Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Side 18
18 MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Kl LLl IWOOD kraftur, gœði, ending Ármúla 17. Revkiavík. sími 688840 TTTTTTTTTTTTTTTTTT^ Forysta ESAB er trygging fyrir gæðum og góðri þjónustu. VERSLUN SELJAVEGI 2 SlMI 91-624260 Allt til rafsuðu = HÉÐINN = Dömuhanskar m/kanínufóðri Kr. 3.900.- Herra-og dömuhanskar í gjafaumbúðum belti-seðlaveski regnhlífar Fréttir Halldór Ásgrímsson segir aö Húsnæðisstofnun, bankar og lífeyrissjóðir eigi að lengja lán: Skuldbreytingar bjargi heimilum - skattur verði lagður á bankainnstæður og verðbréf „Skuldir heimilanna í landinu eru meiri en erlendar skuldir. Þær hafa vaxiö óhugnanlega. Ef þetta heldur áfram standa heimilin frammi fyrir- upplausn og gjaldþrotum. Viö teljum að með skuldbreytingum og lengingu lána megi bjarga mjög mörgum. Viö höfum beitt okkur fyrir skuldbreyt- ingum í sjávarútvegi, margt af því heppnaöist vel og viö teljum aö viö þurfum aö gera þaö sama fyrir heim- ilin. Húsnæðisstofnun þarf aö leysa þetta að hluta til og bankarnir. Þaö þýðir væntanlega að við þurfum að nota meira fjármagn til skuldbreyt- inga og gæti þýtt að hugsanlega færi minna til nýbygginga um hríö. Láf- eyrissjóðirnir veröa aö koma inn í þessa mynd. Viö framsóknarmenn getum hins vegar ekkert gert í þessu fyrr en eftir kosningar. Það veröur nánast ekkert samþykkt á þinginu í vetur,“ sagöi Halldór Ásgrímsson í samtali viö DV á ílokksþingi Fram- sóknarflokksins. Aðspuröur hvort loforö til heimil- anna yröi helsta kosningavopn flokksins sagöi HaUdór: „Meginpunkturinn er vandi heim- ilanna en stóra atriðið í okkar kosn- ingastefnuskrá veröur atvinnumál. Við ætlum okkur að auka hagvöxt og lýsum því yfir að við ætlum ekki að hækka skatta og ætlum að ná rík- issjóðshallanum á nokkrum árum.“ Halldór sagði að Framsóknarflokk- urinn vildi samræmdan eignaskatt- stofn. „Ef þú átt íbúö og bíl borgar þú skatt af því. Ef þú átt bankabækur og veröbréf greiðir þú ekki af því. Okkur finnst ekki rök fyrir þvi þegar maður, sem á 10 milljóna íbúð greiði skatt á sama tíma og annar sem á verðbréf og bankainnstæður fyrir sömu upphæð greiði ekki skatt. Það er tiltölulega einfalt að breyta þessu. Síðan viljum við viðhalda þeim há- tekjuskatti sem nú er. Við gerum ráð fyrir að auðveldlega sé hægt að færa 3 milljarða til, ekki með því að hækka skattana heldur með því að færa til þeirra sem minna hafa frá þeim sem hafa meira,“ sagði Halldór. HaUdór Asgrímsson um kosningamar á flokksþingi Framsóknarflokksins í gær: Hætt verði aðtala um fjandskap í garð kvenna „Ég er ekkert að fara til Jóhönnu. Það stendur ekki til hjá mér að fara út í einhverjar sameiningarviöræð- ur. Við þurfum hins vegar að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum. Þá þurfum við að tala við allt gott fólk, meðal annars Jóhönnu ef hún vill með okkur starfa. Við þurfum að sjá hvað út úr því kernur," sagði Halldór Ásgrímsson í lokaræ'ðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins á Hótel Sögu í gær. Halldór sagði að flokkurinn hefði ekki verið mjög hár í skoðanakönn- unum að undanfórnu en á því væru batamerki. „Það hefur orðið mikil breyting í forystu Framsóknarflokksins. Það vill svo til að í framkvæmdastjóm flokksins eru níu, fimm konur og fjórir karlmenn. Það er mikil breyt- ing og við karlarnir erum komnir þar í minnihluta. Ég vona að þetta verði að minnsta kosti til þess að hætt verði að tala um að einhver fjand- skapur sé í garð kvenna í flokknum. Ég hef aldrei orðið var við það.“ Halldór sagöi að „sem betur fer“ væru konur að koma til miklu meiri áhrifa en áður var. „Það er af hinu góða,“ sagði Halldór. Flokksþingið lagði til að fjárfest- ingar yrðu auknar í atvinnulífinu, Byggðastofnun yrði breytt í atvinnu- þróunarstofnun sem yrði vettvangur samstarfs ríkis, sveitarfélaga og að- ila vinnumarkaðar um uppbyggingu atvinnulífs. Flokkurinn vill einnig beita sér fyrir því að leitað verði samninga viö lífeyrissjóði um að leggja 5-10 prósent af ráðstöfunarfé sínu sem áhættufé út í atvinnulífið. Hagvöxt skal auka um 2,5 til 3 pró- sent á ári. Einnig var meðal annars lagt til að fjárlög yrðu gerð til fjög- urra ára. Guðjón Ólafur Jónsson, formaður SUF, um kjör í framkvæmdastjóm Framsóknarflokksins: Þetta eru bara miðaldra kerlingar „Ungir framsóknarmenn eru mjög óánægðir með kosningu til fram- kvæmdastjómar. Þetta era ekkert annað en miðaldpa kerlingar. Við höfðum gert okkur vonir um að sam- stæöa næðist um að fulltrúi frá okk- ur færi inn i framkvæmdastjórnina, sérstaklega í ljósi þess að við höfðum ákveðiö nokkru fyrir þingið að fá okkar fulltrúa í stöðu ritara eða gjaldkera. Við einbeittum okkur þvi að því að ná samstöðu um að fá ann- aðhvort vararitara eða varagjald- kera,“ sagði Guðjón Ólafur Jónsson, formaður Sambands ungra fram- sóknarmanna, viö DV á flokksþing- inu á Hótel Sögu. „Við gerðum okkur vonir um stuðning kvenna í flokknum en hann fékkst greinilega ekki. Það var kona sem bauð sig á móti Óskari Bergs- syni, okkar manni, og rauf þar með þá sátt sem við töldum vera um mál- ið. Þetta eru okkur ákaflega mikil vonbrigði," sagði Guðjón Ólafur. Halldór Ásgrímsson fékk 97 pró- sent atkvæða í kjöri til formanns flokksins en Guðmundur Bjarnason fékk 83 prósent til varaformanns. Ingibjörg Pálmadóttir var kosin rit- ari, Unnur Stefánsdóttir gjaldkeri, Þuríður Jónsdóttir varagjaldkeri og Drífa Sigfúsdóttir vararitari. Konur skipuðu einnig veglegan sess þegar kosið var tfi miðstjómar á flokksþinginu. í fjórum efstu sæt- unum uröu þau Siv Friðleifsdóttir, sem fékk 392 atkvæði, Haukur Hall- dórsson með 341 atkvæði, Drífa Sig- fúsdóttir fékk 311 atkvæði og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fékk 298 atkvæði. Þeir sem DV ræddi við á þinginu voru mjög ósáttir við að Ásta Ragn- heiður skyldi hafa setiö fund með Jóhönnu Sigurðardóttur um svipað leyti og úrslit kosninga til miðstjórn- ar voru kynnt. „Hún sló á sátta- hönd,“ sagði einn viðmælenda DV. Vísað var til prófkjörs í Reykjavík þar sem Ásta beið lægri hlut fyrir „miðaldra körlum" eins og það var orðað. Heimildarmenn DV innnan flokksins sögðu að á laugardag heföi verið rætt við Ástu Ragnheiði gagn- vart kjörinu til miðstjórnar og hún þá verið jákvæð. Því hefði það komið fólki mjög á óvart að hún hefði setiö fundinn með Jóhönnu. Deila sjúkraliða og ríMsins: Tilboði sjúkraliða um f lata hækkun haf nað „Viö áttum fund með samninga- ar um flata krónutöluhækkun vera prósentá launahækkun. Viö létum nefhd rikísins í gær þar sem tilboö einhverjar þær forsendur sem lik- þau hafa nokkur dæmi um hvernig okkar um flata krónutöluhækkun legar eru til samninga eða hvort þeirra kröfur koma út í saman- var til umræðu. Þeir höfhuðu til- viö eigum aö tala um prósentur,“ burði við samstarfshópa þeirra. Ég boði okkar en voru ekki tilbúnir segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, vil ekkert segja um hugmynd að segja okkur á hvaða forsendum formaður Sjúkraliðafélags íslands. þeirra um flata krónutöluhækkun. þeir vildu halda áfram viðræðum. Deiluaðilar hittast á ný hjá Ríkis- Við munum svara því næstu daga," Ég vænti þess að þeir svari því í sáttasemjara í dag klukkan hálftíu. segir Þorsteinn Geirsson, formaður dag hvort þeir telji hugmyndir okk- „Við höfnuðum kröfu þeirra um 20 samninganefndar ríkisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.