Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Side 15
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 15 Fjargviðrast í tómarúmi „Menntun kvenna hefur því ekki að- eins skilað þeim konum sem menntun- ar hafa notið ávinningi heldur einnig öllum konum sem einhvern ávinning hafa haft af kvennabaráttu síðustu 120 ara. „ ... ef ekki hefðu m.a. komió til „hugmyndafræðilegar vangaveltur alls kyns „fræðinga““ sæti Jóna Valgerður Kristjánsdóttir ekki á Alþingi fyr- ir kvennalista," segir Sigríður Dúna i lok greinar sinnar. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingkona Kvennalistans á Vest- fjörðum, skrifaði nýlega kjallara- grein undir fyrirsögninni „Konur, hvað nú?“ Er það tvennt í þessari grein sem ég geri hér að umtalsefni. Hver má stunda kvennabaráttu? Af fyrirsögn greinarinnar hefði mátt ætla að þingkonunni væri hugleikið að koma á framfæri ein- hverjum boðskap um næstu skerf- in í kvennabaráttunni. Því fer hins vegar víðs fjarri. í greininni er hún að fjargviðrast yfir því að konur annars staðar en í Kvennalistanum, nánar tiltekið ungar konur í Sjálfstæðisílokkn- um, hafa tekið sig saman um að vinna að málefnum kvenna út frá kvennapólitískri stefnu sem þær hafa sjálfrar skilgreint. Ég hefði haldið að sönn kvenna- baráttukona fagnaði því að kvennabaráttan ætti sér málsvara sem víðast. Eða horfði spyrjandi í eigin barm og spyrði hvað hefði farið úrskeiðis í þeirri kvennabar- áttu sem hún stundar og virðist ekki höfða til að mynda til þeirra kvenna sem hér um ræðir. Þaö geir Jóna Valgerður ekki og það er allrar athygli vert. Kvennasögulegt tómarúm í annan stað telur Jóna Valgerður sér sæma að skrifa að „hugmynda- fræðilegar vangaveltur alls kyns „fræðinga"... breyti... engu um“ stöðu kvenna í íslenskum stjóm- málum. Ég geri ráð fyrir að hér eigi hún við kvenkyns fræðinga, þar sem karlkyns fræðingar eru sjaldséðir fuglar í stefnumótun í kvennabaráttu. Niðrandi skrif um menntun kvenna eða langskólagengnar kon- KjaUaiim Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræðingur ur eru þingkonunni tæpast sam- boðin. Eg vil benda henni á að kynna sér sögu íslenskrar kvenna- baráttu áður en hún fullyrðir meira í þessu efni. Baráttan fyrir rétti kvenna til að fá að ganga í skóla, til að fá að mennta sig eins og bræður þeirra og nota menntun sína á þeim vettvangi sem þær sjálfar kjósa er órjúfanlegur hluti íslenskrar kvennabaráttu frá upp- hafi vega. Reyndar má rekja upphaf rétt- indabaráttu íslenskra kvenna til þess að 25 konur í Reykjavík sam- einuðust um það árið 1871 að skrifa opið bréf til bæjarblaðanna um nauðsyn þess að koma á fót sér- stökum skóla fyrir ungar konur, kvennaskóla. Allar götur síöan hafa konur barist fyrir rétti kvenna til að fá að mennta sig og unnið þar marga sigra sem ekki sæmir að forsmá. Menntun, til hvers? Nú er það svo að í fararbróddi kvennabaráttunnar bæði hér á landi sem í nágrannalöndunum hafa ævinlega farið konur sem áttu kost á nokkurri menntun, hvort sem það var í skóla eða með öðrum hætti. Menntun kvenna hefur því ekki aðeins skilað þeim konum sem menntunar hafa notið ávinningi heldur einnig öllum konum sem einhvern ávinning hafa haft af kvennabaráttu síðustu 120 ára. Þessi staðreynd er nú orðin ljós þeim sem fjalla um málefni kvenna á alþjóðavettvangi eins og skýrt kom fram á nýafstaðinni mann- fjöldaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Kaíró. Þar komust menn að þeirri niðurstöðu að eina leiðin til að stemma stigu við ómegð, barna- dauða og bágum aðstæðum kvenna um víða veröld væri að gefa konum kost á að mennta sig. Þessar stað- reyndir, því staðreyndir eru það, ætti þingkonan að kynna sér áður en hún skrifar meira um „fræð- inga“ og kvennabaráttu. Til minnis Því má svo bæta við í lokin að Kvennalistinn er ekkert náttúru- fyrirbæri, hann var búinn til á sín- um tíma og ef ekki hefðu m.a. kom- ið til „hugmyndafræðilegar vanga- veltur alls kyns „fræðinga" sæti Jóna Valgerður Kristjánsdóttir ekki á Alþingi fyrir kvennahsta. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Meðog ámóti ListasafníHafnarhúsið Lífvænlegt aðhafa söfnog búðirsaman „Við viljum hefja viðræð- ur viö hafnar- stjóm um Ilafnarhúsið því að \iö telj- um að Lista- safn mundi auka veru- lega C)öl- ullu[tjn vwnawuuir, breytnina í fqrmadur menningar- starfsemi í málane,ndar- miðbænum. AUs kyns verslunar- og veitingastarfsemi er nú þegar fyrir hendi í miðbænum og því engin sérstök ástæða til að setja slika starfsemi upp i þessu húsi nema þá i tengslum við hstasafn- ið. Við teljum að hstasafh í breiöri merkingu yrði mikh iyftistöng fyrir aðra starfsemi í miðbænum. Erlendis tengist verslunarstarf- semi hstasöfnum og það er ein- mitt það sem við höfum í huga. Við eigum eftir að útfæra hug- myndina nánar en þó er ljóst að við viljum ekki bara koma upp sýningarsölum í húsinu heldur einnig ýmissi starfsemi sem teng- ist þeim. Þannig getur listastarf- semi í Hafharhúsinu orðið mjög lífvænleg. Eftir er að kanna kostnaðar- hhðina við flutning Listasafns Reykjavíkur f Hafnarhúsið en viö stöndum andspænis húsi sem er tiltölulega vel farið. Það er nokk- uð heppilegt fyrir listasafn að fá gróft húsnæði og því þarf ekki mikinn frágang á húsnæðinu. Það þarf náttúrlega að athuga lýsingu, rakastig og upphitun og ýmislegt þess háttar en að ööru leyti getur listasafnið tekið við tiltölulega hráu húsi. Vöru- skemmurnar í húsinu henta að því leytinu til mjög vel unúh listasafn." Olaf ur G., greidd skuld er glatað fé Menntamálaráðherra, sem þarf að skera niður í sínu ráðuneyti, brýnir hnífinn þessa dagana og ræðst tii atlögu. Fyrst er sneitt af Kvikmyndasjóði, svo er Listskreyt- ingasjóður skorinn af og nú hefur Menningarsjóður útvarpsstöðva verið lagður niður og engu verður úthlutað í ár - þrátt fyrir að aug- lýst væri eftir umsóknum. En hvers vegna var sjóður með yfir hundrað milljónir skorinn niður? Jú, Menningarsjóður útvarps- stööva skuldaði Sinfóníuhljómsveit íslands meira en hundrað milljón- ir. Halló! Við erum að tala um meiri peninga en framlag ríkisins til Kvikmyndasjóðs íslands. Hver ber ábyrgðina á þessari skuldaóreiðu Menningarsjóðs útvarpsstöðva? Sem betur fer hljóp íjármálaráð- herra undir bagga með Sinfóníu- hljómsveitinni og greiddi upp skuldina, en nú er fjármálaráð- herra búinn að senda menntamála- ráöherra reikninginn og það er komið að skuldadögum. Islensk dagskrár- og heimildarmyndagerð verður skorin niður svo um mun- ar. Hvers eigum við sjónvarpsgláp- arar að gjalda nú þegar búið er að skera niður íslenska dagskrárgerð um meira en hundrað milljónir frá því febrúar í fyrra - og þar til guð má vita hvenær. Förum við nokkuð að geispa yfir magurri og einlitri dagskrárgerð á næstu misserum? KjaUaiinn Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður og sjónvarpsáhorfandi Brotin loforð í tengslum við ný útvarpslög, sem eiga eftir að fara í gegnum þingið, verður nýr sjóður stofnaður. Hann mun heita Dagskrársjóður og verð- ur fjármagnaður með aðflutnings- gjöldum sem RÚV hafa verið ætluð til þessa en hafa þó ekki runnið til RUV. Uhum, þetta skýrir sig sjálft: Loforð sem ávallt hefur verið brot- ið verður efnt. Hinn pólitíski geð- klofi verðu læknaður og löggjafinn og framkvæmdavaldið takast í hendur. Mergur máls er þó sá að það er eimmgis verið að lofa að deila lög- bundnum tekjustofni Sjónvarpsins milli stöðvanna tveggja, en í leið- inni er veriö að leggja niður Menn- ingarsjóð útvarpsstöðva sem kvik- myndagerðarmenn úti í bæ höfðu aðgang að. Markmið þessa nýja Dagskrá- sjóðs veröur að styrkja innlenda dagskrárgerð en þó ekki heimildar- myndir segir menntamálaráð- herra. Bíddu! Eru heimildamyndir ekki innlend dagskrárgerð? Veröa kvikmyndagerðarmenn sem vilja gera skapandi heimildarmyndir settir út í kuldann meðan sjón- varpsstöðvamar framleiða æ fleiri og ódýra umræðu-, dægurmála- og bingóþætti? Því miður hafa stöðv- arnar sjálfar ekki tök á aö gera dýrar og tímafrekar heimildar- myndir og því þarf að skapa um- hverfi fyrir kvikmyndagerðar- menn sem hafa áhuga og getu til að sinna heimildarmyndum fyrir sig og í samvinnu við sjónvarps- stöövarnar. Sjálfsögð krafa Sjónvarp er sá miðill sem flestir íslendingar nota og miðað við hvað fólk eyöir miklum tíma fyrir fram- an skjáinn er að sama skapi tiltölu- lega lítið fiármagn sett í íslenska dagskrárgerð. Það hlýtur að vera þverpólitískt hagsmunamál okkar aUra, sem eigum sjónvarpstæki og borgum afnotagjöld, að hlúð verði að íslenskri dagskrárgerð og að gera þá sjálfsögðu kröfu að fiöl- breytt og vandað íslenskt sjón- varpsefni verði sýnt á skjánum. Þorfinnur Guðnason — „Mergur máls er þó sá að það er ein- ungis verið að lofa að deila lögbundn- um tekjustofni Sjónvarpsins milli stöðvanna tveggja en í leiðinni er verið að leggja niður Menningarsjóð út- varpsstöðva sem kvikmyndagerðar- menn út í bæ höfðu aðgang að.“ Heldfast viðfyrri ■ ■■■■■ „Ég vil ekki hverfa algjör- lega frá upp- haflegum hugmyndum borgarinnar og Þróunarfé- lags Reykja- víkur um aö komið verði upp verslun- ar- og ■on, stjórnartormaður Þróunarfélags Reykja* v&ur. ustueiningum í Hafnarhúsinu i þeim tilgangi að styrkja verslun í Kvosinni þar sem verslunum hefur fækkað á undanfömum árum. Ég get ekki fallist á að allt Hafnarhúsiö veröi tekið undir safn en ég get fallist á að sá mögu- leiki verði skoðaður hvort hægt sé að blanda saman safni og verslun og þjónustu. Ég vil ekki hverfa frá þvi að verslanir og þjónusturými verði á fyrstu hæö og meginhluta annarrar hæöar i innrými Hafnarhússins en ég get hugsaö mér að Listasafni Reykja- víkur verði komið fyrir í hluta af annarri hæð og á þriðiu hæð í Hafnarhúsinu. Ef safhið rúmast á því svæöi getur það verið prýöi- leg hugmytid. Erró taldi sjáífur að þetta gæti verið góð hugmynd enda eru söfn og verslanir sums staðar eriendis í sama húsi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.