Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1995, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995
Afmæli
Karólína Margrét
Thorarensen
Karólína Margrét Thorarensen
þjónustufulltrúi, Löngumýri 47,
Garðabæ, er fertug í dag.
Starfsferill
Karólína fæddist í Reykjavík en
ólst upp að Heinabergi á Skarðs-
strönd. Hún lauk námi við Lauga-
skóla í Dalasýslu 1969, var au pair
í Danmörku 1970-71 hjá hjónunum
Guðborgu Tryggvadóttur og Sigurði
Rúnari Friðrikssyni, mjólkurbús-
stjóra í Búðardal, og lauk gagn-
fræðaprófi við Hagaskólann í
Reykjavík 1973.
Karólína Margrét hóf störf við
Verslunarbankann í Bankastræti í
Reykjavík sumarið 1972 og starfaði
þar óslitið við Verslunarbankann
og síðar íslandsbanka til 1993 er hún
hóf störf viö útibú íslandsbanka við
Suðurlandsbraut. Hún og maður
hennar hafa búið Garðabæ frá 1990.
Fjölskylda
Karólína Margrét giftist 21.9.1973
Gísla J. Sigurðssyni, f. 11.10.1952,
kjötiðnaðarmanni. Hann er sonur
Sigurðar Bergmann Gíslasonar, sjó-
manns á Siglufirði, og Emu D.
Magnúsdóttur húsmóður sem er lát-
in.
Dóttir Karólínu Margrétar og
Gísla er Ema Sigríður Gísladóttir,
f. 2.9.1975, í foreldrahúsum.
Systkini Karólínu Margrétar eru
Sæunn Gerður Thorarensen, f.
13.11.1957, húsmóðir í Reykjavík,
gift Davíð E. Sigmundssyni raf-
eindavirkja og eiga þau þrjú börn;
Salbjörg JúlíanaThorarensen, f. 9.8.
1959, húsmóðir á Akureyri, gift
Ragnari S. Stefánssyni hárskera og
eiga þau tvö böm; Steingrímur Guð-
jón Thorarensen, f. 10.8.1960, sjó-
Karólína Margrét Thorarensen.
maður í Grindavík, kvæntur Olgu
R. Gylfadóttur húsmóður og eignuð-
ust þau sex böm auk þess sem Stein-
grímur á dóttur frá þvi áður; Stein-
unn Guðlaug Thorarensen, f. 13.5.
1962, húsmóðir í Garðabæ, gift
Hjalta Sigmundssyni byggingar-
tæknifræðingi og eiga þau þrjú
börn; Bogi SvanbergThorarensen,
f. 8.6.1963, húsasmiður í Garðabæ,
kvæntur Ingunni Aradóttur hús-
móður og eiga þau þrjú börn; Guð-
mundur Jóhann Thorarensen, f.
18.6.1966, verkamaður í Garðabæ;
Kristín Hildur Thorarensen, f. 22.6.
1967, kennari í Sandgerði, gift Arn-
ari Smára Þorvarðarsyni hygging-
artæknifræðingi og eiga þau einn
son; Lárus Jón Thorarensen, f. 29.6.
1968, látinn.
Foreldrar Karólínu Margrétar eru
Bogi Guðmar Thorarensen, f. 12.2.
1933, b. í Heinabæ og síðar húsvörð-
ur við Flataskóla í Garðabæ, og k.h.,
Lilja Lára Sæmundsdóttir, f. 5.7.
1933, húsmóðir.
Tilkyimingar
i Félag eldri borgara
I Rvík og nágrenni
Bridge kl. 13 í Risinu í dag. Á morgun,
föstudag, hefst í Risinu kl. 17 bókmennta-
kynning á vegum Félags eldri borgara.
Þar mun Sveinn Skorri Höskuldsson pró-
fessor ræða um skáldið Gunnar Gunn-
arsson og verk hans. Þessar bókmennta-
kynningar verða svo áfram á föstudögum
á sama tíma. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Félag eldri borg-
ara IKópavogi
Kvöldvaka verður að Fannborg 8 (Gjá-
bakka), í kvöld, fimmtudagskvöldið 16.
febr. kl. 20.30. Meðal efnis: Kór aldraðra,
söngvinir, syngur, sögur og Ijóðalestur.
Húsið öllum opið.
( Eyfirðingafélagið
er með félagsvist á Haliveigarstöðum í
kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
Þorrablót I Smáraskóla
Haldið verður þorrablót í Smáraskóla í
dag, fimmtudaginn 16. febr. kl. 18-20.
Þorrablótið er ætlað fyrir nemendur
skólans og foreldra/forráðamenn þeirra.
Þegar hafa um 270 manns skráð sig. Nem-
endur og kennarar skipuleggja dag-
skrána. Foreldrar sjá um þorramat.
Fávitinn endursýndur
í bíósal MÍR
Kvikmyndin Fávitinn, sem gerð var í
Moskvu 1958 eftir samnefndri skáldsögu
Fjodors Dostojevskís, var sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, fyrir troðfullu húsi sl.
sunnudag. Þar sem mjög margir urðu frá
að hverfa og misstu því af sýningu mynd-
arinnar hefur verið ákveðið aö endur-
sýna hana í bíósalnum í kvöld, timmtu-
dagskvöldið 16. febrúar, kl. 20. Myndin
er með íslenskum texta. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill - meðan hús-
rúm leyfir.
Sólarkaffi Seyðfirð-
ingafélagsins
Seyðfirðingafélagið í Reykjavík heldur
sitt árlega sólarkaffi laugard. 18. febr. í
Akogeshúsinu, Sigtúni 3, Rvík, kl. 20.30.
Dagskráin verður helguð 100 ára afmæli
Seyðisíjarðarkaupstaðar. Jóhann Svein-
bjömsson, bæjarritari Seyðisíjarðar, og
firú hans verða heiðursgestir samkom-
unnar. Veglegar veitingar af kaffihlað-
borði, dans, söngur og gleði fram eftir
nóttu. Aðgöngumiðar verða seldir í dag,
fimmtud. 16. febr., í Akogeshúsinu kl.
17-19 og verða borö tekin frá um leið.
Fjölmennum og gleðjumst saman.
Jakobína Þórðardóttir, RKÍ, afhendir
Sigrúnu Einarsdóttur gjafabréf með
ávísun á fyrsta vinning í afmælisget-
Góð þátttaka í afmælis-
getraun RKÍ
Hátt í eitt þúsund lausnlr bárust í afmæl-
isgetraun Rauða kross íslands sem dreift
var í tengslum við 70 ára afmæh félagsins
10. desember sl. AfmæUsins var minnst
með fjölbreyttum hátíðahöldum í fjöl-
mörgum RK-deUdum og bárust lausnir
víðs vegar að af landinu. Fyrstu verð-
laun, helgarferð að eigin vaU fyrir tvo, í
boði Flugleiða, hlaut Sigrún Emarsdóttir,
Rvík. Önnur verðlaun, 4 daga ferð til
Dublin í boði Samvhmuferða-Landsýnar,
komu í hlut Jóhanns B. Guðmundssonar,
Akranesi. 18 vinningshafar til viðbótar
fengu senda afmæUspenna RKÍ sem við-
urkenningu fyrir réttar lausnir.
JC Selfoss
JC Selfoss heldur kynningarfund í kvöld
kl. 20.30 í Gjánni. Fundurinn er öUum
opinn.
Tónleikar
Tveir vinir og annar í fríi
Hljómsveitirnar Kolrassa krókríðandi,
2001 og Kusur halda tónleika á skemmti-
staðnum Tveir vinir og annar í fru í
kvöld, fimmtudagskvöldið 16. febrúar.
Tónleikamir hefjast kl. 22 og er aðgangs-
eyrir kr. 500. Aldurstakmark er 18 ára.
Allir velkomnir.
Blúsað á Kringlukránni
í kvöld verður blúsað á Kringlukránni
eins og undanfarin funmtudagskvöld.
Það verður Tregasveitin með þá feðga
Pétur Tyrfmgsson og Guðmund Péturs í
broddi fylkingar. Síðast er þeir félagar
spUuðu á kránni var góð stemning og var
það mál manna að sveitin heföi aldrei
verið betri. Dagskráin hefst kl. 22 og að-
gangur er ókeypis.
Leikhús
/>
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
. Sími 11200
Stórasviðlðkl. 20.00
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
I kvöld, uppselt, sud. 19/2, uppselt, fid.
23/2, laus sætl, Id. 25/2, uppselt, næstsið-
asta sýning, fld. 2/3,75. og jafnframt sið-
asta sýnlng.
FÁVITINN
eftir Fjodor Dostojevski
Ld. 18/2, uppselt, föd. 24/2, uppselt, sud.
5/3, sud. 12/3, fld.16/3.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Aukasýnlng á morgun, allra siöasta sýn-
Ing.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Évgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Sud. 19/2 kl. 14.00, uppselt, Id. 25/2 kl.
14.00, örfá sætl laus, sud. 5/3 kl. 14.00,
sud. 12/3 kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
6. sýn. Id. 18/2, uppselt, aukasýning þrd.
21/2, uppselt, aukasýning mvd. 22/2, upp-
selt, 7. sýn. föd. 24/2, uppselt, 8. sýn.
sud. 26/2, uppselt, föd. 3/3, uppselt, Id.
4/3, uppselt, sud. 5/3, uppselt, mvd. 8/3,
föd. 10/3, uppselt, Id. 11/3, uppselt, fid.
16/3,föd. 17/3, uppseit, Id. 18/3, uppselt.
Litla sviðiö kl. 20.30
OLEANNA
eftir David Mamet
Ld. 18/2, föd. 24/2, sud. 26/2, föd. 3/3.
SÓLSTAFIR - NORRÆN
MENNINGARHÁTÍÐ
BEAIVVAS SAMITEAHTER
Skuggavaldur eftir Inger Margrethe
Olsen
Leikstjóri Haukur J. Gunnarsson
Sunnud. 26. febr. kl. 20.00.
Gjafakort í leikhús - Sígild og
skemmtileg gjöf.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin
alla daga nema mánudaga frá kl.
13 til 18 og fram að sýningu sýning-
ardaga.
Tekið á móti símapöntunum virka
dagafrá kl. 10.
Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 6112 00.
Siml 112 00 - Greióslukortaþjónusta.
Bæjarleikhúsið
Mosfellsbæ
LEIKFÉLAQ
MOSFELLSS VEITAR
MJALLHVÍT OG
i Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ
Laugard. 18. febr.
Sýnlngarhefjasfkl. 15.00.
Ath.l Ekkl erunntað hleypa gestum
í salinn eftir að sýnlng er hafin.
Slmsvarlallan
sólarhringlnn I sima 667788
LEIKFÉLA GIÐ FÚRÍA
Héðinshúsinu, Seljavegi 2
MORFÍN
eftir Svend Engelbrechtsen
gamanlelkur með tónllst
Leikstjóri: Þröstur Guöbjartsson.
Sýning föstudag 17. febrúar og
laugardag 18. febrúar kl. 20.
Mlðapantanlr i sima
562 8079 kl. 14-19.
NEMENDALEIKHUSIÐ
LINDARBÆ-SÍMI21971
TANGÓ
i lelkstjórn Kjartans Ragnarssonar
6. sýn. fimmtud. 16/2 kl. 20,7. sýn. laug-
ard. 18/2 kl.20,8. sýn. sunnud. 19/2 kl. 20.
Takmarkaður sýnlngafjöldl.
Mlðapantanir allan sólarhringlnn.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðkl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Laugard. 25. febr., allra sfðasta sýnlng,
fáein sæti laus.
Litla svið kl. 20:
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Laugard. 18/2 kl. 16, sunnud. 19/2 kl. 16,
fáeln sæti laus, laugard. 25/2 kl. 16, sunnud.
26/2 kl. 16.
Söngleikurinn
KABARETT
Höfundur: Joe Masteroff,
eftlr leikriti Johns Van Drutens og sögum
Christophers Isherwoods
Föstud. 17/2, laugard. 18/2, fáeln sæti laus,
föstud. 24/2, fáein sæti laus, sunnud. 26/2,
föstud. 3/3.
Litla sviðið kl. 20:
FRAMTÍÐARDRAUGAR
eftlrÞórTulinius
Leikmynd: Stigur Stelnþórsson
Búningar: Þórunn E. Svelnsdóttir
Tónlist: Lárus Grímsson
Lýsing: Elfar Bjarnason
Leikhljóð: Olafur Örn Thoroddsen
Leikstjóri: Þór Tulinius
Lelkarar: Árnl Pétur Guðjónsson, BJörn
Ingi Hflmarsson, Ellert A. Inglmundarson,
Guðrún Ásmundsdóttlr, Jóhanna Jonas og
Sóley Eliasdóttir.
Frumsýning fimmtud. 16/2, uppselt,
laugard. 18/2, uppselt, sunnud. 19/2, upp-
selt, þriðjud. 21/2, uppselt, fimmtud. 23/2,
uppselt, föstud. 24/2, örfá sæti laus, laug-
ard. 25/2, örfá sæti laus.
Miðasala verður opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-20.00.
Miðapantanir í sima 680680 alla
virka daga frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin
okkar
Greiðslukortaþjónusta.
Leikféiag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Leikfélag Akureyrar
OVÆNT HEIMSOKN
eftir J.B. Priestley
SÝNINGAR:
Laugardag 18. febrúar kl. 20.30.
Sunnudag 19. febrúar kl. 20.30.
Föstudag 24. febrúar kl. 20.30.
Síðustu sýnlngar.
Á SVÖRTUM FJÖÐRUM
- úr Ijóðum Daviðs Stefánssonar
SÝNINGAR:
Sunnudaglnn 19. febrúar kl. 20.30.
Fáarsýningareftir.
Miðasalan i Samkomuhúsinu er opin
alla vlrka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Sími 24073. Símsvari tekur við
miðapöntunum utan opnunartima.
Greiðslukortaþjónusta.
I ÍSLENSKA ÓPERAN
Sími 91-11475
Smiúzfa
Tónllst: Giuseppe Verdl
3. sýn. föstud. 17. febr., uppselt, 4. sýn.
laugd. 18. tebr., uppselt. Ósóttar
pantanir seldar mlövikud. 15. febr.
Föstud. 24. febr., sunnud. 26. febr.
Sýnlngar hefjast kl. 20.00.
Miðasalan er opin kl. 15-19
daglega, sýnlngardaga tll kl. 20.
SÍM111475, bréfasiml 27384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ffcíllfi,
ov
9 9*1 7*00
Verö aðeins 39,90 mín.
gjjgsj
JLj Fótbolti
2j Handbolti
Í3 j Körfubolti
41 Enski boltinn
5j ítalski boltinn
6 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
8j NBA-deiídin
1 Vikutilboö
stórmarkaöanna
2 j Uppskriftir
lj Læknavaktin
21 Apótek
_3J Gengi
WMÍM
1} Dagskrá Sjónv.
2} Dagskrá St. 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
_5j Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
_7j Tónlistargagnrýni
5BIHBBBBBB3
HKrár
2 j Dansstaðir
3 jLeikhús
; 4.j Leikhúsgagnrýni
_5J Bíó
6 j Kvikmgagnrýni
1; Lottó
2j Víkingalottó
3: Getraunir
11 Dagskrá
líkamsræktar-
stöðvanna
AÍlllft.
DV
99*1 7*00
Verö aðeins 39,90 mín.