Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1995, Síða 22
42
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
Afrnæli
Regína Stefnisdóttir
Regína Stefnisdóttir, framhalds-
skólakennari og hjúkrunarfræðing-
ur, Sogavegi 134, Reykjavík, er sex-
tugídag.
Starfsferill
Regína fæddist á Seyðisfirði og
ólst þar upp að stórum hluta hjá
Sigurði Sigfússyni landpósti og hans
fjölskyldu. Hún lauk gagnfræða-
prófl frá Eiðaskóla 1950, hjúkrunar-
prófi frá Hjúkrunarkvennaskóla ís-
lands 1959, ríkisskráningarprófi í
Perth í Ástraliu 1969, ríkisskráning-
arprófi í Austin í Texas í Bandaríkj-
unum 1972, stundaði nám við MH
til 1974, laukhjúkrunarkennara-
prófi frá KHÍ1980, stundaði nám-
skeið í hjúkrun við University of
Rhode Island í Bandaríkjunum 1985,
námskeið í tölvunotkun áverksviði
hjúkrunarfræðinga við HÍ1985 og
lauk prófi í hj úkrunarfræði BS við
HÍ1987.
Regína var yfirhjúkrunarkona við
Sjúkrahús Seyðisfjarðar 1959-61,
stundaði barnahjúkrun við Care-
Medico hjálparstofnun, Hospital
d’Beni Messous, Cheragas í Alsír
1962-63, var hjúkrunarkona við
Landspítalann 1963-64, yfirhjúkr-
unarkona við Sjúkrahús Seyðis-
fjarðar 1964, hjúkrunarkona við
slysadeild Borgarspítalans 1965-66,
við Landakotsspitaía 1967, við
Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur
1966-69, við Royal Perth Rehabiht-
ation Hospital Shenton Park í Perth
í Ástralíu 1969-71, við Cromane
Perth 1971, við Lady Davidson Reha-
bihtration Hospital 1972, Scott and
White Memorial Hospital and Clinic
Temple í Texas í Bandaríkjunum
1972-73, við Blóðbankann í Reykja-
vík 1973,1974-76 Og 1978-79, Klepps-
spítalann 1974, Heilsugæslustöð
Kópaskers 1976-78, var sviðsstjóri
heilbrigðissvið viö FB1991-92 og
Til hamingju með afmælið 18. maí
85 ára
GuðfinnaK, Guðmundsdóttir,
Hófgerði 2, Kópavogi.
75 ára
Friðrik Jónsson,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfiröi.
Kristín Ingvarsdóttir,
Jöldugróf 20, Reykjavik.
Þuriður Sigurmundsdóttir,
Brekkustig 1, Vesturbyggð.
Ámý Ingibj örg Filippusdóttir,
Heiðmörk 51, Hveragerði.
Þorgrímur Októsson,
Bjargartanga 7, Mosfellsbæ.
Leifur Dungai,
Rauðagerðí 47, Reykjavík.
Ægir Frímann Eiríksson,
Steinagerði 7, Húsavík.
GuðrúnJóhannsdóttir,
Langholti 26, Akureyri.
70ára
40 ára
Jón Eyjólfur Jónsson,
Rauðagerði 22, Reykjavík.
60 ára
Nína Ema Eiriksdóttir,
Vitastíg 18, Reykjavík.
Guðbjörg Benjam ínsdóttir,
Bláhömrum 4, Reykjavík.
Gunnar Gunnarsson,
Klifagötu 14, Öxarfjaröarhreppi.
Sigurást Klara Andrésdóttir,
Bólstað, Ásahreppi.
50 ára
WHliaro R. Amfinnsson,
Skólastíg 14 A, Stykkishólrasbæ.
Kristín Friðriksdóttir,
Garðaholti 3 C, Fáskrúðsfirði.
Þórey Valdimarsdóttir,
Lindarbyggð 16, MosfeUsbæ.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Langsstöðum, Hraungerðishreppi.
Erla Sóiveig Einarsdóttir,
Klyfjaseli 23, Reykjavík.
Sigurlina Sigurbjörnsdóttir,
Ægisgötu 13, Stykkishólmsbæ.
Jórunn Anna Guðjónsdóttir,
Ásenda 19, Reykjavík.
Guðrún Hrefna Reynisdóttir,
Álagranda 12, Reykjavík.
Margrét Eyrún Reynisdóttir,
Þingási 28, Reykjavík.
Ágústína I. Guðmundsdóttir,
Austurgötu 9, Stykkishólmsbæ.
Oddný Guðbjörg Leif^dóttir,
Tjarnargötu 28, Keflavík.
Baidvin Páli Óskarsson,
Gnoðarvogi 34, Reykjavík.
Yngvi Þorsteinsson
Yngvi Þorsteinsson, húsvörður við
Dvalarheimilið Lund á Hellu, til
heimilis að Dynskálum 1, Hellu, er
sextugurídag.
Starfsferill
Yngvi fæddist í Drangshlíðardal
undir Austur-Eyjafiöllum. Hann
lauk námi í húsasmíði, er húsa-
smíðameistari og hefur auk þess
verið vinnuvélstjóri.
Fjölskylda
Yngvi kvæntist 23.12.1960 Guð-
laugu Sæmundsdóttur, f. 24.10.1939,
starfsmanni við leikskóla. Hún er
dóttir Sæmundar Úlfarssonar og
Guðlaugar Einarsdóttur.
Dætur Yngva og Guðlaugar eru
Guðlaug Yngvadóttir, f. 31.10.1967,
starfsmaður við leikskóla en maður
hennar er Einar I. Magnússon, um-
boðsmaður Olís á Hellu, og er sonur
þeirra Magnús Yngvi Einarsson, f.
1.7.1992; Þorbjörg Yngvadóttir, f.
22.2.1973, nemi; Elín Yngvadóttir,
f. 3.1.1975, nemi.
Yngvi Þorsteinsson.
Systkini Yngva eru Jón D. Þor-
steinsson verkfræðingur og Erla
Þorsteinsdóttir húsmóðir.
Foreldrar Yngva: Þorsteinn Jóns-
son, f. 13.1.1912, húsasmiður og
bóndi í Drangshlíðardal, og Þor-
björg Guðjónsdóttir, f. 8.10.1905, d.
1970, húsfreyja.
Yngvi er aö heiman á afmælisdag-
inn.
kennir þar enn, lektor við Háskól-
ann á Ákureyri 1990-91, var hjúkr-
unarstjóri Geðdeildar Landsspítal-
ans á Kleppi 1993-94 og sinnir því
starfi nú af og til á næturvöktum.
Regína annaöist stundakennslu
við Nýja hjúkrunarskólann 1974, við
Hj úkrunarskóla íslands 1979, ann-
aðist námskrárgerð fyrir Land-
læknisembættið vegna námsbraut-
ar á framhaldsskólastigi fyrir
sjúkraflutningamenn og öryggis-
verði 1988 og stundakennslu við
Nýja hjúkrunarskólann 1988 og
1989.
Regina sat í skólastjórn FB í tvö
ár, sat í skólaráði FB í tvö ár, í
Tryggingaráði í eitt ár og í stjóm
Náttúrulækningafélags íslands og
Heilsustofnunar NLFI1988-93.
Fjölskylda
Regína giftist 3.7.1957 Elíasi Valdi-
mar Ágústssyni, f. 17.11.1932, starfs-
manni Skeljungs hf. Hann er sonur
Ágústs Elíassonar frá Æðey og Val-
gerðar Kristjánsdóttur frá Súðavík.
Systkini Regínu eru Þóra S. Rhoa-
des GiU, f. 16.10.1937, tannsmiður í
Michigan í Bandaríkjunum; Hrönn
Thomton, f. 28.12.1938, meinatækn-
ir í Chicago í Bandaríkjunum; Anna
Nína, f. 27.10.1946, starfsmaður hjá
Skeljungi hf. í Reykjavík; Sigfríður
Fanný, f. 27.3.1948, bankafulltrúi við
Landsbankann í Reykjavík; Hug-
rún, f. 26.7.1952, bankafulltrúi hjá
SPRON í Reykjavík; Auður Berg-
lind, f. 18.6.1954, skrifstofumaður í
Reykjavík; Runólfur Stefnir, f. 23.5.
1956, d. í júní 1993, iðnhönnuður
BFA; Valur Jóhann, f. 27.1.1959,
sölumaður hjá A. Karlsson í Reykja-
vík.
Foreldrar Regínu voru Stefnir
Runólfsson, f. 27.5.1913, d. 4.3.1987,
múrarameistari á Seyðisfirði, í
Kópavogi og í Ólafsvík, og Jóhanna
Regína Stefnisdóttir.
Methúsalemsdóttir, f. 20.11.1917, d.
8.10.1986, húsmóðir og síðar hótel-
haldari.
Regína verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Andlát
Jóhanna Sveinsdóttir
Jóhanna Sveinsdóttir, bókmennta-
fræðingur og rithöfundur, sem bú-
sett var í París, lést af slysförum í
Frakklandi þann 8.5. sl. Hún verður
jarðsungin frá Langholtskirkju í
dag kl. 15.00. Jarðsett verður í Foss-
vogskirkjugarði.
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Reykjavík 25.6.
1951. Hún lauk stúdentsprófi frá MH
1971, prófi í ensku og latínu við HÍ
1972,2. stigi í frönsku fyrir útlend-
inga við Diplome d’études francai-
ses í Montpellier 1973, BA prófi í
íslensku með latínu og ensku sem
aukagreinar við HÍ1979, fyrri hluta
doktorsprófs í bókmenntafræði við
Universite de Provence 1980 og var
að ljúka magistersritgerð í ísiensk-
um og frönskum bókmenntum er
húnlést.
Jóhanna stundaði íslensku-
kennslu við MT, MÍ og MH með hlé-
um árin 1972-91, var blaðamaður
um árabil og annaðist prófarkalest-
ur fyrir ýmsa aðila um langt skeið.
Eftir Jóhönnu voru gefnar út við-
talsbækur og matreiðslubækur, bók
um breytingaskeið kvenna og
ljóðabækur auk þess sem hún þýddi
fjölda skáldsagna, ljóða, bamabóka
og unghngabóka úr frönsku og
ensku.
Hún bjó til útgáfuýmis bók-
menntaverk, gömul og ný, sem ætl-
uð eru til kennslu í íslensku í gmnn-
og framhaldsskólum. Um skeið sá
hún um bókmenntagagnrýni fyrir
Ríkisútvarpið og DV, Tímarit Máls
og menningar, Helgarpóstinn og
fleiri. Jóhanna skrifaði einnig fiölda
greina fyrir blöð og tímarit og ann-
aðist þáttagerð fyrir Ríkisútvarpið.
Eftirlætisviðfangsefni Jóhönnu í
fiölmiðlum var jafnan matargerð.
Síðustu misserin sökkti hún sér æ
meir í heimspeki og leyndardóma
þeirrar Ustar.
Jóhanna bjó lengst af í Reykjavík.
Um skeið dvaldi hún á Ítalíu og
nokkra vetur í Frakklandi á náms-
árum sínum. Frá því í byrjun árs
1993 var hún búsett í París.
Fjölskylda
Dóttir Jóhönnu er Álfheiður
Hanna Friðriksdóttir, f. 16.4.1970,
Jóhanna Sveinsdóttir.
nemi í píanókennaradeild og söng
við Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Bræður Jóhönnu era Hjalti Jón
Sveinsson, f. 5.3.1953, skólameistari
að Laugum í Suður-Þingeyjasýslu
og Óttar Sveinsson, f. 14.10.1958,
blaðamaður DV og rithöfundur.
Foreldrar Jóhönnu era Sveinn B.
Hálfdanarson, f. 28.8.1927, vélstjóri,
búsettur í Reykjavik, og k.h., Gerða
R. Jónsdóttir, f. 9.2.1930, húsmóðir.
Tage Ammendrup
Tage Ammendrup dagskrárgerðar-
maður, Háaleitisbraut 87, Reykja-
vík, lést á Borgarspítalanum aðfar-
amótt 9.5. sl. Hann verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju í dag
kl. 13.30.
Starfsferill
Tage fæddist í Reykjavík 1.2.1927
og ólst þar upp. Hann stundaði tón-
hstarnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík 1945-50, fiðlunám hjá
Birni Ólafssyni og fleiram, tón-
fræðinám hjá dr. Victori Urbancic
ogKarli O. Runólfssyni, stundaði
námskeið vegna starfa við ríkissjón-
varpið hjá danska sjónvarpinu
1965-66, BBC1958 og 1966 og dvaldi
um skemmri tíma við hhðstætt nám
í New York og Svíþjóð.
Tage var kaupmaður á áranum
1943-64, starfrækti jafnframt ís-
lenska tóna sem gáfu út íslenskar
hljómplötur 1948-64 og gafútís-
lenskar nótur 1945-60. Hann var
þáttagerðarmaður við ríkisútvarpið
1945-46 og 1962-64 og var dagskrár-
gerðarmaður við ríkissjónvarpið frá
1965 og fuhtrúi dagskrárstjóra
1970-86.
Tage var ritstjóri og útgefandi
tímaritanna Jazz 1947-48 og Musica
1948-50, samdi fiölda leikþátta og
skrifaði greinar í blöð og tímarit.
Hann var stofnandi Jazzklúbbsins
1947, sá um tónleikahald erlendra
hstamanna 1950-55, stjómaði kaba-
rettum íslenskra tóna 1950-59, sat í
leiklistarráði um árabil og ýmsum
nefndum.
Fjölskylda
Eftirlifandi eiginkona Tage er
María Magnúsdóttir Ammendrap,
f. 14.6.1927, kaupmaður. Hún er
dóttir Magnúsar Helgasonar skrif-
stofustjóra og Magnínu J. Sveins-
dótturhúsmóður.
Börn Tage og Maríu era Páll Jörg-
en, f. 30.9.1947, svæfingalæknir við
Borgarspítalann, kvæntur Guðrúnu
Ammendrap hjúkranarfræðingi og
eiga þau saman eina dóttur auk þess
sem Páll á þij ú böm með fyrri konu
sinni, Þórdísi Hallgrímsdóttur
hjúkranarfræðingi sem er látin;
Áxel Tage, f. 1.10.1952, blaðamaður
og fiölmiðlafræðingur, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Guðbjörgu
Benediktsdóttur húsmóður; María
Tage Ammendrup.
Jane, f. 13.12.1962, sálfræðingur í
Reykjavík, gift Ólafi Hermannssyni
tæknifræðingi og eiga þau einn son.
Systir Tage var Jane Ammendrap,
f. 14.1.1934, d. 14.6.1935.
Foreldrar Tage vora Povl Chr.
Ammendrap, f. 7.2.1896, d. 12.11.
1978, klæð- og feldskeri og kaupmað-
ur í Reykjavík, og María S. Amm-
endrup, f. 14.9.1903, d. 30.6.1975,
kaupmaður.