Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1995, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 Stuttar fréttir HáekkiGrosni Hersveitir Rússa halda áfram linnulausri skothríö á úthverfi Grosní en eru enn jafn langt frá þvi að ná borginni á sitt vald. KinkeitilSarajevo Klaus Kinkel, utanríkisráð- herra Þýskalands, er á leið til Sarajevo og Zagreb til að reyna enn á ný að sætta króatíska og serbneska leiðtoga. Majorveit Major, for- sætisráðherra Bretlands, gerir sér grein fyrir að hann verður að sætta flokks- menn sína í íhaldstlokkn- um í Evrópu- málum ef hann á að eiga mögu- leika á því að vinna næstu kosn- ingar. Rabín missirfylgi _ Fylgi Rabíns, forsætisráðherra ísraels, fer óðum minnkandi vegna klaufalegra ákvaröana, bæöi á efnahags- og stjómmála- sviðinu. ViljaíESB Rúmenía ætlar að gera allar þær ráöstafnir í framtiðinni sem nauðsynlegar eru til aö geta feng- ið aöild að ESB á endanum. Thorvaídsegirnei Thorvald Stoltenberg, fyrrver- andi utanríkisráöherra Noregs, hefur afþakkað boð um að verða neesti sendiherra Noregs hjá ESB. Waldheim ekki boðið Kurt Wald- heim,fyrrum; framkvæmda- stjóra SÞ. verö- ur ekki boöið í 50 ára afmælis- veislu samtak- anna þar sem hann fær ekki að fara til Bandaríkjanna vegna tengsla viö nasista. Indíánífluttur Jarðneskar leifar amerísks indiánahöfðingja verða tluttar frá Bretlandi vestur um haf. Vopnahlé Ekvadorar og Perúmenn hafa fallist á vopnahlé í landamæra- strlöi rikjanna. AftökuríTexas Tveir menn voru teknir af lífi í aftökuklefa Texasfylkis í morgun og er þaö fyrsta tvöfalda aftakan i 40 ár. Simpson í golf i O. J. Símpson var að sveifla golf- kylfu í myrkri heima hjá sér, þrátt fyrir gigtarkast, þegar fyrr- um eiginkona hans var myrt, segja verjendur hans. HruniMexíkó Frekara hrun varð á hinum hrjáðu fjár- málatnörkuð- um Mexíkó í gær vegna ótta um að Clinton Bandaríkjafor- seti gæti ekki aflað nægs stuðnings í þinginu við aöstoðaráætlun til aö rétta af efnahag Mexíkó. Japanskeisari heimsótti jarð- sHjálftasvæöin i Kobe en fóm- ariörab gagnrýndu hann. j Danir eru ákaflega bjartsýnir um jtessar mundir, þrátt fyrir shjó og kulda, og horfe glaðir fram á veginn. Reuter, NTB, Ritzau Útlönd 38 létu Mö og 256 slösuðust í sprengjutilræði í Algeirsborg í gær: undan glerbrotunum Gífurlega öflug bílsprengja varð 38 manns að bana og særði 256 í Algeirs- borg, höfuðborg Alsírs, í gær, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að íslamskir bókstafstrúarmenn höfðu lofað meira blóðbaði í ramadan, helg- um mánuði múslíma. Ramadan hefst í Alsír á morgun. Ríkisútvarpiö í Alsír sagði að mörg fórnarlambanna, sem ýmist hefðu brunnið til bana í sprengingunni eða stungist á hol af fljúgandi glerbrot- um, hefðu verið börn. Útvarpið sagði að mörg hundruð kíló af TNT hefðu verið í sprengjunni. Yfirvöld sögðu að bókstafstrúar- menn, sem vilja steypa stjórn lands- ins, hefðu staðið fyrir sprengjutil- ræðinu fyrir utan aðallögreglustöð borgarinnar um miðjan dag. Konur veinuðu, slasaðar og dauð- hræddar, þegar þær leituðu að börn- um sínum nærri lögreglustööinni sem var öll kolsvört eftir sprenging- una. „Þetta glórulausa hryðjuverk sýnir enn einu sinni aö þeir sem hafa tekið afstöðu gegn alsírsku þjóðinni ætla sér að eyðileggja allt og alla,“ sagöi Mokdad Sifi, forsætisráðherra Als- írs, í sjónvarpinu og hét því að hinum seku yrði refsað. Blóðug baráttan við uppreisnarmenn bókstafstrúaðra hefur kostað þrjátíu þúsund manns- líf á þremur árum. „Ég fór út og sá fólk hlaupa í allar áttir til að flýja undan glerbrotadríf- unni úr húsunum. Sumir voru al- þaktir blóði og grétu af sársauka," sagði ungur maður sem sat við te- drykkju á nærliggjandi kafíihúsi. Annar sjónarvottur lét að því liggja að um sjálfsmorðsárás hefði verið að ræða. „Bílnum með sprengjunni var ekið að embættismannainngangi við aðal- stöðvar öryggislögreglunnar og svo sprakk hann. Þetta er upphaf aö sjálfsmorðsárásum eins og þeirri sem Hizbollah í Líbanon geröi á bandarísku landgönguliðana," sagði sjónarvotturinn og vísaði til sprengjuárásar í Beirút 1983 þar sem á þriöja hundrað Bandaríkjamanna og Frakka lét lífið. Alsírsk dagblöð skýrðu frá því á sunnudag að vopnaður armur út- lægra samtaka bókstafstrúarmanna (FIS) hefði hvatt félaga sína til að herða á manndrápunum í ramadan- mánuðinum. FIS voru gerð útlæg skömmu eftir að stjómvöld aflýstu afmennum kosningum árið 1992 þar sem stefndi í stórsigur bókstafstrúar- manna. Reuter Svona var umhorfs fyrir utan lögreglustöðina I Algeirsborg þar sem bókstafstrúarmenn sprengju sem varð 38 manns að bana og særði á þriðja hundrað um miðjan dag í gær. sprengdu öfluga bíl- Símamynd Reuter Fólk hljóp í allar áttir FlóðiníEvrópu: Von á meiri rigningu Veðurfræðingar spá meiri rigning- um í norðvestanverðri Evrópu næstu daga og því má vænta að raunir fólks aukist enn en nú hafa þúsundir þurft að yfirgefe umflotin heimili sín vegna hamfaranna. Ekki hafa fleiri þurft að yfirgefa heimili sín síðustu fjörutíu árin í Hollandi. Þar er talið að í dag verði um 100 þúsund manns búin að rýma hús sín. Allavega 25 hafa látist í flóð- unum í Frakklandi, Þýskalandi, Hol- landi og Belgíu. Vatnsborð fer enn hækkandi í ánni Rín og nú tala menn um að flóðið sé það mesta á þessari öld. Ástandið í Köln er orðið mjög slæmt og eru sam- göngur nú nánast eingöngu mögu- legar á bátum. Búiö er að loka gamia miöbænum en þar eru margar merkilegar byggingar sem liggja undir skemmdum og hættuástandi hefur einnig verið lýst yfir í Frank- furt en áin Maine hefur vaxiö gífur- lega. I Belgíu er ástandið sérstaklega slæmt í suðurhlutanum og flóðin eru talinþauverstuísextíuár. Reuter Ibúi í Koblenz rær heim eftir vinnu. Slmamynd Reuter Skopteiknarar Verdens Gang telja aö ekki sé annað en vodki í svörtu tösk- unni hans Jeltsíns. Viðbrögð Rússa við norðurljósaflaug: Alvarlegur misskilningur Hattsettur embættismaður 1 rúss- neska utanríkisráðuneytinu sagði í gær að viðbrögð Rússa við hinni „stórhættulegu“ norðurljósaeldflaug Kolbjörns norðurljósaáhugamanns á Andeyju hefðu verið alvarlegur mis- skilningur sem ekki mætti undir nokkrum kringumstæðum gerast aftur. Norðmenn eru steinhissa á ýmsum ummælum sem höfð voru eftir Borís Jeltsín forseta. Sérstaklega þeim að norðurljósaflaugin hafi verið tilraun Norðmanna til að láta reyna á við- brögð Rússa í kjarnorkumálum. Þess má geta að Kolbjörn, stöövarstjóri á Andeyju, sem hingað til hefur þótt saklaus norðurljósavísindamaður, þykir nú hættulegasti maður Noregs. Norsk dagblöð hafa mikið velt fyrir sér hvað sé í „svörtu tösku“ Jeltsíns. Jeltsín lýsti því yfir skellihlæjandi aö hann hefði í fyrsta sinn fengiö að nota töskuna daginn þegar fréttist af norðurljósaflauginni. Menn eru nú helst á því í Noregi að það hafi bara verið vodki í töskunni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.