Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Side 27
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
27
Aldarfjórðungur frá „hemámi" íslenska sendiráðsins í Stokkhólmi:
Sambland af hug-
sjón og strákapörum
- segir Skúli Waldorff, starfsmannastjóri Hitaveitu Reykjavíkur
I aprílmánuöi 1970 greindi Vísir frá
því aö saltbirgðir í landinu hefðu
sópast upp á viku vegna mikilla
þorskveiða og við öngþveiti lægi í
verðstöðvum. Á forsíðu blaðsins var
einnig að finna frétt um að 11 íslensk-
ir námsmenn hefðu ráðist inn í
sendiráð íslands í Stokkhólmi og tek-
iö það herskildi. Greint var frá því
að Dagens Nyheter hefði birt frétt
um morguninn undir fyrirsögninni:
„íslenzk „bylting“ í Stokkhólmi“. Öll
íslensk blöð fjölluðu um atburðinn
og Morgunblaðið greindi frá því að
ellefumenningamir boðuðu aö sósí-
ahsk bylting væri lausn vandamál-
anna á íslandi. Þjóðviljinn greindi á
hinn bóginn frá því að námsmenn-
irnir væru að krefjast úrbóta á kjör-
um sínum.
ir höndum þegar þeir gengu inn í
sendiráðið og flögguðu þeim út um
glugga og á svölum meðan þeir
héldu sendiráðinu í herkví. Nöfn
allra voru birt í blöðum hérlendis i
kjölfarið. Timamynd
verkföll við sendiráð en náms-
mannaráðum á hveijum stað látið
eftir að ákveða í hvaða formi aðgerð-
irnar yrðu. Þó var lögð á það rík
áhersla að ekki mætti spilla eignum
eða öðru.
Skipulagteins
og „árás"
„Ég veit ekki hvort SÍNE var alveg
alvara með þessu en alla vega gerð-
um við þetta. Það var heilmikil
skipulagning á bak við þetta og þetta
var mjög leynilegt enda kom þetta
öllum í opna skjöldu þrátt fyrir yfir-
lýsingar SÍNE. Þetta var skipulagt
eins og hver önnur „árás“. Áðalá-
herslan var hins vegar lögð á það að
það mætti ekkert skemma og enginn
mætti meiöast. Við komum tO dæmis
saman áður. Húsaskipan var teiknuð
upp og til dæmis kom einhver náms-
maður frá Eþíópíu, en eþíópískir
námsmenn höfðu nokkru áður tekið
sendiráð síns heimalands í mót-
mælaskyni, og lýsti því hvernig þeir
fóru að þessu,“ segir Skúli.
Hann segir að í aðgerðunum hafi
hugur fylgt verki. Menn hafi alfarið
verið á móti ríkjandi kerfi.
„Inn í þetta blandaðist líka kröfu-
gerð um að ísland yrði gert að sósial-
isku ríki. Það þýddi ekkert annað.
Misréttið í lánamálum og annað mis-
rétti væri sprottið af ríkjandi þjóðfé-
lagsskipulagi á íslandi sem væri kap-
ítaliskt.“
„Þúmáttbara
eiga frí"
Áslaug Skúladóttir var ritari sendi-
ráðsins fyrir 25 árum. Hún var í
sendiráðinu ásamt Hannesi Hafstein,
þá sendiráðsfulltrúa, þegar náms-
„Þegar ég horfi til baka upplifi ég þefta sem eift af ævintýrunum í lífi manns
og ég hefði alls ekki viljað missa af þessu. Þetta var virkileg „aksjón“ og í
dag lit ég á þetta sem sambland af strákapörum og hugsjónastarfi," segir
Skúli Waldorff. DV-mvnd GVA
kynna. Hins vegar man ég eftir að
ég fékk bréf frá sænska ríkinu þar
sem fram kom að ekki var talin
ástæða til málshöfðunar á hendur
mér þar sem engar skemmdir urðu
og enginn meiddist," segir Skúh en
enginn meiddist við sendiráðstök-
una.
íslensk stjórnvöld aðhöfðust ekki
heldur neitt í málinu frekar og segist
Skúli ekki vita til þess að neinir ell-
efumenninganna hafi orðið fyrir
aðkasti við komu hingað til lands
seinna.
„Margir okkar tilheyrðu virðuleg-
um íhaldsfjölskyldum og þar varð
hreinlega allt vitlaust þegar þetta
fréttist heim. Fólki fannst viö sýna
íslenska ríkinu óvirðingu og við vær-
um að snúast á sveif með kommún-
istum sem boðuðu alheimsbyltingu.
Þetta hristi verulega upp í samfélag-
inu og menn neyddust til að ræða
málin. Skoðanamyndun í fjölskyld-
um var þverklofin,“ segir Skúh.
Eitt af ævintýrunum
„Þegar ég horfi til baka upplifi ég
þetta sem eitt af ævintýrunum í lífi
manns og ég hefði ahs ekki viljað
missa af þessu. Þetta var virkileg
„aksjón" og í dag ht ég á þetta sem
sambland af strákapörum og hug-
sjónastarfi. Við fengum ýmsu breytt.
An efa vegna þessa og þess sem fylgdi
í kjölfarið var námslánakerfið allt
endurskoðaö, þannig að þetta skilaði
tvímælalaust árangri," segir Skúli.
Aðspurður hvort hann myndi
styðja aðgerðir sem þessar í dag seg-
ir Skúh að hann eigi erfitt með að
hugsa sem tvítugur maður í dag.
„Alhr eru börn síns tíma og það eru
tímarnir sem móta mann. Að grípa
th þessara aðgerða vegna lánamál-
anna í dag er óraunhæft og myndi
ekkiskilaneinu." -pp
Engin eftirmál fylgdu sendiráóstökunni en fjölmiðlar fjölluðu um atburðinn
á misjafnan máta. Nokkrir þeirra birtu nöfn ellefumenninganna.
Sprottnir úr
tíðarandanum
„Þessír atburðir spruttu upp úr tíð-
aranda þar sem ungt fólk hafði miklu
meiri möguleika en áður. Það var að
gerjast í öllum heiminum einhvers
konar nýtt tímabil þar sem gamlar
skoðanir pössuðu ekki við neitt sem
menn voru að upplifa. Um alla Evr-
npu voru að spretta upp hreýfingar
ungs fólks sem voru að mótmæla þvi
þjóðfélagi sem það bjó í. Háskólamir
voru orðnir fulhr af nemendum sem
komnir voru af alþýðufólki og há-
skólanám ekki lengur forréttindi
þeirra efnameiri. Kapítahsminn var
orðinn óvinur ahs. Menn htu á ríkj-
andi kerfi sem kjaftæði og óþarfa.
Lífið væri ekki svona. Það ætti að
lifa því, vera hamingjusamur og
glaður,“ segir Skúh Waldorff, einn
ellefumenninganna, en í dag, 25
áram eftir þann atburð sem hér er
fjallað um, er hann starfsmanna-
stjóri Hitaveitu Reykjavíkur.
Skúh og félagar höfðu fundið angan
þeirrar róttækni sem fyhti vit ung-
menna á íslandi árin áður og kynnst
henni enn betur í Svíþjóð þar sem
þeir höfðu dvahð mislengi.
Miklar dehur höfðu staðið um það
hve námslán til íslendinga í námi
erlendis væru lág. Samtök íslenskra
námsmanna erlendis, SÍNE, höfðu
án árangurs reynt að fá stjómvöld
tíl að auka framlög sín tíl Lánasjóðs
íslenskra námsmanna til að hægt
væri að hækka lán og lánshlutfaU tU
námsmanna. Það gerðist hins vegar
ekki og lét sljóm SÍNE þau boð út
ganga að námsmenn erlendis létu til
skarar skríða. Var minnst á setu-
mennimir ellefu réðust tU inngöngu.
„Ég var að flokka póst og heyrði
skraðning. AUt í einu sá ég í andlitið
á sex ungum mönnum. Einn þeirra
var með upptökutæki. Ég vissi ekki
hvaðan á.mig stóð veðrið og sagði
bara: „Jæja.“ Þá sagði einn þeirra:
„Heyrðu! Viö erum komnir til að
hertaka sendirráðið og þú mátt bara
eiga frí.“ Ég hváði og sagði: „Frí!
Bara svona um miðjan dag.“ Þeir
sögðu þá: „Já! Þú mátt bara fara.“
Ég fór og sagði þeim að ég hefði fullt
annað að gera. Frammi á gangi sá
ég Hannes í dyragættinni og nokkra
„uppreisnarmennina" í kringum
hann. Við gáfum hvort öðru auga og
ég fór út og gerði sænska siðameist-
aranum viðvart og hafði síðan sam-
band við ráðuneytisstjórann heima á
íslandi," segir Áslaug.
Eftirmál aðgerðanna létu ekki á sér
standa. Fjórum dögum seinna stóðu
hópar íslenskra námsmanna á Norð-
urlöndum fyrir framan öU íslensk
sendiráð á Norðurlöndunum. Hér
heima létu viðbrögðin ekki heldur á
sér standa. Námsmenn á íslandi,
mest menntaskólanemar, sem voru
öUu róttækari en háskólastúdentar,
lögðu undir sig menntamálaráðu-
neytið.
En víkjum sögunni aftur til Sví-
þjóðar. Skúh segir að inngangan í
sendiráðiö og „hertaka" þess hefði
verið þrælskipulögð. Krafan hafi
fyrst og fremst verið jöfnuður til
náms og athygh hefði svo sannarlega
verið vakin á því. Þeir hefðu samt
búist við að þeir yrðu lengur inni í
sendiráðinu og því tekið meö sér
nesti en innan tveggja tíma hafði
sænska lögreglan fengið leyfi til að
rýma húsakynnin.
Alltvarð
vitlaustheima
„Þeir komu þama inn og tóku
hurðina af hjörunum og við vorum
teknir í yfirheyrslu," segir Skúh um
aðgerðir lögreglu. „Það urðu engin
eftirmál af þessu. Það sýnir kannski
að íslensk stjórnvöld vora öhu fijáls-
lyndari en yfirlýsingar okkar gáfu til
AðaHundur
1995
Skeljungurhf.
Shell einkaumboö
Aðalfundur Skeljungs hf. verður
haldinn þriðjudaginn 14. mars
1995 í Ársal Hótel Sögu,
Reykjavík, og hefst fundurinn
kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum
félagsins til samræmis við
breytingar á lögum nr. 32/1978
um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja
frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með hádegi
7. mars til hádegis á fundardag,
en eftir það á fundarstað.