Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Side 23
LAUGARDAGUR 29. APRlL 1995
23
Sigmar B. Hauksson og gestir hans, þau Leifur Kolbeinsson og Valgerður
Hildibrandsdóttir.
Vorlaukaútsala 50% afsláttur
ö Qaröskálaplöntm 20% afsláttur
Píartöfluútsœó 00 áburður 1 /J Jt / &/7m$m§§kípfýM§mðmmí554 ©500
Hollt og gott í Sjónvarpinu:
lifurog
eplakaka
Nú hafa verið sýndir allir þættirnir
um hollt og gott mataræði sem Sig-
mar B. Hauksson hafði umsjón með.
Helgarblaðið átti eftir að birta tvo
síðustu þættina og verður það gert
hér. í fyrri þættinum var boðið upp
á hnetu- og eplaköku en í tólfta og
síðasta þættinum var það lambalifur
með sinnepssósu. Hér koma upp-
skriftirnar.
Hnetu- og eplakaka
Deig
150 g smjör
200 g hveiti
1 msk. sykur
2 msk. vatn
Skerið smjörið í teninga. Setjið
smjör, hveiti og sykur í kvöm.
Blandið þessu vel saman (í 15 sek.).
Bætið vatninu í blandið. Deiginu er
pakkað í plastfilmu og það sett inn í
ísskáp og geymt þar í 30 mín.
Fletjið deigið út og setjið það i form
(24 cm) og pikkið það með gafli og
bakið í 200 stiga heitum ofni í 10 mín.
Fylling
600 g (5-6) eph
150 g hnetur (heslihnetur, valhnetur
og pistasiur)
100 g smjör
1 dl púðursykur
2 msk. mjólk
1 msk. hveiti
Grófhakkið hneturnar, flysjið ephn
og skerið í sneiðar. Bræðið smjörið
og blandið saman við það hnetum,
sykri, hveiti og mjólk. Hrærið þessu
öllu vel saman. Setjið hnetufylling-
una í formið og stingið eplasneiðun-
um ofan í hnetublönduna. Kakan er
nú bökuð í 200 stiga heitum ofni í 25
th 30 mínútur.
Með þessari ljúffengu hnetu- og
eplaköku er gott að hafa vanihuís.
Lambaliíur meö
sinnepssósu
Sósa
6 msk. Dijon sinnep
1 msk. eplaedik
4 msk. maísoha
kryddsalt
Hrærið saman ohu og sinnepi.
Kryddið með eplaediki og kryddsalti.
800 g lambalifur, skorin í sneiðar
6 litlir grófsaxaðir skallottulaukar
1/2 dl balsamedik
1 msk. smjör
1 msk. matarolía
salt og pipar
Hreinsið lifrarsneiðarnar vel og
vandlega, skerið í burtu æðar og
himnur. Setjið smjör og matarolíu á
heita pönnu. Steikið laukinn og lifr-
arsneiðarnar á vel heitri pönnunni.
Aukið við hitann og hehið balsamed-
ikinu á pönnuna. Kryddið með salti
og pipar. Takið pönnuna af hellunni.
Skammtið sinnepssósuna á fjóra
diska og setjið svo lifrarsneiöamar
og laukinn ofan á.
Með þessum rétti er gott að hafa
soöin hrísgrjón og spergilkál.
Blákaldar
staðreyndir og samanburður á kjörum staðfesta kosti TM trygginga
Lækkun iðgjalda á fasteigna- og fjölskyldutryggingum. Viðskiptavinir TM fá endurgreiðslu frá og með 1. apríl 1995.
Hækkun á bónus. Hæsti bónus kaskótrygginga hækkar úr 40% í 50% frá og með 1. maí 1995. Ef kaskótjón verður útvegar TM bílaleigubfl í allt að 5 daga.
Tveir gjalddagar og engin sjálfsábyrgð. Greiðslur á ábyrgðar- tryggingum ökutækja skiptast niður á tvo gjalddaga á ári og sjálfsábyrgð er engin.
Prósentur segja ekki allt, staðreyndir og samanburður leiða í Ijós að TM tryggingar eru hagkvæmar tryggingar. Kynntu þér góð kjör á tryggingum hjá TM.
Lækkun iðgjalda á fasteigna- og fjöiskyldutryggingum
Hækkun á bónus í kaskótryggingum <g)
Tveir gjalddagar og engin sjálfsábyrgð í ábyrgðartryggingum ökutækja TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF. - þegar mest á reynir! | > Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.