Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995
11
Hringiðan
Siðfræðistofnun Háskólans stóð fyrir ráðstefnu um helgina með yfirskriftinni „Fjölskyldan og réttlætið“. Rætt var
m.a. um stöðu, aðbúnað og skipulag íjölskyldna í ljósi réttlætisins. Þátttakan í ráðstefnunni var góö þó svo að slæmt
veðurfar hafi haft áhrif á ferðir borgarbúa um helgina.
Menning
Vatnslitaþrykkt náttúra
Nú tíðkast hin breiðu spjótin í grafíkinni og hver
sýningin á fætur annarri er nú opnuð á grafíklist og
hvarvetna má sjá nýsköpun í tækni eða formi. Og sýn-
ingagleðin er slík að fólk sýnir á nokkurra mánaða
fresti án þess þó að vera að endurtaka sömu hlutina.
Þórdís Elín Jóelsdóttir, er sýndi fyrir þremur mánuðum
í Stöðlakoti málverk og grafik, hefur nú sett upp aðra
sýningu á verkum sínum í Gafieríi Úmbru í næsta
nágrenni. Verkin í Úmbru eru eins konar sambland
málverks og grafíkur og talsvert ólík þeim sem voru í
Stöðlakoti þó ekki leyni sér að sama listakona er á ferð.
Einþrykk af glerplötu
Að þessu sinni sýnir Þórdís Elín átta verk, öll unnin
með tækni sem hún hefur sjálf þróað. Þar er um að.
ræða málverk sem hún vinnur á glerplötur með gouac-
he og vatnslitum og þrykkir síðan á svonefndan seiden
kokon pappír. Pappír þessi er mjög þunnur og líkist
að mörgu leyti taui og hefur sterka bindingu og teygju-
þol. Því er hann afar hentugur í þessa gerð einþrykks
sem byggist á því að pappírinn er lagður yfir blautt
málverkið á glerplötunni, valsað yfir og látið þoma.
Þegar pappírinn er oröinn þurr er hægt að ná honum
af án þess að hann rifni og mun listakonan hafa verið
lengi að finna pappír með þennan eiginleika af útskýr-
ingabók að dæma sem liggur frammi á sýningunni.
Sterkúr raunsæistónn
Verk Þórdísar em ákaflega misjöfn. í helmingnum
af verkunum em undarlegar nauðasköllóttar gouac-
he-málaðar mannverur í forgrunni en í bakgmnni
vatnslitalandslag sem er mismunandi sannfærandi en
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
þó ætíð með sterkan raunsæistón að undirlagi. Þessi
verk, hin fyrstu þijú og það áttunda, eru fremur mis-
heppnuð sem myndverk og sviplausar mannverarnar
eru langt því frá trúverðugar í nábýli við náttúmna
sem oftlega virkar eins og hálfkömð.
Náttúra án íhlutunar
Hin fjögur verkin, sérstaklega það sjötta og sjöunda,
em af allt öðrum „kalíber". Þar fær náttúran að njóta
sín til fulls án íhlutunar framandi vera annarra en
gesta sýningarinnar. í verki númer sjö, er ber hið ljóð-
ræna heiti „Mörkuð í spor svörð, magna fok af jörð“,
má sjá hjólfór kljúfa landið sem er í fullum vorskrúða.
Þetta er afar skemmtilega útfærð og vel heppnuð mynd
þó ekki sæti hún miklum tíðindum fremur en aðrar á
sýningunni, nema sakir tækninnar sem er án vafa
markverðasta framlag listakonunnar að þessu sinni.
Sýning Þórdísar Elínar í Galleríi Úmbru stendur til
19. apríl.
Það var mikið að gerast í Perlunni um helgina þegar um 30 aðilar kynntu
starfsemi sína á sýningunni Heilsa og heilbrigði. Ýmis samtök og fyrirtæki
stóðu fyrir ókeypis rannsóknum á sýningargestum eins og t.d. blóðþrýstings-
mælingum, mælingu á öndun, blóðsykurs og þrekmælingar. DV-myndir VSJ
Svefnsófi m/springdýnu
Veribkr.39J0a-
(verð án arma)
Rúm úr smíðajámi,
margar stærðir
Veribkr. 49.000.-
Sjónvarpsskápur
stærð 82x40x63
kr. 9.800.-
CD standur
fyrir 108 diska
kr. 4.900.-
Skrifborð, margir litir,
stærð 64xl40.Verð á borði
m/skúffuskáp.
Veribkr. 29.400.-
Stereoskápur / Sjónvarpsskápur
stærð 82x40x105
kr.13.50a-
Rúm m/springdýnu,
svart eða crom
Verð: 90x200
105x200
120x200
kr. 27.400.-
kr. 32.400.-
kr. 36.900.-
Opið : Virka daga kl. 9-18 • Laugardaga kl. 10-17 • Sunnudaga kl. 14-17
TM - HÚSGÖGN
Síöumúla 30
- sími 68-68-22