Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
39
Merming
Úr dagbók bítils
- John Lennon á Kjarvalsstööum
Bitillinn John Lennon var í senn húmoristi og húm-
anisti. Þess konar lífsafstaða endurspeglast í sköpun-
arverkum hans sem eru ekki einungis á tónlistarsvið-
inu heldur einnig á sviði ritlistar og myndlistar. Sýn-
ing á myndverkum Lennons var opnuð á Kjarvalsstöð-
um á laugardag. Hingað eru verkin komin fyrir milh-
göngu ekkju listamannsins, Yoko Ono, er sjálf sýndi
á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Á sýningunni
eru 65 verk - allt grafík, flest silkiþrykk en einnig stein-
prent og blönduð grafíktækni.
Augnabliksmyndir
Við skoðun verkanna veröur fljótt ljóst að hér er
fyrst og fremst um augnabliksmyndir að ræða þar sem
tilgangurinn er sá að fanga í fáum dráttum uppákom-
ur í daglega lífinu. Myndirnar hafa flestar hverjar
dagbókarblæ þar sem Lennon, Yoko Ono og sonur
þeirra, Sean, eru aðalpersónur í húmanískri og kóm-
ískri sýn á mannlífið. Lennon mun hafa verið hugfang-
inn af fjölskyldulífmu þennan áratug sem verkin
spanna, enda lifði hann fremur einangruðu lífi seinni
árin á Manhattan og umgekkst fáa utan sína nánustu.
Heimurinn rúmast hins vegar mætavel innan svo
þröngs ramma eins og sést á verkum eins og „Imagine
AU the People" (63) og „Samurai" (65). Þannig má segja
að Lennon hafi ástundað eins konar taóisma á þessum
árum; ræktað garðinn sinn og sína nánustu og komið
þar auga á hin stóru sannindi lífsins.
Fáir og ákveðnir drættir
Verkin eru talsvert misjöfn. Sum eru tækifæris-
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
myndir sem e.t.v. hafa ekki mikið listrænt gildi en
þeim mun meira söfnunargildi. Á meðal slíkra verka
má telja erótísku teikningarnar sem ollu miklu upp-
þoti í London árið 1970. Lennon tekst best upp í einfóld-
um teikningum þar sem fáir og ákveðnir drættir bera
uppi myndina, t.d. „Bag One“ (1), „The Lennons" (11)
og „Real Love“ (28). í slíkum myndum rímar teikning-
in vel við japanskan undirritunarstimpihnn, því yfir-
bragðiö er mjög í anda austrænnar skrautritunar.
Lífsgleðin í fyrirrúmi
Margar síðustu myndir Lennons hafa meira gildi
sem persónulegar skopmyndir þar sem lífsgleðin er í
fyrirrúmi en listrænar kreddur víðs fjarri. Sérstæður
húmor Lennons nýtur sín vel í verkum eins og „Watch
the Holes, Yoko“ (39) og „Nothing Is Impossible". Hér
hefði verið við hæfi að hafa nokkurn samanburð af
öðrum verkum Lennons, einkum þó hinni mynd-
skreyttu ljóöabók „In His Own Write“ er út kom 1964.
Þar tætir Lennon samborgara sína í „Liddypol" sund-
ur og saman í háði þar sem frjálsleg teikning og götu-
málstexti fallast í faðma. Óhætt er að mæla með þess-
ari sýningu á verkum Lennons á Kjarvalsstöðum, jafnt
fyrir gamla bítlaaðdáendur sem ungt fólk á öllum aídri.
Hringiðan
Það var ekki laust viö aö sumum fyndist hávaðinn nokkuð mikill í norsku tónhstarmönnunum sem sphuðu afríska
tónhst fyrir börn og unghnga í Norræna húsinu um helgina. Tónleikamir voru hður í sérstakri dagskrá fyrir böm
og unghnga á norrænu menningarhátíðinni Sólstöfum. Hljómsveitin, sem þarna spilaði, heitir Super Djempe Kan
og virtust áhorfendur skemmta sér mjög vel þrátt fyrir mikinn galsa og læti.
Námsstyrkir
MENNTABRAUT
Námsmannaþjónusta íslandsbanka
íslandsbanki mun í tengslum viö Menntabraut,
námsmannaþjónustu íslandsbanka,
veita sjö námsstyrki aö upphæð 100.000 kr. hver
á árinu 1995.
Allir námsmenn, 18 ára og eldri, geta sótt um styrkina,
hvort sem þeir eru í námi hér á landi eöa erlendis.
Styrkirnir eru óháöir skólum og námsgreinum.
í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um
nafn, heimili, símanúmer, námsferil, námsárangur og
framtíöaráform í stuttu máli.
Umsóknir skal senda til:
íslandsbanki hf.
Markaðs- og þjónustudeild (Námsstyrkir)
Kringlunni 7
155 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1995
ÍSLANDSBANKI