Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Síða 28
44 FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995 nn Glerbyggingin við Iðnó er greini- lega viðkvæmt mál. Meyjar fá vitj- anir í draumi „Svo gerist það að einhverjar meyjar fá vitjanir í draumi... Ég mun framvegis mæta með draumaráðningabók á þessa fundi byggingarnefndar." Guðmundur J. Guömundsson i DV. Kýli sem snýr að Tjörninni „Þetta er svona eins og kýli sem snýr að Tjörninni.“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgar- fulltrúi í DV. Ofmetið áróðursbragð „Flokkarnir eru að feta hver í annars fótspor með þetta núna en ég held að þetta sé svolítið of- metið áróðursbragð." Ólafur Ingi Ólafsson um flettlskiltl í Morgunblaölnu. Ummæli Frábær undrabíll „Það má margt misjafnt segja um Björk sem tónlistarmann, en sem undrabíll er hún frábær." Jón Gnarr i Alþýðublaðinu. Hætta aldrei „Þeir hætta aldrei þessir leik- menn í Skallgrími, alveg sama hver staðan er.“ Teitur Örlygsson í DV. Ekki stýrt með kærum „Bæjarfélaginu verður ekki stýrt með kærum.“ Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi i Hafnarfirði, i DV. í dag byggjast ferðir járnbrauta á farþegum. Myndin er tekin á járnbrautarstöð. Fyrstu jámbrauta- farþegamir í dag byggjast jámbrautir á far- þegaflutningum en það var ekki alltaf svo. Fyrstu farþegavagn- amir sem verðskulda það nafn voru svipaðir hestvögnum í út- liti. Voru þeir teknir í notkun í september 1830 er Liverpool- Manchester jámbrautin var opn- uð til umferðar. Það var fyrsta járnbraut í heimi með regluleg- um farþegalestum sem dregnar voru af gufueimreiðum. Blessud veröldin Svefnvagnar Fyrsti svefnvagninn var tekinn í notkun í Bandaríkjunum í sept- ember 1859. Frumkvöðull þeirra þróunar var C.M. Pullman. Árið 1867 stofnaði hann fyrirtææki er skyldi annast rekstur svefnvagna og fyrsta flokks veitingavagna. í Evrópu var fyrsti vagninn tekinn í notkun 1872. Það var tveggja öxla vagn og í honum vom tveir svefnklefar. Veitingavagnar Veitingavagnar voru fyrst teknir í notkun 1863 á leiðinni Philadelp- hia-Baltimore í Bandaríkjunum. í Evrópu var fyrsti veitingavagn- inn, þar sem réttirnir voru búnir til í sjálfri lestinni tekinn í notkun 1879 á leiðinni Leeds-London. Éljagangur síðdegis í dag verður suðaustankaldi eða stinningskaldi og dálítil snjókoma um tíma suðvestan- og vestanlands. Veörið í dag Að öðru leyti verður sunnan- og suð- vestankaldi, víða léttskýjað um land- ið austanvert en éljagangur síðdegis um landið vestanvert. í nótt snýst vindur til norðan- og norðvestanátt- ar um land allt. Veður fer kólnandi. Á höfuðborgarsvæðinu verður suð- austankaldi og éljagangur þegar líð- ur á daginn. Hiti verður um eða rétt undir frostmarki. Sólarlag í Reykjavík: 19.51 Sólarupprás á morgun: 7.16 Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.26 Árdegisflóð á morgun: 12.15 Heimild: Aimunak Háskólans Veðrlð kl. 6 í morgun: Akureyrí snjóélásíð. klst. 1 Akurnes léttskýjað 1 Bergsstaðir hálfskýjað 0 Bolungarvik léttskýjað -1 Kefla víkurflugvöllur hálfskýjað -1 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -1 Raufarhöfn hálfskýjað 0 Reykjavík hálfskýjað -1 Stórhöfði úrkoma í grennd 1 Helsinki alskýjað 1 Kaupmannahöfn þokumóða 3 Stokkhólmur skýjað 3 Þórshöfn hálfskýjað 5 Amsterdam þokumóða 2 Beríín rign. á síð. klst. 5 Feneyjar þokumóða 3 Frankfurt hálfskýjað 0 Glasgow mistur 5 Hamborg þokumóða 2 London lágþoku- blettir 2 LosAngeles léttskýjaö 13 Mallorca heiðskírt 1 Nice skýjað 7 París léttskýjað -1 Róm léttskýjað 4 Vín rigning 3 Washington léttskýjað 6 Winnipeg skýjað 2 Kolbeinn Ketilsson óperusöngvari: „Þetta er i fyrsta skiptið sem ég syng í óperu hér heima en ég hef sungið hlutverk Alfredos i La tra- viata áður, það var í Prag, þannig aö ég þekki það nokkuð vel,“ segir Kolbeinn Ketilsson óperasönvari sem hefur tekið við lúutverki Al- fredos af Óíafi Árna Bjarnasyni í uppfærslu íslensku óperunnar á La traviata. Mun hann syngja hlut- verkið á næstu sýningum. Það er Maður dagsins eitt og hálft ár frá því aö Kolbeinn Koibeinn Ketilsson. Kolbeinn sagðist reikna með að útskrifaðist frá Hochschule fur setjastaðíHildesheimmeðanhami Musik und darstellende Kunst í og það var þess vegna sem ég skrif- starfaöi þar, en allt frá því hann Vín sem óperusöngvari og hefur aði undir hann. Þarna fæ ég tæki- lauk námi hefur hann verið að hann haft nóg að gera síðan og rétt færi til að syngja stór og mikil hlut- syngja í óperum víða um Evrópu. áður en hann kom til að æfa með verk. Þegar ég hef lokið við að En samhliða óperutónlistinni kem- íslensku óperunni skrifaði hann syngja í La traviata mun ég fara til ur hann fram reglulega sem flytj- undir samning við Óperuhúsið í Hildesheim þar sem æfingar á andi ljóða- og kirkjutónhstar og Hildesheim í Þýskalandi til eins Ævintýri Hoffmans taka við í einn mun einmitt um helgina syngja árs. og hálfan mánuð. Auk þess mun einsöng í flutningi Fílharmóníunn- „Þetta er samningur upp á að ég Kolbeinn meðal annars syngja i ar á Messíasi eftir Handel í Lang- syngi eingöngu aðaltenórhiutverk Töfraflautunni. holtskirkju. Kolbeinn kvað það virkilega gaman að koma heim og syngja: „Þegar Ólöf hafði samband við mig í desember og hað mig að taka að mér hlutverk Alfredos fannst mér það alveg tiivalið. Það kom í ljós að ég átti heimangengt og því sló ég til og það er tilhlökkun í mér að takast á við hlutverkið. Þetta er góður og samstilltur hópur í ís- lensku óperunni og það sem mér finnst kannski helst öðruvísi er nálægðin við áhorfendur, Úti era þetta yfirleitt mun stærri óperu- hús.“ Myndgátan Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki Verður Stjarnan íslandsmeistari í kvöld á Stjarnan möguleika á að tryggja sér íslandsmeistaratit- ilinn í handknattleik kvenna en þá mætir hðiö Fram í þriðju við- ureigninni. Stjarnan er búin að vinna tvo leiki og leikur á heima- velli í Garðabæ í kvöld. Einnig verður leikinn þriðji leikurinn í úrslitum karla á Hliðarenda þar íþróttir sem Valur og KA berjast um ís- landsmeistaratitihnn. Bæði liðin hafa unnið sínn leikinn hvort. í körfuboltanum eru Njarðvík- ingar þegar búnir að tryggja sér sæti í úrslitaviðureignmni en Keflvíkingar og Grindvíkingar berjast um hitt sætið. Keflvíking- ar hafa innbyrt tvo vinninga og Grindvíkingar einn. Fari svo að Keflvíkingar vinni á heimavelli í kvöld leika þeir um íslandsmeist- aratitilinn gegn Njarðvíkingum. Skák Skákáhugamenn eiga þess nú kost að sjá marga af snjöllustu skákmönnum Norðurlanda etja kappi saman á Norður- landa- og svæðamótinu, sem fram fer á Hótel Loftleiðum. Umferðir hefjast kl. 16 daglega en nk. sunnudag eiga skákkapp- arnir þó frí. Þessi staöa kom upp í skák Helga Ólafs- sonar og Þrastar Þórhallssonar í fyrstu umferð. Þröstur, með svart, á leik í býsna erfiðri stööu. Hveiju svaraöi Helgi 20. - Rd8 og hvert hefði svariö orðið við 20. - axb4? og nú fær svartur ekki varið mátið á g7 með góðu móti. Eftir 21. - Bf8 22. Hxe8 Re6 23. Hx£8 + Hxf8 lagði Þröstur niður vopn. Engu betra í þessari erfiðu stööu var 20. - axb4, t.d. 21. Bxf7 + ! Kxf7 22. Db3 + Kf6 23. Rg5! sem er sterkara en að þiggja drottninguna - og hvítur á vinnings- stööu- Jón L. Árnason Bridge Danirnir Lars Blakset og Soren Christ- iansen náðu næsta öruggum sigri á Dan- merkurmeistaramótinu í tvímenningi sem fram fór í febrúarmánuði. Þeir end- uðu með 108 stigum meira en næsta par (393-285), Dennis Koch-Palmund og Jens Auken. Lars Blakset skrifar grein um mótið í nýjasta hefti Dansk Bridge tíma- ritsins og segir meöal annars frá þessu spih sem kom fyrir í mótinu. Christian- sen og Blakset sátu í n-s og sögðu sig upp í 4 spaða sem voru doblaðir. Með bestu vörn, spaðadrottningu út, kóngur í blind- um, ás frá austri, laufi á drottningu vest- urs, laufstungu, tígU á ás, hjartaás og meira laufi er spilið 3 niður og 500 tU a-v. En a-v voru mislagðar hendur í vörn- inni. Sagnir gengu þannig í spilinu, vest- ur gjafari og a-v á hættu: ♦ KG43 V KD43 ♦ KG72 + 8 ♦ D V ÁG92 ♦ Á106 ♦ ÁD952 ♦ Á109 V 10765 ♦ D9853 + 6 ♦ 87652 * ♦ 4 + KG10743 Vestur Norður austur Suður 1+ dobl 1* 14 2f 2* 4f 44 dobl p/h Blakset segist í greininni hafa lofaö spil- urunum Jesper Thomsen og Rico Hem- berg að greina ekki frá því hverjir sátu í a-v í spilinu!? Vestur spilaði út spaða- drottningu í upphafi, austur drap kóng bUnds á ás og spUaði aftur spaða en vest- ur henti laufi. Blakset spUaði laufi úr blindum á gosann, vestur drap á drottn- ingu og prófaði lágan tígul. Blakset setti kónginn, trompaði tígul heim, spilaði laufkóng, vestur setti ásinn, trompað í blindum og yfirtrompað hjá austri. Aust- ur spilaöi nú hjarta, vestur lét níuna duga en mema þurfti Blakset ekki. Hann trompaði hjarta heim og fríaði síðan lauf- Utinn með trompun í bUndum og skrifaði 590 í dálkinn. jsak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.