Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995 Dagur í lífl Páls Péturssonar félagsmálaráðherra: Fyrsti fundur ríkis- stjórnarinnar Páll Pétursson félagsmálaráðherra heilsaði upp á starfsfólkið í ráðuneyti sínu daginn sem hann tók við embætti. Á öðrum degi mínum sem félags- málaráðherra var ég kominn í ráðu- neytið klukkan níu en ég tók við lykl- unum úr hendi Rannveigar Guð- mundsdóttur tveimur dögum áður. Það hefur alltaf farið vel á með okk- ur. Ég bað hana lengstra orða að skilja eftir í ráðuneytinu svolítið af hpurð og huggulegheitum handa mér. Ég kynntist starfsfólkinu svolítið í gær og heilsaði öllum sem viðstaddir voru. Ráðuneytið er í tveimur hús- um. í Hafnarhúsinu er meiripartur starfseminnar en hins vegar er vinnumálaskrifstofan uppi á Suður- landsbraut og þangað fór ég hka ásamt ráðuneytisstjóranum, Berg- hndi Ásgeirsdóttur. Ég held að það sé gott starfsfólk sem vinnur í ráðu- neytinu. Og það sem ég hef séð af vinnunni flnnst mér vel skipulagt. Ég held aö þetta sé dugandi fólk og hlakka til samstarfsins við það. Vinir og kunningjar Fyrsti ríkisstjómarfundurinn var klukkan hálftíu og á honum var farið yfir nokkur atriði. Mér hst út af fyr- ir sig vel á þetta samstarf í ríkis- stjóminni. Ég þekki nú reyndar þá einstakhnga sem þar sitja og hef unnið með þeim og sumum þeirra nyög lengi. Þetta em persónulegir kunningjar mínar eða vinir. Á þess- um fyrsta fundi komu nú engin ágreiningsmál upp. Ég á svo sem ekkert von á þeim og veit ekki um nein í farvatninu. Eftir fundinn löbbuðum við Hah- dór Blöndal samgönguráöherra út í Hafnarhúsið en ráðuneytið hans er líka hér til húsa. Hann leit inn til mín og við spjöhuðum stundarkorn. Eins og ég sagði áöan líst mér vel á stjómarsamstarfið. Framsóknar- flokkurinn stóð frammi fyrir tveim- ur kostum að kosningum loknum, annaöhvort að mynda þessa ríkis- stjórn eða þá að ákveöa það að vera í stjómarandstöðu næsta kjörtíma- bil. Eftir hádegið átti ég fund um hús- bréfamáhð og annan um greiðsluað- lögun. Ég hef mikinn áhuga á því að ýta þeim málum úr höfn og koma þeim á skrið. Það hefur verið pínuht- ið fitjað upp á greiðsluaðlögunarmál- inu og ég er að ganga eftir því að fá þá vinnu í fullan gang. Hún hefur verið í biðstöðu og ég er að ýta á eft- ir því og eins húsbréfamáhnu. í sljómarsáttmálanum er kveðið á um að opna möguleika til lengingar á húsbréfunum, það er að segja að gefa þeim sem á því þyrftu að halda möguleika á því að lengja lánin og létta þannig greiðslubyrðina. Þetta hefur nú verið mistúlkað dáhtið í fjölmiðlum af þeim sem em á móti þessu. Góðlátlegar viðræður Ég átti svo samtal við Rannveigu út af ákveðnum málum og eins og ahtaf fór vel á með okkur. Síðan var þingflokksfundur kl. 16 og þar var þingflokknum vahn stjóm. Valgerð- ur Sverrisdóttir var kosin formaður og með henni era Ólafur Örn Har- aldsson og Siv Friðleifsdóttir. Vara- menn vom svo kosnir ísólfur Gylfi Pálmason og Hjálmar Ámason. Síð- an ræddum við samstarfið í þing- flokknum. Þá fór ég upp á Stöð 2 þar sem ég átti spjall, undir stjórn Kristjáns Más Unnarssonar, við Jóhönnu Sigurðar- dóttur, fyrrv. félagsmálaráðherra. Það voru góðlátlegar viðræður. Jó- hanna hafði nú orðið fyrir óhappi en Ólína Þorvarðardóttir, sem var nán- asta fylgdarkona hennar og prímus mótor í þessum sviptingum, sagði sig úr Þjóðvaka því hún er orðin leið á þessum gömlu hefðbundnu stjórn- málaflokkum og ólýðræðislegu vinnubrögðum. Eftir sjónvarpsumræöurnar skaust ég upp á Eir og heimsótti tengdamóð- ur mína sem dvelur þar. Síöan fór ég heim og lá í símanum fram eftir kvöldi og var kominn í háttinn ein- hvem tímann að ganga tólf eins og vant er. Ég sofnaði fljótlega. Svona leið nú annar dagur minn í embætti. Finnur þú finnn breytingar? 307 Skitt með það herra, ég var hvort sem er orðinn hundleiður á þessu starfi.J Nafn:. Heimili:............................................................... Vinningshafar fyrir þijú hundraðustu og fimmtu getraun reyndust vera: 1. Guðrún Rut Gunnlaugsd.2. Sig. Helgi Magnússon Lynghrauni 1 Blöndubakka 6 660 Reykjahlíð 109 Reykjavík Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími, að verðmæti kr. 4.950, frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækumar sem era í verð- laun heita Líki ofaukið og Bláhjálmur úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verð- mæti kr. 1.790. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 307 c/o DV, pósthólf 5380 . 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.