Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Page 4
4
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Vestmannaeyjar:
Karlmaður nef-
braulkonuá
skemmtistað
Kona á þrítugsaldri hefur kært
karlmann á svipuðum aldri fyrir
líkamsárás í Vestmannaeyjum.
Árásin átti sér stað á skemmti-
staðnum Calypso aðfaranótt
konudagsins. Sló maðurinn kon-
una í andlitið að tilefnislausu,
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar.
Konan er neíhrotin og marin í
andhti eftir höggið. Hún segist
ekkert hafa þekkt manninn eöa
átt saman við hann að sælda.
ErillíKópavogi:
Landasalitekinn
meðtíulífra
Talsverður erill var hjá lögregl-
unni í Kópavogi um helgina. Fjór-
ir ökumenn voru teknir, grunaðir
um ölvun við akstur.
Þá var einn maður tekinn,
grunaður um landasölu. Tiu lítr-
ar af landa fundust í bíl mannsins
en hann neitaði að hafa selt öðr-
um mjöðinn. Hann sagði landann
hafa verið til einkaneyslu.
Nokkur útköll voru vegna há-
vaða í heimahúsum í Kópavogi.
Aö sögn lögreglu er talsvert um
slik útköll hverja helgi.
Akranes:
12hrossá
gotfvöHinn
Tólfhross á lausagangi fóru inn
á golfvöllinn hjá Golfklúbbnum
Leyni á Akranesi um miðjan dag
í gær. Óttast var að völlurinn
hefði skemmst þar sem lítill snjór
var á honum, Lögreglan lét ijar-
lægja hrossin áður en miklar
skemmdir urðu.
ÓveðuráHúsavík
Lögreglan á Húsavík hafði i
nógu að snúast í gær vegna óveð-
urs. Hún aðstoðaði fólk við að
komast leiöar sinnar innanbæjar
en ekki urðu nein meiri háttar
óhöpp. Vindhviður urðu það
miklar að áratugagamalt tré
klofnaði niður í rót.
Banna notkun
allra farsíma
á spítölunum
- taldir geta truflað viðkvæm rafeindatæki
„Við höfum tekið þá ákvörðun að
banna notkun á farsímum hér á
Landspítalanum. í ljós hefur komið
að þessir símar geta truflað þau tæki
og tól sem hér eru notuð, þar á með-
al flókinn rafeindabúnaö, með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum. Símarnir
eru orðnir svo litlir að það er mjög
erfitt að fylgjast með því hverjir eru
með slíka síma og hverjir ekki. Því
var eina ráðið að banna alveg notkun
þessara síma,“ sagði Gísh Georgsson,
verkfræðingur á Landspítalanum,
viö DV.
Notkun farsíma, bæði gömlu far-
símanna og hinna nýju GSM-far-
síma, hefur verið bönnuð á Ríkisspít-
ölunum af ótta við að notkun þeirra
geti truflaö flókinn og viökvæman
rafeindabúnað sem þar er í notkun.
Hafa sérstök bannmerki verið límd
innan á útihurðir spítalans til að
vekja athygli á banninu.
Bannið mun væntanlega ná til allra
spítalanna innan skamms. Sigurður
Angantýsson, yfirmaður tæknideild-
ar Borgarspítalans, segir farsíma-
bann verða sett á þar á spítalanum
innan skamms. Eftir sé að ganga frá
formsatriðum. Á Siguröur von á að
bannið nái einnig til Landakotsspít-
ala.
Ekki eru takmarkanir á notkun
annarra tækja, eins og fistölva eða
boðtækja, sem reyndar taka aðeins á
móti boðum, á spítölunum. Farsím-
amir eru með tveggja vatta sendi-
styrk en öll önnur tæki, sem eru í
almennri notkun, skapa ekki viðlika
vandamál.
Sigurður Angantýsson segir aö far-
símar séu bannaðir víða annars stað-
Notkun farsíma hefur verið bönnuð á Rikisspitölunum. Sams konar bann
mun einnig taka gildi á Borgarspítala og Landakotsspítala. Skilti eins og
það á myndinni mætir þeim sem eiga erindi á Rikisspítalana. DV-mynd GVA
ar á spítölum, t.d. í Skandinavíu, en
reyndar sé deilt um hættuna af notk-
un GSM-símanna. Menn vilji þó ekki
taka neina áhættu og því sé ákveðið
að banna notkun símanna á spít-
ölunum.
Innbrotafaraldur:
Einn grunaður
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyil;
Innbrotafaraldur hefur verið á
Akureyri að undanfórnu og hefur
rannsóknarlögreglan upplýst
þau nær öll og í leiðínni eínnig
eldri innbrotamál.
Ungur maður sat enn í gæslu-
varðhaldi í gær vegna aðildar að
innbrotum i 15 fyrirtæki ásamt
öðrum, þar á meðal voru innbrot
í 7 fyrirtæki í verslunarmiðstöð-
inni Krónunni.
Um helgina var stolið hljóm-
flutningstækjum í Nýja filmu-
húsinu við Hafnarstræti. Þá voru
þrjú 15 ára ungmenni tekin eftir
innbrot í Rúmfatalagerinn. Tvö
þessara ungmenna viöurkenndu
einnig innbrotstilraun í verslun-
armíðstöðina í Kaupangi og inn-
brot i Skíðaþjónustuna í byijun
árs þar sem talsverðu var stoliö.
Tekinn með24
grömmafhassi
Gylfi Krisjánsson, DV, Akureyii;
Karlmaður var handtekinn á
Akureyri um helgina og reyndist
hann hafa 24 grömm af hassi í
fórum sínum.
Við yfirheyrslu viðurkenndi
maðurinn að hafa keypt hassið
af manni á Dalvík. Sá var hand-
tekinn og viðurkenndi að hafa
haft 50 grömm af efninu og selt
Akureyringnum helmmginn.
Vélsleðumstolið
Gyifi KristjánsECm, DV, Akureyxi:
Tveir menn um tvítugt stálu
tveimur vélsleðum við verkstæði
á Árskógsströnd í Eyjafirði á
fóstudagskvöld og léku sér á sleð-
unum um kvöldið og nóttina,
m.a. nærri Dalvík.
Mennirnir hugðust skila sleð-
unum á sama stað daginn eftir
en styggð kom að þeim áður en
þeir komust alla leið. Skildu þeir
því sleðana eftir en lögreglan
hafði upp á þeim. Fá þeir væntan-
lega einhverja refsingu fyrir
þjófnaðinn.
í dag mælir Dagfari
Meira en aðrir
Kennarar sitja enn eftir í verkfalli.
Verkamenn hafa samið, ófaglærðar
stéttir hafa samið, jafnvel aumustu
lágstéttir þjóðarinnar hafa samið
um kjör sín. En kennarar sitja eftir
í verkfalli. Þeim hefur meira að
segja verið boðið að fá það sama
og aðrir en kennarar vilja ekki
semja. Þeir sitja við sinn keip.
Þetta kann að virðast öfugsnún-
ingur og í óþökk annarra í verka-
lýðshreyfingunni þegar kennara-
stéttin í landinu neitar að semja.
Svo bar við í gamla daga að verka-
karlarnir í Dagsbrún báru hita og
þunga dagsins í verkfaUsátökum
og réttindabaráttu en nú er hún
Snorrabúð stekkur og kannski
skiljanlegt í Ijósi þess að kennarar
hafa tekið forystuna í verkalýðs-
baráttunni og heyja það stríð sem
aðrir háðu fyrir þá á árum áður.
Kennarastéttin er orðin að fulltrú-
um öreiganna og hins vinnandi
manns.
Og hvers vegna ætti þá slík stétt
að sætta sig við að fá það sama og
aðrir? Hverjum dettur í hug að
kennarar láti sér það nægja sem
aðrir sætta sig við þegar kennarar
fóma sér og vinnu sinni og berjast
fyrir bættum kjörum alþýðunnar
með þeim vopnum sem aðrir hafa
að mestu lagt niður?
Sannleikurinn er sá að kennarar
húa við harðræði. Ekki aðeins
vegna gífurlegs álags í vinnutíma
heldur og í lágum skítalaunum í
þeirri þrælkun sem þeir búa við.
Ríkisvaldið hefur boöið þeim sjö
hundruð milljónir króna til að
skipta á milli sín, auk þess sem
þeir fengju það sama og aðrir. En
kennarar fussa með réttu við þess-
ari ölmusu. Sjö hundruð milljónir
er skítur á priki og þýðir einfald-
lega að kennarar þurfa að bæta við
vinnutíma sinn til að vinna fyrir
þessum launum. Hafa menn heyrt
annað eins! Hafa menn áður upplif-
að jafn mikla storkun og lítilsvirð-
ingu eins og það að ætlast til að
heil stétt leggi meira að sér til að
fá sjö hundruð milljónir til viðbótar
launum sínum?
Enda þótt þrælkunin sé rosaleg
hjá kennurum hefur sem betur fer
komið í ljós að enn þá er einhver
tími aflögu og kennarar vilja út af
fyrir sig taka að sér að vinna þann
tíma. En alls ekki við kennslu. Þeir
geta í sjálfu sér hugsað sér að taka
að sér að vinna eina og eina stund
til viðbótar en sú vinna á þá að
fara í að undirbúa kennsluna og
ef ætlast er til að kennarar vinni á
starfsdögum verður að búa til nýja
starfsdaga til að mæta þeim starfs-
dögum sem þeir eiga að vinna.
Þess vegna verða kennarar að fá
meira en aðrir til viðbótar við þær
sjö hundruð milljónir sem þeir fá
meira en aðrir. Kennarar eru ekki
kennarar fyrir ekki neitt og krakk-
amir standa með þeim og foreldr-
amir standa með þeim og kennarar
standa saman um að þeim heri að
kenna minna ef þeir eiga að kenna
meira og það þýðir að þeir verða
að fá hærra kaup en aðrir og meiri
hækkun en aðrir til að mæta þeirri
starfsskyldu sem á þeim hvílir
vegna kennslunnar sem fylgir
starfinu. Helst vildu kennarar geta
lagt niður kennsluna til að geta
helgaö sig starfinu og fyrir það
þurfa þeir meira kaup.
Eina ráðið fyrir ríkisvaldið er í
rauninni þaö að bjóða kennurum
að fá kaup fyrir að mæta í vinnuna
sem þeir fá kaup fyrir til að geta
kennt, sem þeir fá kaup fyrir, til
að geta tekið sér starfsdaga, sem
þeir fá kaup fyrir, til að samningar
takist. Að öðrum kosti takast ekki
samningar við kennarastéttina,
sem á rétt á því að fá meira en aðr-
ir, af því að hún leggur meira á sig
til að geta sinnt kennslunni, sem
hún getur ekki innt af hendi, af því
að kennslan tekur of mikinn tíma.
Vandamáhð er sem sé kennslan
og ríkisvaldið verður að gera sér
grein fyrir því að kennarar eru
orðnir fullsaddir á að fá lúsarlaun
fyrir kennslu sem þeim er ofviða
af því að þeir kenna of mikið á of
stuttum tíma. Ef lengja mætti tím-
ann til kennslunnar er það í sjálfu
sér hægt en þá verður líka að borga
kennurum fyrir lengdan skóladag,
af því að þá verða þeir aö kenna
meira heldur en þeir gera í dag og
þurfa þar af leiðandi meiri tíma til
að undirbúa sig fyrir kennsluna
heldur skóladagurinn leyfir.
Já, kennarar þurfa meir.
Dagfari