Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDÁGUR 29. APRÍL 1995 Litli Iþróttaskólinn Laugarvatni Stórkostlegt tækifæri fyrir 9 til 13 ára stelpur og stráka fyrir aðeins 16.100.- krónur ATH. sérstakur vina- og systkinaafsláttur! 1. námskeið 18.-25. júní 2. námskeið 26.júní-1. júlí 3. námskeið 2.-8. júlí 4. námskeið 9.-15. júlí Upplýsingar og skráning í síma: 98-61151 fax: 98-61255 Skák í fyrsta sinn hafa þrír íslendingar tryggt sér þátttökurétt á millisvæðamótinu í skák: Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Helgi Áss Grétarsson. INNRITUNARKORT í Litla íþróttaskólann Laugarvatni Vinir sem skrá sig saman fá 1000,- kr. afslátt. Systkini fá 10% afslátt (1610 kr. hvert). Sendu skráningarkortið til: Litli íþróttaskólinn íþróttamiðstöð íslands 840 Laugarvatni ...eða faxar i 98-61255 Ég heiti:................................Námskeið: kt:................-........ 1.) 18.-25. júní ( ) Heimili:................................ 2.) 26.-01. júlí ( ) Póstnúmer:............................ 3.) 02.-08. júlí ( ) Nafn ábyrgðarmanns (greiðanda/foreldris): 4.) 09.-15. júlí ( ) Símanúmer:......... Vinnusími:......... *** Vinur/systkini heitir: kt:................. Ég vil gjarnan fá meiri upplýsingar um APOLLO hár. Nafn: --------------------------------------------------- Heimilisfang: ------------------------------------------- Hs. _________________1--------Vs. ----------------------- GREIFIM hársnyrtistofa Hringbraut 107. Sími 22077 Möguleikar... • Varanlegt hár • Hártoppar • Hárkollur • Hárflutningar • ísetningar Ókeypis ráðgjöf. Við sendum upplýsingar ef óskað er. Höfum þjónustu fyrir allar tegundir. Hárleysi? Þrír íslendingar á millisvæðamót - Jóhann sigraöi í aukakeppni um þriðja sætið Friörik Olafsson stórmeistari var fyrstur íslendinga til aö tefla á milli- svæöamóti og geröi það eftirminni- lega. Þetta var í Portoroz 1958 og ár- angur Friðriks nægði honum til þess aö komast í áskorendakeppnina þar sem átta skákmenn tefldu um réttinn til þess aö skora á heimsmeistarann Botvinnik. Nú hafa þrír íslendingar unnið sér þátttökurétt á millisvæðamóti í skák. Helgi Áss Grétarsson, sem heims- meistari unglinga, Margeir Péturs- son, sem varö í 2. sæti á Norður- landa- og svæðamótinu á Hótel Loft- leiðum og nú síðast - Jóhann Hjart- arson. Aukakeppninni um þriðja sætið lauk með sigri Jóhanns og danska stórmeistarans Lars Bo Hansen en Jóhann var hærri á stigum og kemst því áfram. Norðmaðurinn Jonathan TisdaU varð í 3. sæti, Helgi Ólafsson og Rune Djurhuus komu næstir og Pia Cramling rak lestina. í lokaumferðinni varð Tisaall að vinna Jóhann með svörtu til að hreppa sætið eftirsóknarverða en lenti snemma í ógöngum og tók til bragðs að bjóða jafntefli. Þar með var Jóhann öruggur áfram, jafnvel þótt Lars Bo, helsti keppinautur hans, ynni sína skák. Þrátt fyrir allt var Tisdall sáttur viö jafnteflið því að með því vonast hann til að ná 2500 Elo-stiga markinu og uppfylla skilyrði þess að verða útnefndur stórmeistari. Tisdall, sem er alþjóðlegur meistari, hefur náð tilskildum áfóngum að stórmeistara- titli en stigin hafa látiö bíða eftir sér. Óvíst er hvenær millisvæðamótið fer fram en að öðru óbreyttu ætti það að verða snemma á næsta ári. Raun- ar hefur Kasparov, serfc telur sig ráða lögum og lofum innan FIDE ásamt vini sínum Makarov, hótað því aö ekkert millisvæðamót veröi haldið vegna fyrirhugaðrar sameiningar heimsmeistarakeppni FIDE og PCA. Ef svo færi yrði það enn eitt reiðar- slagið fyrir atvinnuskákmenn sem undanfarin misseri hafa farið hall- oka í valdabaráttu forystumanna. Víkjum nánar að aukakeppninni. Teflt var við frábærar aðstæður á Grand Hótel Reykjavík sem sannar- lega var kærkomin breyting frá „gú- anóinu“ á Hótel Loftleiðum, eins og skákmenn hafa gjarnan nefnt neðri Umsjón Jón L. Árnason salina þar. íslendingar voru í aðai- hlutverkum, þvi að auk Jóhanns og Helga í úrslitakeppninni, tefldi Mar- geir kappskákir við öflug tölvuforrit. Honum tókst að leggja Chessicu frá TASC og W-Chess einnig en forritið fræga, Chess Genius, gerði sér lítiö fyrir og vann Margeir. Þessi forrit þykja áþekk í innbyrðis skákum en svo viröist sem Chess Genius eigi best með að ráða við mannfólkið. Rökver hf. stóð fyrir þessari athyglis- verðu keppni tölvunnar viö Margeir en Sprint, símakortafyrirtækið bandaríska og VISA ísland stóðu fyr- ir aukakeppninni, ásamt Grand Hót- el í Reykjavík. Skák Jóhanns viö Helga í þriðju umferð var besta skák úrslitakeppn- innar. Báðir þurftu nauðsynlega á vinningi að halda; Helgi eftir slysa- legt tap fyrir Tisdall í fyrstu umferð og Jóhann, sem deildi þá efsta sæti með Lars Bo. í fyrstu blés byrlega fyrir Helga, eftir djúphugsaða mannsfóm hans í byrjun miðtaflsins. Hann fygldi fóminni hins vegar ekki eftir af nægilegri nákvæmni óg Jó- hann sneri taflinu smám saman sér í vil. Hvitt: Jóhann Hjartarson Svart: Helgi Ólafsson Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rfi6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be7 8. Be3 Be6 9. 0-6 <M> 10. Rd5 Jóhann beitti þessum leik gegn bandaríska stórmeistaranum Nick de Firmian fyrir átta árum. Þá tefld- ist 10. - Rxd511. exd5 Bf512. Dd2 Rd7 13. a4 á514. Bb5 og hvítur náði undir- tökunum. 10. - Rbd7 11. Dd3 Bxd5 12. exd5 Dc7 Hér hefur 12. - He8 gefið betri raun, eða 12. - Rc5!? eins og Browne lék gegn King í stórveldaslagnum í Reykjavík 1990. Helgi hefur hins veg- ar nýstárlega hugmynd í huga. 13. c4 g6 14. f4 exf4 15. Bxf4 Re5!! Við fyrstu sýn virðist svartur vera að leika af sér manni en Helgi hefur skyggnst djúpt í stöðuna. 16. Bxe5 dxe5 17. d6 e4! 18. Dd4 Bxd6 19. Dxfi6 Bxh2 + 20. Khl Be5 21. Dh4 f5 Svartur hefur fengið tvö peö og öflugt fmmkvæði í skiptum fyrir manninn. Drottningin og biskupinn ráða ríkjum á svörtu reitunum og hvítur verður að fara að öllu með gát, vegna opinnar kóngsstöðunnar. 22. Hadl Had8? Frá og með þessum leik missir svartur þráðinn. Mögulegt var að þiggja „eitraða peðið“ með 22 - Bxb2, sem gefur svörtum prýðileg færi. 23. Hxd8 Hxd8 24. Dg5 Hf8 25. Hdl Bf4? 26. Dh4 Bg3 27. Dh6! Bf4 28. Dh3! E.t.v. hefur Helgi búist viö friðsam- legum lyktum taflsins en Jóhann sér ástæðu til að tefla áfram eftir óná- kvæmni svarts. 28. - Hd8 29. Hxd8+ Dxd8 30. g4! Að jafnaði er g-peðið mikilvægasti hlekkur kóngsstöðunnar en hér horfir málið öðmvísi við: Hvítum er nauðsyn á svigrúmi til þess að kom- ast hjá mátstefum. Um leið skapar hann veikleika í peðastöðu svarts. 30. - Dfi6 31. gxf5 gxf5 32. c5 Bc7? 33. Kgl! Be5 Ef 33. - Dxb2 34. Bc4+ og næst 35. Dxí5 og nú er hvorki mát í borðinu, né á h2. 34. Bc4+ Kg7 35. Dg2+ Kh6 36. Bd5 Bxb2 37. Bxb7 a5 38. Dh2+ Kg6 39. Dg3+ Kh5 40. c6 Be5 41. Dh3+ Kg6 42. Bc8! Hins vegar ekki 42. Rc5? (með hug- myndinni 42. - Bd4 + 43. Kfl Bxc5 44. c7) Dg5+ 43. Dg2 Bg3! og svartur snýr vöm í sókn. 42. - Dg5+ 43. Kfl Bg3 44. Ke2 Df4 45. Bxf5 + Einnig kemur 45. Dfl sterklega til greina. 45. - Kfi6 46. Rd2 Df2+? Eina vonin felst í 46 - Dxf5 47. Dxg3 Db5+ og krækja í c-peðið. 47. Kdl Del+ 48. Kc2 Bf4 49. Rxe4+ Ke5 50. Rc3! Nú em úrslitin ráöin. 50. - Df2+ 51. Kbl Dd2 52. a4 Be3 53. Dg4! - Og Helgi lagði niður vopn. Ef 53. - Dxc3 54. Dg7+ og læðist aö drottn- ingunni. Bridge Bridgefélag Seyðisfjarðar Nýlokið er aðalsveita- keppni félagsins og lokastaða efstu sveita varð þannig: 1. Aðalsteinn Einarsson 76 2. Jóhann P. Hansson 68 3. Kristinn Valdimarsson 60 4. Vilhelm Adolfsson 47 Fyrr í vetur var aðaltvímenningur spilaður með þátt- töku 16 para. Þar urðu efst eftirtalin pör: 1. Jóhann P. Hansson-Rögnvaldur H. Jónsson 2. Hjörtur Unnarsson-Jón H. Guðmundsson 3. Aðalsteinn Einarsson-Jón B. Ólafson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.