði þar rangt
fyrir sér. Höfuðandstæðingurinn,
Anne Enger Lahnstein, hefur í það
minnsta ekki vísað frá sér ábyrgð á
landsstjórninni fari hún og nei-
mennirnir með sigur af hólmi í dag.
Lahnstein er eini stjórnmálamað-
urinn úr andstöðuhðinu sem getur
tekið við af Gro Harlem. Hún fengi
þó aldrei meirihluta þingsins til að
styðja sig. Lahnstein er klókari
stjórnmálamaður en margir ætla.
Hún hefur rifið Miðflokkinn upp úr
mikilli lægð. í kosningabaráttunni
nú hefur hún sannað að henni er
ekki fisjað saman þótt stundum virð-
ist sem yfirlýsingar hennar séu eins
og út úr kú.
Bandaríkjaþing
samþykkirGATT
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
setigeturandað
rólegar þar sem
allt bendir til að
Bandaríkjaþing
muni leggja
blessun sína yf-
ir - nýjan
GATT-samning í vikunni. Óttast var
að repúblikanar mundu koma í veg
fyrir samþykki samningsins.
Reuter
Mikið var um dýrðir í Lundúnum í gær, á fyrsta sunnudeginum i aðventu,
þegar heljarinnar skrúðganga fór þar um götur. í göngunni var meðal
annars þessi fríði jólasveinn sem veifaði óspart til mannfjöldans. Þúsundir
Lundúnabúa fylgdust með göngunni. Símamynd Reuter
Varnirnar við Bihac-bæ eru að bresta
Vamir stjórnarhers Bosníu við
Bihac-bæ í samnefndu héraði eru um
það bil að bresta og árásarsveitir
Serba eru komnar í úthverfm, að þvi
er talsmaður Sameinuðu þjóöanna
sagði í gær.
„Serbar eru farnir að þrengja að
íbúðahverfunum," sagði Edward
Joseph, talsmaður SÞ, og bætti viö
að ástandið væri mjög alvarlegt.
Aðeins eru 300 til 400 menn eftir til
að verja bæinn. Serbar héldu uppi
skothríð úr sprengjuvörpum, loft-
varnabyssum og skriðdrekum.
Harðir bardagar geisuðu í eins
kílómetra íjarlægð frá yfirfullu
sjúkrahúsinu. Friðargæsluliðar SÞ
reyndu að verja sjúkrahúsið meö
brynvörðum bílum. Nærvera þeirra
virtist vera starfsliðinu og nærri 2000
sjúklingum einhver huggun.
Ríkisstjórn Bosníu skýrði frá því í
gær að hún hefði fallist á tillögu SÞ
vopnahlé og vopnlaust svæði en þá
yrði stjórnarherinn að flytja menn
sína og bækistöðvar burt frá Bihac.
Rcuter
Stuttar fréttir
Serbartóku gísla
Serbar tóku um 150 breska og
hollenska friðargæsluhða SÞ í
gíslingu í Bosníu.
Páfi meiddur
Jóhanne&Páll
páfi meiddi sig
á litlafmgri
ha>gri handar i
gær þegar bíl-
hurð skellöst á
hann og kom
hann með putt-
ann vafinn í
messu meö 30 kardínálum.
Stjórnmálatengsl
ísrael og Jórdanía hafa tekið
upp stjórnmálatengsl í kjölfar
friðarsamningsins.
Fyrirsát á Vesturbakka
Rabbíi lét líflð og ísraelskur lög-
regluþjónn særðist þegar bíl
þeirra hvolfdi eftir að skotið var
á hann á Vesturbakkanum.
TaiaðviðSinnFein
Bresk stjórnvöld ætla að ræða
beint viö Sinn Fein, pólitískan
arm IRA.
Meira ofbeldi í Alsír
Alsírskar öryggissveitir hafa
vegið tæplega áttatíu harðlínu-
menn múslíma á einni viku.
Pólskur togari tekinn
Norska strandgæslan tók
pólskan togara við ólöglegar veið-
ar suðvestur af Stafangri.
Saddamræðurferð
Saddam Hussein íraksforseti
hefur tekið við stjórn utanríkis-
mála lands síns.
AídaáEgyptalandi
Ekki tókst að selja alla miða á
frumsýningu á óperunni Aídu
nærri bænum Lúxor á Egypta-
landi um helgina.
Skotíðárútu
Óþekktur maður skaut úr bif-
reið sinni á langferðabíl nærri
Malmö í Svíþjóð á laugardags-
kvöld.
Skólastjórar mótmæla
Þúsundir skólastjóra í frönsk-
um framhaldsskólum mótmæltu
naumum íjárframlögum og of
miklu álagi.
John Major hafði betur
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
tands, h;tfði tet-
ur i glíinunni
við andstæð-
inga ESB innan
eigin flokks en
í dag verða
greidd atkvæöi i þinginu um auk-
in framlög til sambandsins.
Tólf létust í rútuslysi
Tólf manns fórust og átján slös-
uðust þegar langferðabifreið fór
út af þjóðvegi í Kólumbíu.
Rcuter, NTB, TT
Stimpilpenni merktur fyrirtækinu
og/eða starfsmanninum og með
þeim upplýsingum sem hver vill.
- Glæsileg gjöf !
PDæÉStoss
KRÓKHÁLSI 6* P.O. BOX 10280
SlMI 91 - 67 1900 • FAX 91 ■ 67 1901 • 110 REYKJAVÍK