Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
Dagur í lífl Þónmnar Gestsdóttur ritstjóra:
Sala þúsund bíó-
miða undirbúin
Þórunn Gestsdóttír ritstjóri hefur ásamt öðrum lionskonum verið önnum
kafin við sölu aðgöngumiða á frumsýningu á kvikmyndinni Nobody’s Fool
með Paul Newman. Ágóðinn af miðasölunni fer til tækjakaupa handa fíkni-
efnalögreglunni. DV-mynd GVA
Fyrsta hugsun snemma morguns
var: hvert spor í dag verður að taka
varlega því mikið er í húfi og nýta
þarf tímann. Þetta fyrirbæri, tíminn,
flaug samt fram hjá án þess aö mér
tækist að nýta hann eins og til stóð
- ekki er nóg að hafa góðan ásetning.
Kostirnir við að hafa skrifstofu,
vinnustað, í sama húsnæöi og heim-
ili eru nokkrir. Einn er að hægt er
að mæta í vinnuna á morgunslopp
og heíja störf um leið og katfikannan
fer í gang. Nýflutt með skrifstofuhald
heim skiptir mikiu að koma auga á
kostina: enginn flutningskostnaður,
minni kostnaður við vinnufatnaö og
betri nýting á húsnæði sem var ónot-
að alla virka daga!
Mexíkóferð
undirbúin
Með því fyrsta sem vaknaði í morg-
unskímunni og fyrsta kaflibollanum
var tilhugsun um næstu viku - hugs-
að til framandi menningar, sólar og
hita. Til að undirbúa þá stund, eða
þær stundir í næstu viku, brá ég mér
út i snjó og frostkulda og lagðist á
ljósabekk í næsta húsi. Það er Uður
í undirbúningi fyrir feröaiag til
Mexíkó. Á ljósabekknum var fariö
yfir dagskrá næstu klukkutíma.
í vor verður haldið árlegt Lions-
þing á Hornafirði. Skipuleggjandi
þar hringdi og ræddi um undirbún-
ing þingsins og þá hhð málsins sem
snýr að Lionsblaðinu sem ég ritstýri.
TaUð barst að uppbyggingu ferða-
mála á þessum yndislega stað, ger-
semum og náttúruperlum og dugnaöi
heimamanna við að byggja upp og
kynna nýja afþreyingarkosti fyrir
ferðamenn.
Þúsund bíómiðar
Nokkur símtöl tengdust vinnu fyrir
Lionsklúbbinn Eir sem ég er félagi
í. Við félagamir, yfir þijátíu konur,
höfum verk aö vinna næstu daga: að
seija eitt þúsund aðgöngumiða á
kvikmyndasýningu í Háskólabíói.
Kvikmyndin Nobody’s Fool með Paul
Newman verður frumsýnd á þriðju-
dag. Við höfum í tíu ár notið þess að
vera í góðu samstarfi við Háskólabíó
sem velur góða kvikmynd, við seljum
svo miðana og ágóðinn rennur til
verkefnis sem tengist okkar hugsjón-
um í Lionsstarfinu: að leggja líknar-
og mannúðarmálum hð. Þetta er
okkar innlegg í baráttu gegn vímu-
efnaneyslu: kaup á tækjum fyrir
fíkniefnalögregluna.
Aftanákeyrsla
Gærdagurinn hafði sett sín spor:
ég lenti í árekstri og var að nýta
smástund við símann til að ræða
tjónskýrslu viö tryggingafélag og
huga aö skemmdum bifreiðarinnar.
Ég ók aftan á aðra bifreið sem tók
sinn toh! Nokkra stund gafst tóm við
tölvuna og skriftir.
Síðan tók við fundur hér í heima-
húsum, stuttur en afdrifaríkur. Svo
lá leiöin í prentsmiðjuna G. Ben-
Éddu, þar voru tilbúin veggspjöld
sem ég fór með á kynningarnefndar-
fund.
Um næstu mánaðamót mun Lions-
hreyfingin standa fyrir landssöfnun
og selja „Rauðar fjaðrir" um land
allt. Markmiðið er að efla vísinda-
menn til dáða og stuðla að því að
þeir finni lausnina á gigtargátunni.
Gigt hrjáir fimmta hvern landsmann
og kostar samfélagið tíu milljarða
króna á ári.
Koddahjal
Það var komið fram yfir „hefð-
bundinn" kvöldmatartíma þegar
fundi kynningamefndarinnar lauk.
Á heimleiðinni var keypt í matinn
og með sjónvarpsfréttum fór næring-
arathöfnin fram. Næstu tveir tímar
fóru í símtöl. Eitt símtalið var tfl
Noregs, ég hringdi í afmælisbam
dagsins, yngsta son minn, sem er þar
við nám og íþróttaiðkun: leikur
handbolta með einu Uði Óslóarborg-
ar. Yngsta dóttirin kom heim frá
undirbúningi fyrir handboltaleik í
Víkinni. Af fimm uppkomnum börn-
um mínum hitti ég fjögur í dag og í
gegnum talsamband við útlönd
heyrði ég í því fimmta - gott fyrir
móðursálina. Maðurinn minn kom
heim af Lionsfundi - enn og aftur
kom Lions við sögu. Nokkur stund
fyrir framan sjónvarpstækið - kvik-
mynd frá Indlandi á skjánum leiddi
hugann að skrifum um ferðamál og
ferðalög sem er mitt aöalstarf. Dag-
urinn var að kvöldi kominn og þá
biðu þessar hnur.
Á koddanum, rétt fyrir óminnisdá,
hvarflaði hugurinn að rósóttum pils-
um - þau passa líklega vel í Mexíkó
- eða hvað? - stuttbuxur og erma-
lausir bolir enn betra. Ég næ í ferða-
töskuna strax í fyrramálið! En ég
þarf að selja alla miöana „mína“ á
frumsýninguna á Nobody’s Fool áð-
ur en ég loka ferðatöskunni. Hvað
varð um ásetning dagsins, að ná utan
um tímann? Aht í lagi, þaö kemur
dagur eftir þennan.
Þetta koddahjal við mig sjálfa tók
enda og við tóku sólarstrendur í
draumaheimi - eða var ég komin til
Puerto Vaharta?
Finnur þú finun breytingar? 299
Hefur þér aldrei dottið í hug að kaupa pípuhreinsara?
Nafn:
Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og sjö-
undu getraun reyndust vera:
1. Birna Jónsdóttir,
Reynilundi 10,
600 Akureyri.
2. Guðni B. Gislason,
/ Kirkjulæk I,
861 Hvolsvöllur
Heimili:.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau méð krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
hðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími að verðmæti kr.
4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækumar sem eru í verð-
laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur úr
bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út
af Fijálsri fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkiö umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytdngar? 299
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík