Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Side 14
14
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblaö 200 kr. m/vsk.
Ringulreið til góða
Jóhanna Sigurðardóttir og fylgismenn hennar héldu
kynningarfund í gær. Þar var vel mætt og mörg kunnug-
leg andht sem áður hafa sést í póhtísku starfi, einkum á
vinstri væng stjómmálanna og undir merkjum annarra
flokka. Ljóst er að Jóhanna mun sækja fylgi og stuðning
úr ýmsum áttum og höggva skarð í fylgi fleiri flokka
heldur en Alþýðuflokksins eins þegar kemur að fram-
bjóðendum og kjósendum.
Hér hefur áður verið bent á að hugsanlegt og væntan-
legt fylgi Jóhönnu Sigurðardóttur mun verða samsafn
þeirrar óánægju og undiröldu sem ríkir í þjóðfélaginu
og beinist að stjómmálunum almennt. Hún mun fiska í
því gmgguga vatni. Ringulreiðin mun aukast.
Reynslan verður síðan að skera úr um það hversu
langlíf þessi fylking verður, með hhðsjón af þeirri stað-
reynd að hér er um lausafylgi að ræða, óánægju sem
beinist í ólíkar áttir en sækir ekki styrk sinn í hugsjón
eða málstað, nema þá sem sveiflast frá einum degi til
annars, frá einni skoðun til annarrar.
Nú, þegar ljóst hggur fyrir að Jóhönnu Sigurðardóttur
er alvara með framboði um aht land, mun það verða
áhtlegur hópur sem greiða mun hinum nýja flokki henn-
ar atkvæði sitt. Samkvæmt skoðanakönnun, sem DV
birtir í dag, er fylgi hennar umtalsvert meira heldur en
annarra vinstri flokka sem þó sækja allir meira og minna
á sömu mið. Ef Framsóknarflokknum er bætt við og
Kvennahstanum munu að minnsta kosti fimm flokkar
sækjast eftir fylgi svokahaðs félagshyggjufólks. Ekki mun
Sjálfstæðisflokkurinn heldur sleppa við þá múgsefjun
sem nýjum flokki fylgir.
Með öðrum orðum, Jóhanna og hennar nýi flokkur
mun sækja atkvæði í ahar áttir. Það sannar enn einu
sinni hversu mörkin milh flokka eru óljós og hversu
úrelt flokkaskipanin er.
Það jákvæða við framboð Jóhönnu Sigurðardóttur
hggur kannski fyrst og fremst í þeim árangri að það mun
brjóta upp flokkakerfið og flýta fyrir þeirri þróun að það
verði stokkað upp. Það er enginn vafi á því að sá fjöldi
kjósenda, sem finnur til sameiginlegra hagsmuna og sam-
stöðu í póhtík, mun auka þrýsting og kröfur til að flokk-
amir rugh saman reytum sínum og myndi eina breiðfylk-
ingu í stað þess klofnings sem nú tvístrar kjósendum í
ahar áttir.
Ef það verður niðurstaðan er framboð Jóhönnu rétt-
lætanlegt. Staðnað og úrelt flokkakerfi er meðal annars
og aðalástæðan fyrir þeirri kreppu sem nú ríkir í stjórn-
málunum, þeim trúnaðarbresti sem ríkir mihi kjósenda
og flokka og heldur hlífiskildi yfir þeim órétti sem við-
gengst í atkvæðavægi hér á landi.
Athygh skal vakin á því að uppstokkunin mun ekki
verða með enn einum flokknum á Alþingi, eins og aht
stefnir í með nýjum flokki Jóhönnu Sigurðardóttur.
Sljómleysið og ringulreiðin mun aukast á næsta þingi
og sá stöðugleiki, sem þjóðin þarf á að halda, mun svo
sannarlega ekki myndast þegar vinstri flokkamir fara
að bítast um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn eða þá gera
tilraun til sameiginlegrar stj órnarmyndunar.
En vonin er sú að fáránleiki þeirrar stöðu sem kemur
upp, þeir árekstrar sem flokkamir lenda 1 og sú krafa
kjósenda að sameining komi í stað sundrungar flokka,
knýi bókstaflega foringja flokkanna til að taka höndum
saman í færri fylkingum.
Það er það góða og jákvæða sem ringulreiðin í kringum
Jóhönnu getur haft í fór með sér. Ehert B. Schram
Samgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu
Að undanfómu hafa verið um-
ræður um úrbætur í vegagerð á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem
þekkja umferðina í höfuðborginni
vita að þar er þörf fyrir úrbætur.
Hins vegar má um það deila hvau
mörkin eiga að vera á milli fram-
kvæmda sem eru á ábyrgð sveitar-
félaga og þeirra sem kostuð eru úr
ríkissjóði. Auk þess sem benda má
á það að höfuðborgin hefur haft
algera sérstöðu meðal sveitarfélaga
um tekjuöflun og rekstur orkufyr-
irtækja og hafnar sem hafa malaö
gull í áratugi íbúunum til mikilla
hagsbóta.
Stækkun olíuhafnar
Til þess að leysa umferðarvanda
í höfuðborginni og draga úr slysa-
hættu tel ég að þurfi að líta til
lausna sem eru til frambúðar og
að öðra leyti til hagsbóta og em til
þess fallnar að nýta betur íjárfest-
ingu og mannvirki. Við okkur blas-
ir að nauðsynlegt er að gera svæð-
isskipulag fyrir höfuðborgarsvæð-
ið allt, Suðurnesin og Hvalfjarðar-
svæðið einnig þar sem fjallað verði
um samgöngukerfið sem heild,
bæði vegi og hafnir.
Við núverandi aðstæður tel ég
óeðiilega mikilli umferð beint inn
í höfuðborgina. Þar á ég einkum
við þungaflutniga og umferð einka-
bíla sem tengjast viðskiptum við
fyrirtæki sem eru staðsett viö höfn-
ina og í hjarta borgarinnar.
í fréttum í Morgunblaöinu 11.
nóvember er sagt frá miklum fram-
kvæmda- og íjárfestingaáformum
Reykjavíkurhafnar. Stefnt er að
því að auka umferð olíuskipa í að-
alhöfninni og um leið auka enn-
frekar flutninga um miðborgina
vegna olíuflutninga. Þessi áform
eru fullkomlega óeðlileg þegar tek-
ið er tillit til þess að stór hluti oliu
sem berst til landsins er síðan flutt-
ur með bílum frá höfuðborgar-
svæðinu og veldur hluta af þeim
KjáUariim
Sturla Böðvarsson
alþingismaður
Reykjavíkurhöfn. Verði það ekki
gert er einsýnt að Reykjavíkurhöfn
verður að taka þátt i gerð umferð-
armannvirkja út úr borginni og
með ströndinni innan borgarmark-
anna.
Afkoma Reykjavíkurhafnar hef-
ur verið mjög góð, m.a. vegna þess
að flutningar á sjávarafurðum sem
er ekið til borgarinnar hafa aukist
um leið og strandflutingar hafa
dregist saman. Framlegð Reykja-
víkurhafnar frá rekstri hefur verið
um 200 milljónir á ári sem er mjög
góð afkoma fyrirtækis sem ekki
greiöir skatta af rekstrarhagnaði
og hefur skapað höfuðborginni til-
tekið svigrúm.
Með göngum undir Hvalfjörð
skapast mikilvægir möguleikar til
þess að létta á umferðinni sem þarf
nú að fara til Reykjavíkurhafnar.
„Við okkur blasir að nauðsynlegt er
að gera svæðisskipulag fyrir höfuð-
borgarsvæðið allt og Suðurnesin einnig
þar sem fjallað verði um samgöngu-
kerfið sem heild, bæði vegi og hafnir.“
vanda sem er í umferöinni. Stækk-
un olíuhafnar og um leið olíu-
birgðastöðvar í Órfirisey og þá
væntanlega í Laugarnesi mun leiða
til þess að umferð mun aukast
vegna flutninga með olíuvörur um
meginumferðaræðar borgarinnar í
átt til Vestur- og Suðurlands.
Á Grundartanga
eða Akranesi
Mikilvægustu aðgerðimar til
þess að bæta samgöngukerfið á
þessu svæði eru að bæta umferðar-
mannvirki inn og út úr borginni
svo sem með mislægum gatnamót-
um og draga úr flutningum um
Með því að færa olíubirgðastöðvar
að hluta upp í Hvalfjörð mætti
landa þar öflum olíuvörum sem
fluttar eru vestur og norður um
land. í Hvalfirði er fullkomin olíu-
löndunaraðstaða fyrir öll oliufélög-
in. Þá mætti staðsetja flutninga-
miðstöð fyrir skipafélögin á Grund-
artanga eða á Akranesi vegna þess
varnings, þeirra gáma sem ættu að
fara vestur og norður um land með
bílum eða skipum.
Með slíkum aðgerðum mætti
létta á umferðarþunga til höfuð-
borgarinnar og færa þungamiðju
byggðar og þjónustumannvirkja.
Sturla Böðvarsson
Skoðanir annarra
Ungt ffólk til ríkisstarfa
„Ungt fólk hefur streymt í stórum stíl í háskólanám
sem einkum nýtist opinberum aðilum í stað þess að
sækja í verknám til undirbúnings fyrir krefjandi
störf í atvinnulífmu. Þetta á sérstaklega við um kon-
ur en mikifl meirihluti háskólamenntaðra kvenna
hefur séð hag sínum best borgið með því aö mennta
sig til starfa hjá ríkinu. Mesta furöu vekur þó sú
staðreynd að einungis lítið brot háskólamanna hefur
ráðið sig til starfa í undirstöðuatvinnugrein þjóðar-
innar, sjávarútvegi."
KB í Viðskipta/atvinnulífi Mbl. 24. nóv.
Linda og lögreglan
„Það vonda við mál af þessu tagi er að það er ekki
endilega víst, og jafnvel ólíklegt, að sannleikurinn
komi nokkurn tíma í ljós - þrátt fyrir rannsókn þar
tfl bærra aðila. Fullyrðing stendur gegn fullyrðingu
og enginn til vitnis aðrir en beinir þátttakendur í
atburðinum. Það er heldur ekki til bóta, að þegar
hópur manna, í þessu tilviki Reykjavíkurlögreglan,
telur að sér vegið þá hafa menn tilhneigingu til þess,
af misskilinni stéttvísi, aö veija hver annan fram í
rauðan dauðann."
Úr forystugrein Morgunpóstsins 24. nóv.
Lágt metin kvennastörf
„Hvers vegna eru konur í láglaunastörfum? Það
er af því aö þau störf sem konur hafa stundað um
aldir og þeim finnst henta sér vel, eru lágt metin til
launa... Konur ættu ekki aö miða kröfur sínar við
aðra kvennahópa sem hafa búið við légleg laun, held-
ur ættu þær að miða við að hafa möguleika á góðri
afkomu fyrir eigin vinnu. Það er kannski ekki hægt
að kaupa hamingjuna fyrir peninga, en ég tek heils
hugar undir með Francoise Sagan þegar hún sagði:
Það er skárra að gráta í Rolls-Royce en Volkswagen."
Hólmfríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfr. í Mbl. 25. nóv.