Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1995, Síða 49
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1995
57
Afrnæli
100 ára:
Halldór Guðjónsson
Halldór Guöjónsson, fyrrv. skóla-
stjóri, Hraunbæ 103, Reykjavík,
veröur hundraö ára á morgun.
Starfsferill
HaUdór fæddist í Smádalakoti.
Hann lauk prófi úr 2. bekk VÍ1914,
stundaði nám við Kvöldskóla Ás-
mundar Gestssonar 1915-17, lauk
almennu kennaraprófi og söng-
kennaraprófi 1921 og dvaldi við nám
í Danmörku 1928. Auk þess lærði
hann húsateiknun hjá Húsameist-
araríkisins.
HaUdór var kennari við Barna-
skólann í Vestmannaeyjum 1921-39
og skólastjóri þar 1939-56, kenndi
við UngUngaskóla Vestmannaeyja
1921-24 og var skólastjóri kvöld-
skóla iðnaðarmanna 1932-55.
Hann flutti tU Reykjavíkur 1956
þar sem hann var endurskoðandi
hjá mælingafulltrúa Múrarafélags
Reykjavíkur 1956-75. Jafnframt var
hann aðstoðarmaður í fjármálaeft-
irliti skóla í nokkur ár.
Halldór var bæjarfuUtrúi í Vest-
mannaeyjum 1922-25, bæjargjald-
keri þar 1923-30, sat í yfirskatta-
nefnd Vestmannaeyja 1933-56, var
endurskoðandi hafnarsjóös 1933-36,
sjúkrahússins 1937^5 og sparisjóðs-
ins 1943-47, stjórnaði Karlakór Vest-
mannaeyja í eitt ár, sat í stjórn
Kennarafélags Vestmannaeyja og
síðan formaður Stéttarfélags barna-
kennara í Vestmannaeyjum 1933-39.
HaUdór hefur spUað bridge frá 1925,
var lengi í Bridgefélagi Vestmanna-
eyja og tók þátt í fjölmörgum keppn-
umþar.
Fjölskylda
HaUdór kvæntist 10.2.1922 Svövu
Jónsdóttur, f. 30.10.1902, húsmóður.
HaUdór og Svava skildu.
Sonur HaUdórs og Svövu er Sig-
urður Guöni, f. 13.4.1923, rafmagns-
verkfræðingur í Garðabæ, kvæntur
Sigrúnu Magnúsdóttur og eiga þau
fimmbörn.
HaUdór kvæntist 28.9.1932 Krist-
rúnu Jónsdóttur, f. 14.3.1901, kenn-
ara. Þau skUdu.
Halldór kvæntist 7.12.1940 EUnu
Sigríði Jakobsdóttur húsmóður.
Hún er dóttir Jakobs Þórðarsonar
og Helgu Guðmundsdóttur sem
bjuggu á Litla-Ósi og víðar í Mið-
firði.
Börn Halldórs og Elínar Sigríðar
eru Ragnar Ingi, f. 17.1.1941, tækni-
teiknari í Reykjavík og á hann fjög-
ur börn; Halldóra Margrét, f. 15.12.
1942, framhaldsskólakennari og
námsráðgjafi, gift Heiðari Þ. Hall-
grímssyni verkfræðingi og eiga þau
þrjúbörn.
Alsystkini Halldórs voru Sigríður,
f. 9.10.1888, látin, húsmóðir í
Reykjavík, og Guðni, f. 13.5.1892,
d. 1924.
Hálfsystkini Halldórs, samfeðra:
Guðrún, f. 11.8.1885, látin, húsfreyja
í Köldukinn í Holtum; Magnús
Bryngeir, f. 11.12.1908, látinn, hefils-
stjóri á Selfossi, og Guðmundur, f.
19.9.1912, bankastarfsmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Halldórs voru Guðjón
Guðnason, f. 29.1.1858, d. 1.1.1941,
b. í Smádalakoti, Sölvholti og Bitru
í Flóa, og k.h., HaUdóra HaUdórs-
dóttir, f. 7.6.1855, d. 17.7.1925, hús-
freyja.
Ætt
Guðjón var sonur Guðna, b. í
Brandshúsum í Flóa, Jónssonar.
Móðir Guðna var Guðrún Guð-
mundsdóttir, b. í Hellisholtum, Ól-
afssonar. Móðir Guðmundar var
Marín Guðmundsdóttir, ættföður
Kópsvatnsættarinnar, Þorsteins-
sonar.
Móðir Guðjóns var Katrín Guðna-
dóttir, b. í Þverspyrnu í Ytrihreppi,
Brynjólfssonar, ogk.h., Katrínar
Jónsdóttur, ættfoður Hörgsholts-
ættarinnar, Magnússonar.
Halldóra var dóttir HaUdórs, b. á
Dísastöðum í Flóa, Magnússonar,
b. þar, Bjarnasonar, b. á Helgastöð-
um í Biskupstungum, Einarssonar.
Halldór Guðjónsson.
Móðir Magnúsar var Guðrún Jóns-
dóttir, b. í Herdísarvík, Ormssonar.
Móðir Halldórs var Guðrún Hall-
dórsdóttir, prests á Torfastöðum,
Þórðarsonar, b. í Haukholtum, Hall-
dórssonar. Móðir Guðrúnar var
Vigdís Pálsdóttir, prests á Torfa-
stöðum, Presta-Högnasonar.
Móðir Halldóru var Sigríður
Gísladóttir, b. í Geiraholti, Þorláks-
sonar, b. á Björk, Eyvindssonar.
Móðir Sigríðar var Sigríður Símon-
ardóttir, hreppstjóra í Laugardæl-
um, Þorkelssonar.
HaUdór verður að heiman á af-
mælisdaginn ásamt fjölskyldu
sinni.
Guðrún Jónsdóttir
Til hamingju með
afmælið 1. maí
Sólveig Kristjánsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
I.ilja Sigurðardóttir,
Áifaskeiði 64, Hafharfiröi.
Lárus Beck Wormsson,
Höföabraut 4, Akranesi.
Hann er aö heiman.
Sigríður Kristjánsdóttir,
Ytra-Seljalandí, V-Eyjafjallalireppi.
Guðmundur íiuðmundsson,
Fiskhóli 5, Hornafiarðarbæ.
Guðlaugur Friðþjófsson,
Laufvangi 7, Hafnarfiröi.
Halla Kristjana Hailgrímsdótfcir,
Stigahlið 2, Reykjavík.
•'Guðmundur Vigfús Björgvinsson,
Heiöarvegi 6, Reyðarfirði.
Sveinn Þórðarson,
Jaöarsbraut 27, Akranesi
Magney Steingrimsdóttir,
Miðleiti 5, Reykjavík.
Brynjóifur Ingólfsson,
Hverfisgötu 66a, Reykjavík.
Svava Bjðrgólfs,
Nesvegi Strönd, Seltjamarnesi. :
Sigurlin Arnadóttir,
Hástetnsvegi 50, Vestmannaeyjum.
Guðmunda Eyjólfsdóttir,
Ljósheimum 4, Reykjavík.
Hreiðar Margeirsson,
Hólabergi 46, Reykjavik.
Sigurlaug Guðbjörnsdóttir,
Draumahæö 4, Garðabæ.
Jóhannes G. Bjarnason,
Jórufelli 8, Reykjavik.
Júiíus Tryggvi Steingrímsson,
Goðabraut 13, Dalvík.
Jeffrey Matthew Whalen,
Ljósheimum 11, Reykjatík. : ::
Krlendur Pálsson,
Laufási 2, Garðabæ.
Anna BjÖrk Danlelsdóttir,
Fjóluhvammi 13, Hafttarfirði.
Bjarni Sigurðsson,
Suðurbraut 18, Hafnarftrði.
Birna Elísabet Óskarsdóttir,
; Miöbraut 2, Seltjamamesi.
Friðrik Þorgeir Stefánsson,
Fagrahjalla 46, Kópavogi. .
Stefán Sigurþór Ágnarsson,
Áshamri 46, Vestmtmnaeyjum.
Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Vesturgötu 3, Reykjavík.
Sveinn Flosi .Jóhannsson,
Efra-Langholti, Hrunamannahreppi.
Guðrún Jónsdóttir frá Akurey í
Vestmannaeyjum, Skúlaskeiði 38,
Hafnarfirði, verður níræð á mánu-
daginn.
Starfsferill
Guðrún fæddist á Haga í Gnúp-
veijahreppi en ólst upp hjá fóður-
foreldrum sínum, Böðvari og Bóel á
Þorleifsstöðum á Rangárvöllum.
Eftir lát Böðvars 1917 keypti Bóel
jörðina Butru í Fljótshlíð en þangað
flutti Guðrún með skyldfólki sínu
og átti þar heima til 1924.
Eftir að Guðrún gifti sig fluttu þau
til Vestmannaeyja þar sem hún
stundaði alla almenna verka-
mannavinnu, vann m.a. í fiski og
við uppskipun.
Samhliða heimihsstörfunum og
uppeldi barna og bamabarna stund-
aði hún svo saumaskap en hún
lærði sauma hjá Guðlaugi í Taui og
tölum sem þá var til húsa við Lækj-
argötuíReykjavík.
Fjölskylda
Guörún giftist 1925 Ara Markús-
syni, f. 31.5.1900, d. 18.3.1972. Hann
var sonur Markúsar Gíslasonar, b.
í Valstrýtu í Fljótshlíö, og Sigríðar
Aradóttur húsfreyju.
Börn Guðrúnar og Ara eru Elías,
f, 1924, verkstjóri hjá Hafnarfjarð-
arbæ, kvæntur Guðrúnu Jónsdótt-
ur og eiga þau þrjú börn og níu
barnaböm; Ester, f. 1925, d. 1926;
Ester Anna, f. 1927, húsmóðir í
Reykjavík og á hún átta börn og
tuttugu og sjö ömmu- og langömmu-
börn; Helgi, f. 1928, d. s.á.; Emil
Karvel, f. 1931, auglýsingateiknari í
Hafnarfiröi, kvæntur Guörúnu Ge-
orgsdóttur og á hann fimm börn og
níu barnabörn; Hörður, f. 1932,
framkvæmdastjóri í Grindavík,
kvæntur Sigurlaugu Gröndal og á
hann fjögur böm og átta bamabörn.
Núlifandi afkomendur Guörúnar
eru því orðnir sjötíu og sjö talsins.
Systkini Guðrúnar, samfeðra, eru
Sigurgeir, búsettur í Kópavogi; Ás-
dís, býr á Selfossi; Svanhildur, bú-
sett á Selfossi.
Systkini Guðrúnar, sammæðra,
eru Gunnar Haraldsson, b. á Bálka-
stöðum II á Hrútafirði; Óskar Har-
aldsson, búsettur á Hellu.
Foreldrar Guðrúnar voru Jón
Böðvarsson og Guðfinna Jóseps-
dóttir.
Ætl
Jón var bróðir Sveins, fóður
Magnúsar L., formanns VR, og
þeirra bræðra. Jón var sonur Böð-
Guörún Jónsdóttir.
vars, b. á Þorleifsstöðum, Jónsson-
ar, b. þar, Þorvaldssonar. Móöir
Böövars var Ingibjörg Böðvarsdóttir
frá Reyðarvatni, Tómassonar.
Móðir Jóns Böðvarssonar var Bóel
Sigurðardóttir, Eyjólfssonar, Arin-
bjarnarsonar frá Múlakoti í Fljóts-
hlíð.
Guðrún tekur á móti gestum í
Haukahúsinu mánudaginn 1.5. milli
kl. 16.00 og 19.00.
Slml
568 3841
Qkuskóli
Islands
Sími
568 3841
Meirapróf - aukin ökuréttindi
Síðasta námskeið vetrarins hefst fimmtudaginn
4. maí kl. 18.00
Verð kr. 95.000
stgr.
Innritun stendur yfir. Nánari upplýsingar í síma 568 3841
••
Greiðslukjör
Qkuskóli
Islands
Öll námsgögn,
prófgjöld og æfingatímar
innifalin í verði
Dugguvogi 2, 104 Reykjavík, Sími 568 3841