Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
17
pv__________________________Meiming
Á undan sinni samtíð
- verk Kristins Péturssonar á 2. hæð
Kristinn Pétursson er einn þeirra listamanna sem kosiö hafa aö draga
sig út úr sviðsljósinu og rækta garð sinn utan þess. Til þess aö geta þann-
ig einbeitt sér aö listinni hannaði Kristinn hús í Hveragerði út frá eigin
forsendum þar sem hann bjó og hafði vinnuaðstöðu í 38 ár eða þar til
hann lést 85 ára að aldri árið 1981. Hús sitt nefndi hann Seyðtún. Þar
hélt hann sína síðustu myndlistarsýningu árið 1954 og vann eftir það í
kyrrþey. Árið 1972 hóf hann að setja saman rit í þremur bindum um list-
viðhorf sín er hann nefndi Töfratákn, Skorinn var mér þröngur stakkur
og Úthverfar myndhstarstundir. Handritið er varðveitt í Þjóðskjalasafni
íslands, en á þeirri sýningu sem sýningarsalurinn 2. hæð á Laugavegi
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
37 hefur nú sett upp á verkum Kristins liggur frammi sýningarskrá meö
köflum úr ritinu Töfratákn. Auk þess gefur þar að líta ljósmyndir af geó-
metriskum skúlptúrum listamannsins og húsi en skúlptúrarnir munu
nú vera glataðir.
Óhlutbundin verk
Kristinn var ágætlega menntaður myndlistarmaður - nam teikningu
hjá Þórarni B. Þorlákssyni og Muggi og stundaöi síðan nám í þekktum
hstaskólum í Ósló, Kaupmannahöfn og París um átta ára skeið. Frá árinu
1927 og fram th 1954 hélt Kristinn alls 29 myndlistarsýningar, bæði hér
heima og vítt og breitt um Norðurlönd. í Listasafni íslands er hátt á ann-
an tug verka eftir Kristin, olíumálverk, krítarteikningar og höggmyndir,
allt fremur naturalísk verk. Á sýningunni á 2. hæð eru hins vegar ein-
göngu óhlutbundin verk frá árinu 1979 - sex talsins, öll fengin að láni
úr Listasafni ASÍ. ■
Persónulegt og einfalt
Það sem helst vakti athygli undirritaðs við skoðun þessara verka er
hve sterkt persónuleiki listamannsins skín í gegnum strigann þó svo að
verkin geti varla einfaldari verið; einn litur nánast þekur flötinn í fjórum
verkanna og hin tvö afar einföld að uppbyggingu. Það er óhefluð pensil-
beitingin sem skiptir hér höfuðmáli og það hvernig listamaðurinn vinnur
dýpt í flötinn með því að mála dökkt yfir ljóst. Sjálfur lýsir hann því
hvernig hann málar ský i ritinu Töfratákni þar sem „blámóða fjarlægð-
ar“ er markmiðið. Margt í uppbyggingu verkanna tveggja í innri sal
minnir á verk Þorvalds Skúlasonar á sjöunda og áttunda áratugnum.
Frágangurinn minnir að öðru leyti á sumt þaö er tíðkast fremur í alþýðul-
ist - t.a.m. signatúran.
Hugmyndir um rými, liti og tákn
Af skrifum Kristins í Töfratákni að dæma reyndi hann fyrir sér á afar
mörgum sviðum innan myndlistarinnar sem fróðlegt hefði verið að fá
meiri innsýn í hér á þessari sýningu. T.a.m. lýsir hann hvernig hann bjó
til verk með „hellitækni", þ.e. lakki sem hann hellti á myndflötinn og
myndaði svo teikningu með því að halla fletinum á ýmsa vegu. Ennfrem-
ur virðist Kristinn hafa verið á undan sinni samtíð hvað innsetningar
varðar en hann ræðir talsvert um möguleika rýmisins í riti sínu, sem
og íita- og táknfræði. Af myndavah á sýninguna að dæma er hér þó frem-
ur verið að gefa innsýn í einn þátt listar Kristins, einn af mörgum, og
jafnframt þann síðasta. Sá þáttur gefur tilefni th að endurmeta stöðu
hans sem listamanns og þá sérstaklega með tilliti til nýgeómetríunnar
og naumhyggjunnar á síðustu árum. Sýningin á verkum Kristins Péturs-
sonar á 2. hæð stendur út desember, en aðeins er opið á miðvikudögum
milli kl. 16 og 18.
NYTSAMAR
SURROUND HLJOMTÆKI
MX-92
Hljómtæki
með 100w
Surround magnara.
Fjarstýring. 16bita
geislaspilari. Útvarp
með 19 stöðva
minnum. Tvöfalt
kassettutæki. Tveir
tvískiptir lOOw
hátalarar.
Hljómtæki
með 140w
Surround magnara.
3 diska geisla-
spilari. Útvarp með
30 stöðva minnum.
Tvöfalt Auto-
Reverse kassettu-
tæki. Tveir þrískiptir
140 w hátalarar.
MX-570
SlÓNVZlRPSIVIIÐSTÖDIN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16
w
„Ég er laus við sveifíur í útgjöldum.
Ég borga bara eina fasta greiðslu
« '
mánaðarlega."
Sigurður Sveinsson, handknattleiksmaður
Með greiðsludreifingu Heimilislínunnar er útgjaldaliðum ársins,
einum eða fleiri, dreift á 12 jafnar mánaðargreiðslur.
Sama upphæð er millifærð mánaðarlega af launareikningi yfir á
útgjaldareikning og bankinn sér um að greiða reikningana.
I stað gluggaumslaga færðu sent mánaðarlegt yfirlit
yfir greidda reikninga.
Pantaðu tíma hjú þjónusturáðgjaj'a
í næsta útibúi eða hringdu ogfáðu
upplýsingar í síma 91-605272 __
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
HEIMILISLINAN
- Einfaldar fjármálin