Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Síða 2
Fréttir
FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995
DV
Útflutningur á íslenskum hugbúnaöi
Stórsamningur um
sölu tölvusímkerf a
Kompass International gagna-
bankinn og AdCall International
undirrituöu stórsamning í London á
dögunum um sölu og útflutning
tölvusímkerfa frá íslandi til 105 þjóð-
landa sem hafa „franchise“ einka-
leyfissamning við Kompass Intern-
ational. Samningurinn hefur verið í
undirbúningi af Adcall International
sl. ár í samvinnu við Kompass á ís-
landi.
Símkerfið, sem nefnist FaxCall,
heldur utan um fyrirtækjaskrár
þessara landa, sækir upplýsingar úr
skránum og sendir þær til notenda á
faxi. Kerfið getur tekið við allt að 40
símtölum á sekúndu.
Ámi Hróbjartsson, framkvæmda-
stjóri Kompass á íslandi, gerði samn-
ing við tölvufræðingana Baldvin
Hansson og Hafþór Pálsson sem hafa
unnið að þessari hugsmíð sl. þrjú ár.
Einar J. Skúlason hf. leggur til tölvu-
búnað fyrir kerfið.
í kjölfarið á þessum samningi var
gerður kaupsamningur við fyrirtæk-
- til 105 landa um allan heim
Lokagerð samninga fór fram um siðustu helgi. Myndin var tekin við það
tækifæri. Frá vinstri eru Árni Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Kompass á
ísiandi, Joseph John, forstjóri Dar Saas Alissa í Sádi-Arabíu, Madhau Rao,
markaðsstjóri Dar Saad Alissa, Samir Hasan, forstjóri AdCall Internatio-
nal, og Titus Varghese, forstjóri tæknisviðs Dar Saad Alissa. DV-mynd GVA
ið Dar Saad Alissa í Sádi-Arabíu um
kaup á FaxCall kerfinu sem verður
sett upp á næstunni í þeirra fyrir-
tækjum í 9 löndum. Þessi samningur
var undirritaður um síðustu helgi.
Þriðji samningurinn er í undirbún-
ingi um sölu á hugbúnaði, smíðuðum
af Jóni Sigurðssyni, tölvufræðingi
hjá Kompass á íslandi, sem heldur
utan um stórar viðskiptamanna-
skrár með óteljandi leitarmöguleik-
um. Þessi samningur er á milli Dar
Saad Alissa og Kompass á íslandi.
Hugbúnaðurinn er í markaðssetn-
ingu á íslandi og móttökurnar hafa
verið sérlega góðar.
Kompass og AdCall vinna saman
að markaðssetningu FaxCall í þeim
löndum sem Kompass er með ,franc-
hise“ tengd fyrirtæki úti um allan
heim.
Undirbúningur kerfanna, AdCall
og FaxCall, hefur kostað margra ára
vinnu og mikinn kostnað sem fyrir-
séð er að skili sér innan tíðar.
Júlía Imsiand, DV, Höfru
Slökkvilið Homafjarðar var
kallað út laust eftir miðnætti aðf-
aranótt miðvikudags vegna elds
í mannlausum bíl. Fljótt gekk að
slökkva en skemmdir á bílnum
urðu miklar - nýlegum Toyota
pickup. Hann var ekki kaskó- eða
brunatryggður.
Taliö er að kviknað hafi í út frá
rafmagni og vegna útleiöslu hafði
bíllinn startað og ók hann að bíl-
skúrsvegg og átti eldurinn greiða
leið í húsið. Vegfarandi tók hins
vegar eftir miklum reyk við húsið
og kallaði á aðstoð. Tjón varð því
ekki á því.
Bruggaðí
bílskúr
Fíkniefnadefid lögreglunnar
handtók konu og karl þegar
bruggverksmiðju var lokað í bíl-
skúr í Breiöholtinu fyrr í vik-
unni. Hald var lagt á 200 litra
suðutæki og 600 lítrum af gambra
helltniöur. -pp
Staða framkvæmdastjóra At-
vinnu- og ferðamálastofu Reykja-
vikur var auglýst laus tfi um-
sóknar og bárust 29 umsóknir.
Þá barst 51 umsókn um stöðu
feröamálafulltrúa. Ráðiö verður
ístöðurnarfljótlega. -GHS
Stuttarfréttir
KönnunhjáSkáís
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
41,4% atkvæða er kosið væri
núna samkvæmt nýrri skoðana-
könnun hjá Skáís. Alþýöuflokk-
urinn fengi 9,4%, Framsóknar-
flokkur 19,7%, Alþýðubandalag
12,3%, Kvennalisti 4,6% og Þjóð-
vaki 10,9%. Alþýðubl. greindifrá.
Einmanaleiki hefur hrjáö ungl-
inga sem leitað hafa hjálpar í
kennaraverkfallinu og síðustu
daga hefur komiö fram ótti vegna
óvissu um framtíðina. RÚV
greindi frá.
Hjónaböndíhættu
Presturinn í Grafarvogi í
ReyKjavík hefur aldrei haft meira
að gera viö að liðsinna hjónum í
sambúðarvanda en undanfariö.
RUV greindi frá.
Voriðnálgast
Álftir eru famar að koma til
landsins, þar á meöal ein meö
áfastan gervihnattasendi. RÚV
greindi frá.
KönnunStöðvartvö
Alþýöufiokkurinn fengi 7 þing-
menn ef kosið væri núna skv.
skoðanakönnun sem Stöö tvö
birti í gær. Framsóknarflokkur
fengi 12, Sjálfstæðisflokkur 25,
Alþýöubandalagiö 9, Kvennalist-
inn 3 og Þjóðvaki 7.
Samningisagtupp
Heilbrigöisráðuneytið hefur
sagt upp samningi við Reykjavík-
urborg um sjúkraflutninga. Sam-
kvæmt Mbl. er rætt um að Rauði
krossinn taki við flutningunum.
VBImeirifriðun
Formaöur LÍÚ sér ekki fram á
að hægt verði aö auka þorskkvóta
á næstu árum og vill ganga lengra
í friðun hrygningarfisks. Sjón-
varpiðgreindifrá. -kaa
Breyttur útgáfutími DV á mánudögum:
Menihlutinn
ánægður
Mikill meirihluti lesenda DV er
ánægður með breyttan útgáfutíma
DV á mánudögum, samkvæmt könn-
un sem Félagsvísindastofnun gerði
fyrir DV dagana 21. til 24. febrúar sl.
Áf þeim sem lesa blaðið daglega voru
tæp 60 prósent ánægð með breyttan
útgáfutíma. Einungis 4,7% voru
óánægð. Hlutlausir voru 37% les-
enda í könnuninni.
Félagsstofnun hringdi í 1500 manna
úrtak á aldrinum 12-80 ára um allt
land. Svarhlutfall úrtaksins var
73,6%.
4,7%
Heimitd: Köonun Félagsvttindtat.
Hlutlaus
Ánægja með breyttan
útgáfutíma
- þeir sem lesa blaöiö daglega -
■ Ánægð(ur)
Formaður úthafsveiðinefndar LIU:
Hagsmunir á Reykjanes-
hrygg og í Smugunni áþekkir
- framtíðarlausnin byggist á samningum byggðum á veiðireynslu
„Það eru mjög áþekkir hagsmunir
í Smugunni og á Reykjaneshryggn-
um. Viö höfum stutt þá hugsun að
um þetta náist samningar og veiðar
á þessum slóðum byggist á alþjóðleg-
um reglum. Við fengjum líklega
hærra hlutfall þarna heldur en í
Smugunni," segir Jóhann A. Jóns-
son, útgerðarmaður á Þórshöfn og
formaöur úthafsveiðinefndar LÍU
vegna veiða í úthöfunum.
íslendingar veiddu 47 þúsund tonn
af úthafskarfa á Reykjaneshrygg í
fyrra sem er nærri helmingur þess
afla sem Alþjóða hafrannsóknaráðið
ráðlagði og helmingur allrar veiðinn-
ar. Ætla má að verðmæti þessa afla
sé um 2,5 milljarðar króna. Á sama
tíma veiddu íslensk skip 36 þúsund
tonn af þorski í Barentshafi, að verð-
mæti 4,3 milljarðar. Eins og fram
kom í DV í gær stefnir gífurlegur floti
togara til veiða á úthafskarfa á
Reykjaneshrygg.
Jón B. Jónasson, skrífstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, segir
Afli og verðmæti
- úr Smugunni og af úthafskarfamiöum á Reykjaneshrygg -
1993 1994
* áætlaö verömæti í milljöröum króna _____
..-................ ' tTC’Í
stefna í að sóknin á karfanum geti
endað í hruni stofnsins.
Jóhann A. Jónsson segist hafa
skilning á því að skip vilji ná sér í
veiðireynslu á þessum slóðum. Þar
sé hver sjálfum sér næstur.
„Auðvitað eru menn að byggja upp
veiðireynslu hér eins og við erum að
gera annars staðar. Norðmenn eru á
fullu á Flæmska hattinum og víðar.
Það er okkur mikilvægt að vera inn-
andyra sem víðast," segir Jóhann.
Hann segir að íslendingar hafi ver-
ið heilir í því að leita samkomulags
um veiöar í úthöfunum.
„Við höfum staðið heilir að því að
reyna að koma skikk á þessi mál. Það
verður ekkert við þessu gert nema
samkomulag náist um kvótasetningu
sem ekki náðist á síðasta ári. Það er
von um að samkomulag náist á út-
hafsveiðiráðstefnunni sem haldin
verður í ágúst í sumar. Framtíðar-
lausnin í þessum veiöum byggist á
samningum, byggðum á veiði-
reynslu," segir Jóhann. -rt