Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
45
17
oo
Hér má sjá víkingaverk eftir
Hauk Halldórsson.
Veröld
víkinga
í Gallerí Samurai í Ingólfs-
stræti stendur nú yfir sýningin
Veröld víkinga. Þar sýnir Haukur
Halldórsson innlagöar sand-
myndir sem hann hefur unniö í
samvinnu viö kínverska listiön-
aöarmenn. Myndirnar eru unnar
Sýningar
með nýrri tækni sem fyrst var
kynnt hér á landi á sýningu
Hauks Halldórssonar í Hall-
grímskirkju síöastliðiö vor. Allar
útlínur í myndunum eru geröar
með gylltum málmþræöi sem er
festur á viðarplötu. Þræöimir eru
klipptir og beygðir til þess að þeir
svari nákvæmlega til útlínanna.
Látarefni og litaður sandur er
lagður í alla fleti og að lokum er
fljótandi akrýl hellt yfir mynd-
flötinn og látið harðna.
Myndefnið sækir listamaður-
inn meðal annars í þúsund ára
gömul teppaslitur sem fundust í
víkingaskipi í Áseberg í Noregi,
í Keltabók frá írlandi og í Bay-
eux-reflinum frá Frakklandi sem
sýnir innrás víkinga inn í Eng-
land á elleftu öld. Sýningin stend-
ur til 11. desember.
Kjarnorkuverin eru umdeild en
skila þó rafmagni til notkunar.
Kjamorka
til friðsamlegra
nota
Á árunum 1940-1945 var unnið
ötullega að rannsóknum til að
komast að því hvernig byggja
ætti kjarnakljúfa til friðsamlegra
nota. Þróun í átt til iðnaðar hófst
í Bandaríkjunum 1951. En margt
þurfti að athuga áður en þeim
áfanga var náð, meta og velja um
marga kosti. Hvaða kjameldis-
neyti átti að nota? Hvaða hægir
gaf besta raun? Hvaða varmaleið-
ari skilaði mestu? Og hvernig var
Blessuð veröldin
hægt að sameina alla þessa sund-
urleitu þætti til að ná sem mestri
skilvirkni, afla mikillar orku með
lágum tilkostnaði, lágum rekstr-
arkostnaði og eins miklu öryggi
og frekast var unnt? Einungis var
haldið í 15 samstæðukosti af öll-
um þeim fjölda sem komið haíði
til athugunar. Nýtilegir kostir
hafa síðan reynst miklu færri.
Kjarnakljúfar
Fyrsti þungavatnskjarnaofn til
almenns reksturs var NPD-
kjarnaofninn í Kanada sem tek-
inn var í notkun 1962. Einn þeirra
kjarnaofna sem hafa verið nýti-
legir er Magnox-kjarnakljúfurinn
í Bretlandi, en hann var tekinn í
notkun 1956. Reiknað er með að
hann endist fram yfir aldamót.
Leikhúskjallarinn:
f i ••
i kvöld verður vísnakvöld í Lista-
klúbbi Leíkhúskjallarans kl. 20.30.
Þar verður fjölbreytt dagskrá að
venju og verða nýútkomnar geisla-
plötur kynntar. Þeir sem koma
fram eru Hörður Torfason sem
Skemmtanir
mun flylja lög af plötu sinni Áhrif.
Olga Guðrún Áraadóttir ætlar. að
flytja efni af plötu sinni Babbidí
Bú, en það er fyrsta plata Olgu
Guðrúnar i langan tíma eða allt ffá
því hún söng Ryksugan á fullu...
Þá er hýkomin út platan Von og
vísa meö Önnu Pálínu Árnadóttur
og Gu'nnari Gunnarssyni og munu
þau flytja lög af henni. Aðrir flytj-
endur verða Sveinn Óskar Sigurðs-
son Ijóðskáld, Hreiðar Gíslason
vísnasöngvari og HJjómsveit Jar-
Hörður Torfason er meðal flytjenda á visnakvöldinu.
þrúðar.
Það er ekki nýtt að haldin séu
vfsnakvöld í Leikhúskjallaranum.
Á árum áður voru slík kvöld ákaf-
lega vinsæl og var þessi siður tek-
inn upp í fyrra með góðum árangri.
Kvenskassið og reiði Heru
Á kortinu hér til hliðar má sjá
stjömumerkið Stórabjörn eins og
menn gátu séð hann fyrir sér. Fjöl-
margir bera kennsl á Karlsvagninn
sem sést á norðausturhimninum á
Stjömumar
miðnætti. Karlsvagninn er þá aðeins
hluti af stærra stjörnumerki, Stóra-
bimi.
Stóribjöminn var reyndar birna
hjá Grikkjum og í raun hin akke-
díska prinsessa Kallistó í bjarndýrs-
ham. Samkvæmt goðsögnum var
hún ástkona Seifs og þegar Hera, eig-
inkona og systir Seifs, komst að ást-
arsambandi þeirra varþaði hún Kall-
istó upp á stjörnuhimininn í bjarn-
dýrslíkinu.
Arabar töldu hins vegar að Karls-
vagninn væri líkkista og nefndu
stjömumar umhverfis hann grát-
konurnar. Ystu stjörnuna, Alkar,
nefndu arabar hins vegar kvenskass-
ið eða gribbuna.
Listhús 39:
• i •
Fjórtán myndlistarmenn hafa
myndað hóp um rekstur Listhúss-
ins aö Standgötu í Hafnarfirði und-
ir nafninu Listhús 39 og var í því
tilefni opnuð sýning á munum eftir
listamennina fjórtán á laugardag-
Sýningar
inn. Þeir koma úr flestum greinum
myndlistar.
Þeir sem standa að rekstrinum
og eiga verk sem eru til sýnis era:
Aöalheiður Skarphéðinsdóttir,
Einar Már Guðvarðarson, Elín
Guðmundsdóttir, Hjördís Frímann,
Sigríöur Óðinsdóttir, Jóna Guö-
varðardóttir, Kristbergur Ö. Pét-
ursson, Kristrún Ágústsdóttir, Lár-
us Karl Ingason, Ólafur G. Sverris-
son, Pétur Bjarnason, Sigríður Ág-
ústsdóttir, Sigríður Erla og Sus-
anne Kristensen.
Listamennimlr fjórtán sem standa að Listhúsinu I Strandgötu.
Litla stúlkán á myndinni fæddist
21. nóvember. Þegar hún var vigtuð
eftir fæðingu reyndist hún vera
3880 grömm að þyngd og 51 senti-
métra löng. Foreldrar hennar era
Anna María Guömundsdóttir og
Guðmundur Helgi Helgason og er
hún fyrsta barn þeirra.
Bankastarfsmaðurinn Stanley
Ipkiss (Jim Carrey) verður ást-
fanginn af næturklúbbssöngkon-
unni Tinu Carlyle (Cameron
Diaz).
Gríman
Laugaraásbíó hefur sýnd að
undanförnu við miklar vinsældir
The Mask, gamanmynd sem er
hreinn farsi. Jim Carrey leikur
hinn seinheppna bankastarfs-
mann Stanley Ipkiss, sem allir
troða á, viljandi og óviljandi. Dag
einn þegar honum hefur verið
meinaður aðgangur að nætur-
klúbbi finnur hann á floti grímu
sem hann tekur heim með sér.
Það kemur í ljós þegar hann setur
Kvikmyndahúsin
grímuna upp að þaö fylgir henni
mikill kraftur og meö grímuna á
andlitinu breytist Stanley í hinn
mesta töffara sem ekkert bítur
á. Má segja að persóna þessi
minni einna mest á teiknimynda-
flgúru.
Jimm Carrey er um þessar
mundir heitasta stjaman í Holly-
wood og hafa þær tvær kvik-
myndir sem frumsýndar hafa
veriö með honum á þessu ári
fengið metaösókn, Ace Ventura:
Pet Detective og The Mask.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Heilagt hjónaband
Laugarásbíó: Ný martröð
Saga-bíó: Kominn í herinn
Bíóhöllin: Sérfræðingurinn
Stjörnubíó: Threesome
Bíóborgin: í blíðu og stríðu
Regnboginn: Reyfari
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 270.
25. nóvember 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 68,150 68,350 66,210
Pund 106,520 106,840 108,290
Kan. dollar 49,570 49,770 49,060
Dönsk kr. 11,1710 11,2150 11,3020*^
Norsk kr. 9,9730 10,0130 10,1670
Sænsk kr. 9,1420 9,1780 9,2760
Fi. mark 14,2110 14,2680 14,4730
Fra. franki 12,7390 12,7900 12,9130
Belg. franki 2,1257 2,1343 2,1482
Sviss. franki 51,7400 51,9500 52,8500
Holl. gyllini 39,0700 39,2200 39,4400
Þýskt mark 43,8000 43,9300 44,2100
it. líra 0,04221 0,04243 0,04320
Aust. sch. 6,2140 6,2460 6,2830
Port. escudo 0,4281 0,4303 0,4325
Spá. peseti 0,5235 0,5261 0,5313
Jap. yen 0,69220 0,69420 0,68240
irsktpund 105,320 105,840 107,000
SDR 99,58000 100,08000 99,74000
ECU 83,2900 83,6200 84,3400
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
a 5 4 i
*
IO \ mmm
ii
rr TT w~
11 1 ir
io J ii
Lárétt: 1 hrós, 7 viðauki, 8 rölt, 10 hláka,
11 harðfisk, 13 svari, 15 tíndi, 17 kyrrð,
18 skriðdýr, 20 fæðunni, 21 eyða.
Lóðrétt: 1 stuttra, 2 meginhluti, 3 manna,
4 rænt, 5 fljótt, 6 skyld, 9 iðngreinar, 12
'vondu, 14 veiðarfæri, 16 léleg, 17 rugga,
19 stöng.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 byija, 6 um 8 efi, 9 urga, 10 lið-
legt, 12 grilla, 13 ella, 14 gný, 16 vissu, 18
dr, 19 aða^ 20 ærin.
Lóörétt: 1 belg, 2 yfirlið, 3 riðils, 4 julla,
5 ar, 6 uggandi, 7 mata, 11 elgur, 13 Eva,
15 ýr, 17 sæ.