Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
Fordkeppniíi 1995:
Tvær utan-
landsferðir í boði
- sendið myndir fyrir 26. mars
Lífið hefur breyst mikið á einu ári hjá Elisabetu Davíðs- Það er vart hægt að sjá að fyrirsætumamman Eileen
dóttur, Fordstúlku 1994. Hér brosir hún á ströndinni á Ford sé komin á áttræðisaldur. Hér er hún á spjalli
Hawaii þar sem hún dvaldist sl. sumar. við keppendur.
Þá er hafln leit að súperfyrirsætu
íslands á nýjan leik. Það er Ford
Models, umboðsskrifstofa fyrirsætna
í New York, sem stendur fyrir keppn-
inni Supermodel of the World, sem
leitar að íslenskum þátttakanda í þá
keppni. í fyrra var það Elísabet Dav-
íðsdóttir sem bar sigur úr býtum og
fékk hún samning viö Ford Models
í París þar sem hún hefur starfað.
Auk þess fékk Elísabet tvær utan-
landsferðir út á sigur sinn, fyrst til
Parísar og síðan til Hawaii þar sem
keppnin fór fram á glæsilegu lúxus-
hóteli á eynni Maui
Starfar í Mílanó
Núna er Elísabet við störf í Mílanó
fyrir Ford Models þar sem henni
hefur vegnað mjög vel. Meöal annars
hefur hún verið á auglýsingasamn-
ingi við Adidas-umboðið og fleiri
stórfyrirtæki. Elísabet er þegar bók-
uð fram í apríl, þar á meðal er hún
að fara í þriggja daga ferð til Barcel-
ona, þannig að segja má að hún hafi
heppnina með sér.
Þær stúlkur sem áhuga hafa á
draumareisum til útlanda ættu að
láta taka af sér myndir sem fyrst og
senda til DV. Gott er að senda tvær
myndir, eina af viðkomandi allri og
aðra andlitsmynd. Skilafrestur á
myndunum er til 26. mars en úrslit
keppninnar veröa kynnt í helgar-
blaði DV 22. apríl. Aður en að því
kemur verða allar myndir sendar til
Ford Models í New York þar sem
valið verður í úrslit. Þær stúlkur sem
komast í úrslit verða kynntar sér-
staklega í blaðinu. Það er Eileen
Ford, módelmamman sjálf, sem vel-
ur stúlkurnar sem taka munu þátt í
keppninni.
Helstu kröfur sem Eileen Ford ger-
ir eru um hæð og þyngd. Lágmarks-
hæð er 170 cm. Að öðru leyti er ekki
leitað eftir neinu sérstöku útliti nema
ef vera skyldi heilbrigðu og klass-
ísku. Eileen Ford vill aldrei tiltaka
hvemig útliti hún leitar að hveiju
sinni en kallar það X-Factor. „Eg
veit ekki hvemig útlitið er fyrr en
ég sé þaö,“ segir hún. „Og þá læt ég
það ekki sleppa."
Falin stjarna
Eileen hefur sagt að heppilegasti
aldur fyrirsætu sé átján til nítján ár.
Þá eru stúlkurnar nógu þroskaðar
til að starfa sem fyrirsætur. Þrátt
fyrir þessa skoðun vill hún ekki setja
svo þröngar skoröur varðandi ald-
urstakmörk í keppnina þar sem
ávallt séu til undantekningar frá
reglunni. „Það getur leynst „stjarna"
einhvers staðar sem er eldri eöa
yngri,“ segir hún.
Þetta er í áttunda skiptið sem DV
tekur þátt í leitinni að súperfyrir-
sætu íslands fyrir Ford Models en
áhugi á keppninni hefur aukist ár frá
ári. Á síðustu árum hafa um og yfir
eitt hundraö stúlkur sent inn myndir
í keppnina og er áhuginn því gífur-
legur.
Keppnin Supermodel of the World
hefur verið haldin á hvetju ári und-
anfarin fjórtán ár. Eileen Ford setti
þessa keppni á laggirnar í því skyni
að finna nýjar fýrirsætur víða um
heim. Það hefur sannarlega tekist.
Starf fyrirsætunnar er ákaflega vin-
sælt og þær sem verða eftirsóttar
geta þénað milljónir á mánuði.
í draumaferð
til Hawaii
Elísabet Davíðsdóttir, 18 ára
menntaskólamær, varð Fordstúlkan
1994 og fór í keppnina Supermodel
of the World á síðasta ári. Þá var hún
í fyrsta skipti haldin á Hawaii. Elísa-
bet uppliíði allan þann lúxus sem
kvikmyndastjömur upplifa á hótel-
inu sem hún bjó á en farið var með
keppendur eins og drottningar. El-
ísabet sagði að hótelið The Grand
Wailea væri hrein paradís. Þar var
hægt að velja um alls kyns heilsub-
öð, m.a. fimm jurtaböð sem eiga að
vera ákaflega heilnæm. „Þetta voru
ólýsanlegir dagar sem ég mun minn-
ast lengi," sagði Elísabet þegar hún
kom heim frá Hawaii. „Þetta var
sannkölluð paradís. Maður þurfti
ekkert að fara frá hótelinu því þar
var alltaf eitthvað nýtt að sjá á hveij-
um degi. Umhverfið var ólýsanlegt
pg meira að segja litskrúðugir páfa-
gaukar flugu um í garðinum. Þetta
var æðislegt," sagði Elísabet eftir að
hafa veriö þama í átta ævintýraríka
dafea.
Heimsókn í
Planet Hollywood
Það voru þijátíu stúlkur sem tóku
þátt í keppninni Supermodel of the
World í fyrra, frá öUum heimshlut-
um. Úrslitakeppnin fór fram í garði
hótelsins" við sundlaugina, og var
þar haldin mikil tískusýning. Alla
átta dagana vom stúlkurnar með
kvikmyndatökumenn með sér hvert
sem haldið var enda var verið að búa
til sjónvarpsþátt. Meðal þeirra staða
sem þær heimsóttu var hinn frægi
veitingastaður Planet HoUywood,
þar sem farið var með þær eins og
kvikmyndastjörnur. „Það var lagður
rauður dregill við innganginn sem
var girtur af vegna fjölmargra áhorf-
enda sem þangað höfðu safnast,“
sagði Elísabet. Einnig fóm keppend-
ur á sveitasetur sem reist var fyrir
hina frægu leikkonu Marilyn
Monroe.
Lífið breyttist
Það er alveg ljóst að sigur í Ford-
keppninni getur breytt lífi ungrar
stúlku á svipstundu eins og gerðist
hjá EUsabetu. Þegar hún sendi
myndir af sér i Fordkeppnina fyrir
ári hafði hún aldrei komið nálægt
fyrirsætustörfum. Margir höíðu
hvatt Elísabetu tíl að senda myndir
af sér i keppnina enda hafði hún
ákjósanlega hæð fyrir sUka keppni,
176 cm. EMsabet er fædd 28. júní 1976
og var nemandi í Menntaskólanum
við HamrahMð. Hún hefur nú tekið
sér stutta hvOd frá námi meðan hún
gerir garðinn frægan í útlöndum og
fær að kynnast öörum heimi sem
færri stúlkur komast í en vilja.
Umsókn um starf
Fordkeppnin er í rauninni ekkert
Ert þú fyrirsæta ársins?
N d íl 1
Aldur.............
Heimili ■■■■■■■■■■•■■■■■■■•
Símanúmer.........
Póstnr. og staður
Hð&ð ■•■■■■■■■■■••■•■•■••••■
Staða •■■■■■•■■■■■■«•■■■■■■
Hefur þú starfað við fyrirsætustörf?
Fyllið í réttan reit já □ nei □
Ef svarið er jatandi þá hvar..................................
Myndirnar sendist til:
Ford-keppnin, Helgarblað DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík
Gleymið ekki að senda myndir með.
í
í
4
4
4
i
4
é
m