Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 LAUGARDAGUR 3. JUNI 1995 37 Þjálfari sem aldrei gefst upp: Þaö er keppnis - andi í mér - segir Þorbjöm Jensson, nýr landsliðsþjálfari í handbolta „Má ég ekki bjóöa ykkur upp á kaffl. Ég er búinn að hella upp á enda segir konan míri að það sé eina sem ég geti í heimilisstörfunum," sagði nýráöinn landsliösþjálfari í hand- bolta, Þorbjöm Jensson, þegar helg- arblaðið heimsótti hann á heimili hans í Þingásnum í vikunni. Þor- bjöm var þá nýkominn heim frá því að kveðja vinnufélaga sína til margra ára á Landspítalanum þar sem hann hefur starfaö sem rafvirki. „Viö for- um alltaf saman út að borða í hádeg- inu þegar einhver hættir og þá splæsa þeir sem eftir sitja. Ég fer í leyfi í tvö ár og þeir sögðu að ef ég kæmi fyrir þann tima yrði ég að end- urgreiða matinn," sagði hann og hló. Það var létt yfir þjálfaranum enda spennandi tími framundan. Hann segist þó sakna spítalans en þar hef- ur hann starfað meö smáhléum frá árinu 1980. „Við erum tíu rafvirkjar sem störfum á Landspítalanum og erum nánast í öllu. Ég hef verið mik- ið í að leggja tölvulagnir en bylting á því sviði var að hefjast þegar ég hóf störf þarna. Það má segja að maður hafi þróast með henni því við erum núna farnir að endumýja lagn- ir sem við lögðum fyrir fimmtán árum. Einnig þurfa rafvirkjarnir að gera við tölvur og tæki. Það er alltaf verið að færa, breyta og bæta. Ég hugsa að fólk geri sér enga grein fyr- ir hversu mikil starfsemi þarna er fyrir utan hina eiginlegu hjúkrun. Maður þekkir orðið hvern krók og kima og vinnustaðurinn er manni kær að mörgu leyti.“ Framtíð eftir handboltann Þorbjöm hlakkar þó til að hefjast handa með landsliðinu í handbolta. „Maður gerir sér þó grein fyrir að handboltinn er ekki það sem maöur hfir af til eilífðar. Ég legg alltaf áherslu á það við ungu strákana að þeir mennti sig samfara íþróttinni. Það er auðvitað hægt að fá heilmikið út úr boltanum en menn verða að gera sér grein fyrir að það er til fram- tíö þegar handboltinn er búinn. Þá tekur eitthvað annað við. Stundum getur spennandi leikur rekist á við próflestur en ég brýni það ávallt fyr- ir strákunum að prófin séu mikil- vægari." Þorbjöm, eða Tobbi, eins og hann er kallaður, lærði rafvirkjun á sínum tíma hjá Slippfélaginu á Akureyri. Hann er engu að síður fæddur og uppalinn í Reykjavík. „Upp úr 1970 flutti ég til Akureyrar en ég hafði verið í brúarvinnu þar á sumrin. Ég hafði þá lokið fyrsta og öðrum bekk í Iðnskólanum og var óráðinn með hvað mig langaði að læra. Ég var í brúarvinnu fram á haust við Glerár- brú. Við tókum þátt í firmakeppni fyrir Vegagerð ríkisins sem varð til þess að Þórsarar sáu mig og fengu mig til að spila með sér. Eg kynntist konunni minni, Guðrúnu Kristins- dóttur, á Akureyri og við stofnuðum þar heimili. Þá fór ég aö læra raf- virkjun og kláraði Iðnskólann. Lífið snýst um boltann Árið 1977 fluttum við til Reykjavík- ur því ég hafði ákveðið að læra út- varpsvirkjun og stundaði það nám í eitt og hálft ár. Um sama leyti byrj- aði ég í landsliðinu og þá stóð ég frammi fyrir því að þurfa að velja á milli. Það vom stór og mikil verkefni framundan meö landsliðinu en skólastjóri Iðnskólans gerði kröfu um aö annað hvort stundaði ég skól- ann eða handboltann. Ég ákvað að velja handboltann því ég taldi mig ekki eiga svo mörg ár í honum, hins vegar væri nægur tími síðar á ævinni til að ljúka útvarpsvirkjuninni. Ég sé ekki eftir að hafa valið handbolt- ann en sú grunnmenntun sem ég fékk í útvarpsvirkjuninni hefur komið að góðum notum á Landspíta- lanum. Ég er búinn að vera í handboltan- um síðan ég var ellefu ára og nú er ég að verða fjömtíu og tveggja, ég er búinn að fá óhemjumikið út úr íþróttunum. Þetta hefur verið mitt líf alla tíð. Auk þess hefur allur minn tími miðast við æfingar og leiki." „Ég komst strax i liðið og var siðan valinn sem nýliði í landsliðið. Þá var áfanga náð sem mig dreymdi um en sagði engum frá,“ segir Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari sem náð hefur miklum árangri með Valsliðið á undanförnum árum. Beið ekki eftir starfinu Tobbi þvertekur fyrir að hann hafi verið að bíöa eftir að taka við þjálfun- inni á landsliðinu, slíkt hafi ekki hvarflað aö sér. „Ég gerði mér auð- vitað grein fyrir að ef landsliðinu gengi ilia yrði tæpast grundvöllur fyrir Þorberg Aðalsteinsson að halda áfram og þá yrði ég einn af þeim sem kæmu til greina. Ég var búinn að finna það hjá öllum og það er ekkert launungarmál. Án þess að ég sé að monta mig þá var ég búinn að ná ákveðnum árangri meö Valsliðið. Ég náði einnig ágætisárangri í Svíþjóð þegar ég kom liðinu úr fyrstu deild í úrvalsdeildina. Mér þykir því rétt- lætanlegt að ráða mig í þetta starf núna. Einnig hagaði því þannig til að ég var ekki búinn að gera nýjan samning við Val en hann rann út núna í vikunni. Það er keppnisandi í mér og flestir stefna ljóst eða leynt að því aö ná lengra." Draumaáfanga náð Þegar Tobbi flutti í bæinn frá Ak- ureyri vildu mörg lið fá hann til sín. Hann segist þó ekki hafa getað hugs- að sér annað lið en Val. „Ég var upp- alinn í Val og þar voru kunningjar mínir. Reyndar vöruðu mig margir við þar sem sex landsliðsmenn voru í Val á þeim tíma. Keppnisandinn í mér dró mig þó áfram og ég var ákveðinn í að reyna. Ég komst strax í hðið og var síðan valinn sem nýhði í landshöið. Þá var áfanga náð sem mig dreymdi um en sagði engum frá. Síðan lenti ég í meiðslum í kringum 1981 og var þá að hugsa um að hætta í landsliðinu en þá kom Bogdan og lagði hart að mér að halda áfram. Hann gerði mig að fyrirhða og þar með var ég orðinn fastur aftur. Það var mjög skemmtilegur tími enda spilaði ég með landshðinu til ársins 1987 er ég sneri mér að þjálfuninni. Öll þessi ár sem ég hef þjálfað Val hafa orðið skipti á mönnum og hðið er aldrei eins frá ári til árs. Eitt árið urðu miklar breytingar á hðinu og þá lentum við í niunda sætinu en það ár lærði ég mest - maður má aldrei gefast upp. Árið eftir var hðiö oröið mjög gott og vann þá aht sem hægt var að vinna en þá hættu þrír lands- hðsmenn, Geir Sveinsson, Jakob Sig- urðsson og Valdimar Grímsson. Þá héldu allir að við myndum hrynja aftur en ungu strákamir voru famir að eldast og þroskast og við höfum haldið íslandsmeistaratithnum. Þetta hefur veriö gífurlega skemmti- legur tími, mikih skóh fyrir mig og strákana.“ Engar breytingar á liöinu Þorbjörn sagðist ekki ætla aö breyta landshðinu í handbolta. „Það verður að keyra á sama hópi. Þessir strákar, sem voru í landshðinu á HM, verða í Evrópukeppninni. Það er ekki um neitt annað að ræða. Mér finnst það vera siðferðileg skylda þeirra að vera með. Við höfum lítinn tíma og því veröur ekki hægt að byggja upp nýtt hð. Við verðum að gera okkar besta og ná fyrsta eða öðru sætinu í riðlinum og eftir það, um mánaðamótin nóvember/des- ember, getur uppbygging hafist. Þá verðum við búnir að tryggja okkur sæti í Evrópukeppni félagshða sem verður í byijun júní ’96 og þaö er líka farseðilhnn á Japan 1997. Þá myndi ég vilja byggja upp lið sem myndi leika þar,“ sagði Þorbjöm. Vantar styrkinn Eins og aðrir íslendingar fylgdist hann vel með leikjunum á HM og hefur sínar skoðanir á þeim. „Helsti munurinn á okkar hði og öðrvm var hversu mikhl styrkur er að baki hin- um liðunum. Þá meina ég að hkam- legur styrkur virðist vera meiri. Ég vh fá félagsþjálfara í samstarf með mér því landshðsþjálfari gerir ekki aht. Leikmennimir era meirihlut- ann af þjálfunartímabilinu hjá fé- lagsþjálfaranum og þess vegna fer mikh uppbyggirig fram þar. Ahir reyna að gera sitt besta en viö verð- um að leggja á það áherslu að menn séu sér meðvitandi um þetta. Við þurfum meiri styrk." Æfingar ellefu mánuöi ársins Margir halda að handbolti sé bara vetrarsport og leggist af yfir sumar- tímann. Þorbjöm segist hafa þjálfað Valshðið ehefu mánuði á ári. „Eg var aldrei minna en fimm sinnum í viku. Þegar dehdin endar á vorin og fram í júh er mikhvægasti tíminn í upp- byggingu. Þá tökum við lyftingar og förum gegnum tækniæfingar." Þegar Þorbjöm var spurður hvort menn yrðu ekki þreyttir á þessum endalausu æfinguni sagði hann það ekki vera. „Maður reynir aö hafa þetta skemmtilegt og þá meina ég félagslega. Ég reyni að skapa aðstæö- ar sem eiginkonumar taka þátt í og það er mjög mikhvægt. Það er ekki hægt fyrir neinn mann að stunda íþróttina af krafti ef eiginkonan er á móti því. Við höfum farið saman í ferðalög og ætlum t.d. 17. júní inn í Þórsmörk. Einnig er fyrirhugað að fara í vélsleðaferð á Vatnajökul um miðjan júlí. Á vetuma reynum við ahtaf að gera eitthvað saman og í fyrra fómm við í tjaldferð á Snæfehs- nes, fómm á vélsleða á Snæfehsjökul og bátsferð um Breiðafjörð. Ég vona að ég geti gert eitthvað þessu líkt með landshðinu." Mikill fjallamaður Þorbjöm er mikhl útivistarmaður og hefur mikið dálæti á fjallaferðum. Hann hefur ferðast vítt og breitt um landiö en hann á bæði jeppa og tjald- vagn til slíkra ferða. Hann segist bíða eftir vorinu til að komast á fjöll. „Maður hefur ekki tíma fyrir áhuga- mál utan handboltans yfir vetrar- mánuðina en á sumrin stunda ég ferðalög af miklum kráfti. Ég hef komist í að gista í tjaldi í 32 nætur yfir eitt sumar en ég er að vonum Þorbjörn er mikill útivistarmaður og hefur dálæti á fjallaferðum. Hér er hann ásamt syninum, Fannari Erni, 14 ára, sem hefur erft handboltaáhuga föður sins. DV-myndir Brynjar Gauti mjög ósáttur við hversu dýrt það er að tjalda hér á landi. Ef fjögurra manna fjölskylda fer í tjaldferðalag um landið í einn mánuð er það dýr- ara fyrir hana en að leigja fjögurra herbergja íbúð í Reykjavík. Ég kvart- aði einu sinni yfir þessu th Ferðafé- lagsins en þar var mér tjáð að íslend- ingar færu ekki í svo langt tjaldferöa- lag,“ sagði Þorbjöm og brosti. „Þórs- mörkin er uppáhaldsstaðurinn og þar byrja feröalögin. Ég er að fara þangað núna áttunda árið í röð.“ Heimilið snýst um íþróttina Eiginkona Þorbjörns, Guðrún, hef- ur stutt hann í hvívetna og ekki látið sitt eftir liggja í að sameina hðið, t.d. með því að bjóöa því í mat. „Maður er í þessu starfi frá morgni th kvölds og á aldrei fri frá því. Það er mikið leitað til manns út af öllum mögtheg- um málum. Börnin mín tvö hafa líka verið á kafl í handboltanum þannig að segja má að fjölskyldan sé í þessu.“ Dóttir Þorbjörns, Kristín Hrönn, er 23ja ára og er í námi í lyfjafræði en sonurinn, Fannar Öm, er fjórtán ára. „Hann er rosalega áhugasamur í handboltanum en dóttir mín er að hugsa um að hætta núna þar sem hún er á fuhu í náminu." Þau eiga líka tíkina Goldie sem þau komu með frá Svíþjóð. Þorbjöm á ekki von á að heimhis- Ufið breytist þó hann taki við lands- liðinu. „Konan mín ætlar að halda áfram að starfa fyrir Val en þá bæt- ist starfið með landsliðinu ofan á. Við höfum alltaf unnið að þessu sam- an og það verður engin breyting á því.“ Ekki strangur Þjálfarastarfið með fuhri vinnu er þó krefjandi. Þorbjörn sagðist yfir- leitt fara út á morgnana og koma heim klukkan níu til hálftíu á kvöld- in. „Menn myndu endast betur í þjálfarastarfinu ef hægt væri að vinna minna með því.“ Þorbjöm gekk í gegnum mikinn skóla meðan hann var sjálfur í landsliðinu undir stjóm Bogdans Kowalczyck. „Ég er alltöðruvísi en Bogdan og get aldrei orðið jafn strangur og hann. En ég er ákveðinn og vh hafa ákveðna samvinnu." Það var aldrei neinn vafi hjá Þor- birni að ganga í Val þegar hann var barn. Hann fór að vísu á nokkrar æfingar hjá Víkingi, þar sem hann bjó í Stóragerðinu, en hætti þar og flutti sig yfir á Hlíðarenda þó lengra væri að fara. Að vísu bjó hann í ris- íbúð með foreldrum sínum í Barma- hhðinni sem smábarn en þá bjó Dav- íð Oddsson forsætisráðherra á neðri hæðinni hjá ömmu sinni. Þorbjörn minnist þess aö hann hafi boriö mikla virðingu fyrir gömlu konunni þar sem hún var ávaht klædd peysu- fötum. „Þetta var virðuleg kona, ró- leg og yfirveguð," sagði hann. I fyrstunni var Þorbjörn bæði í fót- bolta og handbolta. Þannig háttaði þó th að handboltinn varð honum mikhvægari þar sem hann var ahtaf sendur í sveit á sumrin. „Ég var í sveit á Auðkúlu í A-Húnavatnssýslu í ellefu sumur. Senrúlega var ég sendur í sveitina vegna þess hversu fyrirferðarmikih ég var - það þurfti að hvíla mömmu.“ Ekki sá liprasti Sagt er að Þorbjörn hafi komist áfram í íþróttinni vegna ákveöni sinnar og hann þrætir ekki fyrir það. „Ég var nú ekki sá hprasti sem th var en lagði mig allan fram. Ég get alveg viðurkennt að ég var ekkert æöislega flinkur en ég hataði að tapa og það fleytti mér áfram. Ég lagði mig hundrað prósent fram í íþrótt- inni og geri sömu kröfu th annarra. Leikmenn verða að ná tökum á sjálf- um sér og vera með fulla einbeitingu í leik. Maður getur th dæmis breytt skotsth hjá sér með því að nota und- irmeövitundina. Það hef ég upplifað sjálfur," sagði hinn nýi landsliðs- þjálfari, fuhur thhlökkunar að takast á við hið nýja starf og ekki síður að fá kærkomið tækifæri á næstu mán- uöum th að ferðast um fjallvegi landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.