Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 Fréttir Hvert áfallið á fætur öðru hjá Sigríði Sigurðardóttur sem er 83 ára: Allslaus eftir þjóf nað 09 skemmdarverk „Maður hefði svo sem ekki farið með mikið af öllu þessu dóti yfir í hinn heiminn en það hefði verið skemmtilegt að geta skilið vel við sig þegar maður loksins fer. Ég sé til hvemig rætist úr,“ sagði Sigríður Sigurðardóttir, 83 ára, búsett í Sví- þjóð, en hún stendur uppi allslaus eftir að brotist var inn í geymslu og öllu stolið sem hún átti ytra. Flest af húsgögnum og öðrum eig- um Sigríðar var skemmt sama dag og hún hélt til íslands í læknisaðgerð í lok febrúar en fyrir nokkrum dög- um var bætt um betur og öllu stohð sem hún átti eftir óskemmt, húsmun- um, fótum og persónulegum munum. Geösjúkur maður, sem Sigríður leyíði að hafa afdrep í íbúð sinni, gekk berserksgang í íbúð hennar í lok febrúar og braut aht og bramlaði - húsgögn, myndir, spegla, glugga- rúður og leirtau. Auk þess tók hann skartgripi, bankakort og fleira. „Maður stendur eftir ahslaus. Mér firinst þetta nú orðið alveg nóg. Ég hef aldrei lent í svona löguðu áður. Ég veit ekki hvað verður um þennan sjúka mann sem olri öllum skemmd- unum fyrr í vetur - hann situr inni. En nú þurfti þessi þjófnaður að koma ofan á aht annað. Maður skilur ekk- ert í þessu,“ sagði Sigríður við DV í gær. Hún hefur verið að gangast undir læknisaðgerðir hér heima. „Sama kvöldiö og ég kom heim th íslands var hringt og sagt frá þessu. Ég var með fugl í íbúðinni sem var viti sínu fjær af hræöslu. Köttiuinn minn fannst kúrandi og skjálfandi þar sem hann hafði falið sig. Við viss- um ekkert um þessa brjálsemi. Ná- grannarnir urðu svo hræddir að sumir fluttu út,“ sagði Sigríöur. Auk þess að missa muni sína þurfti Sigríður að greiða íbúðareigendum 4 þúsund sænskar krónur í bætur fyr- ir skemmdir á henni og er ofan í kaupið komin á svartan hsta því hún er talin bera ábyrgðina sem leigu- taki. Það síðasta sem hún hefur feng- ið í hendur frá Svíþjóð er GSM- símareikningur sem hinn geðsjúki kostnaðarsami gestur stofnaði í hennar nafni. Sonur Sigríðar býr í nágrenni við hana, í Jönköping, en hún á önnur börn sem hún dvelur nú hjá á íslandi. „Ég ætla að sjá til hvort ég flyt aft- ur heim til íslands. Þaö er ósann- gjarnt að fá engar bætur en ég fæ þó ahtaf elhlaunin mín og lífeyrisbætur. Ég verð að hafa mig upp,“ sagði Sig- ríður Sigurðardóttir. -Ótt Meint trúnaöarbrot kært til Rannsoknarlögreglu: Bað skjólstæðinginn „óbeint afsökunar“ „Fyrir áramót spurði einn kunn- ingi minn hvernig gengi með ættleið- inguna hjá þessu fólki og þá frétti ég af þessu í fyrsta skipti. Ég varð svo fyrir því óláni að hitta þaú á laugar- dagskvöldi óg spurði þá hvemig gengi með þetta mál og meira var það ekki. Maðurinn hringdi svo í mig á sunnudagskvöldi rétt fyrir miðnætti og heimtaði að ég bæði konuna sína afsökunar. Ég fór til hans daginn eft- ir, ræddi við þau bæði og bað hana óbeint afsökunar," segir maki fuh- trúa í félagsmálaráði Kópavogs. Félagsmálaráð hefur óskað eftir rannsókn Rannsóknarlögreglu ríkis- ins, RLR, á meintu trúnaðarbroti fuhtrúa í ráðinu eftir að hjón sem sótt hafa um leyfi til að ættleiða er- lent barn höföu samband við ráðið og kröfðust rannsóknar á því hvort um trúnaðarbrot væri að ræða, en fuhtrúar félagsmálaráðs eru bundnir þagnarskyldu. „Trúnaöarskjölum var bara hent inn til fundarmanna og þess vegna hefði ég getað skoðað þau öll án þess aö nokkur vissi, en ég hef reynt að passa þau mjög vel og hendi þeim beint ofan í skúffu þegar þau koma á fóstudögum," segir makinn. „Þaö er ahs ekki rétt aö ákveðinn aðili Uggi undir grun. Það er bara veriö að rannsaka hvaðan hann hafði þessar upplýsingar. Tiltekinn aöiri, tengdur fuhtrúa 1 félagsmálaráði, viðhafði ummæh við einn af skjól- stæöingum ráðsins og hafði upplýs- ingar sem hann átti ekki að hafa undir höndum, alla vega ekki frá okkur," segir Magnús Bjamfreðsson, formaöur félagsmálaráðs Kópavogs. „Líkur voru á því að aöirinn hefði komist í trúnaðarskjöl en síðan kom hann til okkar og sagði okkur hvaðan hann hafði þessar upplýsingar og nafngreindi mann úr blaðamanna- stétt. Þá þótti okkur óhjákvæmilegt að fá rannsókn til að fá botn í mál- ið,“segirMagnús. -GHS „Við þurfum ekkert að hafa vélfryst skautasvell, þaö er fínt að renna sér hérna við veginn," sögðu vinkonurnar Inga Dóra og Karen Dröfn sem urðu á vegi DV í Blönduhlíð I Skagafirði þar sem þær renndu sér fimlega á skautum meöfram þjóðveginum. DV-mynd gk -segir JónasÞór „Það er nöturlegt að fá þessa hækkun núna, segir Jónas Þór kjötverkandi um nautakjöts- hækkunina. „Forráðamenn kúabænda haía sagt að hækkunin þýði 5-7% hækkun til neytenda. Þeir geta auðvitað ekkert fullyrt um slíkt. Sú taia er villandi því á sama tíma og kjötið hækkar núna er verið að afeema afslátt sem hefur verið í gangi. Mér sýnist að smásölu- hækkunin verði 10-12%. Þegar kemur að því að ég og aðrir hækka kemur upp gamla dæmið að við, úrvinnslu-og smásöluaöil- ar, verðum kallaðir þjófar og ræningjar." AriTeitsson: „Eg viðurkenni að það er slæmt að þurfa að hækka verðið núna. Þaö verður hins vegar hka aö vera möguleiki á að framleiða vöruna. Nautakjöt hefer verið á undirverði síðustu tvö ár. Þetta er spurning um hvort menn eigi að lifa af þessu eða ekki. Ég átti við í viðtahnu að iandbúnaðar- verö í heild hækkaði ekki. Það geta síöan oröið sveiflur í ein- stökum tegundum,“ sagöi Ari Teitsson, formaður Bændasam- takanna, við DV í tilefei af nauta- kjötsverðhækkuninni. Ari sagði í helgarviðtah i DV á dögunum að verð á landbúnaöar- vörum myndi ekki hækka á meö- an hann væri við völd. Skagablaðiðhættir Skagablaðið á Akranesi kom út í síðasta á mánudag, 3. apríl. Út- gefendur hafa gefist upp á gefa blaðíð út. Það skilar ekki þeim tekjum sem þarf. Sigurður Sverr- isson ætlar ekki aö reyna framar við útgáfu blaðsins. I dag mælir Dagfari Misskilinn Sjálfstæðisflokkur Nýjustu skoðanakannanimar eru ekki góðar fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Hann er kominn niður í 33% atkvæða sem er með því lægsta sem sést hefur á þeim bæ. Enda er Dav- íð formaður afar sleginn yfir þess- um tíðindum og htur þau alvarleg- um augum. Það er auðvitað grafalvarlegt mál ef kjósendur ætla að bregðast Sjálf- stæðisflokknum á örlagastundu og leiða vinstri stjóm yfir þjóðina. Og þar sem kjósendur og þjóðin er einn og sami hópurinn er fólkið í landinu að kalla yfir sig miklar hörmungar og getur svo sem sjálfe sér um kennt. Það er þá ekki við Sjálfstæðisflokkinn að sakast ef svo fer aö hann tapi fylgi og þjóðin fái vinstri stjóm í staðinn. Hún á þá ekki annaö skihð. Sannleikurinn er sá aö Sjálfstæð- isflokkurinn getur ekkert gert 1 þessari stöðu fyrir þjóðina meira en hann hefur gert. Ef þjóðin kann ekki gott að meta er það hennar vandamál. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjómað landinu á miklum þrengingatímum aö undanfómu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að burðast með Alþýðuflokkinn í ríkisstjóm og ekkert haft nema ama og leiðindi af því samstarfi. Samt hefur Sjálfstæðisflokkurinn þraukað það stjómarsamstarf og látið ýmislegt yfir sig ganga og nú kemur Alþýðuflokkurinn í bakið á Sjálfstæðisflokknum og er að reyna að veiða atkvæði út á ríkisstjómina þegar það hggur ljóst fyrir að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur borið hita og þunga sfjómarsam- starfsins. Það er Sjálfstæðisflokk- urinn sem getur státað af ríkis- stjórninni en ekki Alþýðuflokkur- inn sem þar hefur bara verið tíl angurs og ónæðis. Sjálfstæðisflokkurinn hefur var- að við hættunni sem fylgir því ef flokkurinn fær ekki gott kjörfylgi. Flokkurinn hefur sagt frá því hvað hann hefur gert en hann hefur hins vegar ekki látið undan þeirri freist- ingu að segja hvað hann ætlar að gera ef hann verður áfram í stjóm. Það em ekkert nema gylhboð og blekkingar og lýöskrum þegar flokkar em með kosningaloforð í kosningum og Sjálfstæðisflokkur- inn er yfir slíkt glamur hafinn. Kosningabaráttu Sjálfstæðis- flokksins felst í því að segja ahs ekki neitt um það sem flokkurinn ætlar að gera, enda er það ábyrgð- arleysi og skrum að lofa að gera eitthvaö eftir kosningar. Það er jafnffamt óábyrg póhtík að selja fram stefnu sem tekur af skariö um hin ýmsu vandamál í þjóðfélaginu. Það gerir Sjálfstæðisflokkurinn ekki og samt ætlar þjóðin ekki að kjósa flokkinn. Tökum til dæmis kvótamáhö sem menn em að rífast um. Það væri óábyrgt að hafa skoðun á því máh umfram það sem einstakir fram- bjóðendur segja. Formaöur flokks- ins og forysta hans leggst ekki svo lágt að hafa skoðun á kvótamáhnu aðra en þá að það verður auðvitað að skoða máhð út frá þeim sjón- armiöum sem fram koma í flokkn- um að kosningum loknum. Það veit enginn hvað verður ofan á í flokknum og þess vegna er ótímabært að hafa skoðun á því hvað flokkurinn muni gera í kvóta- málunum fyrr en það liggur fyrir hvað flokkurinn vill. Formaður flokksins og forysta halda að sér höndum á meðan í kvótamáhnu og Evrópumálunum og tilvísunar- skyldimni og landbúnaðarmálun- um vegna þess að þaö kemur að því að flokkurinn þurfi að setjast í stjóm og þá er ekki skynsamlegt að hafa bundið hendur sínar með kosningaloforðum sem ekki er hægt að standa við. Sjálfstæðisflokkurinn gerir ekki slíkt þótt aðrir flokkar geri slíkt. Sjálfstæðisflokkurinn ætlast til að fólk kjósi flokkinn til aö koma í veg fyrir það að vinstri stjóm setjist að völdum en ef þjóðin vih ekki Sjálf- stæðisflokkinn til valda þá er það ekki Sjálfstæðisflokknum að kenna og þá verður þjóðin að fá það sem hún kýs. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að breyta sér eða stefnu sinni eða hafa skoðanir á einhverju sem aðrir hafa skoðanir á þótt flokkurinn hafi minnkandi fylgi. Þá verður bara að hafa það og það er þjóðinni fyrir verstu. Ef svo fer veröur það þjóðin sem tapar kosningunum en ekki Sjálf- stæðisflokkurinn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.