Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 Fréttir Átta blaðsíðna „svört skýrsla“ um ársreikning Suðureyrarhrepps og stjómendur: Sakaðir um að koma sér undan skattgreiðslum - siðlaust, segir 1 skýrslunni - allt fram talið, segir sveitarstjórinn Skoðunarmenn ársreikninga Suð- ureyrarhrepps gerðu athugasemdir upp á átta blaðsíður við ársreikning sveitarfélagsins fyrir áriö 1993. Þeir gera m.a. athugasemdir við það að sveitarstjóri greiði hluta af launum sínum inn á reikning fyrirtækis sem hann á í Þorlákshcfn. Þá saka þeir yfirstjóm hreppsins um aö tekjufæra ekki gröfu í eigu hreppsins til að komast hjá þvi að greiða virðisauka- skatt. Orðrétt segir: „Grafan er ekki tekjufærð því þá þarf að greiöa virð- isaukaskatt. Hreppsnefndarmenn og sveitarstjóri að hluta taka laun sín sem verktakar til að komast hjá tekjuskattsgreiðslum sé það mögu- legt. Staðgreiðsla er tekin af launum foröagæslumanns en henni ekki skil- að. Er þeim ekki ljóst aö fjárhagsgeta hins opinbera byggist á skatttekj- um...?“ spyijaskoðunarmennimir. í athugasemdum segir að „Verk- takalaun hreppsnefndarmanna séu greidd samkvæmt ónúmeruðum reikningum snyrtilega uppsettum á A-4 örk. Sveitarstjóri hefur annan hátt á, hann greiðir nefndalaun sín inn á viðskiptareikning Bókhalds og skrifstofuþjónustunnar, sem mun vera fyrirtæki í hans eigu í Þorláks- höfn. Framangreint er rakið svo ítar- lega af því að kjömum skoðunar- mönnum finnst þetta siölaust hátt- emi, hvað sem lög segja,“ segir í greinargerðinni. Halldór Karl Hermannsson, sveit- arstjóri á Suðureyri, segir athuga- semdirnar byggjast að miklu leyti á persónulegum árásum á sig. „í þessu tílfelh sem ég greiði til fyrirtækis míns er það gert þannig að ég greiði virðisaukaskatt af þess- um tekjum. Strax og ég sá þetta benti ég þeim á að teldu þeir að ég væri að bqóta lög skyldu þeir gjöra svo vel að kæra þetta, að öðrum kosti ekki vera að halda slíku fram. Þetta hefur ekki verið kært. Endurskoð- andi minn sagðist ekkert sjá að þessu þar sem þetta væri talið fram og hreppurinn skaðaöist ekki á þessu. Það er þama um að ræða 100 þúsund krónur á ári. Sú framsetning að þama sé um að ræða skattsvik er út í hött, þetta er allt talið fram,“ segir Halldór Karl. Mosfellingar verða að kjósa í Reykjavík „Ég verð að játa að ég er svolít- ið hissa yfir þessu. Eg hefði í sjálfu sér kosið að hafa kjörstað í bænum ef þetta hefði komiö inn á borð til mín en það hefúr ekki gert þaö. Eftir aö nýju sljóm- sýslulögin tóku gildi em Mosfell- ingar i saraa sýslumannsum- dæmi og Reykjavík. Vissulega má færa að því rök að gott hefði verið að hafa þessa þjónustu hérna upp frá,“ segir Jóhann Sig- uijónsson, bæjarstjóri í Mos- feúsbæ. Mosfellingar verða að fara á kjörstaö að Engjateigi 5 í Reykja- vík til að kjósa utan kjörstaðar fyrir kosningamar 8. apríl í stað þess aö fara á lögreglustöðina í Mosfellsbænum eins og var fyrir síöustu kosningar þegar Mos- fellsbær heyrði undir sýslu- mannsembættið í Hafnarfiröi. Kjörstaðurinn viö Engjateig er opinn frá klukkan 10 til 12,16 til 18 og 20 til 22 og verður að fram- vísa persónaskilríkjum til aö fá aðkjósa. -GHS Lánasjóður fyrirkonur stofnaður Borgarstjóri, iðnaðarráðherra og félagsmálaráðherra hafa skrif- að undir yfirlýsingu um stofnun lánatryggingasjóðs fyrir konur í atvinnulifi og er stofnfé sjóðsins tíu milijónir króna. Félagsmála- ráöuneytiö leggur sióðnum til fimm milíjónir, iðnaöarráöuneyt- ið tvær milljónir og Reykjavíkur- borg þrjár milljónir. -GHS .. . - Þyria Varnarliðsins lenti í gærkvöid við Borgarspitala með konu á sextugsaldri sem hafðí hryggbrotnað f vélsleða- slysi vlð Þaravatn á Tröllatunguheiði sfðdegis I gaer. Konan var á ferð ásamt hópi manna á leið til Hólmavíkur þegar slysið varð. Hún mun hafa ekið fram af klettabelti og hrapað um 30 til 40 metra niður bratta hlíð. Læknir kom á vettvang og ákvað hann að kalla eftir þyrlu. Fór Varnarliðið á staðinn þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar var i skoðun. Konan gekkst undir aðgerð I gærkvöld og er líðan hennar eftlr atvikum góð að sögn lækna. DV-mynd Sveinn Stuttar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú stuönings 37,6% kjósenda skv. skoöanakönnun sem Félagsvís- indastofhun hefur gert fyrir Morgunblaöið. Alþýöuflokkur fengi 10,6% ef kosið væri núna, Framsóknarflokkur 21,1%, AI- þýðubandalag 12,8%, Kvennalist- inn 5,1% og Þjóövaki 11,2%. Gjaldskyida tengd Borgarráð ætlar aö auka tekjur Bílastæðasjóðs um 28,2 milljónir með breyttri gjaldskrá sjóðsins. Lengja á gjaldskylduna í stæðum til kl. 18 alla virka daga og taka upp gjaldskyldu á laugardögum. Hlvísanakerfinu breytt Heilbrigðisráðherra gerði í gær breytingu á reglugerð um tilvís- anakerfið. Breytingin felur í sér að Tryggingastofhun borgi rarin- sóknir þótt sjúklingur leiti til sér- fræðings án tilvísunar. Jaðarskattar gleypa allt Ráöstöfunartekjur 6 manna íjölskyldu i leiguíbúð aukast nær ekkert þótt launatekjur hækki úr 125 þúsundum í 210 þúsund á mánuði. Hagfræöingar ASÍ segja þetta stafa af samspili skatta og tekjutengdra bóta. Stærsti flokkurinn Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkurinn á Suöurlandi samkvæmt Gallup-könnun. ákveðiö að auka viö kennslu barna í l. til 10. bekk grunnskól- ans vegna kennaraverkfallsins. Skv. RUV er þar með eytt óvissu sem vakti reiöi skólamanna. -kaa AðMarumsókn að ESB útilokuð í „stjómarsáttmála“ Ólafs Ragnars Grímssonar: Launafólki heitið skattalækkunum „Ríkisstjórnin er mynduð til að stuöla að framfónmi í íslensku at- vinnulífi með sókn á útflutnings- mörkuðum og bættri samkeppnis- hæfni íslensks atvinnulífs," segir í inngangi að drögum Ólafs Ragnars Grimssonar að stefnuyfirlýsingu vinstri stjómar eftir kosningar. Drögin voru nýverið afhent forystu Framsóknarflokks, Þjóövaka og Kvennalista sem trúnaöarmál til að flýta fyrir hugsanlegum stjómar- myndunarviðræðum. Drögin byggj- ast á stefhuskrá flokkanna og þar koma fram hugmyndir um aðgerðir fyrstu 100 dagana. í drögunum segir aö stefnt veröi að 3 til 4 prósenta hagvexti á ári og að sköpuð veröi 2.000 störf á ári eða minnst 12.000 fyrir aldamót. í þessu sambandi er rætt um kraftmikinn sjávarútveg, framleiðslu tækja og hugbúnaðar í fiskvinnslu, matvæla- framleiöslu með áherslu á hágæða- vöm og vistvænan landbúnað, hug- búnaöariönað, menningarútflutning, feröaþjónustu og fleira. Fram kemur í drögunum að ný vinstristjóm muni koma á fót ný- sköpunar- og áhættufjármögnunar- sjóði, gera auðlindir sjávar að ótví- ræðri þjóðareign, tryggja byggðar- lögum, sem misst hafa kvóta, auknar aflaheimildir og lögbinda að allur afli, sem ekki fer beint til vinnslu, fari á iimlenda markaði. Gert er ráð fyrir samræmingu á fjárframlögum til landshluta, leng- ingu húsnæðislána í 35 til 40 ár og að lánshlutfall þeirra sem em að kaupa húsnæði í fyrsta sinn verði 75 prósent. Því er heitið að fjármagns- og hátekjuskatti verði komið á og aö einstæðir foreldrar geti nýtt sér ónýttan persónuafslátt unglinga. Ýmisleg fleiri kosningaloforð er að finna í drögunum, meöal annars að settar verði siðareglur fyrir sljórn- mála- og embættismenn og aö sett verði löggjöf um starfsemi og íjár- reiður stjómmálaflokka. Hvað varð- ar utanríkismál er lögð áhersla á að tryggja samstarf viö ESB á grund- velli viðskiptahluta EES-samnings- ins sem þróaður verði í átt að tví- hliða samningi. Aðildarumsókn að ESB er útilokuð á kjörtímabilinu. Á fyrstu 100 dögunum vill Ólafur Ragnar aö sumarþing afgreiöi meðal annars lög sem tryggi aö jaðarskattar af miðlungstekjum fari ekki yfir 55 prósent og að skattleysismörk, bamabætur og vaxtabætur hækki. Þá verði einnig tekinn fyrsti áfangi í lækkun sjúklingaskatta, samþykkt lög til að taka á skuldavanda heimil- anna og samin aðgerðaáætlim um aö eyða halla ríkissjóðs. Auk þessa kemur meðal annars fram í drögunum að þegar í vor verði skólagjöld afnumin, hafin vinna við endurskoðun sjávarútvegsstefnunn- ar og hafnar viðræður við bænda- samtökin um mótun landbúnaðar- stefnutilnæstuára. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.