Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Síða 23
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 23 María Bonnevie: f stóru hlutverki hj á Bille August Maria Bonnevie ásamt mótleikara sínum í Hvíta víkingnum, Gottskálk Degi Sigurðssyni. Danski kvikmyndaleikstjórinn Bille August hefur valið Maríu Bonnevie til að leika Gertrud í kvikmyndinni Jerúsalem sem gerð er eftir bók Selmu Lagerlöf. María, sem er orðin 21 árs, hefur verið við nám í leiklistarskóía í Stokkhólmi, Scenskolan. BOle sá myndband frá skólanum með leik Maríu og bað hana að koma í prufutöku. Valið á Maríu vakti mikla athygli í Svíþjóð því hún hafði verið alveg óþekkt þar. í heimalandi sínu, Nor- egi, er María hins vegar þekktari. Hún var í framhaldsskóla þegar hún lék í mynd Hrafns Gunnlaugs- sonar, Hvíta víkingnum. Síðan tók við annað kvikmyndahlutverk áð- ur en hún flutti til Danmerkur um skeið. „Ég var þá þreytt á kvikmynda- leik og fannst að þetta væri líklega ekkert fyrir mig. Ég vildi bara vera í friði. En svo hitti ég frábæran leik- listarkennara og þá skipti ég um skoðun," segir María í viðtali við sænskan fréttamann. Hún ákvað að sækja um í Scenskolan og komst inn við fyrstu tilraun, þá 19 ára. Kvikmyndin Jerúsalem verður frumsýnd á næsta ári en þá eru lið- in 100 ár frá þeim atburðum sem urðu Selmu Lagerlöf og fleiri rit- höfundum yrkisefni. Þann 23. júh 1896 héldu nær fjórir tugir íbúa Nás í Dölunum í Svíþjóð til Jerúsalem. Það sem dró þá þangað var löngun- in til að upplifa endurkomu Jesú. Þeir sem frelsuðust voru næstum allir vel stæðir bændur sem seldu býli sín fyrir ferðina. Þaö var um 40 stiga hiti þegar Svíarnir komu til Jerúsalem í ág- úst. Nokkrir þeirra elstu létust fljótlega af völdum hitans, að því er talið er. Aðstæður voru öðruvísi en Násbúar höfðu gert ráð fyrir. Svíarnir voru í raun látnir þjóna ríkum Ameríkönum sem biðu himnaríkis nær aðgerðalausir. Reglur í samfélaginu voru mjög strangar. Meðhmir máttu ekki gift- ast. Leiðtogarnir sáu engan tilgang í að fæða börn þar sem heimsendir væri í nánd. Þetta kom ekki heim og saman við skoðun nokkurra af yngri kynslóðinni um lífið í par adís og yfirgáfu þeir söfnuðinn fljótlega upp úr aldamótum. María leikur unga stúlku sem er svikin í ástum. Hún snýr sér aö Jesú í staðinn. Meðal annarra leik- ara eru Sven Wollter, Reine Bryn- olfsson, Hans Alfredson, Björn Granath, Viveka Seldahl, Lena Endre, Max von Sydow, Erik Stá- hlberg, Annika Borg, Johan Rab- eus, Pemilla August, Ulf Friberg, Mona Malm og Sven-Bertil Taube. BORGARLJÓS K E P J A N EVRÓPUVERÐ Mínútugrill EVRÓPUVERÐ ☆ *☆ ☆ ☆ .990,-5Ír EVRÓPUVERÐ ☆ * ☆3.1 Steinasteik EVRÓPUVERÐ Hraðsuðukönnur EVRÓPUVERÐ ☆ *☆ ☆ 3.890,-☆ ☆ 'Víatvinnsluvél Brauðrist EVRÓPUVERÐ ☆ *☆ ☆ Caífikanna EVROPUVERÐ Akrane$ Rafþjónusta Sigurdórs S:12156 Uafjörður Straumur hf. S:3321 Akureyri Radiovinnustofan S:22817 Akureyri Siemens-búóin S:27788 Egilsstaðir Sveinn Guömundsson S: 11438 Selfoss Árvirkinn hf. S:23460 Keflavík Rafbúó R.Ó. S:13337 Reykjavík Borgarljós S:812660 Reykjavík Húsgagnahöllin S: 871199 HafnarfjörJur Rafbúöin S:53020 Höfn Verslunin Lónió S: 82125 BORGARLJÓS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.