Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Lokalota kjarasamninganna hófst 1 gærkvöldi:
Tímapressan vegna ríkis-
stjórnar réð úrslitum
mikil ágreiningur og átök milli verkalýðsfélaganna um málið
Eftir löng fundahöld og mikil átök
milli verkalýðsfélaganna um hvort
hefja ætti lokalotu kjarasamning-
anna og miða þá við að semja út frá
tilboði vinnuveitenda, sem buöu
3.700 króna hækkun á mánuði og
samning til tveggja ára, var talið víst
um miðnætti að lokalotan væri hafin.
Samt var staðan svo eldfim að menn
sögðu að htið þyrfti til að allt færi í
bál og brand.
Formenn Flóabandalagsins voru
harðastir gegn því að hefja lokalotu
samninganna út frá tilboði vinnu-
veitenda.
„Þetta er eins og að standa fyrir
framan byssukjafta," sagði Sigurður
T. Sigurðsson, formaður Hlífar í
Hafnarfirði, um að ljúka samningum
á þessum nótum. Kristján Gunnars-
son, formaöur Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, sagði menn
eiga bara tvo kosti. Annar væri að
semja á þessum nótum eða hafna því
og fara í verkfall og missa þá allt sem
krafist er af ríkisstjórninni.
Guðmundur J. Guðmundsson kall-
aði saman stjórnarfund í Dagsbrún
í gærkvöldi. Vildi mneirihlutinn
hafna því að semja á þessum nótum.
Guðmundur J. sagði eftir fundinn að
Dagsbrúnarfundur myndi fella
samninga gerða á þessum nótum.
Talsmenn flestra annarra félaga
innan Verkamannasambandsins
vildu ljúka samningum en sögðust
hundóánægðir. Fullyrt var að hin
ýmsu landssambönd innan ASÍ, sem
vildu hefja lokalotuna fyrir löngu,
hefðu náö svo góðum sérkjarasamn-
ingum að þau gætu réttlætt það fyrir
sínu fólki að semja á þessum nótum.
Menn miða við að semja út frá til-
boði vinnuveitenda sem buðu 3.700
króna hækkun á mánuði og samning
til tveggja ára. Þessi krónutöluhækk-
un yrði þannig, samkvæmt tilboði
atvinnurekenda, að alhr launataxtar
hækkuðu um 2.700 krónur við undir-
ritun samningsins. Á lægstu taxtana
kæmi síðan 1.000 krónur til viðbótar
en sú viöbót lækkaði svo eftir því sem
ofar dregur í launatöxtunum. Engin
hækkun á að koma á bónus í fisk-
vinnslu. Um þetta síöasta atriði eru
mikil átök. Talið er að samningarnir
kunni að verða felldir hjá þeim félög-
um þar sem fiskvinnslufólk er uppi-
staðan í félögunum. Krafa verkalýðs-
félaganna er 10 þúsund krónur á
mánuði.
Þegar hefur náðst samkomulag um
ýmis sérkjaramál hinna einstöku
verkalýðsfélaga. Þar þykir merkileg-
ast að fiskvinnslufólk fær kauptrygg-
ingu eftir að það hefur unnið 9 mán-
uði hjá sama atvinnurekandanum.
Aðalkröfurnar, sem snúa að ríkis-
stjórninni, eru aö lánskjaravísi-
tölunni verði breytt þannig aö launa-
hækkanir vegi ekki jafn mikið og
þær gera nú við útreikning hennar.
Að skattar verði lækkaðir og er þá
verið að tala um að hækka persónu-
afsláttinn. Þetta atriði þarfnast laga-
breytinga. Loks eru það svo aðgerðir
til bjargar fólki sem er að missa íbúð-
ir sínar og hafa menn þar talað um
skuldbreytingar.
Björgunarsveitarmenn i Bláfjöllum i gær ásamt hundinum Sesari úr Björgunarhundasveit íslands sem fann Norð-
manninn í flóðinu. Frá vinstri: Björgvin örn Eggertsson úr Hjálparsveit skáta i Garðabæ, Þórir Sigurhansson úr
Björgunarhundasveit íslands, eigandi Sesars, og Ágúst Pétursson úr Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði. DV-mynd ÞÖK
Snjoflóð í Bláflöllum:
Norðmaður lét lífið
- engar merkingar um snjóflóðahættu voru á staðnum
Tuttugu og sex ára gamall Norð-
maður lést er hann varð undir snjó-
Stuttarfréttir
Opíð á Hlemnt! yfir nótt
Rafmagnsleysi orsakaði þaö að
einar útidyr á Hlemmi voru opn-
ar aðfaranótt sunnudags. Þrátt
fyrir töluveröar mannaferðir ut-
andyra freistaðist enginn tif að
fara inn og láta greipar sópa.
Dansarar fengu bronsið
Brynjar Öm Þorleifsson og
Sesselja Sigurðardóttir lentu i
þriðja sæti í suður-amerískum
dönsum í flokki 14-15 ára á opnu
móti í Kaupmannahöfn um helg-
ina.
flóði í Draumadalsgih í Bláfjöllum
um miðjan dag í gær. Annar Norð-
maður, sem með honum var, slapp
naumlega undan flóðinu og tilkynnti
um slysið.
Draumadalsgil er langt utan við
almennt skíðasvæði í Bláfjöllum sem
var lokað í gær vegna veðurs. Norð-
mennirnir voru á gönguskíðum þeg-
ar flóðið féh. Að sögn Magnúsar Más
Magnússonar snjóflóðafræðings er
taJið að þeir hafi sjálfir kallað fram
flóöið með því að renna sér yfir gaml-
an spjófleka í gilinu.
Samkvæmt upplýsingum DV eru
engar merkingar um siyóflóðahættu
á þessum staö en vitað er að flóð
hafa áður fahið úr gihnu og víðar á
Bláflahasvæðinu. Að sögn Magnúsar
eru engar reglur til um slíkar merk-
ingar þegar komið er út fyrir almenn
skíða- og útivistarsvæði.
Flóðið mun hafa fallið um hálfþijú-
leytið í gær. Lögreglan í Reykjavík
fékk tilkynningu rétt fyrir klukkan
þrjú. Slökkviliðið sendi út neyðar-
sveit sína og björgunarsveitarmenn
fóru á staðinn. Þessir aðilar komu
fyrstir á staöinn ásamt starfsmönn-
um Bláfjallaskála og lögreglu. Fljót-
lega komu líka menn frá Björgunar-
hundasveit íslands og fleiri sveitum
víða af landinu sem voru staddir á
samæfingu í Víkingsskálanum í
Sleggjubeinsskarði. Hundur úr sveit-
inni fann Norðmanninn á eins metra
dýpi í flóðinu hálfri mínútu eftir aö
hann hóf leit og fjörutíu mínútum
eftir að tilkynnt hafði verið um slys-
iö.
Maöurinn var fluttur á Borgarspít-
alann með þyrlu Landshelgisgæsl-
unnar þar sem hann var úrskurðað-
ur látinn.
Norðmaöurinn sem slapp undan
flóðinu fékk andlegt áfall en sakaöi
ekki að ööru leyti. Hann er búsettur
hérlendis en sá sem lést var í heim-
sókn hjá honum. Ekki er hægt að
birta nafn hins látna að svo stöddu.
Óveður á Blönduósi:
Þak fauk af íbúð-
arhúsi í heilu lagi
„Viö vorum að hlaupa niður stig-
ann þegar þetta gerðist. Allt þakið
fauk af og okkur brá rosalega. Ann-
ars vitum við ósköp htið. Það er ver-
ið að bjarga því sem bjargað verð-
ur,“ sagði Helga Andrésdóttir, íbúi í
Brekkubyggð 2 á Blönduósi, í sam-
tali við DV í gærkvöld.
Þaö var um hálftíuleytiö í gærkvöld
sem þakið fauk af i heilu lagi en hús
Helgu og sambýhsmanns hennar,
Guðmundar Karls EUertssonar, er
uppi á brekkunnni innan við Blöndu
eins og það er kallað. Húsið er einbýl-
ishús og á efri hæðinni eru svefnher-
bergi og stofa.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
barst þakið „töluverða" leið. Helgu
og Guðmund, sem bæði voru heima
þegar ósköpin dundu yfir, sakaði
ekki.
Hettuklæddur unglingspiltur rændi Áskjör:
Otaði oddhvassri þjöl
að af greiðslustúlku
- vitni sá ránsmanninn hettulausan
Hettuklæddur unghngspiltur
framdi rán í söluturni verslunarinn-
ar Áskjörs við Ásgarð 22 í Reykjavík
um tíuleytið í gærkvöld. Isabella
Markan, 19 ára, var að gera upp í
versluninni þegar piltur með tvo
trefla vaföa um hálsinn kom inn, ot-
aði að henni oddhvassri þjöl og
heimtaði aha peninga úr kassanum.
Pilturinn bar 70 þúsund krónur úr
býtum og hvarf hlaupandi niður
Langagerði en taliö er að hann hafi
dottið á hitaveitustokk á flóttanum
og meitt sig.
Ránið í Askjöri var tilkynnt lög-
reglunni skömmu eftir klukkan 22
og komu lögreglumenn þegar á stað-
inn, ræddu við afgreiðslustúlkuna
og yfirheyrðu dökkklædda konu sem
mætti ræningjanum á flóttanum og
fann þjölina. Þegar DV fór í prentun
um miðnætti var talið fullvíst að
ránsmaðurinn hefði staðið einn að
ráninu.
Rétt fyrir miðnætti þótti ljóst af
lýsingu vitnisins, sem sá ræningjann
hettulausan, að hann væri þekktur
innan lögreglunnar og var lýsingu á
honum dreift í aha lögreglubíla.
Áskjör við Ásgarð i Reykjavík. Unglingspiltur rændi sjoppuna um tíuleytið
í gærkvöld. DV-mynd Sveinn