Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 19 Lynne við bústað sinn á Spáni en þangað hafa íslendingar komið til að láta spá tyrir sér. Nomin frá San Roc á Spáni: Skyggndist inn í framtíð borgar- stjóra Reykjavíkur Nornin frá San Roc á Spáni hefur spáð fyrir um framtíð borgarstjórans í Reykjavík, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Nornin er Lynne Robin- son spákona sem Margrét Sölvadótt- ir rithöfundur heimsótti er hún var á ferð á Spáni. „Ég fór til hennar til aö biöja hana aö spá fyrir mér en baö hana í lokin að taka þátt í tilraun með mér. Ég sagðist ætla að hugsa sterkt um eina sérstaka persónu á íslandi á meðan ég stokkaði tarotspilin. Lynne sagð- ist sjá að þetta væri manneskja sem væri mjög í sviðsljósinu og sem hefði mikið með lög og reglu að gera. Hún væri manneskja sem væri fær um að gera sér mat úr starfi sínu og hefði örlögin í hendi sér. Þaö hefðu verið miklar vangaveltur um hana og til- finningalegt uppnám í kringum hana. Fólk reyndi að draga úr valdi hennar. Hún færi í ferðalag sem henni væri mikilvægt. Hún ætti mjög gott með að setja sig í ný hlutverk og hún væri manneskja sem ætti gott með að vera óhlutdræg en því miöur líka manneskja sem ekki ætti gott með að vinna við mikið and- streymi. Því miður virtust vera sam- tök karlmanna sem reyndu ítrekað að koma henni úr starfi og þeim gæti tekist það. Ef þeim tækist þaö færi hún yfir hafið, sennilega til Ameríku, og hæfi störf þar. Lynne spurði svo um hvem ég hefði verið að hugsa og ég sagöi borgarstjórann í Reykjavík." Margrét fullyrðir að allt hafi ræst sem Lynne spáði fyrir henni sjálfri. „Ég hefðí betur hlustað á hana í sam- bandi við sölu á fasteign sem ég átti. Hún spáði því að mér myndi ganga illa að innheimta peningana og sú varö raunin.“ Margrét kveðst hafa frétt af Lynne í gegnum breska vinkonu sína á meðan hún bjó í Benidorm en San Roc er þar rétt fyrir utan. Og svo lét Margrét íslenskar vinkonur sínar vita af spákonunni. „Spánverjar heimsækja hana líka og hún fer einnig í heimahús. Reynd- ar taka Spánverjar spákonur og spá- dóma þeirra ekki jafnalvarlega og íslendingar. Þeir hafa alist upp við það að bera upp öll sín vandamál við fjölskylduna sem síöan ræðir þau fram og til baka. Ef einhveijir eru að rífast í fjölskyldunni setjast allir niöur og ræöa það. Fjölskyldan fer Spáð i spilin. Lynne Robinson sem Spánverjar kalla nornina frá San Roc. stvmdum öll til spákonunnar eða fær hana heim og hlustar á hana spá fyr- ir einhverjum fjölskyldumeðlim. ís- lendingar lita frekar á spádóm sem sitt einkamál,“ segir Margrét og bæt- ir því viö að það hafi verið Spánverj- ar sem hafi farið að kalla Lynne nornina. Margrét kveðst hafa orðið mjög forvitin um fortíð þessarar bresku konu sem segir fólki hvað framtíðin ber í skauti sér. „Hún segir að frá barnsaldri hafi hún séð það sem aðr- ir sáu ekki. Lynne ólst upp í Bret- landi og vann þar við ýmis störf. Hún lærði gullsmíði sem er hennar aðal- starf í dag. Hún fékk slæman asma og samkvæmt ráðleggingum lækna flutti hún til lands með heitara lofts- lagi. Til Spánar kom hún fyrir tæp- um tíu árum.“ Þar hefur hún skyggnst inn í fram- tíðina fyrir heimamenn og þá útlend- inga sem vilja fá tilbreytingu frá sólböðunum. & rí ÆSl afslóttur af blómstrandi 20-50% pottablómum KAKTUSAR frá 124 lcr. Gróðurmold, 12 lítrar, 240 kr. PÍastpottahlífar á aðeins 5-10 kr. Kerti 20-50% afsláttur Kertahringir 50% afsláttur Kertastjakar 20-60% afsláttur Opið alla daga 10-22 'v/hssvogsMjugarðs'rni 554 0500 28" LITASJONVARP .... * Hágteda Surround Nicam-Stereo! • Nicam Stereo Surround-hljómgæði • íslenskt textavarp • Super Planar myndlampi • og margt fleira... ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS 69.800 STGR. SlÓNUUtPSMIÐSTÖÐIN SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90 \ 8 | n Wj H fml jJ mfmTOE fiTfj B1 jíi jTTm t) f gjjiHI j j'jj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.