Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Síða 25
FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995
41
dv Meiming
„Gestur": Nanna Bisp Buchert.
Andalúsíuljóð
- Nanna Bisp Buchert í Norræna húsinu
Ljósmyndin er listform sem hefur að geyma marga möguleika. í raun
má segja að hún geti falið í sér flestar aðrar listgreinar. Með tilstyrk ljós-
myndarinnar má skrásetja umhverflð líkt og rithöfundur en um leið er
hægt að mála það persónulegum dráttum með hennar aðstoð. Dansk-
íslenska listakonan Nanna Bisp Buchert, sem nú hefur opnað sýningu á
verkum sínum í Norræna húsinu, nýtir sér vel þessa möguleika ljósmynd-
arinnar sem listforms. Hún meðhöndlar ljósmyndina á vissan hátt líkt
og ljóð. í myndunum teflir hún saman smáhlutum eins og ljósaperu og
hnífapörum, líkömum og flskum og finnur öllu stað í andalúsísku fjalla-
þorpi í Granadahéraði á Spáni.
Súrrealískur undirtónn
Ljósmyndir Buchert hafa súrrealískan undirtón líkt og hæfir þegar
kemur á heimaslóðir skáldsins Garcia Lorca sem vitnað er til í sýningar-
skrá. Skólabræður Lorca, þeir Bunuel og Dalí, gerðu kvikmyndina Anda-
lúsíuhundinn undir áhrifum frá ljóðrænum frásögnum Lorca af lífinu í
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Andalúsíu. Það eru að mörgu leyti svipaðar forsendur að baki mynda
Nönnu. Andstæðurnar á milli hvítkalkaðra húsanna og svartklæddra
kvennanna verða henni að yrkisefni í svarthvítum ljósmyndasamstæðum
þar sem hið smáa er líka í fullu gildi en dregur ekki úr einfaldri og sterkri
myndheild t.a.m. í myndum 10 og 11. Plöntum og ávöxtum er snoturlega
raðað inn í myndfletina ásamt fiskum og jafnvel gömlum ljósmyndum
líkt og í myndum 19 og 20. Stundum ætlar listakonan fletinum of mikið
af slíkum aðskotahlutum þannig að þeir draga úr áhrifamætti hins ein-
falda og hógværa umhverfis sem er í ofangreindum tilvikum gluggakarm-
ur.
Óvæntar hliðstæður og sjónarhorn
Mun betur tekst til þegar einfaldleiki er látinn setja myndinni skorður
og hann notaður til að afhjúpa óvæntar hliðstæður eða ný sjónarhorn.
Góð dæmi um þetta eru myndapör 1 og 9. Fyrrnefnda samstæðan sýnir
annars vegar krossi prýdda karlmannsbringu sem minnir einna helst á
akurlendi og hins vegar þrjá ávexti á hvítkalkaðri syllu. Síðarnefnda
samstæðan sýnir stól og gólf á þann hátt að heildin veröur nánast að
jarðtengdu himnahásæti. Myndir 3 og 6 eru einnig ljóðrænar og einfaldar
samstæður þar sem leikið er á væntingar um sjónarhorn (3) og yfirborðs-
tengsl (6). Nokkrar litmyndir eru á sýningu Nönnu, en mér þóttu þær
flestar standa hinum svarthvítu talsvert að baki. Þar er ekki að fmna
ámóta samspil andstæðna og hiö smágerða á þar til að týnast. Þetta á
sérstaklega við um smámyndirnar 15 til 19 sem virðast framkallaðar með
bichromat aðferð á grafíkpappír. En í heildina er hér um að ræða ljóð-
ræna og skemmtilega sýningu sem mun standa í rýminu við kaffistofu
Norræna hússins til annars apríl.
Tilkyimingar
íslandssaga á þýsku í fyrsta
sinn
Iceland Review hefur gefið út bókina Die
Geschichte Islands von der Besiedlung
zur Gegenwart og er þetta í fyrsta sinn
sem íslandssagan í heild sinni - allt frá
landnámi tii okkar daga - kemur út á
þýskri tungu. Má því segja að þessi út-
gáfa marki tímamót í tengslum íslands
við hinn þýskumælandi heim. Höfundur
bókarinnar er Jón R. Hjálmarsson sagn-
fræðingur en Gudrun M.H. Kloes þýddi
hana á þýsku. Bókin hefur áður komið
út á ensku, fyrst árið 1988 en síðan mikið
aukin og endurbætt á síðasta ári og var
sú útgáfa tileinkuð 50 ára afmæli lýðveld-
isins. í frétt frá útgefanda segir að texti
bókarinnar sé hnitmiðaður og aðgengi-
legur, skrifaður með hinn almenna les-
anda í huga. Saga lands og þjóðar sé rak-
/////////////////////
ATH.! Smáauglýsing
í helgarblaö DV verður
aó berast okkur fyrir
kl. 17 á föstudag.
Þverholti 11-105 Reykjavík
in og ljósi varpað á alla helstu atburði
og áhrifavalda í íslensku samfélagi, sagt
frá landnámi, menningu og baráttu þjóð-
arinnar við erlend yfirvöld og óblíð nátt-
úruöfl í gegnum aldirnar. Fjölbreytt
myndefni prýðir einnig síður bókarinn-
ar.
Fjórar nýjar kiljur
íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá
sér fjórar nýjar bækur: Fjarri hlýju
hjónasængur eftir Ingu Huld Hákonar-
dóttur segir frá samskiptum kynjanna á
íslandi um aldir, í samfélagi þar sem
kirkja og veraldlegt vald töldu sér ekkert
mannlegt óviökomandi. Hér erú átakan-
legar sögur af þeim konum - og körlum
- sem leyfðu sér að fara út fyrir viður-
kennd mörk ástar og hjónabands. Bókin
er 323 blaðsíður. Tvær gamlar konur eft-
ir Velmu Wallis er sérstæð bók sem segir
frá mannraunum tveggja gamalla indí-
ánakvenna í Alaska sem verða að bjarga
sér upp á eigin spýtur eftir að ættbálkur-
inn snýr baki við þeim. Velma Wallis er
af athabaskaættbálki indíána í Alaska,
fædd árið 1961. Hér birtist sagan í nýrri
þýðingu Gyrðis Eliassonar. Bókin er 94
blaðsíöur. Dætur Kains er glæný spennu-
saga eftir Colin Dexter um Morse lög-
reglufulltrúa og kom út í Bretlandi í nóv-
ember sl. Fyrrverandi prófessor í Oxford
finnst myrtur. Málið reynist furöulegt og
flókið og á eftir aö valda meiri sálarkvöl-
um en hann hefur áður kynnst. Sverrir
Hólmarsson þýddi bókina. Hún er 296
blaösíður. Þá hefur skáldsagan Grá-
mosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson nú
verið endurprentuð. Efni hennar er sótt
í kunn íslensk sakamál frá síðari hluta
19. aldar. Höfundur nýtir sér tækni
spennusagna og ástarsagna en öll lýtur
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið
Söngleikurinn
WEST SIDE STORY
ettir Jerome Robbins og Arthur
Laurents við tónlist Leonards Bern-
steins
Kl. 20.00.
8. sýn. í kvöld, örfá sæti laus, á morgun,
uppselt, föd. 31/3, uppselt, Id. 1/4, örfá sæti
laus, sud. 2/4, uppselt, föd. 7/4, örfá sæti
laus, Id. 8/4, uppselt, sud. 9/4, örfá sæti laus.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
FÁVITINN
eftir Fjodor Dostojevski
Kl. 20.00
ld. 25/3, laus sæti v/forfalla, sud. 26/3, fid.
30/3, fid. 6/4.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Évgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersens
Sud. 26/3 kl. 14.00, sud. 2/4, kl. 14.00, sud.
9/4 kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
Barnaleikritið
LOFTHRÆDDIÖRNINN
HANN ÖRVAR
eftir Stalle Arreman og Peter Eng-
kvist
Ld.25/5 kl. 15.00.
Miöaverókr. 600.
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Kl. 20.00.
í kvöid, uppselt, á morgun, uppelt, Id. 25/3,
uppselt, sud. 26/3, uppselt, fid. 30/3, uppselt,
föd. 31/3, uppselt. Id. 1/4, uppselt, sud. 2/4,
uppselt, fid. 6/4, föd. 7/4, uppselt, Id. 8/4,
uppselt, sud. 9/4, uppselt. Ósóttar pantanir
seldar daglega.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
DÓTTIRIN, BÓNDINN OG
SLAGHÖRPULEIKARINN
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Sud. 26/3,2/4,9/4. Aóeins þessar þrjár sýn-
ingar eftir. Húsiö opnað kl. 15.30, sýningin
hefst stundvíslega kl. 16.30.
Gjafakort í leikhús - Sígild og
skemmtileg gjöf.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin
alla daga nema mánudaga frá kl.
13 til 18 og fram að sýningu sýning-
ardaga.
Tekið á móti simapöntunum virka
dagafrá kl. 10.
Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 61 12 00.
Simi 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta.
frásögnin lögmálum skáldskapar. Bókin
færði höfundi sínum Bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráös og útgáfur á fjöl-
mörgum þjóðtungum. Hún er 267 blaðsíð-
ur.
Hjá Steinu, ný hársnyrtistofa
Þann 1. desember 1994 var opnuö ný
hársnyrtistofa að Austurgötu 37 í Hafnar-
firði sem ber heitið Hjá Steinu. Eigandinn
er Steinunn Rán Helgadóttir hársnyrtir.
í boði er öll alhliða hársnyrtiþjónusta
fyrir dömur og herra. Steinunn er með
Daniel Galvin hársnyrtivörur og býöur
upp á frjálsan afgreiðslutíma. Tímapant-
anir eru í símum 5655306 og 813144.
Tapað fundið
Olympus myndavél gleymdist
uppi í Heiðmörk
12. mars sl. Kona mun hafa fundið hana
og er hún beöin að hafa samband í hs.
14083 eða vs. 602400 (Pétur).
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra svið kl. 20.
DÖKKU FIÐRILDIN
eftir Leenu Lander
6. sýn. sunnud. 26/3, fáein sæti laus, græn
kort gilda, 7. sýn. fimmtud. 30/3, hvit kort
gilda, 8. sýn. föstud. 7/4, brún kort gllda.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Föstud. 24. mars, næstsíðasta sýning,
laugard. 1. april, síðasta sýning. Allra síð-
ustu sýningar.
Söngleikurinn
KABARETT
Höfundur: Joe Masteroff,
eftir leikriti Johns Van Drutens og sögum
Christophers Isherwoods
í kvöld, fáein sæti laus, laug. 25/3, næstsið-
asta sýning, föstud. 31/3, siðasta sýning.
Litla svióið kl. 20:
FRAMTÍÐARDRAUGAR
eftir ÞórTulinius
í kvöld, uppselt, laugard. 25/3, fáeins sæti
laus, sunnud. 26/3, miðvikud. 29/3.
Miðasala verður opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-20.00.
Miðapantanir í síma 680680 alla
virka daga frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin okkar
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús
I 1 !
jCTIffltiij lf!! |?! HHrlffll
1 ~ aÍTi 5.5 5 11 H Jlwjfí]
LEIKfÉLflG ftklíBEVRflR
OO
PJOIFILMYMIM
Lilríkur og hressilegur braggablús!
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson
SÝNIN6AR
Frumsýning föstudog 24. mars
kl. 20.30 - UPPSELT
2. sýning laugardag 25. mors
kl. 20.30 - UPPSELT
3. sýning föstudag 31. mars kl. 20.30
4. sýning laugardag l. apríl kl. 20.30
Mióasalan eropin virka daga nema
mánudaga kl. I4 - I8 og sýningardaga
frani aö sýningu. Sími 24073
Greióslukortaþjónusta
| ÍSLENSKA ÓPERAN
=111111 Sími 91-11475
Tónlist: Gluseppe Verdi
Fös. 24/3, sun. 26/3, fös. 31/3, laugard.
1/4, uppselt.
Sýningar hef jast kl. 20.00.
Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir
sýningardag.
Muniö gjafakortin.
Miðasalan er opin kl. 15-19
daglega, sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475, bréfasimi 27384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ním
DV
9 9*1 7*00
Verð aðeins 39,90 mín.
Fótbolti
2 [ Handbolti
; 3 1 Körfubolti
4 [ Enski boltinn
51 ítalski boltinn
6 Þýski boitinn
7-| Önnur úrslit
81 NBA-deildin
'0 if|
11 Vikutilboð
stórmarkaðanna
2 [ Uppskriftir
Læknavaktin
_2j Apótek
: 3 [ Gengi
JL j Dagskrá Sjónv.
[2j Dagskrá St. 2
3 Dagskrá rásar 1
41 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
fjj Myndbandagagnrýni
6 [ ísl. listinn
-topp 40
_ZJ Tónlistargagnrýni
8 [ Nýjustu myndböndin
'ÍJ Krár
2 J Dansstaðir
_3j Leikhús
^ 4 j Leikhúsgagnrýni
; 5 j Bíó
61 Kvikmgagnrýni
6 g^mtUAtstatffligia
AJ Lott<>
2 j Víkingalottó
3 Getraunir
r /;/.
;11 Dagskrá
líkamsræktar-
stöðvanna
AIIII
9 9*17*00
Verð aðeins 39,90 mín.