Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Síða 34
42
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
Sviðsljós
Kvikmyndastjaman Júlía Roberts:
Alveg miður sín eftir
skilnaðinn við Lovett
„Ég flnn að innri ró er að færast
yfir mig og að þétta var hárrétt
ákvörðun. Þetta var hið eina rétta. í
hvert sinn sem ég tala Við hann eða
horfi á mynd af honum hugsa ég: en
hvað ég er klár, en hvað ég er hepp-
in,“ sagði kvikmyndastjarnan Júlía
Roberts í júlí árið 1993, nokkrum
dögum eftir að hún hafði gengið að
eiga sveitasöngvarann Lyle Lovett.
Það var eftir því tekið hversu ham-
ingjusöm þau virtust vera en þau
höfðu aðeins þekkst í þrjár vikur
þegar þau giftust. Fljótlega fjaraði
þó undan sambandinu enda höfðu
þau nánast aldrei tíma til að vera
saman. Hún var alltaf við kvik-
myndatökur og hann var sífellt á
hljómleikaferðalögum.
Daginn eftir giftinguna sneri Júlía
rakleiðis aftur til Washington til að
ljúka upptökum á myndinni „The
Pehcan Brief' og hann hélt áfram
tónleikaferð sinni. í þann 21 mánuð
sem þau voru gift lék Júlía í fjórum
kvikmyndum en Lyle var nánast all-
an tímann á hljómleikaferðalagi.
Lengsti tíminn þau eyddu saman var
ein vika. Það kom því ekki mörgum
á óvart þegar þau tilkynntu um
skilnað sinn fyrir skemmstu. Vinir
þeirra og samstarfsmenn segja hins
vegar að þau hafi virst mjög ástfang-
inn og ánægð þegar þau voru saman,
það hafi bara verið svo sjaldan.
Það hefur ekki gengið vel í ástar-
málunum hjá Júlíu. Fyrst var hún
með leikaranum Kiefer Sutherland,
syni Donalds Sutherlands, árið 1991
en hún hætti við að giftast honum
nokkrum dögum áður en athöfnin
átti að fara fram. Síðan var hún með
leikaranum, og vini Kiefers, Jason
Patric en það samband entist aðeins
í rúmt ár. Hún var einnig í tygjum
við leikarann Ethan Hawke.
Júha er að sögn kunnugra alveg
miður sín yfir að samband þeirra
Lyle skyldi ekki hafa gengið upp.
Hún hefur verið mjög niðurdregin
að undanfómu, en það tók hana
einnig marga mánuði að jafna sig
eftir að hún og Kiefer hættu að vera
saman. Þá hætti hún meðal annars
kvikmyndaleik um nokkurt skeið.
Hún hefur verið í London að undan-
fomu að klára myndina „Mary
Reilly" og í þau fáu skipti sem til
hennar hefur sést hefur hún verið
mjög niðurdregin að sjá.
Þessi mynd var tekin þegar allt lék
I lyndi.
Júlia Roberts hefur verið mjög niðurdregin síðan hún og Lyle Lovett til-
kynntu að þau hygðust skilja. Þessi mynd var tekin af henni í London nýverið.
Eurovision söngvakeppnin:
Tíu ár síðan Bobbysocks unnu
- og þar með komst Noregur á blað
Norðmenn munu lengi elska Hönnu Krogh og Elisa- Norðmenn báru þær á höndum sér og þær brunuðu
betu Andreasen enda komu þær landinu í fyrsta sæti um landið í sérmerktum bíl - það var sannkallað La
i Eurovision-keppninni eftir 25 ára þátttöku. de swinge um allar jarðir á þeim tima.
Það gerðist í Gautaborg fyrir tíu
árum. Norðmenn unnu söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva í
fyrsta skipti eftir tuttugu og flmm
ára þátttöku. Það voru stúlkur tvær,
sem kölluðu sig Bobbysocks, sem
gerðu hiö ómögulega hinn sögulega
dag 4. maí 1985, eins og Norðmenn
segja: „Norðmenn gengu um í sigurv-
ímu í marga daga. Þetta er dagurinn
sem allir muna. Þó kynnirinn, Linn
Lindfors, hafi „misst“ pilsið fyrir
framan 600 milljónir sjónvarpsáhorf-
enda auk þeirra átta þúsund sem
sátu í salnum þetta kvöld og margir
minnist keppninnar þess vegna gild-
ir öðru um okkur Norðmenn. Þessi
dagur þýðir miklu meira fyrir okkur
Norðmenn - þennan dag unnuip við
Eurovision-keppnina,“ segir í Norsk
Ukeblad.
Norðmenn höfðu tvisvar áður orð-
ið heimsfrægir í Eurovision-keppn-
inni en það var þegar söngvaramir
Jahn Teigen og Finn Kalvik fengu
núU stig í keppninni árin 1978 og 1981.
„Það þurfti stúlkur til að koma okkur
upp úr öldudalnum. Það vora þær
Hanne Krogh og Elisabeth Andreas-
son sem náðu sigri út á lagið La det
swinge. Stúlkumar voru bomar á
guUstólum frá Svíþjóð og yfir til Nor-
egs.
Stúlkumar í Bobbysocks störfuðu
saman í fjögur ár og urðu mjög vin-
sælar. Þær ferðuðust tU sextán landa
og seldu milljónir eintaka af plötum
sínum. Og plötur þeirra komust í
fyrsta sæti vinsældahsta í átta lönd-
um.
Þær fóru síðan hvor sína leiðina í
tónlistinni en eru engu að síður enn-
þá góðar vinkonur.
Ólyginn
.. .að popparinn Boy George
hefði verið að gefa út ævisögu
sína. Þar segir hann frá öilu á
hreinskilinn hátt, timanum með
Culture Club, kynhneigð sinni,
en eins og allir vita er hann
hommi, og eilurlyfjaneyslu. Þá
mun vera væntanleg plata á
markaðinn með kappanum.
.. .að leikkonan Brooke Shieids
hefði rekið móður sína úr hlut-
verki umboðsmanns. Móðirin
mun hafa verið of ráðrík með
dótturina og var farin að skipta
sér af ástamálum hennar, hvað
þá annað. Móðirin vildi koma í
veg fyrir samband Brooke og
kærastans Andre Agassi en
hann var aftur á móti mjög pirr-
aður yfir afskiptaleysi tilvonandi
tengdó.
.. .að ung stúlka, Sheryl Crow,
hefði verið kosin besti nýi tóniist-
armaðurinn þegar Grammy-
verðlaunin voru afhent fyrir
nokkru. Hún fékk reyndar tvær
vjðurkenningar. Sheryl byrjaði
feril sinn sem fegurðardrottning
en síðan söng hún bakrödd
ásamt fieiri í tóniistarferðalagi
með Michael Jackson. Það mun
hins vegar hafa verið svo erfitt
að hún þurftl á læknismeðferð
að halda eftlr þá ferð.
að söngvarinn Simon Le Bon
úr hljómsveitinní Duran Duran
væri í vondum málum þessa
dagana. Ljósmyndari nokkur
náði honum nefnllega þegar
hann var að kyssa brjóst ungrar
stúlku á dögunum. Málið var að
hann og hinir strákarnir í hljóm-
sveitinni voru að gefa eiginhand-
aráritanir í plötubúð þegar ungur
aðdáandi klæddi sig úr að ofan
og bað Le Bon að skrifa á brjóst-
in. Það gerði hann með glöðu
gleði og kyssti þau létt i lelðlnni.
Heyrst hefur að kona hans, fyrir-
sætan Jasmine, sé ekki of hrifin
af tiltækinu.