Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
Fréttir
Bjöm Bjamason menntamálaráðherra:
Skólagjöld verða
ekki felld niður
sama skapi verða menn að vera
reiðubúnir að velja og hafna þegar
um opinberar styrkveitingar til
menningarmála er aö ræða.“
Hvað munt þú gera í málefnum
Listaháskólans?
„Við samþykktum á síðasta þingi
frumvarp til laga um listmenntun
á háskólastigi. Þar er gert ráð fyrir
því að ríkið geti gert samning við
aðila sem koma listaháskóla á lag-
girnar. Ég vonast til þess að það
verði unnið markvisst að því að
hrinda þessu máh í framkvæmd.
Ríkið hefur heitið því að leggia skó-
lanum til húsnæði í Laugarnesi og
kaupa af honum þjónustu."
Nemendur og kennarar segja SS-
húsið í Laugarnesi heilsuspillandi.
Verður úrbótum hraðað?
Yfirheyrsla
Kristján Ari Arason
„Framkvæmdum við húsiö er
ekki lokið. Þeim þarf að ljúka sem
fyrst til að húsið sé ekki heilsuspil-
landi. Annað er óforsvaranlegt."
Margir skólamenn segja að geng-
isfelling hafi orðið á stúdentspróf-
inu og því þurfi að koma á inntöku-
prófum á háskólastiginu. Ertu
sammála þessu?
„Almennt séð er ég ekki neikvæð-
ur gagnvart þeirri hugmynd að
skólinn fái heimild til að ákvaröa
inntökuskilyrðin, til dæmis að viö-
hafa inntökupróf. Skólinn verður
að hafa svigrúm og möguleika til
að ákvarða eigin þróun.“
Námsmenn hafa lýst yfir megnri
óánægju með eftirágreiðslu náms-
lána. Ætlar þú að breyta núverandi
fyrirkomulagi?
„í stefnuyfirlýsingu ríkisstjóm-
arinnar stendur að endurskoða eigi
lög og reglur um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna. Þetta verður
gert en það fer náttúrlega eftir því
hvemig fjárhag sjóðsins er háttað
og hvað tilteknar breytingar kosta
hvað gert verður. Við tókum við
sjóönum í greiðsluþroti og ég mun
ekki stuðla að neinu því í starfi
mínu sem menntamálaráðherra
sem stefnt geti sjóðnum í þrot á
nýjan leik. Menn geta haft mis-
munandi skoðanir á því hvernig
kerfið er uppbyggt en stefna ríkis-
stjórnarinnar gengur út frá því að
það verði byggt á núverandi kerfi.“
Hvaða óskamál átt þú þér nú þeg-
ar þú ert nýsestur i stól mennta-
málaráðherra?
„Ég á þá ósk heitasta að ég geti
stuðlað að jákvæðari umræðu um
mennta- og menningarmál en verið
hefur. Verkföll og átök hafa lamað
skólastarfið og oft á tíðum ræða
menn um menningu og menning-
arstarf meö neikvæðum formerkj-
um. Með því að vera aðeins já-
kvæðari mætti sameina menn til
nýrra átaka.“
Verður samkeppnisstaða ljós-
vakamiðla jöfnuð?'
„Ég ætla ekki að tjá mig um ein-
stök atriði í rekstri Ríkisútvarps-
ins. í stjórnarsáttmálanum segir
að jafna eigi aðstöðumun þar sem
ríkið stundar atvinnurekstur í
samkeppni við einkaaðila. í þessu
sambandi er enginn undanskilinn,
hvorki Ríkisútvarpið né aðrar
stofnanir. Sem menntamálaráð-
herra hlýt ég að fara eftir því sem
stendur í þessum sáttmála."
Munt þú beita þér fyrir afnámi
skylduáskriftar að Ríkisútvarpinu?
„í málefnum Ríkisútvarpsins mun
ég beita mér fyrir því að markmið
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar nái fram að ganga. Þar er
ekki ályktað beint um þessa
skylduaðild en ég tel að Ríkisút-
varpið þurfi að laga sig að þeirri
stefnumörkun. í sumar mun ég
gera verkefnaáætlun og þá munu
menn sjá hvað stjórnarflokkarnir
koma sér saman um.
Ég hef ekki staðið að pólitískri
stefnumótun um afnám skylduað-
ildar en hins vegar er ég talsmaður
þess aö menn séu ekki neyddir til
að vera í félögum sem þeir vilja
ekki eiga aðild að.“
Kemur einkavæðing á Ríkisút-
varpinu til greina?
„Ríkisstjórnin starfar á þeirri
forsendu að hún hafi meirihluta á
Alþingi. Við verðum að fylgjast
með því hvernig Ríkisútvarpið lag-
ar sig að nýjum aðstæðum og þeim
markmiðum sem sett eru í stjórn-
arsáttmálanum. Mínar persónu-
legu skoðanir í þessu máli eru
aukaatriði í þessu sambandi."
Þjóðleikhúsið, Þjóðskjalasafnið
og Þjóðminjasafnið eru í húsnæði
sem þarfnast úrbóta? Verður gert
eitthvað í málefnum þessara safna
á kjörtímabilinu?
„Já, það verður gert. Ég er ekki
farinn að skoða einstök mál á þeim
forsendum að ég vilji tíunda það
nákvæmlega hvað ég sjái fyrir
mér.“
Forveri þinn í menntamálaráðu-
neytinu, Ólafur G. Einarsson, setti
sér það markmið í upphafi ráð-
herraferils síns að Ijúka byggingu
Þjóðarbókhlöðunnar. Átt þú þér
eitthvert viðlíka markmið?
„Þjóðin ákvað að gefa sér Þjóðar-
bókhlöðuna í afmælisgjöf árið 1974.
Meö miklu atfylgi Ólafs G. Einars-
sonar og ríkisstjórnarinnar var
lögð áhersla á að ljúka fram-
kvæmdunum á síðasta ári. Núna
er ekkert sambærilegt verkefni í
gangi en auðvitað á maður sín
áhugamál en ég ætla ekki að tjá
mig um þau að svo stöddu."
Hvað vilt þú láta gera við Safna-
húsið við Hverfisgötu?
„Ég tel aö Safnahúsið eigi að
verða tákn um menningarlega
reisn þjóðarinnar og að starfsemin
eigi að vera þess eðlis að almenn-
ingur hafi tækifæri og tilefni til
þess að koma í húsið.“
Mikill styr hefur staðið um Menn-
ingarsjóð útvarpsstöðva undanfar-
in ár og að undanförnu hefur starf-
semi sjóðsins að stórum hluta legið
niðri. Hvað verður um þennan sjóð?
„Á þessu vandamáli þarf að taka.
Leiki vafi á framtíð hans þarf að
binda enda á þann vafa. Burt séð
frá þessum sjóði þá þarf að efla ís-
lenska dagskrárgerð. Það er mjög
mikilvægt fyrir framvindu mála í
kvikmynda- og sjónvarpsmynda-
gerð að það séu sköpuð þau skil-
yrði að hægt sé að fullnægja áhuga
og þörf manna fyrir þetta efni. Mér
finnst aö opinberir aðilar eigi með
einum eða öðrum hætti að leggja
þar á hjálparhönd."
í menntamálaráðuneytinu eru
Qölmargir sjóðir sem niðurgreiða
vörur og þjónustu listamanna og
annarra. Er þarna um að ræða
sjóðasukk eða er þetta nauðsynleg-
ur þáttur í menningarlífinu?
„Hugtakið sjóðasukk á ekki við
þegar rætt er um þetta. Ég held að
það sé sátt um það í þjóðfélaginu
að hið opinbera standi að menning-
arstarfsemi með fjárframlögum og
geri það með fé frá almenningi. En
auðvitað á að reka allar menning-
arstofnanir sem hagkvæmast og að
Hvaða skoðun hefur þú á stofnun
uppeldisháskóla?
„Það væri mjög skynsamlegt aö
koma á laggirnar uppeldisháskóla
og miða aö því að hann væri starf-
ræktur sem næst Kennaraskólan-
um. Ég mun leggja mitt af mörkum
til þess að hugmyndin nái fram að
ganga."
Verða skólagjöld aukin eða felld
niður á kjörtímabilinu?
„Þau verða ekki felld niöur en
um aukningu ætla ég ekkert að
fullyrða."
Ert þú sammála þvi að fram-
haldsskólinn verður styttur eins og
síðasta ríkisstjórn ráðgerði?
„Það væri æskilegt að stytta
framhaldsskólastigið um eitt ár.
Verkfallið í vetur sýnir okkur að
það er hægt að gera hlutina á
skemmri tíma en gert hefur verið.“
Verður framhaldsskólafrum-
varpið endurflutt á Alþingi í haust?
„Já.“
Deilt hefur verið um hvort enska
eða danska eigi að vera fyrsta er-
Ienda tungumálið í skólum. Hver
er afstaða þín?
„Danskan á að vera fyrsta er-
lenda tungumálið."
Sérð þú ástæðu til að gera ein-
hverjar breytingar á grunnskóla-
lögunum sem Alþingi samþykkti í
vor?
„Nei, ég sé enga ástæðu til þess.
Það náðist mjög góð sátt um málið.“
Eins og í fyrri grunnskólalögum
er í nýju lögunum kveðið á um ein-
setna skóla, samfelldan skóladag,
skólamáltíðir og færri nemendur í
bekkjum. Verður þessum úrbótum
frestað?
„í ágúst 1996 eiga sveitarfélögin
að taka grunnskólann að sér og það
má ekki reisa þeim hurðarás um
öxl með því að fara út í einhverjar
stórbreytingar á næsta skólaári.
Þetta eru allt spurningar um fjár-
muni. Ef maður hefði ótakmarkaða
fjármuni og gæti gert allt sem mað-
ur vildi þá væri heimurinn allt
öðruvísi. Til þessara mála verðum
við að taka afstöðu á grundvelli
þeirra fjármuna sem við höfum.“
Samanburður á skólastarfi í
OECD-ríkjunum leiðir í ljós að ís-
lensk börn fá mun minni kennslu
en víðast annars staðar. Margir
telja þetta bera vott um að við séum
að dragast afturúr hvað varðar
menntun?
„Það er mjög alvarlegt ef svo er.
Ég tel að aukin menntun og öflug
menning sé besta leiðin til þess að
auka möguleika okkar íslendinga
til að nýta þau tækifæri sem í boði
eru á alþjóðlegum vettvangi.“
Forveri þinu 'fráðuneytinu var
gagnrýndur fyrir hversu erfitt væri
að ná tali af honum. Verður breyt-
ing á þessu?
„Hafi ástæðurnar verið þær að
sakir vinnuálags hafi hann ekki
haft tíma til að komast yfir allt sem
þurfti að gera þá mun ég kannski
lenda í sömu stöðu. En ef ástæð-
urnar eru aðrar þá er kannski
hægt að taka á máfinu. Ég vil hafa
ráðuneytið eins opið og nokkur
kostur er á til að geta tekið á móti
sem flestum og rætt við sem flesta.
Einnig vil ég fá tækifæri til að
heimsækja helst alla skóla á land-
inu og þær stofnanir sem heyra
undir þetta ráðuneyti."
Er að vænta róttækra breytinga
í starfsmannahaldi ráðuneytisins?
„Allt starfsmannahald á vegum
ríkisins er í mjög föstum skorðum."
-kaa