Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 13 West Side Story var frumsýnd í gærkvöldi: Kraftmikið fólk og hæfileikaríkt - segir Sigrún Waage sem fer meö hlutverk Anitu í uppfærslunni „Þaö hefur veriö mikill hugur í fólkinu og mikil gleði. Viö erum farin aö finna þessa spennu sem magnast upp fyrir frumsýningu og hlökkum til aö takast á við hana,“ sagði Sigrún Waage leikkona í samtali við DV á fimmtudag en þá var aöeins sólar- hringur í frumsýningu á söngleikn- um West Side Story eða Saga úr vest- urbænum í Þjóðleikhúsinu. Gener- alprufan tókst mjög vel á miðviku- dagskvöldið og voru leikarar að slípa sýninguna á síöustu æfingu á fimmtudag. Saga úr vesturbænum er eitt af stærri verkefnum Þjóðleikhússins en um hundrað manns koma við sögu í þessari uppfærslu. Mikið er lagt upp úr dönsum og er það Bretinn Kenn Oldfield sem hefur samið þá og æft. Það var sl. vor sem byijað var að ráða leikara í Sögu úr vesturbænum. Þá tóku við langar og strangar pruf- ur, meðal annars í aðalhlutverkin, hlutverk Tonys og Maríu, en það eru þau Marta Halldórsdóttir og Felix Bergsson og Valgerður Guðnadóttir og Garðar Thor Cortes sem skipta þeim á milli sín. Sigrún átti upphaf- lega að vera í öðru hlutverki í sýning- unni en tók við einu af aðalhlutverk- unum, hlutverki Anitu, þegar Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir forfallað- ist í janúar. Sigrún segir að það hafi veriö mjög gaman að taka þátt í þessu verkefni. „Hver sýning á sinn sjarma og er það skemmtilegasta sem maður gerir hverju sinni,“ segir hún og bætir við að hlutverk Anitu sé ákaflega skemmtilegt og krefjandi enda annað af tveimur aðalkvenhlutverkunum. Sigrún hefur verið starfandi leik- kona frá árinu 1987 er hún kom úr námi. Hún hefur verið í margvísleg- um hlutverkum síðan, undanfarin þijú ár í Borgarleikhúsinu og þar áður í Þjóðleikhúsinu. Hún segist ekki geta kvartað yfir verkefnaskorti nema hvað veturinn í fyrra eyðilagð- ist hjá henni þar sem hætt var við sýningu á barnaleikriti sem hún hlafði ráðiö sig í. „Ég réð mig með löngum fyrirvara í bamaleikritið Hættuför og beið hálfan veturinn eft- ir að æfingar hæfust en síðan var tekin ákvöröun í janúar 1994 að taka verkið ekki til sýningar. Það var mjög slæmt.“ Sigrún segir að sá hópur sem val- inn var í Sögu úr vesturbænum sé kraftmikill og hæfileikaríkur hópur. „í þessari sýningu eru gerðar miklar kröfur til leikaranna, þeir þurfa aö geta dansað, leikið og sungið. Fólkið fékk góða þjálfun hjá Ástrós Gunn- arsdóttur fyrir áramótin, síðan kom Kenn eftir áramótin en við erum mjög heppin að fá að vinna með þeim manni. Það er ekki á hverjum degi sem við fáum að vinna með svo flinku fólki og maður reynir að læra eins mikið og maður getur. Hann er- snillingur að'fá það besta út úr fólki og jafnvel enn meira.“ segir Sigrún Waage, einn af þeim fiölmörgu leik- urum sem fara með hlutverk í þess- um fræga söngleik. Sigrún Waage leikkona i hlutverki sínu sem Anita í söngleiknum West Side Story. Anita (Sigrún Waage) ásamt kærast- anum Bernando (Baltasar Kormáki). DV-myndir Brynjar Gauti Bridge Bridgefélag Borgamess Aðalsveitakeppni félagsins lauk miðvikudaginn 22. febrúar. Sex sveit- ir tóku þátt í keppninni og Smásveit- in haíði nokkra yfirburði og var með fullt hús fyrir síðustu umferðina. Lokastaða efstu sveita varð þessi: 1. Smásveitin 113 2. Borgfirsk blanda 93 •3. Dóra Axelsdóttir 80 4. Sigurbjöm Garðarsson 76 Spilarar í Smásveitinni voru Jón Þ. Bjömsson, Magnús Ásgrímsson, Jón Á. Guðmundsson og Guðjón Ingvi Stefánsson. Búnaöarbanki íslands gaf verðlaun í keppnina. Bridgefélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 22. febrúar voru spilaðar 6 umferðir í meistaratví- menningi félagsins og staða efstu para að loknum 12 umferðum er þannig: 1. Gísli Torfason - Jóhannes Sigurösson...........75 2. Óli Þór Kjartansson - Kjartan Olason................70 2. Amór Ragnarsson - Karl Hermannsson..............70 4. Bjöm Dúa - Bjöm Blöndal..................47 5. Gunnar Guðbjömsson - Vignir Sigursveinsson.........41 6. Amar Amgrímsson - Reynir Óskarsson..............23 7. Eyþór Jónsson - Garðar Garðarsson.............21 8. Eyþór Björgvinsson- Ingimar Sumarliðason..........14 Ertu að hugsa um stutta m Æ ÆP _ ,v „ Enginnkostnaður af-millilai Mjög gott vöruúrval, oft á betra Verði en erlendis. Frumsýningar á nýjustu kvikmyndum með íslenskum texta, stórsýningar í leikhúsunum, frábær veitingahús að hætti margra þjóða, fjölbreytt næturlíf og síðast en ekki síst glæsileg "show". pwrjjrjgj" Þaö er ekki dstæða til að Þiðfáið allt það besta i leita langt yfir skammt. H Ó T ~E L heimsborginni Reykjavík. ISLAND ÁRMÚLI 9. 108 REYKJAVÍK, SÍMI 568 8999, FAX 568 9957 uusjyuu^auuu Úrvals hótel - HÓTEL ÍSLAND - herbergin gerast varla betri. Glæsilegt morgunverðarhlaðborð, vinsælasti skemmtistaður landsins í húsinu, frítt í sund og innanhúss bilageymsla. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.