Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1995, Page 30
42
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
Afmæli
Sigfinnnr Karlsson
Sigfinnur Karlsson, framkvæmda-
stjóri Alþýöusambands Austur-
lands, Hlíðargötu 23, Neskaupstaö,
varð áttræöur í gær.
Starfsferill
Sigfinnur er fæddur á Hóli í Nes-
kaupstað og þar ólst hann upp til
sjö ára aldurs er faðir hans lést. Var
hann þá tekinn í fóstur að Skorra-
stað í Norðíjarðarhreppi en móðir
hans fluttist til Vestmannaeyja með
systurhans.
Sigfinnur var við nám í Alþýðu-
skólanum á Eiðum 1931-33, var sjó-
maður framan af árum og starfaði
sem skrifstofumaður hjá fyrirtækj-
um i Neskaupstað. Hann sat í niður-
jöfnunamefnd og skattanefnd í
nokkur ár, sat í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar sem varamaður og aðal-
maður 1948-82, í stjóm Verkalýðsfé-
lags Norðfirðinga frá 1952, þar af
formaður 1956-58 og frá 1969-94, í
sambandsstjórn ASÍ fyrir Austfirði
frá 1956-88, í stjórn Verkamanna-
sambands íslands frá stofnun
1964-89 og í stjóm Sjómannasam-
bands íslands frá 1978-94.
Sigfinnur hefur veriö starfsmaður
Verklýðsfélags Norðfirðinga frá
1945, var formaður Vélstjórafélags-
ins Gerpis 1942-52 og einnig var
hann forseti Alþýðusambands Aust-
urlands 1958-87.
Fjölskylda
Sigfinnur kvæntist þann 31.12.
1938 Valgerði Ólafsdóttur húsmóð-
ur, f. 6.9.1919. Hún er kjördóttir
Ólafs Þórðarsonar, smiðs í Nes-
kaupstað, og Helgu Gísladóttur, en
foreldrar Valgerðar voru Jónas Þor-
steinsson, skáld frá Skuggahlíð, og
Jóhanna Jóhannsdóttir frá Breið-
dal.
Böm Sigfinns og Valgerðar: Jón,
f. 10.9.1938, d. 1963, bílstjóri í Nes-
kaupstað, var kvæntur Lám Ólafs-
dóttur og eru dóttir þeirra Salgerður
Jónsdóttir, húsmóðir í Mosfellsbæ,
gift Ólafi Ásmundssyni, starfs-
manni hjá Ingvari Helgasyni, og
eiga þau tvíburana Guðjón og Láru
Völu; Viggó, f. 8.12.1940, eigandi og
framkvæmdastjóri Gúmmíbáta-
þjónustunnar í Neskaupstað,
kvæntur Eddu Clausen, og eiga þau
þrjú böm, Sigfinn Val, f. 1.4.1967,
íþróttakennara á Neskaupstað,
kvæntan Þorbjörgu Kristjánsdóttur
íþróttakennara og eiga þau eina
dóttur, Valgerði, Ólaf Þröst, f. 4.10.
1969, og Jónu Hörpu, f. 15.10.1971,
húsmóður í Neskaupstað, en maður
hennar er Þráinn Haraldsson
verkamaður og eiga þau soninn Sig-
ursvein; Óla Helga, f. 25.9.1947,
starfar við lífeyrissjóð verkfræð-
inga, búsett í Mosfellsbæ, gift Sig-
urði Fannar Guönasyni verslunar-
manni og eiga þau tvö börn á lífi,
Guðnýju, f. 15.4.1976, og Sigfinn
Fannar, f. 5.10.1978.
Systur Sigfinns: Bára, f. 1917, nú
látin, var búsett í Vestmannaeyjum,
gift Þorsteini Guðjónssyni, sem
einnig er látinn, og eignuðust þau
einn son, og Kristín, f. 1920, búsett
í Vestmannaeyjum, gift Arnmundi
Þorbjörnssyni netagerðarmanni og
eiga þau tvær dætur.
Fósturforeldrar Sigfinns vora Jón
Bjamason, b. á Skorrastað í Norð-
fjarðarheppi, og Soffia Stefánsdótt-
ir.
Foreldrar Sigfinns voru Karl
Árnason, sjómaður í Neskaupstað,
og Vigdís Hjartardóttir.
Ætt
Vigdis var dóttir Hjartar Hjartar-
sonar og Gyðríðar Magnúsdóttur úr
Landeyjum.
Karl var sonur Árna Finnboga-
sonar, Skúlasonar, b. í Sandvík,
Skúlasonar, ættföður Skúlaættar-
innar.
Móðir Finnboga var Rósa Finn-
bogadóttir Sigurössonar á Skálum.
Menning
Sigfinnur Karlsson.
Móðir Árna var Katrín Þuríður
Jónsdóttir, b. á Ýmastöðum, Þor-
leifssonar og Oddnýjar Andrésdótt-
ur frá Karlsstöðum.
Móðir Karls var Guðlaug Torfa-
dóttir, b. í Skuggahlíð, Jónssonar,
b. á Kirkjubóli, Vilhjálmssonar.
Móðir Torfa var Guðríður Stef-
ánsdóttir, b. í Fannardal í Norð-
firði, Sigurðssonar. Móðir Guðlaug-
ar var Valgerður dóttir Stefáns, b. í
Ormsstaðahjáleigu, Þorleifssonar,
og Sesselju Bjarnadóttur, b. í Við-
firði, Sveinssonar.
Tómas R. með sextett
Tómas R. Einarsson hóaði saman sextett á dögunum
og fengum vér almenningur aö njóta á Jazzbarnum á
fimmtudagskvöldið. Liðsmenn voru bæði þrautreynd-
ír menn, eins og hljómsveitarstjórinn, Sigurður Flosa-
son altsaxisti, og Matthías Hemstock trommari og síð-
an þeir Gunnar Gunnarsson píanisti og tenóristinn
Óskar Guðjónsson. En sjötti maðurinn hefur ekki
mikið sést á sviði fram að þessu: Hann blæs í básúnu
og heitir Samúel Jón Samúelsson. Þeir sem fylgjast
með í íslenskum djassi vita að þeir eru ekki margir
málmblásararnir sem að staðaldri sveifla lúðrinum á
djassbúllum, og Tómas lætur ekki unga og efnilega
menn á því sviöinu ganga lengi lausa heldur safnar
liði. Annars var dagskrá kvöldsins hraðferð í gegnum
ameríska djasssögu, allt frá „On the Sunny Side of the
Street“ eftir McHugh, sem flestir þekkja best í flutn-
ingi Louis Armstrong, og yfir í Wayne Shorter og
McCoy Tyner, með viðkomu hjá Ellington, Parker,
Mingusi og Rollins. Að auki var svo yfirreið yfir Land-
sýnarplötu Tómasar á seinni hluta tónleikanna. Létt-
leikinn var í fyrirrúmi hjá sextettinum. Hljóðfæraleik-
ararnir skemmtu sér vel við spiliríið og mér er ánægja
Tónlist
Ársæll Másson
að tilkynna að það gerðu áheyrendur líka. Skemmti-
legast var að heyra alla þrjá blása í einu, eins og í „My
Jelly Roll Soul“ og sér í lagi þó „íslandsblúsnum", sem
var fiörlega fluttur og skemmtilega, og þar fékk Samú-
el að láta gamminn geisa. Einnig fékk „Oleo" góða
meðferð; Gunnar fór hamfórum á píanóið og Matthías
átti glettin innskot á milh gleðifrasanna hjá þeim sax-
istunum. Spilamennska eins og sextettinn sýndi þetta
kvöld gerir þaö að verkum að maður fer heim léttari
á brún en áður, og það er ekki svo ónýtt.
Guy Barker og Jazz-
kvartett Reykjavíkur
Það hefur ekki farið jafnhátt og skyldi að síðastliðið
vor spilaði íslensk djasshljómsveit í heila viku á fræg-
asta djassklúbbi Lundúnaborgar, Ronnie Scott’s. Jazz-
kvartett Reykjavíkur, en sú var hljómsveitin, hefur á
að skipa tveimur helstu djasshöfundum íslenskum,
þeim Sigurði Flosasyni altsaxófónleikara og Tómasi
R. Einarssyni kontrabassaleikara. Ásamt þeim Eyþóri
Gunnarssyni píanista og Einari Val Scheving tromm-
ara er kvartettinn fullskipaður en með þeim á Ronnie
Scott’s lék gamaU kunningi þeirra, Guy Barker, sem
er bæði breskur og afburðasnjall trompetleikari. Upp-
taka frá tónleikum þeirra í London var svo gefin út á
geislaplötu „Hot House“. Guy Barker er staddur hér-
lendis og hélt Jazzkvartett Reykjavíkur með honum
Tónlist
Ársæll Másson
tvenna tónleika um helgina, aðra á Akureyri og hina
á nývígðum Jazzbamum í Lækjargötu. Þeir léku aðal-
lega efni af plötunni enda tónleikamir hugsaðir sem
kynning á henni. Meirihluti laganna er eftir félaga
kvartettsins, rammíslenskur djass. Aðeins titillagið og
„Alone Together" em eftir aðra, en þau tilheyra þeirri
alþjóðlegu vofu sem sameinar djassmenn allra landa.
Tónleikamir vom í einu orði sagt frábærir þótt kvart-
ettinn hafi oft spilað vel þá var sveiflan betri en nokkru
sinni á sunnudagskvöldið. Erfitt er að tína til sérstaka
ópusa sem betri voru en aðrir. Þeir byrjuðu á þremur
gamalþekktum af fyrri plötum skáldanna, „Þegar öllu
er á botninn hvolft” og „Flugi 622“ eftir Sigurð og
„Skelk í bringu" úr smiðju Tómasar. „You Don’t Know
What Love Is“ var annað af tveimur lögum sem ekki
em á plötunni en þar átti Barker snilldareinleik í byrj-
Sigurði Flosasyni altsaxófónleikara.
un. Hann er mjög litríkur og alhliða spilari, hefur
mikil blæbrigði í tón og blæs jafnt „effekta” sem falleg-
ar og músíkríkar línur. Einar Valur var dúndurgóður
og er framfor kvartettsins örugglega ekki minnst hon-
um að þakka. Sigurður sýndi líka sínar bestu hliðar;
maðurinn sá nær alltaf að heilla áheyrendur með sinni
spilamennsku en hann er nú meðlimur í'kvintett Bar-
kers, sem er skipaður Bretum og einum Portúgala.
Hámarki náöu tónleikamir í lokalaginu, „Hot Ho-
use“, rífandi sveifla á troðfullum Jazzbamum. Jazz-
kvartett Reykjavíkur sýndi það þetta kvöld að hans
plötu má ekki vanta í íslenskt djassplötusafn.
með afmælið
20. febrúar
85 ára
Karl Símonarson,
Túrtgötu 8, Eskifirði.
75ára
Oddný Þórormsdóttir,
Skólavegi 46A, Fáskrúðsfirði.
Elín Elíasdóttir,
Höfðagrund 11, Akranesi.
Guðfinna Hinriksdóttir,
Grundarstíg 2, Flateyri.
GeirBjörnsson,
Víöimel32, Reykjavík.
Jón Snorri Bjamason,
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ertendur Stefánsson,
fyrrv. neta-
gerðarmaöur,
Vallargötu 6,
Vestmannaeyj-
um.
Konahanser
GuöfinnaK.
Ólafsdóttir
húsmóöir.
Erlendur tekur á móti gestum,
laugardaginn25.2. í s&fnaðarheim-
ili Landakirkju í Vestmannaeyjum,
frákl. 18.00-21.00.
Hildur Kristjánsdóttir,
Furulundi 6, Varmahlíð.
Jómnn Gröndul,
Hæðargaröi 35, Reykjavík.
70 ára
Aðalsteina Helga Magnúsdóttir,
Grund I, Eyjafiarðarsveit.
Guðmundur Hjartarson,
Grænhóli, Ölfushreppi.
Ellen Margrete Guðjónsson
hjúkrunarfræðingur,
Hvassaleiti33,
Reykjavík.
Eiginmaöur
hennar er
Andrés Guð-
jónsson.iýrrv.
skólameistari
Vélskólaís-
lands.
Þau eru i útlöndum á afmælisdag-
inn.
50 ára
Guðmundur Karl Sigurðsson,
Reynilundi 3, Akueyri.
Hann tekur á móti gestum í Odd-
fellowhúsinu á Akureyri í dag milli
kl. 17.00 og 20.00.
Sigurbjörg Þórarinsdóttir,
Bláskógum I, Egilsstöðum.
40 ára
Friðgeir Sveinn Kristinsson,
Furugerði 2, Reykjávík.
Sigrún Kristín Þorsteinsdóttir,
Funafold 6, Reykjavík.
Anna María Svavarsdóttir,
Þelamörk 60, Hveragerði.
Lilja Matthíasdóttir,
Úthlíð 4, HafnarfirðL
Til sölu Scania 112M 6x4, árg. 1984.
Dráttarbill með vökvadælu og stól i góðu lagi.
Mikið endurnýjaður, á góðum dekkjum, ek. 600 þús. km.
Verð 2.500.000 kr. án vsk.
Bílaumboðið Krókhálsi, sími 91-876631/676833/Heiðar 31236