Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
39
Skák
Kasparov hljópst
undan merkjum
Alexander Beljavskí hefur unnið tvær fyrstu skákir sinar á stórmótinu i
Linares og er til alls liklegur.
Búast mátti við enn einu uppgjöri
Karpovs og Kasparovs á stórmótinu
í Linares, sem hófst á þriðjudag, en
á síðustu stundu hætti Kasparov við
þátttöku. Karpov trónir því á tindin-
um í stigaröðinni en mótið er skipað
fjórtán sterkum stórmeisturum.
Glæsilegur sigur Karpovs í Linares
í fyrra er enn í fersku minni. Hann
fer þó rólega af staö núna, hefur gert
tvö jafntefli í fyrstu tveimur umferð-
unum, við Sírov og Dreev. Beljavskí
og Topalov eru efstir með fullt hús.
Búlgarinn hefur komið á óvart en
Beljavskí er vel trúandi til þess að
halda dampi. Hann er einn af þeim
sem ýmist teflir eins og stórsnilling-
ur eða leikur sér að gjörðum.
Mótið í Linares er af 17. styrkleika-
ílokki FIDE sem merkir að meðal-
stigatala stórmeistaranna er á bilinu
2650-2675 Elo-stig. Samkvæmt töflu-
röð eru keppendur þessir:
1. Khalifman (Rússlandi, 2635 stig)
2. Lautier (Frakklandi, 2655)
3. Ivantsjúk (Úkraínu, 2700)
4. Topalov (Búlgaríu, 2625)
5. Beljavskí (Úkraínu, 2650)
6. Ljubojevic (Júgóslavíu) 2580)
7. Karpov (Rússlandi, 2765)
8. Sírov (Lettlandi, 2710)
9. Dreev (Rússlandi, 2650)
10. Tivjakov (Rússlandi, 2625)
11. Akopjan (Armeníu, 2655)
12. Short (Englandi, 2655)
13. I. Sokolov (Bosníu, 2645)
14. Illescas (Spáni, 2595)
Umsjón
Jón L. Árnason
Meira en helmingur keppenda
kemur frá fyrrverandi Sovét-lýðveld-
um en nú er svo komið að „rúss-
nesku“ stórmeistararnir eru smám
saman að dreifa sér um heimsbyggð-
ina. Khalifman býr í Þýskalandi þótt
hann tefli enn undir merkjum Rússa
og líklegt er að Spánverjum muni
bætast drjúgur liðsauki á næstunni
- stórmeistaramir Sírov, sem er bú-
settur í Barcelona, og Salov og
Ljubojevic, sem búa í Linares, hafa
að því er hermt er allir sótt um að
gerast spænskir ríkisborgarar.
Nigel Short hefur verið í hálfgerðu
skáksvelti eftir að hann gerðist útlagi
úr samfélagi FIDE en nú er hann
búinn að fá stigin sín aftur og farinn
aö tefla í sátt við guð og menn. Fróð-
legt verður að fylgjast með því
hvernig honum reiðir af. Frakkinn
ungi og metnaðarfulh, Joel Lautier,
gæti gert einhverjar rósir en hann
virðist- bæta sig við hverja raun.
Allra augu munu hins vegar bein-
ast að Alexander Beljavskí, a.m.k.
meðan ha'nn heldur sigurgöngu sinni
áfram. Skoðum taflmennsku hans
úr fyrstu umferð er hann mætti
Sergej Tivjakov.
Hvítt: Alexander Beljavskí
Svart: Sergej Tivjakov
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c2 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2
0-6 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b6 7. Bg5 c5
8. dxc5 bxc5 9. e3 a5 10. Re2
Aðrir kostir eru 10. Rh3,10. Bd3 eða
10. 0-0-0 en Beljavskí hefur nýstár-
lega áætlun í huga.
10. - d6 11. 0-0-0 Ha6
Valdar d-peðið, því að hvítur hótaði
12. Bxf6 og gera glufu í peðastöðu
svarts.
12. Dc2!? Rbd7 13. Rc3
Nú þarf svartur að gæta sín á Re4,
eða Rb5, auk þess sem riddararinn
stendur vel til vamar gagnvart sókn-
arfærum svarts eftir b-línunni.
13. - Bb7 14. f3 De7 15. Be2 Hb8 16.
Hd2 Hb6 17. Hhdl Df8 18. Bf4! e5 19.
Bg5 Ba8 20. Ra4!
Þama stendur riddarinn í sjálfu sér
ekki vel en hann hefur þó það göfuga
hlutverk að gera tvo hróka óvirka.
20. - Ha6 21. Df5 g6
Svarið við 21. - Bc6 yrði 22. Hxd6
o.s.frv.
22. Dh3 He8 23. Rc3
Snýr til baka og treystir tökin á hvítu
reitunum á miðborðinu. Svartur er
lentur í býsna óþægilegri aðstöðu.
23. - He6 24. g4 Hb6 25. Dfl Db8 26.
h4 Hb3 27. Hc2 Kg7 28. h5 h6 29. BxfB
RxfB 30. hxg6 fxg6 31. Dh3 He8 32. Hhl
Rg8 33. Bd3 Hf8
34. g5!
Brýtur sér leið að svarta kóngin-
um. Ef 34. - h5 þá 35. Bxg6! og áfram
t.d. 35. - Bxf3 36. Bxh5! Bxhl 37. Dd7 +
Kh8 38. Bg6 og svartur er varnarlaus.
34. - Hxf3 35. gxh6+ Kh8 36. Dg4 Re7
37. Be4 Hf7 38. De6 Df8
Ef 38. - Dg8 39. Dxd6 og svarið við
39. - Hxc3 yrði 40. Dxe5 + og vinnur.
39. Bxa8 Hf6 40. Dd7 Hfl+ 41. Hxfl
Dxfl+ 42. Rdl Hd3 43. Hd2 Hxe3 44.
De8+
- Og svartur gafst upp.
Bridge
íslandsmót kvenna og yngri spilara:
Þrír Frakkar íslands-
meistarar kvenna
Tvö íslandsmót voru spiluð um sl.
helgi og sigraði sveit Þriggja Frakka
í kvennaflokki en sveit Sigurbjöms
Haraldssonar varð íslandsmeistari í
flokki yngri spilara.
í sveit Þriggja Frakka spiluðu Ljós-
brá Baldursdóttir, Anna Þóra Jóns-
dóttir, Esther Jakpbsdóttir og Dröfn
Guðmundsdóttir. í sveit Sigurbjöms
Haraldssonar spiluðu, auk hins 15
ára unga fyrirliða, Steinar Jónsson,
Skúli Skúlason og Stefán Stefánsson.
Þeir þrír síðastnefndu eru í fremstu
röð yngri spilara og Steinar vann það
afrek að sigra í opnum flokki árið
1993 ásamt fóður sínum, bróður og
foðurbræðrum, Siglfiröingasveitinni
svokölluðu.
Sveit Þriggja Frakka vann með
nokkrum yfirburðum í kvennaflokki
en í flokki yngri spilara ógnaði sveit
PÓLS rafeindavara sigri Sigur-
-bjömfc..................
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Hér er spil frá viðureign þessara
sveita.
N/Allir
♦ G65
9 Á32
♦ G52
+ K865
* Á10842
9 KDG75
♦ -
+ Á42
♦ 97
9 86
♦ ÁK10973
+ 973...
I lokaða salnum sátu n-s Ragnar T.
Jónasson og Hlynur Magnússon en
a-v Skúli og Stefán:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1 spaði 3 tíglar 3 spaðar
pass. 4spaðar pass pass
pass
Með spaðanum 3-2 og laufkóng
réttum voru 12 slagir upplagðir.
í opna salnum sátu n-s Steinar og
Sigurbjöm en a-v Stefán Jóhannsson
og Ingi Agnarsson. Vestur teygði sig
fulllangt í sögnum en uppskar ríku-
lega:
Noröur Austur Suður Vestur
pass 1 spaði 3tíglar 4 spaðar!
pass 4grönd pass 5tlglar
pass 5hjörtu pass 6spaðar?
pass pass pass
Þrátt fyrir þetta áfall vann sveit
Sigurbjöms leikinn 19-11.
m i\uo
9 1094
♦ D864
Aktu
ekki út í
skuldafen
*
ö I
Það kostar u.þ.b. 33.000 kr.* * á mánuði að
eiga bíl. Bensín, tryggingar og viðhald
- og óneitanlega rýrnar verðgildi bifreiða
með tíma og notkun.
En þqð getur líka skipt máli hvernig þú
fjármagnar kaup á bifreið, hvort þú staðgreiðir
eða borgar vexti af skuldabréfum og víxlum.
'Samkvæmt uppl. FÍB m.v. 15.000 km ákstur á ári.
Vikan 6.-10. mars verður átaksvika í fjármálum
heimilanna. Af því tilefni verður opið hús í aðalbankanum,
Austurstræti 5, og öllum útibúum Búnaðarbankans, þar
sem þjónusfuráðgjafar veita upplýsingar um útgjaldadreifingu,
áætlanagerð o.fl.
Handbókin „Fjármál heimilisins" verður til sölu á sérstöku
tilboðsverði, kr. 900 þessa viku.
Þá verður að auki boðið upp á sérstök fjármálanámskeið,
þátttakendum að kostnaðarlausu, þar sem leiðbeint verður
um hvernig lækka má rekstrarkostnað heimilanna.
Fjallað verður um heimilisbókhald, áætlanagerð, lánamál og
leiðir til sparnaðar svo eitthvað sé nefnt.
Námskeiðin standa í 3 klst. og eru þau auglýst sérstaklega.
HEIMILISLÍNAN
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki