Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1995, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995
Skýrsla um samfélag, bók
Tómasar Gunnarssonar, er um
leyndarbréf Hæstaréttar, meint
lögbrot æðstu embættismanna
og þögn kerfisins. Verð kr. 1.980.
Antik
Útsala
70%
m
lí* '&r
■ ■•fS:AVV'i
Sœnsk gœðavara á góðu verðl
-8° 7.600 kr.
-15“ 10.750 kr.
-25“ 14.250 kr.
0 ÚTILÍF
Glæsibæ, Álfheimum 74, s: 581 2922
Dii’lílnR: siml 508 9.''H
Utlönd
Tvær stærstu uppreisnarfylkingar múslima réðust á borg á Filippseyjum:
Lögðu bæinn í rúst
og drápu 38 manns
Tvenn stærstu samtök uppreisnar-
sinnaðra múslíma á Filippseyjum
eru talin hafa tekið sig saman og
gert árás á bæinn Ipil á eyjúnni
Mindanao á suðurhluta Filippseyja í
gær. Miðbærinn var lagður í rúst og
að minnsta kosti 38 manns drepnir,
þar af sex lögreglumenn og fjórir
hermenn. Meðal hinna látnu er lög-
reglustjórinn í bænum. Ekkert er
vitað um tilefni árásarinnar. Sam-
tökin hafa áður deilt sín í milli og
er þetta í fyrsta sinn sem þau vinna
saman.
Talið er að um 200 menn, mjög vel
vopnum búnir og í herklæðum, hafi
gert árásina. Komu þeir á bátum um
hádegisbilið í gær og hófu strax villta
skothríð á allt sem hreyfðist og virt-
ust ekki hafa nein fyrirfram ákveðin
skotmörk. Þeir skutu beint inn í
mannmergðina og fólk sem sat inni
á veitingastöðum. Þeir rændu einnig
fjóra banka og skutu hvern þann sem
hreyfði sig. í einum bankanum fund-
ust sjö lík. Miðbærinn stóð enn í ljós-
um logum í morgun og lík lágu á
götum úti. Helsti verslunarkjarni
þessarar 150 þúsund manna borgar
er rústir einar og eldar loga víða.
Árásaraðilamir létu skotum rigna
yfir höfuðstöðvar lögreglu og hers
rétt áður en þeir stukku á flótta. Á
flóttanum skutu þeir meðal annars á
liggjandi fólk og bnmaverði sem
börðust við eldana. Herliðinu í borg-
inni bættist liðstyrkur skömmu eftir
árásina en hann kom of seint, upp-
reisnarmennimir voru horfnir á
brott.
Flestir íbúar Filippseyja em kaþól-
ikkar. Minnihluti uppreisnarsinn-
aðra múslíma hefur oft staðið fyrir
uppþotum í suðurhluta landsins síð-
ustu áratugi. Á áttunda áratugnum
létu um 50 þúsund manns lífið í árás-
um múslíma en þá ríkti striðsástand
á svæðinu. Árásin á Ipil í gær er þó
sú alvarlegasta sem orðið hefur á
svæðinu síðustu ár.
Ekkert hefur enn spurst til árásar-
mannanna. Ríkisstjórn Fidels Ram-
osar forseta, sem haldið hefur marga
friðarfundi við uppreisnarhópa mús-
líma að undanfomu, gaf í gær her-
sveitum, sem leita árásarmannanna,
leyfi til að drepa þá hvar sem þeir
sæjust.
Reuter
38 létu lífið í árás uppreisnarfylkinga múslíma á bæinn Ipil á suðurhluta Filippseyja í gær og tugir slösuöust.
Miðbærinn er rústir einar. Símamynd Reuter
jf'iP'* 4 3 Bfy 1% ■ . - Wjr j . 1
: L , t 7 J 1
Stuttar fréttir
Ósonlagið yfir Noregi verður
hættulega þunnt á næstunni.
Magn útfjólublárra geisla gæti
aukist um 50% næstu daga. Varað
er við sólböðum um páskana.
Hútúarreknirheim
Hersveitir frá Tansaníu reka
hundmð flóttamanna hútúa aftur
til Búrúndi þrátt fyrir dagleg
fjöldamorð þar.
Ekkertgengur
Tyrkjum verður lítið ágengt í
aðgerðum sínum gegn Kúrdum I
Norður-írak. Bardagar hafa nú
staðið í 17 daga.
Bill blídkar John
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
sctirevnirhvað
hann getur til
að blíðka John
Major, forsæt-
isráðherra
Bretlands, sem
er f heimsókn f
Bandaríkjunum, eftir ósætti
þeirra um raálefni Norður-
Irlands.
Reuter/NTB
Sj álfs tæöi sfl okkurinn í Reykjavík óskar eftir sjálfboðaliðimi til margvíslegra starfa á kjördag, laugardagiim 8. apríl
^qöidag - getur þú
Allir sem eru reiðubúnir að
hjálpa til cru hvattir til að
hafa samband við hverfa-
skrifstofurnar eða skrifstofu
Sj álfstæðisflokksins
í síma 682900.
BETRA
ÍSLAND
A