Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
Launafólk
Mætum öll í kröfugönguna og á útifundinn 1. maí.
Safnast verður saman við Hlemm kl. 13.30.
Gangan leggur af stað kl. 14.00.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
í Reykjavík
OPIÐ HÚS
Opið hús hjá Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur eftir
útifundinn á Lækjartorgi 1. maí í Húsi verslunarinnar
á fyrstu hæð. Kaffiveitingar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Sumarbústaðabyggð í landi Norðurkots,
Grímsneshreppi
Hér með er lýst eftir athugasemdum við tillögu að
deiliskipulagi í landi Norðurkots, Grímsneshreppi.
Tillagan nær til núverandi og fyrirhugaðrar sumarbú-
staðabyggðar.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Grímsneshrepps
og hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166, á skrifstofu-
tíma, frá 3. maí til 31. maí 1995.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu Grímsneshrepps
í síðasta lagi 6. júní 1995 og skulu þær vera skriflegar.
Oddviti Grímsneshrepps
Skipulagsstjóri ríkisins
BÍLASALA KEFLAVÍKUR
Til sölu Ford Econoline 7,3 dísii, árg. 9M2, ekinn
34 þús. km, innréttaður bíll, 44" dekk, 38"
dekk og feigur fylgja. skipti möguleg.
Upplýsingar ueitir Bílasala Keflavíkur í síma
92-14444 og e. kl. 20 í síma 92-12247.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
byggja birgðageymslu við Óseyri 9 á Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagn-
sveitna ríkisins, við Óseyri 9, Akureyri, og Laugavegi
118, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 3. maí
1995 gegn kr. 10.000 í skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins á Akureyri fyrir kl. 10.00 föstudaginn 19. maí
1995 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóð-
enda sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu:
„RARIK-95004 Akureyri-Útboð 2“
Verkinu á að vera að fullu lokið laugardaginn 30.
september 1995.
RAFMAGNSVEITUR
RÍKISINS WcuuUa#,
LAUGAVEGI 118-105 REYKJAVlK
SlMI 91-605500 • BRÉFSlMI 91-17891
Matgæðingur vikunnar
Frískur rækju-
forréttur og inn-
bakaður lax
Það er Stefanía Haraldsdóttir,
húsmóðir í Reykjavik, sem er mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Stefanía býður upp á frískan
rækjuforrétt og innbakaðan lax
með fylbngu. „Þennan forrétt hef
ég mikið á sumrin. Hann er mjög
frískandi með grillréttunum. Lax-
inn er uppáhaldsuppskriftin mín.
Hann elda ég líka oft á sumrin og
hann er mjög vinsæll hjá fjölskyld-
unni,“ segir hún. Uppskriftina að
forréttinum bjó Stefanía til sjálf en
aðalrétturinn er fenginn úr danskri
bók sem hún segist nota mjög mik-
ið.
Frískur
rækjuforréttur
250 g rækjur
, Vi dós ananaskurl
1 græn paprika
Sósa:
/i dós mayonaise
1 dós sýrður rjómi
safi af ananaskurh
tómatsósa og worchestershiresósa
eftir smekk.
Stefanía blandar rækjunum og
ananaskurUnu saman (safinn er
tekinn af kurlinu að mestu) og
kælir. Paprikan er skorin mjög
smátt og blandaö saman við rækj-
Stefanía Haraldsdóttir.
urnar. Öllu blandað saman sem á
að fara í sósuna. Stefanía ber rétt-
inn fram með ristuðu brauði. Upp-
skriftin er hugsuð fyrir fjóra.
Innbakaðurlax
með fyllingu
2 stór laxaflök
500 g ýsuflök
600 g smjördeig (frosiö)
5 dl sýrður ijómi
3 beikonsneiðar
1 egg
2 sítrónur
salt og pipar
Hitið ofninn í 220 gráður. Roð-
flettið laxaflökin og hreinsið vel.
Sefjið ýsuflökin í blandara, setjið
sýrða rjómann og eggjahvítuna
saman við, kryddið með salti og
pipar. Kæhð maukið. Fletjið smjör-
deigið út, smyijið ýsumaukinu á
milh laxaflakanna, vefjið beikon-
sneiðunum utan um og klæðið fisk-
inn í smjördeigið. Stefanía skreytir
síðan með afskurði af deiginu og
penslar meö eggjarauðu.
Bakiö í ofni í 20 mínútur og
minnkið hitann í 180 gráður og lát-
ið vera í 15 til 20 mínútur í viðbót,
eða þar til deigið er orðið ljós-
brúnt. Skerið sítrónumar og
skreytið laxinn. Borið fram með
soðnum smjörsteiktum kartöflum,
skreyttum með fersku diUi. Upp-
skriftin er fyrir fjóra til sex.
Stefanía skorar á Sigrúnu Ólafs-
dóttur, kennara og húsmóður, vin-
konu sína að vera næsti matgæð-
ingur.
Eftir helgina má fá uppskriftina í
Símatorgi DV. Símanúmerið er 99
17 00.
Hinhlidin
Ætla að spila
meira og meira
- segir Szymon Kuran borgarlistamaður
Borgarlistamaður Reykjavíkur
sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni. Það er tónUstarmaðurinn
Szymon Kuran. Szymon er fæddur
í Póllandi en fluttist til íslands árið
1984 og hefur getið sér gott orð á
tónhstarsviðinu. Hann hefur leikið
með Sinfóníuhljómsveitinni meira
og minna frá því hann kom til
landsins og spUað með hljómsveit
sinni, Kuran Swing, síðustu fimm
árin. Hann segir að styrkurinn sem
hann fékk frá Reykjavíkurborg gefi
sér meiri tíma til að sinna tónUst-
inni. Hann stefnir á að halda eina
stóra og „grand“ tónleika með
haustinu.
Fullt nafn: Szymon Kuran.
Fæðingardagur og ár: 16. desember
1955.
Maki: Enginn.
Böm: Þrjú.
Bifreið: Lada Sport, árgerð 1995.
Starf: TónUstarmaður.
Laun: 80 þúsund (eins og er).
Áhugamál: Ég hef gaman af því aö
smíða og dunda mér heima. Ég
elska Uka að fara í gönguferðir.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég vann einu smni í Smá-
auglýsingapotti DV.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Elskast.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Sofa.
Uppáhaldsmatur: Góðar steikur og
súpur.
Uppáhaldsdrykkur: Te. Ég er mik-
U1 temaður. Rauðvín er Uka í uppá-
Szymon Kuran, borgarlistamaður
Reykjavíkur.
haldi hjá mér.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Magnús Scheving.
Uppáhaldstímarit: Time og
Newsweek.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Litla
dóttir mín, hún Anna Kolfmna.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Þeir verða að fá að
sanna sig. Ég hefði þó vUjað sjá Jón
Baldvin Hannibalsson áfram sem
ráðherra.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Góðan umboösmann sem
er með mikið af peningum í vösun-
um.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikkona: Áður fyrr var
það Jane Fonda.
Uppáhaldssöngvari: Það er pólsk
léik- og söngkona sem heitir Eva
Demarczyk.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Það
var hér áður fyrr Olof Palme en
enginn eins og er.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Engin.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Náttúru-
lífsmyndir.
Uppáhaldsmatsölustaður/veitinga-
hús: Mér finnst gaman aö fara á
Asíu á Laugaveginum. Ég fæ mér
yfirleitt núölusúpur.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Það er bók sem heitir „How to stop
worrying and start living" eftir
Dale Camegie.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ríkisútvarpiö (Gufan).
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ólafur
Þórðarson.
Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi meira á Sjón-
varpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Heimili
mitt þegar krakkamir mínir eru
heima.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? KR.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Spila meira og meira.
Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí-
inu? Það er óvíst ennþá. Ég ætla
að ferðast eitthvað, annaðhvort hér
innanlands eða þá fara til Póllands.