Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Page 6
6
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Sandkom
Kyrrstaða í kjaradeilu kennara:
Strandar núna
á launaliðnum
- segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins
„Þaö hefur heldur lítið þokast í
samningunum. Ég held þó að það
væri hægt að ná samkomulagi um
alla útfærslu kjarasamnings ef
launatilboðið væri viðunandi og rétt
mat fengist á því hvers virði þessi
breyting á vinnutímanum og fjölgun
daga er,“ sagði Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasambandsins, við
DV í gær.
Kennarar hafa fengið tilboð um 7
prósenta launahækkun á grunnlaun
en því fylgir að vinnutími þeirra
lengist. Því hafna þeir alfarið.
„Við áttum fund með Ólafi G. Ein-
arssyni menntamálráöherra í dag,
sunnudag. Á þeim fundi var farið
yfir stöðuna í kjaradeilunni. Einnig
var rætt um grunnskólafrumvarpið
sem hann ætlar að fá samþykkt á
Alþingi fyrir þinglok. Við lýstum að
sjálfsögðu þeim áhyggjum sem við
höfum af réttindamálum kennara
varðandi ílutning grunnskólans til
sveitarfélaganna," sagði Eiríkur.
Hann sagði að menntamálaráð-
herra hefði sagst skilja þennan ótta
kennara varðandi réttindamálin.
Það var rætt um að setja eitthvert
öryggisatriði inn í frumvarpstextann
hvað þetta varðar, eins og gert var
með tekjustofnalög sveitarfélaganna.
Samninganefndirnar voru kallaðar
til samningafundar í gærkvöld og
búist er við að fundahöld haldi áfram
í dag.
Óhapp á skemmtistað:
Kona missti
framan affingri
Ung kona varö fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu að
missa framan af fingri þegár hún
var á skemmtistað í Reykjavík sl.
föstudagskvöld.
Konan var að setjast á stól þeg-
ar hún festi baugfingur vinstri
handar á milli setu stólsins og
grindar hans.
Konan var flutt á slysadeild þar
sem gert var að sárum hennar.
Nánari málsatvik eru óljós en
setan á stólnum mun hafa losnað.
Innbrot í Esso-stöð:
Vaktmanni hótað
meðsporjárni
Lögreglan í Hafnarfirði leitar
tveggja pilta sem brutust inn í
olíustöð Olíufélagsins við Hval-
eyrarbraut í Hafnarfiröi að
morgni sunnudagsins. Vaktmað-
ur Olíufélagsins kom auga á pilt-
ana, náði að góma annan þeírra
en sleppti honum þegar hann tók
upp spotjárn og hótaði að stinga
vaktmanninn á hol.
Þegar vaktmaðurinn sá piltana
voru þeir að brjótast inn á verk-
stæði olíustöðvarinnar. Voruþeir
þá búnir að fara inn i birgöa-
geymslu og verslun. Piltamir
höföu engan ránsfeng á brott með
sér og vaktmanninn sakaöi ekki.
Nú er verið að flytja 18 sumarhús eða svokölluð heils árs hús til Súðavíkur. Fimm eru flutt landleiðina ásamt 50
tonna krana sem notaður verður til að hifa hin fjórtán úr skipum Eimskipafélagsins sem flytja þau sjóleiðina.
DV-mynd S
Stefnuskrá G-listans fyrir alþingiskosningamar í vor:
2.000 ný störf og
ráðuneytum fækkað
-útilokum ekki samstarf viö neinn, segir formaður Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið og óháðir hafa
samþykkt stefnuáherslur G-listans
fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Áhersla er lögö á nýja launastefnu
með kjarajöfnun og leiðréttingu í
launamálum kvenna, 10-15 þúsunda
króna hækkun á lægstu launum og
réttlátara skattakerfi með hærri
skattleysismörkum, svo nokkuð sé
nefnt. Fimm til sjö milljarðar verða
fluttir til lág- og miðtekjuhópa og
innganga í Evrópusambandið kemur
ekki til greina. Það verður forgangs-
verkefni næstu ára að vinna nýja
markaði í Asíu, Ameríku og Afríku.
„Með því að ná fjögurra prósenta
hagvexti er hægt að ná ríkissjóðs-
hallanum niður og greiða niður
skuldir ríkisins. Ef sá hagvöxtur
næst ekki er erfitt eða jafnvel útilok-
að aö greiða skuldirnar niður og því
er höfuðatriðið að ná íslensku at-
vinnulifi í gang. Viö viljum ekki
dæma ísland til að sitja í öftustu
sætunum með gömlu Evrópuríkjun-
um,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaöur Alþýðubandalagsins, í gær
og sagöist ekki útiloka samstarf við
neinn eftir kosningar.
Alþýðubandalagsmenn og óháðir
vilja endurskoða verkaskiptingu
ráðuneyta, fækka ráðuneytum,
semja fjárlög til tveggja ára og koma
á fót samræmdum fjárlögum þar sem
fjárveitingar til vegamála, flugmála
og hafnamála yrðu felldar í eina
heild. Þá eru uppi kröfur um sam-
ræmdar aðgerðir til að skapa 2.000
störf á fyrsta starfsári nýrrar ríkis-
stjómar og minnka greiðslubyröi
húsnæðislána svo hún verði innan
við 20 prósent af heildarlaunum.
Stefnuáherslur Alþýðubandalags
og óháðra voru samþykktar einróma
á stefnuþingi G-listans um helgina.
Miðstjóm Alþýðubandalagsins stað-
festi stefnuskrána í gærmorgun.
Hákon í tíma?
Þnulétuckki
ásérstanda,
viðbrögðinvið
vísunni suin
HákonAðal-
steinssonhag-
yrðingurorti
ogDVbírtiá
dögunumþar
semHákon
gerðiaðum-
talsefniaö
Framsóknar-
flokkurinn í
Reykjavik flaggar kynldsfræðingn-
um Ingibjörgu Jónu á miðjum fram-
boðslistasinum. Framsóknarblaðið
Austri á Austfjörðum fékk strax tvær
limrar vegna þessara vísukoma Há-
konar oghljóða þær þannig:
Hákon legur sig í líma,
leikinn er kariinn að ríma.
Éggeriþvískóna
aðlngibjörgJóna
með ánægju taki hann í tíma.
Þá lífsins listir í ranni
lært fengi Konnimeð sanni.
Þ ví sitthvað hún kann
semgertgætihann
aö glóðheitum framsóknarmanni.
Háttatimi
Þeirtóku
heldurbeturtil
máls þing-
Jmennirnirum
grunnskóla-
: frumvarpiðsl.
: fimmtudagá
Alþingiogvoru
greinilegaað
niðurlotum
komnirsumir
þegarkomið
varframyfir
miönætti. í
ræðustól skundaði þá „utan dag-
skrár“ Kristín Ástgeirsdóttír
k vennalistakona og var vægast sagt
mæðuleg á svip þegar hún tilkynnti
að hún þyrftí að mæta á nefndarfund
um morguninn og hvort ekki væri
mögideiki á að hún íæri að komast
heim. Þá spurði hún þingforseta
hvort ekki væri kominn tírni tii að
hátta en leiðrétti sigstrax og spurði
hvort ekki væri kominn tími til að
hætta svo hægt væri að fara heim að
hátta.
Þurfa
þrjársólir
Ádögunum
var sagtfráþvi
aðMývetning-
arliefðn séð
þijársölirá
loftí samtimis.
Súmirhöfðuá
orðiaðþétta
vaminúeftir
öðruhjáþeim
Mývetningum
eníVíkurblað-
inuáHúsavík
komskýringá
þessu fyrirbæri i vísukorni sem mun
vera eför Geir Garðarsson og er þar
að sjálfsögðu vísað til ósættis Mý-
vetninga um hin ýmsu mál:
í hásveitum er himinninn blár,
i heiðrikjunni margar sólir skina.
Mývetningar þurfa þrjár,
Þeir geta ekki sameinast um eina.
Gúmmískómir
SteindórHar-
iddsson.kratiá
Norðurlandi
vestrasem
skipar3.sætiá
lista flokksins
þar,segirþing-
mennkjör-
dæmisins ótrú-
lega aftur-
haldssamaog
þröngsýna "
endaeiga
kratarengan
þingmann úr kjördæminu. Hann seg-
ir að þegar Pálmi Jónsson, sem oft
hafi verið ótrúlega þröngsýnn, hafi
ákveðið að hætta hafi sj álfstæðis-
menn ekki borið gæfu til að taka hinn
víðsýna Vilhjálm Egdsson í 1. sætið
heldur hafi þeir haldið sig við sömu
gúmmískóna og afgreiðir þar með
séra Hjálmar Jónsson á Sauðárkróki
sem „gamlan gúmmiskó". Gerast
þeir nú ærið framlegir í málflutn
ingi, kratarnir, svoekki sé meira
sagt.