Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Side 29
28 LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 37 Davíð Oddsson í „kúr" hjá megrunarsérfræðingi Gro Harlem Brundtland: Hálfvín- flaska á viku Gisli Kristjánsson, DV, Ósló: „Það er ekki nóg að hætta bara að borða fitu og sætindi en borða svo meira af öllu öðru. Maður á stærð við Davíð Oddsson má ekki neyta meira en 1500 hitaeininga á dag. Annars léttist hann ekki. Sérstaklega verða ráðherrar að gæta sín á víni. Hálf flaska á viku er hæfilegur skammtur," segir Grete Roede, helsti megrunarsérfræðingur Norð- manna og ráögjafi Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra í megrunarmálum. Grete stýrir frægri megrun Gro með góð- um árangri. Norski forsætisráðherrann hef- ur nú lést um 8 kíló á tveimur mánuðum og aðeins einu sinni sprungið í megruninni. Það fyrirgefst, að sögn Grete, enda verður að gera ráð fyrir að forsætisráðherrar mæti erfiðum freistingum í mörgum og stórum veislum. Grete hefur á 20 ára ferh sínum „brætt“ 300 þúsimd tonn af fitu af Norðmönnum. Það jafngildir því að hálf Reykjavík, eða um 50 þúsund manns, hafi horfið sporlaust. Hún hefur nú 220 manns í vinnu við megrunar- ráðgjöf og á síöasta ári leituðu 36 þúsund Norðmenn með aukakíló aðstoðar Grete og samstarfsmanna hennar. Erfitt að megra ráðherra DV bað Grete að gefa Davíð Oddssyni megrunarráð, lík þeim sem hún hefur veitt Gro. Það var auðsótt mál þótt ráðgjöfin væri nokkrum erfiðleikum bundin, að sögn Grete, vegna þess að ráðamenn verða að hugsa um fleira en að megra sig. „Það er mjög erfitt að skipuleggja ná- kvæman megrunarkúr fyrir mann í líkri stöðu og Davíð Oddsson," segir Grete. „Ég geri ráð fyrir að vinnudagurinn sé oft óreglu- legur og erfitt að fylgja nákvæmri áætlun um mataræði. Meginlínurnar ættu þó að vera ljósar og þær eru að borða ekki meira en sem nemur 1500 hitaeiningum á dag og að gæta þess að samsetning næringarefn- anna sé rétt. Ráðherrann verður að hafa orku til að halda út langan vinnudag. Það er líka nauðsynlegt að hreyfa sig. Ég mæh með hálftíma röskri göngu eða sundi á hverjum degi. Fyrir forsætisráðherrá er best að vakna hálftíma fyrr á morgnana og nota tímann til að hreyfa sig. Einnig er mögulegt að hafa þrekhjól á skrifstofunni og sleppa þannig við að skjótast út um miðj- an dag til að hreyfa sig.“ Aðgátíveislum Grete segir að erfiðustu stundirnar fyrir forsætisráðherra í megrun séu matarboðin þar sem vel er veitt í mat og drykk. Hún segir að á shkum stundum geti viðkomandi aðeins haft eitt ráö í huga: „Það ræður hver því sjálfur hvað hann lætur í sig. Vilji er allt sem þarf til að standast freistingarnar." „Ég mæh ekki sérstaklega með því að ráð- herrann tilkynni fyrirfram aö hann sé í megrun og geti ekki borðað hvað sem er,“ segir Grete. „Það er undir hveijum og einum komið hvað hann gerir. Gro lét það þó spyij- ast að hún væri í megrun og flestir taka til- lit til þess þegar hún er boðin í veislur. Annars ráðlegg ég fólki að hugsa um mat sem já-mat og nei-mat. Já-matur er græn- meti en undir nei-mat flokkast fita, sætindi og áfengi. Þama á milli er svo Jétt-matur eins og magurt kjöt og fiskur. í veislum ætti fólk í megrun aö taka sem mest af já-matn- um, forðast nei-matinn og borða létt-matinn í hófi. Auðvitað er það ókurteisi ef aðalgesturinn neitar að borða það sem á borð er borið. Þess vegna er ráðið aö borða bara lítið, vara sig sérstaklega á sósunum og hugsa um já- og nei-mat. Víns skal t.d. neyta í hófi. Fólk í megrun ætti ekki að drekka meira en hálfa flösku af víni á viku eða einn lítra af bjór. Þá er best að láta sterka drykki alveg eiga sig. Svo má ekki gleyma að það gerir ekki mikið til þótt aðeins sé syndgað af og til ef menn bæta fyrir syndina síðar,“ sagöi Grete Roede. Davíð Oddsson forsætisráðherra má vera stoltur af góðum árangri í megruninni en sennilega þarf hann að endurnýja eitthvað í fataskápnum. DV-mynd GVA Davíð og Gro ræddu megrunina á Norðurlandaráðsþingi: Átján kíló fokin af ráðheminum tveimur - Davíð stendur sig betur og stefnir á þrjú til fjögur til viðbótar „Við Gro könkuðumst aðeins á um þessa megrun okkar á niorgun- fundi en þá kom upp úr kafinu að ég hafði lést um rúm tíu kíló og hún um átta en Paul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, haföi hins vegar hætt á sig tveimur kilóum. Þetta var nettó lækkun hjá okkur þremur um sextán kíló. Hún hafði gaman af að ræða þetta við mig,“ sagði Davíð Oddsson er helg- arblaðið forvitnaðist um hvort umræður hefðu orðið milh hans og Gro Harlem Brundtland um megrunarkúra þeirra á Norður- landaráðsþinginu í vikunni. Gro Harlem hefur verið treg til að ræða megrun sína við norska blaðamenn og sama var upp á teningnum þeg- ar blaðamaður DV í Noregi reyndi að fá hana 1 viðtal í Ósló áður en hún flaug til Reykjavíkur. Davíð er hins vegar ófeiminn að ræða þessi mál enda getur hann verið stoltur af árangrinum. Var orðinn 97 kíló - En hvað var það sem ýtti á þig að taka þér tak í þessum málum? „Síðastliífið vor fannst mér ég vera orðinn of þungur og fann það vel þegar ég var að labba úti með hundinn. Ég var farinn að mæðast enda orðinn 97 kíló. Ég var sann- færður um að ég myndi stefna í hundrað ef ég gerði ekki eitthvað í málunum. Síðan get ég ekki neitað því að eiginkonan var farin að gefa mér vinsarnlegar ábendingar um að tíminn væri kominn.“ - Leitaðir þú til einhvers sérfræð- ings, eins og Gro, eða voru þetta einungis eigin ráð? „Þetta eru heimaráð og ábending- ar eiginkonunnar sem er hjúkrun- arfræðingur." - Hvaðhefurþúgerttilaðléttast? „Ég hef alveg sleppt smjöri og sykri, minnkað við mig sósur, hætt að fá mér mjólk og kex á kvöldin sem mér hætti til að gera. Núna fæ ég mér bara undanrennu ef mig langar í eitthvað á kvöldin, borða meira af ávöxtum og grænmeti og geng meira. Þetta er þaö helsta auk þess sem ég reyni að passa mig yfir- leitt.“ Margar freistingar - Er ekki erfitt fyrir mann í þinni stöðu að vera í megrun? „Það eru mjög margar freistingar sem hægt er að falla fyrir en þetta hefur gengið. Það hafa komiö kafl- ar þar sem ég hef ekki lést og jafn- vel bætt á mig hálfu kílói. Við erum með ákveðið prógramm uppi á vegg hjá okkur þar sem við merkjum á hverjum degi hver staðan er þann- ig að ég fæ mikið aðhald hjá fiöl- skyldunni." - Hefur þú fengið viðbrögð utan fiölskyldunnar? „Menn hafa nefnt það við mig að þeir sjái mun á mér, ístran farin aö minnka og yfirbragðið léttara. Mér líður líka sjálfum miklu betur og það er aðalatriðið. Ég er þrótt- meiri og mæðist ekki eins í göngu og áður enda munar um þessi tíu til ellefu kíló.“ - Ertu enn í megruninni eða er markmiðinu náð? „Ég ætla aö taka af mér tvö til þrjú kíló í viðbót. Mig langar ekki til að verða nein horgrind enda aldrei verið það. Ég vil halda mig við 83 kíló en þá hef ég lést um fiórt- án kiló.“ - Ertu hrifinn af heilsufæði? „Ég er því miður mikill matmað- ur þó ég sé ekki endilega fyrir veislumat, nema einstaká sinnum, heldur frekar þennan svokallaða ömmu- og mömmumat. Mér hefur bara hætt til að borða of mikið og fá mér aftur á diskinn þó ég sé orð- inn saddur. En nú passa ég mig enda hef ég haft svo mikið fyrir þessu.“ Hundalíf - Þú lést þau orð falla einhvem daginn að þetta væri bölvað hunda- líf. Ertu þeirrar skoðunar ennþá? „Þetta er hundalíf í tvennum skilningi. Hundurinn minn er ánægður með þetta hundalíf því ég labba meira með honum. Hins veg- ar þarf maður að neita sér um ýmislegt og muna að góðgæti t.d. eins og sælgæti og konfekt er bann- að.“ - Tekur fólk sem býður þér í mat tillit til þess að þú sért í megrun? „Nei, en ég afþakka ef mér er boðið á diskinn aftur. Síðan útskýri ég-að það sé vegna megmnarinnar og þá tekur fólk tillit til þess. Gest- gjafarnir vita þá að mér finnst maturinn góður þó ég fái mér ekki meira." - Hefur ekki verið einhvers konar samkeppni í gangi innan ríkis- stjórnarinnar um hver léttist mest? „Össur hefur verið að keppa við mig en hann fór mjög illa út úr þessu Norðurlandaráðsþingi. Ég sá að hann var að háma í sig hér og þar. Ég verð að viðurkenna að ég sleppti nokkrum boöum á þinginu til að standast betur freistingarn- ar.“ - Þú segir að þér líði betur og ert þá væntanlega betur í stakk búinn til að takast á við kosningarnar eftir mánuð? „Já, ég hugsa að það hljóti að vera því þá er mikil ferð á manni. Ég er ekki í vafa um að ef maður þarf ekki að hafa með sér þessi ell- efu kíló í farteskinu verður það létt- ara. Að minnsta kosti ætti ég að vera betri farþegi fyrir Flugleiðir því það er ellefu kílóum minna aö flytja." Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs: Hefur misst átta kíló Hinn frægi norski tískuhönnuður, Nils-Christian, vill að Gro gangi í sterk- um grænum lit. Hún gæti litið svona út eftir nokkur kíló og pínulitla meðhöndlun sérfræðinga. Norska þjóðin hefur fylgst spennt með hvernig forsætisráð- herra landsins gengur að megra sig og miklar spekúlasjónir hafa verið í gangi. Norsku tímaritin hafa kall- að til hina ýmsu sérfræðinga til að spyrja þá álits á hvernig Gro eigi að klæða sig nú þegar kílóin Qúka hvert af öðru. Teiknaðar hafa verið myndir af forsætisráðherranum í nýtísku kjólum þar sem hún er grannvaxin á við nettustu sýning- arstúlku. Sagt er aö Gro Harlem Brundt- land hafi misst átta kíló undanf- arna mánuði. Gro er 56 ára og margir hafa viljað meina að hún eigi að nota tækifærið til að breyta hárgreiðslu sinni og snyrtingu um leið. Þannig telja Norðmenn að Gro sé að breytast mjög til batnaðar á undanfórnum vikum. Gro í sterkum lit Norsk Ukeblad hafði samband við einn frægasta tískuhönnuð Noregs, Nils-Christian Ihlen Hans- en og bað hann að teikna upp sam- kvæmiskjóla á forsætisráðherr- ann. Nils-Christian hefur starfað hjá stærstu tískuhúsum Frakk- lands í meira en 30 ár og starfræk- ir nú tískuskóla í Ósló. „Ég vil helst að Gro klæðist sterk- um htum og nú þegar hún grennist getur hún gengið í styttri fötum. Dökkar sokkabuxur gera fótlegg- ina grennri. Fötin eiga að sitja vel og mega ekki vera of víð. Ef hún vih ganga í drögtum eiga jakkarnir að vera síðir þannig að hún sýnist hærri. Og Gro á ekki að ganga í víðum blússum. Einu sinni var Gro Harlem ung og grönn... Hárgreiöslumeistari Sonju drottningar, Tommi Eriksen, telur að Gro eigi að breyta um hár- greiðslu. Hann segir að hún eigi að fá sér ljósar strípur og gera hárið meira frjálst. Gro í aðeins „léttari" stíl yrði mjög flott. „Hárið ætti að vera stutt í hnakkanum en síðara og meira lifandi á hvirflinum," seg- ir meistarinn sem bjó til tvær nýjar hárgreiðslur fyrir forsætisráðherr- ann. Mikið vatn Ráðgjafi Gro Harlem í megrun- inni, Grete Rohde megrunardrottn- ing, eins og Norðmenn kaha hana, segir að Gro megi ekki borða meira en 1000-1200 kaloríur á dag. Mat- seöilhnn samanstendur af miklu grænmeti, litlu kjöti og fiski en miklu vatni. Sykur og fitu er nátt- úrlega algjörlega bannað að borða. Matseðhl hennar lítur þannig út: Morgunverður: 50 grömm af grófu brauði og álegg sem er ekki meira en 80 kaloríur. Hádegisverður: Það sama og í morgunverð eða ferskt salat . í staðinn. Kvöldverður: 100-150 grömm magurt kjöt eða fiskur, 100 grömm kartöflur og mikið grænmeti. Kvöldkaffi: Gróft brauð með salati. Best er að drekka nógu mikið vatn ahan daginn (minnst tvo lítra). Grete segir að Gro megi drekka svart og sykur- laust kafíi eða te eins og hún vill. Ef Gro fer eför þessum ráðlegging- um munu kílóin hrynja af henni. Svo er bara að vona að forsætisráð- herranum takist vel í baráttunni við aukakílóin. Hún er ennþá ung, aðeins 56 ára, en kannski nokkrum kílóum of þung. Morgunmatur: 75 g gróft brauö legg 1 tómatur 1 glas léttmjólk vatn, kaífi eða te að vild Hádegismatur: 100 g soðinn fiskur gúrkusalat með tómötum og öðru grænmeti 1 kartafla vatn, kaffi eða te að vild Kvöldmatur: 125 g magurt kjöt 150 g kartöflur, hrisgijón eðapasta grænar baunir, salat og nokkrir sveppir vatn, kaffi eða te að vild Aukabitar „Ef forsætisráðherrann er mjög svangurað kvöldigeturhann borð- að tvö stykki af hrökkbrauði með einni sneið af osti á hvoni,“ segir Grete. „Einnig get ég mælt með skyri, Ld. blábeejaskyri meö létt- nýólk. Sonur minn kom eitt sinn með skjm frá íslandi. Ég sá á efna- samsetningunni aö það hlýtur að vera fyrirtaks megrunarfæði. Milli mála er best að borða ávexti en þó ekki fleiri en tvo á dag. Tii dætnis er ágætt að borða eina peru fyrir hádegi og eina appelsínu eftir l'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.